
Advertise on podcast: Fotbolti.net
Rating
4.5from
This podcast has
1992 episodes
Language
IcelandicPublisher
Fotbolti.netExplicit
No
Date created
2016/03/18
Latest episode
2026/11/18
Average duration
-
Release period
2 days
Description
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Unlock Fotbolti.net podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Social media
Check Fotbolti.net social media presence
Podcast episodes
Check latest episodes from Fotbolti.net podcast
38 umferðir - Þú býrð ekki til kjúklingasalat úr kjúklingaskít
2026/11/18
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir landsleikjahlé til að undirbúa hlustendur fyrir 11. umferð. Einar tæknimaður frá Livey kynnti nýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Innkastið - Lúxus landsliðsgluggi og takk Aron
2026/11/16
Landsliðsútgáfa af Innkastinu. Ísland er komið aftur upp í B-deild Þjóðadeildarinnar og goðsögnin Aron Einar Gunnarsson kvaddi í frostinu á Laugardalsvelli.
U21 landsliðið tapaði á grætilegan hátt í Grikklandi og EM draumurinn er úti.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Thule jólabjór (léttöl) og Eimskip bjóða upp á þáttinn.
Útvarpsþátturinn - Gauja Þórðar minnst eftir fimm stjörnu frammistöðu í Búlgaríu
2026/11/14
Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri þennan laugardaginn og fara yfir allt það helsta.
Guðjón Þórðarson er fallinn frá. Hans er minnst í þættinum.
Hringt er til Búlgaríu þar sem Ísland vann 5-0 stórsigur í gær og leikurinn verður gerður upp. Elvar Geir Magnússon og Arnar Gunnlaugsson á línunni.
Farið er yfir fréttir vikunnar, bæði hér heima og úti. Mauricio Pochettino er að taka við Manchester United og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson ræðir um þá ráðningu.
Beint frá Búlgaríu - Skyldusigur gegn buguðum Búlgörum
2026/11/12
Sérstakur aukaþáttur frá Plovdiv í Búlgaríu þar sem Ísland mun mæta heimamönnum. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Páll ræddu um komandi landsleik og aðrar fréttir úr boltanum.
Þá er spilað viðtal sem Sæbjörn tók við Andra Lucas Guðjohnsen.
Thule léttöl og Eimskip bjóða þér upp á þáttinn.
38 umferðir - Wayne Gretzky þekkir ekki Thierno Barry
2026/11/11
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu til að kryfja 10. umferð og gefa hlustendum góð ráð farandi inn í landsleikjahléið. Einar tæknimaður frá Livey kynnti splúnkunýja grafík til leiks og því ærin ástæða til að taka þennan þátt í mynd.
Beint frá Benidorm - Horfast í augu við mistökin
2026/11/09
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru mættir til Spánar þar sem íslenska landsliðið býr sig undir landsleik gegn Búlgaríu sem fram fer á föstudag.
Í þessum sérstaka aukaþætti ræða þeir komandi verkefni, skoða líklegt byrjunarlið og spilað er viðtal við fyrirliðann Orra Stein Óskarsson sem tekið var á La Finca hótelsvæðinu. Landsliðsmenn tala agabrot síðasta glugga ekkert niður og horfast í augu við mistökin.
Í boltaspjallinu er víðar komið við; rætt um stjóramál Manchester United, fréttir og tíðindi úr Bestu deildinni og fleira.
Enski boltinn - Man Utd gæti fallið og Moyes í guðatölu
2026/11/08
Manchester United fer inn í landsleikjahlé í nóvember í fallsæti. Það er raunin. Á meðan er Arsenal mjög líklegt til að stinga af í baráttunni um Englandsmeistaratitilinn; þeir hafa unnið níu leiki af tíu.
Guðmundur Aðalsteinn og Haraldur Örn fara yfir helstu sögulínur eftir tíundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Everton er á flottu róli þrátt fyrir erfiðleika utan vallar en til að fara yfir það kom Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, í heimsókn í Coke stúdíóið.
Þá var farið yfir það hvaða stjórar væru líklegastir til að missa starfið í landsleikjahléinu.
Útvarpsþátturinn - Enginn í agabanni og lið fá einkunnir
2026/11/05
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur á fimmtudegi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn. Kári Snorrason er með þeim í umræðunni.
Liðin í Bestu deildinni 2026 fá einkunnir fyrir tímabilið. Rætt er um valið á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Búlgaríu og Lúxemborg í Þjóðadeildinni og spilað viðtal við Arnar Gunnlaugsson.
Hvað er Bubka Sports Lab? Hallgrímur Heimisson svarar því. Þá segir Mate Dalmay frá heimsókn sinni á Old Trafford þar sem Manchester United vann magnaðan endurkomusigur á Roma í Meistaradeildinni og ræðir um Cristiano Ronaldo sem hefur lagt landsliðsskóna á hilluna.
38 umferðir - Pálínuboð
2026/11/04
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Sindri fékk frábæran gest í fjarveru Alberts. Hann og Pálína Njarðvík (farmlifeiceland) tylltu sér í Coke stúdíóinu en Pálína er frábær fantasy spilari og hefur farið vel af stað þetta tímabilið.
Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir
2026/11/01
Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum.
Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton heldur þá áfram að koma á óvart á meðan Manchester City hefur tapað tveimur í röð.
Rætt var um þetta og margt fleira í þætti kvöldsins. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Magnús Atlason úr unglingastarfi Fótbolta.net fóru yfir málin í Coke stúdíóinu.
Útvarpsþátturinn - Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum
2026/10/31
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. október. Silly season special!
Nú eru það leikmannahræringarnar og slúðrið sem ráða ríkjum og hinn frægi þjálfarakapall í fullum gangi. Ljósin kveikt og allt á iði á skrifstofunum. Það er aðalmálið í þættinum í dag.
Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta og formaður fótboltans í Garðabænum, Halldór Orri Björnsson, kemur í heimsókn.
38 umferðir - Aldrei treysta Joao Pedro
2026/10/27
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu ásamt góðum gesti sem var enginn annar en Pálmi Freyr Hauksson fyrrum þáttastjórnandi Lélega Fantasy Podcastsins. Pálmi er ansi lunkinn Fantasy spilari og hefur farið vel af stað en deilir áhyggjum Sindra af framtíð Manchester United. Strákarnir fóru um víðan völl, ræddu 8. umferð, hvað á að gera við Joao Pedro og lögðu drög að 9. umferð.
Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið
2026/10/27
Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil.
Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins.
Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir allt það helsta.
Enski boltinn - Búið spil hjá Carrick
2026/10/25
Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst?
Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Villa eða Newcastle á betri stað?
Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guðmundsson fóru yfir allt það helsta í Coke stúdíóinu.
Innkastið - Bestu slúttað með sturlaðri lokaumferð
2026/10/24
KA féll, Aron sló markametið og Lárus Orri var látinn fara frá ÍA. Innkastið eftir lokaumferð Bestu deildarinnar. Takk fyrir tímabilið!
Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra í hljóðveri.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Fotbolti.net relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.512669676
RedHanded
RedHanded

4.959992000
Legal AF by MeidasTouch
MeidasTouch Network

4.7292862000
The Michael Knowles Show
The Daily Wire

4.930912000
The Quote of the Day Show | Daily Motivational Talks
Sean Croxton

4.9248151467
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.897071458
The Graham Allen Show
Graham Allen

4.7278982000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.7106622000
FantasyPros - Fantasy Football Podcast
iHeartPodcasts

4.858251936
Sara Gonzales Unfiltered
Blaze Podcast Network

4.6221762000
Mark Levin Podcast
Cumulus Podcast Network
