1455932966
Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Advertise on podcast: Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

This podcast has
51 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Leiknisljón
Explicit
No
Date created
2019/03/12
Latest episode
2022/05/09
Average duration
51 min.
Release period
36 days

Description

Leiknir í Reykjavík er okkar félag og Leiknisljónavarpið er staðurinn þar sem hægt er að ræða málefni félagsins hispurslaust og jafnvel heyra í leikmönnum og starfsmönnum félagsins.

Unlock Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík podcast


Leiknishofið: Róbert Arnþórsson-Sá markahæsti
2022/05/09
Róbert Arnþórsson er 3. Leiknismaðurinn til að verða vígður inn í Heiðurshöll félagsins. Róbert er markahæsti leikmaður félagsins þó hann hafi ekki náð 100 leikjum fyrir það. Hann settist niður með Snorra og ræddi sinn tíma hjá félaginu og það má með sanni segja að það hafi verið fróðleg frásögn enda hefur heilmikið vatn runnið til sjávar síðan þessi kappi var að raða inn mörkum fyrir félagið. 
Leiknishofið: Haukur og Valur Gunnnarssynir
2022/04/24
Þeir Haukur og Valur Gunnarssynir eru fyrstir inn í Heiðurshöll Leiknis (hall of fame) og voru heiðraðir með því að vera fyrstir upp á Wall of Fame vegginn í Austurbergi á fyrsta heimaleik félagsins í Bestu deildinni.  Leiknisfólk allt ætti að þekkja andlitin en í spjalli við Snorra fáum við að kynnast þeim aðeins betur og uppruna þeirra hjá Leikni ásamt föður þeirra, Gunnari Góða, sem var ekki minni Leiknismaður og fær að sitja á veggnum með þeim.  Til hamingju með þennan heiður þið miklu Leiknismenn. Vel að honum komnir.  #StoltBreiðholts #Heiðursmenn 
Pre-Season Spjallið með Sigga 2022
2022/04/15
Hið árlega spjall við Sigga í upphafi leiktíðar er hér komið fyrir ykkur Leiknisljónin að háma í ykkur. Við köfuðum djúpt í undirbúninginn og þá breytingu á nálgun sem átt hefur sér stað hjá félaginu til að festa sig enn frekar í sessi Bestu deildinni.  Njótið!
Farvél Ernir Bjarnason
2022/03/09
Vélin brunaði úr Breiðholti og hélt suður með sjó í raðir Keflvíkinga í haust. 4 ár að baki í röndum stoltsins okkar, leikmaður ársins 2019 og flottar minningar. Við settumst niður með kappanum og kvöddum hann formlega áður en við mætum honum tvisvar í baráttunni í Bestu deildinni.  Takk fyrir okkur Vélin! 
Sólong: Kveðjustund með Sóloni Breka
2022/03/06
Leiknisljónavarpið er snúið aftur og spennandi tímabil framundan. En fyrst kveðjum við tvo dáðadrengi sem hafa fylgt félaginu síðustu 4 ár og halda nú á  vit nýrra ævintýra. Í þessum þætti er það kveðjustund með Sóloni Breka Leifssyni sem skilaði 69 leikjum með félaginu og 29 mörkum. Okkar maður er hættur knattspyrnuiðkun aðeins 23ja ára en eins og kemur fram í spjallinu mun hann fylgja félögum sínum eftir út ferilinn þeirra á meðan hann tæklar önnur vekrefni. 
Bjarki fyrirliði og Leiknisljónin í sóttkví
2021/08/07
Einhver allra hörðustu og háværustu Leiknisljónin lentu í sóttkví eftir Fylkisleikinn og þurftu að finna sér eitthvað til dundurs allir í sitthvoru lagi. Þá var tekið upp hlaðvarp enda um ýmislegt nýtt að ræða. Sævar Atli farinn til Freysa, nýr fyrirliði sem var tekinn stuttu tali og svo bara nýjar raddir í Ljónavarpinu að láta í sér heyra varðandi núverandi tímabil og framtíðina. Þetta var tekið upp á netfundi svo gæðinn eru klárlega ekki þau sömu og venjulega en vonandi þolanleg.  Þennan þátt er líka hægt að horfa á á YouTube rás Leiknisljónanna: https://www.youtube.com/channel/UClYZ64v2YX9IIkPl-QCCZHQ
El Normale um tímabilið hingað til og allt annað
2021/06/23
Óskar Már Alfreðsson, El Normale, Domusnovakóngurinn og hvaðeina, er maðurinn sem mætti í spjall við þá Snorra og Hannes um stöðuna í deildinni, frammistöðu liðsins og umhverfi félagsins fyrir bikarleikinn gegn Val á Hlíðarenda. Óskar er ekki vanur að halda aftur af sér og skemmst er frá því að segja að þetta var snarp en skemmtilegt spjall. Njótið vel. 
Pepsi-Max Pre-season spjall við Sigga
2021/04/28
Það er komið að hinu árlega spjalli við aðalþjálfara Leiknis sem blessunarlega er Siggi Höskulds. Þegar 3 dagar eru í fyrsta leik í Pepsi-Max settist hann niður með Snorra og svaraði nokkrum spurningum um hópinn, stemninguna, taktíkina og annað slíkt. Það er skemmst frá því að segja að okkar maður er klár í bátana og tilbúinn að sokka þá sem spá liðinu umsvifalausu falli niður í Lengjudeild á ný.  #StoltBreiðholts #HverfiðKallar #SockTheWorld
Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Miðja og Sókn
2021/04/28
Þeir Juarez og Agon héldu áfram að greina hópinn með Snorra og kláruðu miðju og sókn þar sem ýmis umræðuefni komu upp eins og við var að búast. Hér eru leikmennirnir sem til tals komu. Það var bara Bandaríkjamaðurinn Máni Austmann sem skilinn var eftir útundan enda vitum við ekkert hvenær má búast við honum til baka úr NCAA ævintýrinu.  Emil Berger    1:28 Danni Finns    8:05 Vélin Ernir Bjarna    14:10 Daði Bærings    17:25 Árni Elvar  19:55 Octavio   23:40 Davíð Júlían   30:30 Shkelzen Veseli   33:25 Róbert Quental   35:10 Manga   37:35 Sólon   43:35 Gústi   47:38 Sævar Atli    52:50
Pepsi-Max leikmannahópurinn rýndur: Vörnin
2021/04/27
Þeir Juarez og Agon slógust í hóp með Snorra til að ræða allan leikmannahópinn eins og venja er orðin fyrir byrjuna tímabils. Þessir ungu menn eru nýbúnir með 2. flokkinn og spila báðir fyrir KB í sumar en þeir höfuð sitthvað að segja um þá leikmenn sem Siggi leiðir inn í bardagann í sumar. Við byrjuðum á að ræða markverði og vörn og eiga þeir þennan þátt.  Fyrir þá sem þykjast þekkja ákveðna leikmenn og þurfa ekkert að fræðast um þá, þá geta þeir skippað yfir því hér að neðan er listi yfir þá leikmenn sem ræddir voru í þessu Ljónavarpi og hvenær umfjöllun um þá hefst:  Markið: Guy Smit   3:10 Viktor Freyr    8:20 Bjarki Arnaldar   10:05 Miðverðir:  Bjarki Aðalsteins 12:57 Binni Hlö   16:30 Loftur 21:15 Dagur     24:18 Gyrðir    27:20 Ósvald    34:35 Arnór Ingi   39:15 Birgir Baldvinsson   43:15 Birkir Björns   45:40 Andi Hoti   47:05 #StoltBreiðholts #HverfiðKallar
Helgi Óttar um framkvæmdastjóraárin sín 2017-2020
2021/04/22
Helgi Óttar Hafsteinsson tók við framkvæmdastjórastól félagsins af Dodda árið 2017, þegar félagið var enn að hrista af sér fallið úr Pepsideildinni 2015. Hann skilaði félaginu svo af sér í haust með liðið nýkomið aftur upp í efstu deild og bókhaldið réttum megin við línuna. Það er stutta sagan. Helgi settist niður með Snorra til að fara yfir söguna í aðeins lengra máli. Hann tjáir sig um hlutverk Leiknis í hverfinu, ársreikninginn og hvernig hann sér sumarið fyrir sér auðvitað. 
Emil Berger um Covid og tímabilið framundan-Þáttur 36
2021/04/14
Daginn áður en eðlilegar æfingar voru leyfðar á ný og tilkynnt var að mótið myndi byrja 2 vikum síðar, settist Emil Berger, sænski miðjumaðurinn okkar, með Snorra í Austurbergi að ræða flókinn vetur að baki og spekúlera hvernig það kemur til með að hafa áhrif á tímabilið sem framundan er. Hann ræddi feril sinn, búningsklefann og margt fleira í stuttu og laggóðu innliti. 

Podcast reviews

Read Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík relevant audience podcasts


What do you want to promote?