
Advertise on podcast: Virðing í uppeldi
Rating
4.8from
This podcast has
106 episodes
Language
IcelandicPublisher
medvitadirforeldrarExplicit
No
Date created
2019/03/22
Latest episode
2026/03/20
Average duration
67 min.
Release period
62 days
Description
Þetta er hlaðvarp Meðvitaðra foreldra – virðing í uppeldi. Hér er rætt á jafningjagrundvelli um eigin reynslu, líkt og gert er á mánaðarlegum foreldramorgnum og -kvöldum. Þá bjóðum við góðum gestum til okkar sem hafa eitthvað alveg sérstakt fram að færa um virðingarríkt uppeldi.
Unlock Virðing í uppeldi podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Virðing í uppeldi podcast
106. Mataruppeldi og að fyrirbyggja vanda
2026/03/20
Hér er á ferðinni frábær þáttur um hvernig við sem foreldrar getum reynt að frá grunni hlúa að mataruppeldi barnanna okkar þannig að sem best verði komið í veg fyrir átraskanir og hvaða viðbragða er viðeigandi að grípa til þegar við sjáum breytingar á matarvenjum barnanna okkar.
Reynsluboltinn Elín Vigdís Guðmundsdóttir ræðir hér við Guðrúnu Ingu Torfadóttir um starf sitt hjá Sátt þar sem þeirra eigin reynsla kemur til umræðu sem og allt hitt.
105. Um uppeldi stráka með Rögnu Guðnýju
2026/02/10
Fjögurra, þriggja og tveggja stráka mæðurnar Ragnheiður Guðný, Dagný og Laufey settust saman og ræddu hvernig er að ala upp stráka. Ragna Guðný eins og hún er kölluð er aðstoðarskólastjóri í Sunnulækjarskóla í Árborg og er afar reynslumikil þegar kemur að bæði uppeldismálum sem og að ala upp strákana sína. Hvernig er best að hrósa? Hvernig má styrkja bræðrasambandið sem best? Hvernig eru erfiðu samtölin þegar þess þarf? Að auki fá hlustendur aðeins innsýn inn í hvernig Dagný og Laufey hugsa og haga uppeldi sinna stráka. Þá tala þær einnig um agamál í skólum og skjámálin — að sjálfsögðu.
104. Skjáuppeldi - nú með Skúla Braga
2026/01/15
Við höldum áfram umfjöllun okkar um skjáuppeldi.
Skúli Bragi Geirdal er sviðsstjóri hjá Netöryggismiðstöð Íslands (SAFT - Icelandic Safer Internet Center) sem er vakningarátak um örugga tækni- og miðlanotkun á Íslandi ásamt því að vera varaþingmaður á Alþingi og flutningsmaður þingsályktunartillögu um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum á síðasta haustþingi.
Skúli hefur að auki þrætt skólana bak og fyrir og talað við þúsundir barna og ungmenna um land allt og er auk þess faðir sjálfur. Í samtali Skúla við þær Birnu Almarsdóttur og Dagnýju Hróbjartsdóttur var farið ítarlega yfir sviðið svo að nú – eftir líka samtalið við Önnu Laufeyju í síðasta þætti – ættu allir foreldrar að geta verið vel með á nýjustu nótunum í þessum efnum.
103. Skjáuppeldi - Anna Laufey Stefánsdóttir
2025/12/16
Anna Laufey Stefánsdóttir kom til þeirra Birnu Almarsdóttur, Dagnýjar Hróbjartsdóttur og Guðrúnar Ingu Torfadóttur að ræða af hverju það er ekki svo góð hugmynd að láta snjallsíma í hendurnar á barni.
Anna Laufey er forritari og fjögurra barna móðir. Hlaðvarp hennar og Kristínar Sævarsdóttur, Kvíðakynslóðin, er frábært um þetta málefni. Anna Laufey hefur ástríðu fyrir því að hjálpa fólki að finna jafnvægi í stafrænum heimi og leggur áherslu á hvernig við sem samfélag getum skapað betra ó-stafrænt umhverfi fyrir bæði börn og fullorðna.
Af hverju fyrst núna? Jú, því umræðan er loksins að komast á þann stað að við förum að gera eitthvað sem samfélag í þessu.
Þetta skiptir miklu máli og við hvetjum þig til að hlusta.
Annars!
102. Grænahlíð - með börnum og fjölskyldum þeirra í liði
2025/12/09
Í þessum þætti heimsækir Kristín Björg Viggósdóttir vinnustað sinn, Grænuhlíð, og ræðir við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Öldu Pálsdóttur iðjuþjálfa um starfsemi miðstöðvarinnar og þá meðferðarnálgun sem þar er unnið eftir.
Grænahlíð er fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir 0–25 ára börn og ungmenni, þar sem þverfaglegt teymi vinnur með allri fjölskyldunni út frá áfallamiðaðri og tengslaeflandi nálgun.
Í þættinum fjalla þær meðal annars um hversu mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á hegðun barnsins heldur á barnið í samhengi við umhverfi, sögu, stuðning og tengsl. Þær ræða einnig gildi öruggra marka, aðferðina að byrja á tilfinningalegri tengingu áður en gripið er til atferlismótandi aðferða, og hvernig athygli er í raun þörf barnsins fyrir tengsl. Einnig kemur fram hvernig merki um hugrof eða ýkt viðbrögð geta vísað til áfalla sem mikilvægt er að taka alvarlega.
Að lokum deila þær praktískum ráðum fyrir foreldra, meðal annars því hversu öflug áhrif það getur haft að gefa barninu þrjú skipti á viku þar sem það fær óskipta athygli í hálftíma — til að styrkja tengsl, öryggi og vellíðan.
101. Uppeldi ungra barna ⎸Nokkur lykilatriði að mati Birnu, Dagnýjar og Laufeyjar
2025/11/11
Hvað skiptir mestu máli í uppeldi yngri barna?
Þú ert í miðju þykkninu – þetta eru árin sem reyna á svefn, þolinmæði og tengsl svo um munar. Þær Birna Almarsdóttir, Dagný Hróbjartsdóttir og Laufey Ósk ræða nokkur lykilatriði virðingarríks uppeldis þegar kemur að yngri börnum. Þær eiga allar börn undir þriggja ára – auk eldri systkina. Nokkrir hlátraskellir fengu að fylgja með, enda er Dagný húmoristinn í hópnum.
Lykilboðskapurinn? Virðingarríkt uppeldi er iðkun og gerir enga kröfu um fullkomnun eða að hætta að vera mannleg.
100. þáttur - Viðkvæmar og viljasterkar
2025/10/07
Í 100. þætti Virðingar í uppeldi fóru þær Anna Mjöll Guðmundsdóttir, Guðrún Inga Torfadóttir, Gyða Björg Sigurðardóttir, Kristín Björg Viggósdóttir og Perla Hafþórsdóttir yfir það hvernig er að vera viðkvæmar og viljasterkar mæður í grunninn og eiga jafnvel viðkvæm og viljasterk börn líka. Þar sem þetta er 100. þátturinn var líka aðeins farið yfir hvernig það hefur mótað þær að tileinka sér virðingarríkt uppeldi í öll þessi ár og eiga vináttu og stuðning hver annarrar að.
99. Unglingar
2025/01/23
Guðrún Inga Torfadóttir ræðir við Kristínu Björgu Viggósdóttur og Sólveigu Maríu Svavarsdóttur um hvernig má best efla foreldra í hlutverki sínu þegar börnin fara inn í unglingsárin.
Þetta eru árin sem heilinn fer í gegnum ferli sem má líkja við að fara í allsherjar tiltekt og gerist í gamla heilanum fyrst og fremst, randkerfinu, og færir sig síðar ofar og framar og yfir í framheilann allra síðast.
Barnið getur verið sjálfhverft og hugsar einvörðungu út frá eigin hagsmunum. Þetta er bæði frelsandi og framandi fyrir foreldrið, því skyndilega er líka rödd foreldrisins alveg fáránleg. Aðrar, nýjar raddir mun áheyrilegri. Þetta ferli er nauðsynlegt í þroskanum að sjálfstæðu lífi. Á meðan er eins gott að taka engu of persónulega.
Þegar þú upplifir síðan skapofsaköst og augnsvipi sem lýsa fyrirlitningu, barnið kemur heim og á ekki eitt orð fyrir þig um hvernig dagur þess var og virðist þurfa að leggjast í hýði og borða bara kolvetnabombur sem hljóma fáránlegar – þá megum við vita að allt þetta er mun stærri upplifun og hræðilegri oft fyrir það sjálft en okkur. Eða hvað? Það er alla vega ýmislegt sem foreldrar geta gert til að styðja við barnið sitt og upplifa í leiðinni ánægjulegra tímabil.
98. Þroski og vegferð Elsu og Kristínar sem mæður, grasrótarkonur og uppeldisfræðingar
2024/02/22
Elsa Borg Sveinsdóttir og Kristín Björg Viggósdóttir ræddu í þættinum við Guðrúnu Ingu Torfadóttur vítt og breytt um virðingarríkt uppeldi og þroskasögu sína þegar kemur að foreldrahlutverkinu og foreldraráðgjöf. Allar þrjár hafa verið vinkonur í sjö til átta ár og mynduðu félagsskapinn Meðvitaða foreldra með fleiri góðum.
Heilmikið vatn hefur runnið til sjávar frá því þær Elsa og Kristín urðu fyrst mæður fyrir nærri því einum og hálfum áratug, kynntust RIE og virðingarríka arminum og hófu nám í faginu sömuleiðis með ólíkum hætti. Við heyrum um þetta ferðalag þeirra og hvernig hefur verið að samþætta akademískan þátt uppeldisfræðanna við innsæi sitt og svo áfram vítt og breytt um foreldrahlutverkið og þroskaferlið sem það felur í sér.
----
Elsa er menntaður foreldra- og uppeldisfræðingur og jógakennari. Hún er lærdómsfús og fær aldrei nóg af því að afla sér þekkingar og hefur setið hin ýmsu námskeið og vinnustofur. Þar má nefna ígrundaðar samræður foreldra (RDPED), “polyvagal informed treatment”, “fierce self-compassion”, “the power of mindful self-compassion”, doulunámskeið, BIO TRIO (erasmus verkefni um samskipti) o.fl. Elsa starfar einnig sem verkefnastjóri þróunarverkefnis um foreldrafærni við HÍ og kennir jóga í Yogavin studio.
Kristín Björg er foreldra- og uppeldisfræðingur, iðjuþjálfi, jógakennari og með MA í dans- og hreyfimeðferð. Hún er þriggja barna móðir sem henni þykir meiri lærdómur en nokkur háskólagráða. Helstu áhugasvið Kristínar eru virðing og tengsl í uppeldi, skynúrvinnslu kenningar (e. sensory integration) og allt sem viðkemur vinnu með líkamann.
97. Eitt svefnvandamál leyst
2024/02/08
Kona á samtal við konu um hvernig á að koma á nýjum svefnvenjum og eignast kvöldin sín aftur; fyrir raunveruleikaþætti, prjónaskap eða að stara út í loftið eða í augu makans. Skiptir ekki öllu máli fyrir hvað, en meira máli skiptir að trúa því að það er hægt!
Í þetta sinn voru það vinkonurnar Birna Almarsdóttir og Guðrún Inga Torfadóttir sem rifjuðu upp hvernig gekk að gera stórar breytingar með litlu samtali á tilhögun háttatímans hjá einni frábærri stelpu sem nú arkar almennt betur sofin út í dagana sína eftir breytingarnar.
Vonandi hjálpar þessi litla umfjöllun þér að taka á einhverju sem þarf e.t.v. að breyta eða hnika til í svefnuppeldinu á þínu barni. Ef ekki, þá má benda á stóra þáttinn, nr. 50 í Virðingu í uppeldi sem fer mun nánar ofan í svefnsálmana.
96. Undirbúningur fæðingar
2024/01/25
Auður Bjarnadóttir, eigandi Jógasetursins og dásamlegur meðgöngujógakennari, kom beint úr tíma með fullan sal af verðandi mæðrum sem dönsuðu og önduðu ásamt Birnu Almarsdóttur sem á brátt von á sér. Þær ræddu við Guðrúnu Ingu Torfadóttur um undirbúning fæðingar, stuðning maka, að vinna sig í gegnum tilfinningar sem vakna á meðgöngu og góðar möntrur sem hjálpa við að sjá fyrir sér góða fæðingu.
Dásamlegt spjall sem fer í góðan sarpinn með öðrum þáttum Virðingar í uppeldi sem fjalla um fæðingar.
95. Gleðiskruddan og jákvæð sálfræði
2024/01/11
Perla Hafþórsdóttir tók á aðventunni á móti þeim Marit Davíðsdóttur og Yrju Kristinsdóttur sem saman sköpuðu Gleðiskrudduna og eru mjög virkar við að halda námskeið fyrir börn og ungmenni. Þær gáfu jafnframt út samnefnda dagbók fyrir börn að vinna með sem er mjög vel heppnuð og notuð víða.
Gleðiskruddan byggist á jákvæðri sálfræði og leggur áherslu á að efla sjálfsþekkingu og auka vellíðan og við kynnumst í þessum þætti aðeins hvernig þær hugsa þetta allt saman.
Eflandi og jákvætt upphaf hjá okkur á nýju ári í Virðingu í uppeldi!
94. Hugarfrelsi
2023/12/06
Vinkonurnar til margra ára sem stofnuðu Hugarfrelsi og hafa í um tíu ár eða meira starfað við að heimsækja leik- og grunnskóla og kenna börnum að hugleiða, sem og foreldrum á ótal námskeiðum, heimsóttu þær Dagnýju Hróbjartsdóttur og Guðrúnu Ingu Torfadóttur. Þetta eru þær Hrafnhildur Sigurðardóttir og Unnur Arna Jónsdóttir, sem saman hafa búið til auð af efni, alls konar spjöld, hugleiðslur og bækur en ekki síst kennt í eigin persónu í bekkjum vítt og breitt um landið.
Í þættinum leyfðu þær Dagný og Guðrún sér að vera ákafar (styrkleiki, fróðleiksfýsi) og spyrja út í alls konar og tala mikið (styrkleiki, tjáning og samskipti). Hrafnhildur og Unnur (styrkleiki, rósemd) biðu rólegar á meðan og svöruðu svo sem lýsti djúpri reynslu þeirra af málefnunum (styrkleiki, drifkraftur og seigla).
Við tæptum sem sagt á ýmsu í þættinum, allt frá umfjöllun um starf þeirra, meðhöndlun kvíða, svefn barna, sjálfstal, styrkleikaeflingu og foreldrahlutverkið í víðum skilningi.
Sjá hugarfrelsi.is ef þú vilt vita meira.
93. Dúlur um úrvinnslu eftir erfiða fæðingu
2023/11/23
Í þættinum fjalla þær Guðrún Björnsdóttir og Soffía Bæringsdóttir dúlur mættar að ræða erfiða fæðingarreynslu og úrvinnslu vikurnar og mánuði á eftir, eða jafnvel enn síðar. Þær fjalla fallega um þetta málefni og gott er að hlusta á þær og gera upp sína eigin fæðingarreynslu í leiðinni.
92. Ágústa Rúnars um kynslóðauppeldi
2023/11/08
Í þættinum fékk Dagný Hróbjartsdóttir Ágústu Rúnarsdóttur til sín í spjall um foreldrahlutverkið og þróun og þroska sinn í því frá því hún varð móðir fyrst, tæplega 17 ára gömul og svo aftur komin yfir fertugt. Tímarnir hafa breyst og fólkið breytist með.
Yndislegt spjall sem við mælum með!
Podcast reviews
Read Virðing í uppeldi podcast reviews
Agust Hollywood 2019/07/29
Frábært!
Algjör snilld - mæli með þessu!
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Virðing í uppeldi relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.73430782
The Ancients
History Hit

4.89140313
The Why Files: Operation Podcast
The Why Files: Operation Podcast

51088171
Middle Children
Jessie Jolles and Chris Burns

4.8265122000
Morning Wire
The Daily Wire

4.518782374
American Scandal
Audible

4.689401219
Get Sleepy: Sleep meditation and stories
Slumber Studios

4.79026375
Life is Short with Justin Long
Audible

4.714126350
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7129972
10 to Life
Annie Elise

4.76753464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford