
Advertise on podcast: Hlaðvarp Lyfjastofnunar
This podcast has
32 episodes
Language
IcelandicPublisher
LyfjastofnunExplicit
No
Date created
2019/04/02
Latest episode
2023/11/16
Average duration
23 min.
Release period
64 days
Description
Fjallað um lyf og lyfjanotkun frá ýmsum sjónarhóli
Unlock Hlaðvarp Lyfjastofnunar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Hlaðvarp Lyfjastofnunar podcast
32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán Björnsson
2023/11/16
Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
31. Um heiti lyfja - Brynjar Örvarsson
2023/09/20
Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
30. Að ferðast með lyf - Viðar Guðjohnsen
2023/07/06
Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín Henrysdóttir
2023/06/12
Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is.
Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir
28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf Þórhallsdóttir
2023/02/08
Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði.
Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ódýrari valkostur verkar á sama hátt og ávísaða lyfið, og hvernig slíkur valkostur kemur bæði sjúklingnum og samfélaginu til góða.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn Gizurarson
2022/12/21
Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn Gizurarson
2022/11/09
Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður.
Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja.
-Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir Hvannberg
2022/10/14
Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja.
Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós Reynisdóttir
2022/06/16
Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri samskiptadeildar Lyfjastofnunar fer yfir það helsta í þessum málum í þættinum.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður Zoëga
2022/03/15
Í byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til
vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin.
Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á líkamann, hvað gerir að verkum að þau slá svo mjög á sársauka og eru jafn ávanabindandi og raun ber vitni. Rætt
er við Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Sigríði Zoëga, sérfræðing í hjúkrun á verkjamiðstöð Landspítala. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna Guðmundsdóttir
2022/01/19
Til að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar.
Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda. Einn þeirra, Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir Lyfjastofnunar, segir hér frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem ráðleggur með hvaða hætti skal rannsaka lyf og bóluefni hjá börnum. -Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur Briem
2021/12/17
Fjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Podcast reviews
Read Hlaðvarp Lyfjastofnunar podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Hlaðvarp Lyfjastofnunar relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.4371061566
The Megyn Kelly Show
SiriusXM

4.888901269
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network

4.8118931000
Mind Pump: Raw Fitness Truth
Sal Di Stefano, Adam Schafer, Justin Andrews, Doug Egge

4.8102131585
Tara Brach
Tara Brach

4.541561215
Something You Should Know
Mike Carruthers | OmniCast Media

4.513841343
Strictly Anonymous Confessions
Kathy Kay

4.8292781897
Fantasy Footballers - Fantasy Football Podcast
Fantasy Football

4.62382612
Football Weekly
The Guardian

4.45387666
Two Judgey Girls
Two Judgey Girls

3.8258501152
The Viall Files
Nick Viall