1460731824
Víkings hlaðvarpið

Advertise on podcast: Víkings hlaðvarpið

Rating
★★★★★
5
from
3 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
63 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2019/04/23
Latest episode
2026/06/26
Average duration
54 min.
Release period
75 days

Description

Allt milli himins og jarðar sem tengist Víking og/eða fótbolta.

Unlock Víkings hlaðvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Víkings hlaðvarpið podcast


Hverfisfélagið eins og kirkja
2026/06/26
Í síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag. Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áður fyrr. Fyrir hvern fótboltaleik vinna tugir sjálfboðaliða tímum saman til að undirbúa allt sem þarf að undirbúa. Í síðasta þætti Meðal fólks var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag. Þátturinn var fyrst fluttur á Rás 1 og er því endurfluttur hér á hlaðvarpi Víkinga. Þökkum RÚV fyrir heimsóknina ❤️🖤
Einar Guðnason
2025/07/21
Bjarki og Hörður settust niður með Einari Guðna og ræddu fótbolta, Black Sabbath, Svíþjóð og allt þar á milli. Einar Guðnason er tók nýlega við kvennaliði Víkings og þó flestir Víkingar viti hver hann er þá vildum við aðeins kynnast honum betur. Hvað er Einar búinn að vera að gera síðustu ár? Hvaðan kemur hann og hvernig fótbolta vill hann spila? Þú einfaldlega verður að hlusta. ❤️🖤
Tómas Þór og Halldór Smári Sigurðsson
2025/03/29
Eftir áratugi í treyjunnni, 464 leiki, 2 Íslandsmeistaratitla, 4 bikara, Evrópuævintýri og ótrúlegt magn af Hamingju segjum við takk við Halldór Smára Sigurðsson. Herra Víkingur nær alls ekki utan um allt sem þú hefur gefið félaginu okkar. Takk Halldór Smári ❤️🖤
Tómas Þór og Arnar Gunnlaugsson
2025/01/18
Tómas og Arnar fara yfir 6 ár af Hamingju í Hamingjunni. Tómas spyr Arnar spjörunum úr og sýnir honum myndir frá mikilvægum augnablikum á ferli Arnars sem þjálfara Víkings. Takk fyrir allt Arnar og gangi þér vel á nýjum vettvangi. Áfram Víkingur og áfram Ísland. 🖤❤️ Lag í byrjun er eftir Futuregrapher / Árna Grétar og heitir 303 Melody flow. Mælum með að kíkja á þann frábæra listamann. ❤️
Fyrirmyndirnar okkar: Sveindís Jane Jónsdóttir
2024/06/28
Fyrirmyndirnar okkar - þáttur 6 Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Wolfsburg og íslenska landsliðsins kíkti í heimsókn í Víkings stúdíóið. Hver er Sveindís Jane? Hvernig náði hún markmiðum sínum? Hvert er uppáhalds augnablikið á ferlinum hingað til? Í hvernig takkaskóm spilar Sveindís og margt fleira! Það var sannur heiður að fá að setjast niður með Sveindísi og ræða um það sem við elskum jú öll, fótbolta.
Fólkið okkar - Arnar Gunnlaugsson
2024/03/19
Loksins náðum við í skottið á Arnari Gunnlaugssyni þjálfara meistaraflokks karla og stilltum honum upp fyrir framan hljóðnemann í Víkings stúdíóinu. Það er mjög viðeigandi að Hörður og Bjarki hafi grillað Arnar í 90 mínútur og fengu aðeins að kynnast manneskjunni Arnari Gunnlaugssyni betur. Aðeins öðruvísi viðtal en Arnar er kannski vanur, en dómur féll strax eftir viðtalið : "Strákar, þetta var helvíti gaman". Betri meðmæli fást ekki.
Fólkið okkar - Þórarinn Einar Engilbertsson
2024/03/12
Serían "Fólkið okkar" heldur áfram. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Hörður og Bjarki fengu Þórarinn Einar Engilbertsson (Tóta) í heimsókn og ræddu hvað þjálfarastarfið felur í sér og hver sýn Tóta er á þjálfun í yngri flokkunum.
Stelpurnar okkar : Gígja og Rakel
2024/03/06
Stelpurnar okkar - Season 2 - Þáttur 1 Bjarki og Hörður fengu tvo leikmenn meistaraflokks í heimsókn. Gígja Valgerður Harðardóttir var byrjuð að spila fótbolta í meistaraflokki áður en Rakel Sigurðardóttir fæddist. Farið var yfir ferilinn, hvernig er að vera Víkingur, hvernig tilfinningin var fyrir Rakel að vera í stúkunni á sjálfum Bikarúrslitaleiknum þar sem hún hélt með Breiðablik og margt margt fleira. Takk kærlega fyrir komuna í Víkings Podcastið Gígja og Rakel. Áfram Víkingur ❤️🖤
Uppgjörið - John og Kristó
2023/11/30
Hörður og Bjarki náðu tali af John Andrews og Kristófer Sigurgeirssyni og fóru yfir stöðuna hjá Meistaraflokki kvenna. Í þættinum er meðal annars að finna : Hvernig fór sumarið 2023? Var John sáttur með árangurinn? Af hverju við Víkingar eigum ekki leikmann í A landsliði kvenna Yngri flokka þjálfun Gerðum smá grín að Kristó Mikil enska töluð af því að John krefst þess að öll viðtöl séu á ensku Hvaða leikmenn eru að koma upp En í stuttu máli þá var mikið hlegið, hefðum getað verið í 8 klukkutíma en látum rétt rúmlega klukkutíma duga.
Fólkið okkar - Viktor Bjarki Arnarsson
2023/10/05
Serían "Fólkið okkar" er komin af stað. Hér fáum við að kynnast fólkinu okkar sem gerir allt nema að spila fótboltaleikina sjálfa. Það var því heldur betur við hæfi að hitta á Viktor Bjarka sem tók nýlega við starfi yfirþjálfara yngri flokka Víkings. Viktor er Víkingur í húð og hár en kom víða við á ferlinum sem leikmaður og hefur undanfarin ár starfað við þjálfun. Hörður og Bjarki náðu tali af honum í dag og fóru yfir ferilinn, þjálfarastarfið og brekkuna og malarvöllinn í Hæðargarði. Velkominn heim Viktor!
Uppgjörið með Bjarka og Herði
2023/09/28
Bjarki og Hörður mættu "under the lights" í Víkings stúdíóið og fóru yfir tímabilið 2023 hjá Meistaraflokki kvenna. Farið var yfir Lengjubikarinn, Lengjudeildina og að sjálfsögðu Mjólkurbikarinn. Hver var markahæst í sumar? Hver átti flestar stoðsendingar? Hver fékk flest gul spjöld? Njótið vel.
Eftirpartý: 2-2 jafntefli við KR
2023/09/20
Markús Árni fékk til sín þá Gísla Gottskálk & Þórð Ingason eftir 2-2 jafntefli við KR á heimavelli hamingjunnar í kvöld.
Eftirpartý: 5-3 sigur gegn Breiðablik
2023/08/27
Aron Baldvin fékk til sín tvo úr starfsliði Víkings þá Sölva Geir & Guðjón Örn eftir 5-3 sigur okkar Víkinga gegn Breiðablik í kvöld.
Eftirpartý: Bikarúrslit 2023 here we come
2023/08/16
Markús fékk til sín Ara Sigurpálsson & Aron Elís í spjall eftir 4-1 sigur gegn KR á Víkingsvelli og erum við að fara í fjórða bikarúrslitaleikinn í röð!
Eftirpartý: 6-1 sigur gegn HK
2023/08/13
Aron Baldvin fékk til sín Viktor Örlyg & Gísla Gottskálk í spjall eftir 6-1 sigur gegn HK á Víkingsvelli.

Podcast reviews

Read Víkings hlaðvarpið podcast reviews


5 out of 5
3 reviews
★★★★★
doringi 2019/05/29
Yndislegt framtak
Topp drengir að tala um okkar allra besta félag
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Víkings hlaðvarpið relevant audience podcasts


What do you want to promote?