1482853246
Alltaf til hægri - Óli Björn

Advertise on podcast: Alltaf til hægri - Óli Björn

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
Categories
This podcast has
100 episodes
Language
Icelandic
Publisher
olibjorn
Explicit
No
Date created
2019/10/08
Latest episode
2026/10/09
Average duration
21 min.
Release period
17 days

Description

Stjórnmál, listir og menning, umhverfismál, efnahagsmál, viðskipti og hugmyndafræði. Óli Björn Kárason er alltaf til hægri.

Unlock Alltaf til hægri - Óli Björn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Alltaf til hægri - Óli Björn podcast


Skilvirk leið til að eyðileggja
2026/10/09
Nóbelsverðlaunahafinn Gunnar Myrdal, sem oft er sagður arkitekt hugmyndafræði sænskra jafnaðarmanna í velferðarmálum, hélt því fram að þak á leiguverð sé eitt skýrasta dæmið um vonda stjórnarstefnu í mörgum vestrænum löndum. Assar Lindbeck, landi Myrdals og einn áhrifamesti hagfræðingur Svíþjóðar í áratugi, var sannfærður um að leiguþak sé skilvirkasta leiðin til að eyðileggja borg fyrir utan loftárásir. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að hugmyndin að lögfesta svokallaða leigubremsu sé heimskuleg. Hagfræðingar greinir á um flest en um eitt eru þeir flestir sammála: Opinber verðstýring á leigumarkaði er afleit hugmynd sem dregur úr gæðum íbúðarhúsnæðis, minnkar framboð, eykur eftirspurn og skorturinn verður meiri. Þessu er Ragnar Þór Ingólfsson og félagar hans í ríkisstjórn ósammála.
Villigötur valdsins
2026/09/29
Almenna bókafélagið gaf fyrir nokkru út bókina Villigötur valdsins - Til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Þetta er sjöunda bókin mín og er ádeila á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur vegvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar hugmyndafræði ríkishyggjunnar sem nýtur velvildar í öllum stjórnmálaflokkum. Of mörgum finnst þægilegra að setja hugmyndafræðina ofan í skúffu og telja sjálfum sér trú um að hægt sé að leysa hvers manns vanda á grunni ríkishyggju. Í Villigötum valdsins hvet ég hægri menn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang – með áherslu á sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins. Ég leitast við að færa rök fyrir því að lifandi og opið samfélag verði ekki „hannað“ af stjórnmála- og embættismönnum. Tilgangur ríkisvaldsins sé ekki að endurskapa mannlegt eðli heldur að tryggja að hver og einn fái að lifa lífinu á sínum eigin forsendum – fái að vera eins og hann er – án þess að valda öðrum skaða. Í þessum þætti er farið yfir bókina.
Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum
2026/08/26
Með því að ganga til liðs við ESB tökum við okkur stöðu innan tollmúra ríkjabandalags. Okkur verður bannað að athafna okkur utan múranna án sérstaks leyfis og þátttöku allra annarra aðildarlanda. Í stað þess að horfa á heiminn allan ætlar ríkisstjórnin að festa Ísland inn í tollabandalag og færa ákvörðunarvald um viðskiptasamninga okkar til Brussel. Heimurinn er stærri en Evrópusambandið. Hagvöxtur, fólksfjölgun og nýir markaðir verða á næstu áratugum að verulegu leyti utan Evrópu. Bandaríkin verða áfram efnahagslegt og tæknilegt stórveldi. Asíuríki sækja fram. Norðurslóðir fá aukið efnahagslegt og hernaðarlegt vægi í framtíðinni. Tækifærin blasa við en við Íslendingar, öðrum þjóðum fremur, þurfum frelsi til að grípa og nýta tækifærin. 29. ágúst mun ég segja nei takk við því að leggja upp í ferðalag til Brussel. Og um leið segi ég já við innri markaði Evrópu í gegnum EES. Já við áframhaldandi samstarfi innan EFTA. Já við nánari tengslum við Bandaríkin. Já við auknum samskiptum við Bretland og Kanada. Já við auknum viðskiptum við Asíu. Já við því að kanna nýtt samstarf á Norður-Atlantshafi. Já við eigin viðskiptastefnu. Já við því að Íslendingar ráðum áfram yfir sjávarauðlindum okkar. Já við því að við nýtum orkuauðlindir á okkar forsendum. Og já við þeirri hugmynd að lítil þjóð geti í krafti fullveldis verið opin fyrir öllum heiminum án þess að þurfa að tilheyra pólitísku ríkjasambandi 27 annarra þjóða. Já við því að við stöndum á eign fótum meðal vina og bandamanna. Já við því að við grípum tækifærin sem bíða okkar.
Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum
2026/08/16
Á árs afmæli lýðveldisins 17. júní 1945 flutti Bjarni Benediktsson (1908–1970) ræðu sem á erindi við okkur í dag ekki síður en fyrir 81 ári. Stjórnmálamenn samtímans gætu mikið lært en ekki síður við öll sem með einum eða öðrum hætti tökum þátt í opinberri umræðu, hvort heldur er í blaðagreinum, í kommentakerfum netmiðla eða með sleggjudómum á samfélagsmiðlum. Bjarni varaði sérstaklega við dómhörku í opinberri umræðu. Stjórnmálamenn grafi með henni, hver og einn á víxl og sameiginlega, undan stöðu sinni í vitund almennings. Dómharkan sé átakanlegt vitni um þröngsýni og skort á víðsýni. Hún sé merki sjálfsbirkingshroka sem sé upp yfir það hafinn að læra af öðrum. Og stjórnmálamennirnir eru ekki þeir einu sem glíma við vanda dómhörku og yfirlætis.
Tímasprengja sem ógnar stöðugleika og lífskjörum í ESB
2026/07/18
Lífeyrisskuldbindingar eru eitt stærsta og erfiðasta verkefni sem stjórnvöld í Evrópu standa frammi fyrir. Fátt ógnar framtíð Evrópusambandsins meira en ósjálfbærni lífeyriskerfisins í einstökum löndum. Þegar Íslendingar velta því fyrir sér hvort rétt sé að ganga til liðs við Evrópusambandið verða þeir að átta sig á því hvernig líklegt er að sambandið takist á við erfiða stöðu þegar kemur að lífeyrisréttindum. Sú hætta er fyrir hendi að íslenskt launafólk, sem tekist hefur að tryggja fjármögnun lífeyrisskuldbindinga, þurfi að sætta sig við lakari lífeyri og/eða hærri skatta til að tryggja fjárhagslegan stöðugleika Evrópusambandsins ef til aðildar kemur. En um þetta ræðir forystufólk ríkisstjórnarinnar ekki – ekki frekar en leiðtogar Evrópusambandsins.
Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst
2026/07/01
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland, vill að þjóðin veiti þeim umboð í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst til að hefja aðlögunarviðræður við ESB án þess að nokkuð liggi fyrir um hvað felist í því umboði. Valkyrjur ríkisstjórnarinnar forðast að upplýsa um markmið stjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu. Engu er líkara en í hugum þeirra sé eðlilegt og skynsamlegt að hefja  samningaviðræður án þess að nokkur viti hvert sé ferðinni heitið. Það eina sem er ljóst er að forsætisráðherra segist ætla að selja Ísland fokdýrt.
Pólitískt orðaverkstæði
2026/05/27
Orð og skilgreiningar skipta máli. Þetta vita snjallir vinstri sinnaðir hugsjónamenn betur en flestir aðrir og þess vegna hafa þeir lagt áherslu á að breyta merkingu orða eða hreinlega smíða ný orð og orðasambönd. George Orwell varaði við því að sannleikurinn yrði fórnarlamb þegar tungumálið er misnotað. Í ritgerð sem hann birti árið 1946, „Stjórnmál og enska tungan“, hélt hann því fram að villandi málfar væri notað til að fela óþægilegar staðreyndir. Tungutak sé hannað til að láta lygar hljóma sannar og gefa vindhönum yfirbragð festu. Málfar þeirra sem berjast fyrir ákveðinni hugmyndafræði sé menguð af útúrsnúningi og óskýrleika. Mesti óvinur tungumálsins sé óskýrleiki. Þegar gjá myndast á milli raunverulegra og yfirlýstra markmiða nota menn löng orð og útvötnuð orðatiltæki, eins og smokkfiskur sem sprautar út bleki. Og skattahækkanir verða aðhald á tekjuhlið. Tungutak stjórnmálamanna, álitsgjafa og rithöfunda verður samsett af skrauthvörfum (stílbragð þar sem fínlegra orð er notað í stað þess sem þykir dónalegt, neikvætt eða illkvittið), útúrsnúningum og þokukenndri merkingu.
Sveiflan til hægri
2026/05/20
Síðastliðinn laugardagur – 16. maí – kjördagur – var góður dagur fyrir alla hægrimenn á Íslandi. Haldi forystufólk borgaralegra afla rétt á spilunum geta sveitarstjórnarkosningarnar markað tímamót – orðið straumhvörf í íslenskum stjórnmálum. Fyrir ríkisstjórnarflokkana eru úrslitin hins vegar áfall. Í höfuðborginni var samanlagt fylgi Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins aðeins rétt liðlega 32% á móti rúmlega 51% stjórnarandstöðunnar. Flokkur fólksins þurrkaðist út. Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn í Reykjavík, undir forystu Hildar Björnsdóttur. Miðflokkurinn fékk góða kosningu en Framsóknarflokkurinn tapaði verulegu fylgi en hélt einum borgarfulltrúa.
Ævintýri í Norðurhöfum
2026/05/01
Í október 2010 setti ég fram þá hugmynd, í Morgunblaðsgrein, að Íslendingar ættu að hafa frumkvæði að því að mynda nýtt fríverslunarsvæði á norðurslóðum. Markmiðið er ekki aðeins að mynda fríverslun milli sjö landa (Bandaríkjanna, Kanada, Noregs, Bretlands, Færeyja, Grænlands og Íslands) heldur ekki síður að búa til formlegan samstarfsvettvang vegna nýtingar auðlinda, náttúruverndar og sameiginlegra öryggishagsmuna. Samhliða fríverslun lagði ég til að löndin geri sjö með sér samning um samvinnu á sviði vísinda, rannsókna, lista, mennta og menningar. Ísland gefur haft forystu um að búa til ævintýri í Norður-Atlantshafi. Því miður hafa valkyrjur vinstri ríkisstjórnarinnar ákveðið að útiloka slíkt með öllu og róa að því öllum árum að koma Íslandi inn í Evrópusambandið. Þar með verða utanríkisviðskipti og samstarf við aðrar þjóðir sett í hendur á embættismönnum í Brussel. Þannig verður valkostum okkar Íslendinga fækkað en ekki fjölgað til allrar framtíðar.
„Atvinnustefnuráð“ er lausnarorðið
2026/04/24
Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur samþykkt sérstaka atvinnustefnu fyrir landið sem er sögð sú fyrsta hér á landi. Markið er sett hátt og stóru orðin eru ekki spöruð frekar en fyrri daginn til að lýsa stefnunni. Atvinnustefna Íslands er sögð vera vaxtarplan til 10 ára sem lýsi því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífinu og samfélaginu að aukinni verðmætasköpun. Markviss atvinnustefna geri ríkisstjórninni kleift að samhæfa aðgerðir stjórnvalda gagnvart atvinnulífi og veiti fyrirsjáanleika til fjárfestinga. Öll vinnan verður undir forystu forsætisráðuneytis auk þess sem „sjálfstætt atvinnustefnuráð fimm sérfræðinga“ hefur verið skipað verið skipað. Ráðið á að veita ríkisstjórninni ráðgjöf um mótun og innleiðingu atvinnustefnunnar og fylgjast með framvindu markmiða og mælikvarða hennar. Það er freistandi fyrir stjórnvöld að sýna frumkvæði með því að setja fram stórar áætlanir um framtíð atvinnulífsins. Slíkar áætlanir gefa til kynna skilning, forystu og skýra framtíðarsýn. En góður ásetningur tryggir ekki að árangur náist. Enginn stjórnmálamaður, hvað þá embættismaður, hefur hæfileika, nauðsynlega þekkingu eða yfirsýn til að skynja tækifæri framtíðarinnar og enginn einstaklingur getur með réttu séð fyrir hvernig einstaklingar bregðast við aðstæðum. Hugmyndin að baki opinberri atvinnustefnu á rætur í sama jarðvegi og hugsjónir stjórnlyndra manna sem telja að hið opinbera með sérfræðingum sínum sé best til þess fallið að skipuleggja framtíðina. Á svipaðri hugmyndafræði byggðu Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna og Stalín þegar fimm ára áætlanir voru mótaðar.
Endursýning á pólitísku leikriti
2026/04/17
Árið 2009 var sett á fjalirnar pólitísk leiksýning sem stóð yfir tæp fjögur ár. Þá, líkt og nú, var reynt að telja almenningi trú um að um sérstakar samningaviðræður milli Íslands og Evrópusambandsins væri að ræða. Byggt var undir þá von að Íslendingar gætu samið um breytt regluverk Evrópusambandsins – að Evrópusambandið myndi aðlaga sig að sérþörfum Íslendinga. Forystumenn vinstri stjórnarinnar vissu betur og þá ekki síst utanríkisráðherra en á upplýsingasíðu utanríkisráðuneytisins sagði meðal annars: „Hvor aðili um sig, umsóknarríkið og ESB, hafa sín samningsmarkmið og af hálfu umsóknarríkis snúa þau vanalega fyrst og fremst að því að fá að njóta ákveðins sveigjanleika við að taka upp lög og stefnumið ESB.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var sem nefndarmaður í utanríkismálanefnd árið 2009 sannfærð um að engar líkur væru á því að Ísland gæti fengið varanlegar undanþágur frá meginreglum Evrópusambandsins.
Antonin Scalia: Maður textans
2026/04/09
Antonin Scalia var einn áhrifamesti hæstaréttardómari Bandaríkjanna á síðari hluta 20. aldar og fram á þá 21. Hann var fæddur árið 1936 og var skipaður dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna árið 1986 af Ronald Reagan. Scalia lést 13. febrúar 2016 og voru fréttir af andláti hans fluttar um allan heim. Fáar andlátsfréttir hafa vakið meiri athygli á síðustu árum nema þá fréttir af fráfalli helstu þjóðarleiðtoga. Áhugi fjölmiðla endurspeglaði tvennt: Annars vegar þá miklu virðingu sem Antonin Scalia naut meðal samferðamanna sinna, jafnt andstæðinga sem samherja, fræðimanna í lögum sem leikmanna. Og hins vegar hve stórt hlutverk dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna leika í stjórnskipan landsins. Hugmyndafræði Scalia lifir áfram í bandarísku réttarkerfi og stjórnmálaumræðu. Ekki er of djúpt í árinni tekið þegar sagt er að fáir dómarar hafi markað jafn skýra stefnu um hlutverk dómstóla og Scalia, og enn færri hafa haft jafn afgerandi áhrif á það hvernig lög eru túlkuð. Meginviðhorfi hans í lögskýringum má lýsa með þeim orðum að hann taldi lögin og sérstaklega þau lög sem talin eru öðrum helgari, stjórnarskrána, segja það sem þau þýða og þýða það sem þau segja. Hvorki meira né minna.
Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins
2026/04/01
Forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, rithöfundur, leikritaskáld, listamaður, útvarpsmaður, blaðamaður og ritstjóri. Hægt er að nota öll þessi starfsheiti til að lýsa Davíð Oddssyni sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars aðeins 78 ára að aldri. Með Davíð er genginn einhver áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldisins – stjórnmálamaður sem hafði ekki aðeins skýra sýn á samfélagið og skilning á þjóðarsálinni, heldur hafði hann djúpstæða sannfæringu fyrir mikilvægi frelsis einstaklingsins. Þegar Davíð steig fyrst inn á svið stjórnmálanna var flestum ljóst að þar færi ungur maður með skýra pólitíska sannfæringu sem væri óhræddur við að takast á við pólitíska andstæðinga jafnt og glíma við samherja. Húmorinn var vopn sem hann kunni að fara betur með en flestir aðrir. Davíð var ekki stjórnmálamaður sem flaut með straumnum – hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins. Davíð treysti einstaklingum og var tortrygginn gagnvart miðstýringu og opinberu valdi. Í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í október 2005 í tilefni af ákvörðun hans að yfirgefa svið stjórnmálanna sagði Davíð að það sem væri efst í huga væru þær breytingar sem hafa orðið á andrúmi og umhverfi í þjóðfélaginu: „Vald stjórnmálamanna hefur verið takmarkað mjög verulega og þeir geta nú einbeitt sér að sínum verkahring; að setja þjóðfélaginu leikreglur. Þá hefur svigrúm fólks og fyrirtækja breyst og aukist svo um munar, þótt á okkur dynji endalaust reglugerðarfargan frá Evrópu.“ En hann varaði við því að um leið og stjórnmálamennirnir hyrfu af vettvangi ryðjist fyrirtækin inn í tómarúmið og þegar leikreglurnar vanti þá megi reikna með því að menn olnbogi sig áfram af töluverðri hörku. Davíð hélt áfram: „Þess vegna mega stjórnmálamenn ekki heykjast á því að setja viðskiptalífinu heilbrigðar leikreglur þannig að enginn einn, tveir eða þrír aðilar geti náð yfirburðastöðu og drepið allt annað í dróma.“ Þessi varnaðarorð enduróma innbyggða varfærni Davíðs gagnvart viðskiptalífinu.
Ríkisstjórn brostinna vona
2026/02/25
Það er ekki sérlega óvæginn dómur yfir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, eftir 14 mánuði í stjórnarráðinu að segja að stjórnin hafi komið litlu í verk og að staða flestra heimila og fyrirtækja sé verri nú en þegar ríkisstjórnin tók við völdum í desember 2024. Hástemmdar yfirlýsingar í upphafi eru annað hvort gleymdar eða hljóma líkt og háðung fyrir ríkisstjórnina. Hin fögru fyrirheit hafa að mestu reynst innantóm loforð hefðbundinnar vinstri stjórnar. Þegar ríkisstjórnin tók við var verðbólga 4,8% og hafði farið lækkandi allt frá ársbyrjun 2023 þegar hún fór yfir 10% í kjölfar Covid, Reykjaneselda og hækkandi heimsmarkaðsverðs á orku vegna innrásar Rússa í Úkraínu.  Verðbólgan er nú 5,2%. Sama á við um lækkun vaxta. Vaxtalækkunarferlið var hafið í tíð fyrri ríkisstjórnar. Svokölluð kyrrstaða hefur ekki verið rofin, þvert á móti hefur hægst á hjólum efnahagslífsins og atvinnuleysi aukist og hefur ekki verið meira frá covid-tímanum. Vinstri ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins minnir æ meira á síðustu hreinu vinstri stjórnina undir forsæti Samfylkingar á árunum 2009 til 2013. Engu er líkara en Kristrún Frostadóttir hafi grafið upp gamlan leiðarvísi frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
Endurheimtum stöðu okkar í heiminum
2026/02/19
Sem utanríkisráðherra ber Marco Rubio ábyrgð á að framfylgja utanríkisstefnu Donalds Trumps Bandaríkjanna með trúverðugum hætti og á traustum grunni. En hann nálgast verkefnið út frá eigin sannfæringu. Frá því hann tók sæti í öldungadeildinni árið 2011 hefur hann verið haukur í öryggis- og varnarmálum, gagnrýnt einræðisríki á borð við Kína, Rússland, Íran, Kúbu og Venesúela og lagt áherslu á fælingarmátt öflugra hervarna. Hann sver sig í ætt við Reagan í trú sinni á styrk lýðræðisríkja og mikilvægi samstöðu þeirra gagnvart alræðisöflum. Þessi sýn mótaði framgöngu hans á öryggisráðstefnunni í München fyrir nokkrum dögum þar sem hann lagði áherslu á sameiginlega hagsmuni og söguleg tengsl Evrópu og Bandaríkjanna. Rubio undirstrikaði að veik Evrópa geri Bandaríkin veikari. Markmiðið Bandaríkjanna sé ekki að eiga undirgefna bandamenn heldur öfluga samstarfsaðila sem geti varið sig sjálfir og þannig styrkt sameiginlegar varnir og fælingarmátt. „Við leitumst ekki við að sundra, heldur endurlífga gamla vináttu og endurnýja mestu siðmenningu í sögu mannkyns,“ sagði utanríkisráðherrann sem vill endurvakið bandalag sem er ekki lamað af aðgerðaleysi vegna ótta – ótta við loftslagsbreytingar, ótta við stríð, ótta við tækni. „Við viljum bandalag sem þýtur djarflega inn í framtíðina,“ sagði Rubio.

Podcast reviews

Read Alltaf til hægri - Óli Björn podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Alltaf til hægri - Óli Björn relevant audience podcasts


What do you want to promote?