1489739586
Skúffuskáld

Advertise on podcast: Skúffuskáld

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
Categories
Country
Iceland
This podcast has
35 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Lubbi Peace
Explicit
Yes
Date created
2019/11/29
Latest episode
2023/03/31
Average duration
61 min.
Release period
54 days

Description

Í þáttunum ræðir Anna Margrét Ólafsdóttir við rithöfunda um allt mögulegt sem tengist því að skrifa og skálda. Sjónum verður aðallega beint að því hvernig það er að stíga fyrstu skrefin sem rithöfundur og hvernig ferlið við ritun bóka, ljóða og sagna er.

Unlock Skúffuskáld podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Skúffuskáld podcast


Sjófugl, Guli kafbáturinn, Reykjavík og Eden
2023/03/31
Þàtturinn er tileinkaður nýjum bókum og voru það Gyða Sigfinnsdóttir og Anna Margrét Ólafsdóttir sem ræddu fjórar skáldsögur. Guðjón Helgi Ólafsson var alveg sérstakur gestur þáttarins en hann er mikill bókaunnandi og þá einna helst bóka eftir Jón Kalman. Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Sjófugl eftir Egil Ólafsson, Guli kafbáturinn eftir Jón Kalman Stefánsson, Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur.  Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Vangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið [email protected]
Sigríður Hagalín
2023/01/22
Sigríður Hagalín er viðmælandi þáttarins en hún gaf út sína fyrstu bók árið 2016. Það var bókin Eyland sem vakti mikla athygli en síðan þá hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Sigríði. Það eru bækurnar Hið heilaga orð, Eldarnir og nú fyrir jólin bókin Hamingja þessa heims. Í þættinum ræða Gyða og Sigríður m.a. um Ólöfu ríku, drauma og svo margt margt fleira. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Guðrún Brjánsdóttir
2023/01/09
Guðrún Brjánsdóttir er viðmælandi þáttarins að þessu sinni. Hún hefur gefið út ljóðabókina Skollaeyru og nóvelluna Sjálfstýringu. Í þessum þætti spjallar hún við Gyðu, m.a. um  það að vera skúffuskáld og hvernig það er að reyna fyrir sér sem höfundur. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Elísabet Thoroddsen
2022/12/15
Elísabet Thoroddsen er viðmælandi minn í þessum þætti. Í samstarfi við Bókabeituna gaf hún út sína fyrstu skáldsögu fyrir stuttu. Það er bókin Allt er svart í myrkrinu og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmenna. Elísabet lærði kvikmyndagerð og hefur lengi skrifað fyrir skúffuna. Hún fór í rithóp og eftir það fóru hjólin að snúast hratt. Þetta og svo margt fleira ræddum við í þættinum. Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Saknaðarilmur, Drepsvart hraun og Kyrrþey
2022/12/09
Þàtturinn er tileinkaður nýútkomnum bókum, en við Gyða Sigfinnsdóttir ræddum nokkrar skáldsögur í jólabókaflóðinu. Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Drepsvart hraun eftir Lilju Sigurðardóttur. Auk þeirra ræddum við Saknaðarilm eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Vangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið [email protected]
Kikka og Bókasamlagið
2022/08/01
Kristlaug María Sigurðardóttir er betur þekkt sem Kikka. Kikka er leikskólakennari, rithöfundur og eigandi Bókasamlagsins. Hún er nokkuð viss um að hún sé með ADHD en hún hefur afkastað ótrúlega miklu og hikar ekki við að ráðast í verkefni sem heilla hana; eins og t.d. Bókasamlagið. Kikka fékk eintóm nei þegar hún vildi gefa út Ávaxtakörfuna; hjá bókaútgáfu og leikhúsum en hún lætur ekki menn í áhrifastöðum segja sér hvað virkar og hvað ekki. Hún treystir á sig sjálfa og gerir það sem hún trúir á. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Barna- og ungmennabækur; Akam, ég og Annika, Bannað að eyðileggja, Meira pönk, meiri hamingja, Nú er nóg komið, Álfheimar, Nornaseiður, Rauð viðvörun, Mr. Einsam
2022/01/23
Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti. Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadóttur, Meira pönk, meiri hamingja eftir Gerði Kristnýju, Nú er nóg komið eftir Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur og Álfheimar eftir Ármann Jakobsson. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Ljóðabókaspjall; Ég brotna 100% niður, Menn sem elska menn, Tanntaka, Álfheimar og Koma jól?
2021/12/21
Þátturinn er tileinkaður ljóðabókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við spjölluðum um bækurnar. Að þessu sinni spjölluðum við um nokkrar ljóðabækur en það voru bækurnar Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal, Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson, Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur, Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson og bókina Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og myndskreyting var í höndum Ránar Flyering. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Valgerður Ólafsdóttir
2021/12/09
Valgerður Ólafsdóttir veltir því fyrir sér að sækja um aðild að Rithöfundasambandi Íslands en hún hefur gefið út kennslubók í sálfræði og bókin Konan hans Sverris kom út fyrir skemmstu. Konan hans Sverris er saga konu sem fer úr ofbeldisfullu hjónabandi. Sagan er skrifuð sem bréf til eiginmannsins og hvernig eftirsjá samtvinnast þrautseigju og styrk þegar fram líða stundir. Valgerður segir frá sögunni, ferlinu við að skrifa hana og spjallar um lífið og tilveruna. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Olía, Merking, Myrkrið á milli stjarnanna, Drottningin, Reykjavík og Skrímsli
2021/11/22
Gyða og Anna Margrét spjalla um nokkrar nýútkomnar bækur í þættinum. Þær spjalla um þrjár bækur fyrir börn og þrjár nýútkomnar skáldsögur. Bækurnar sem eiga heiðurssess í þættinum eru: Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur Skrímslaleikur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Guettler og Rakel Helmsdal Drottningin sem kunni allt nema... eftir Gunnar Helgason og Rán Flyering Olía eftir Svikaskáld Merking eftir Fríðu Ísberg Myrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Katrín Sif og Klemenz Bjarki
2021/09/13
Á ferð minni um landið í sumar var upptökutækið með í för sem kom að góðum notum þegar ég stoppaði á Dalvík. Þar fór ég í heimsókn í Menningarhúsið Berg þar sem hægt er að fara á kaffihús, næla sér í bók í bókasafninu og njóta listar í listasalnum. Í Bergi hitti ég rithöfundana og skúffuskáldin Katrínu Sif og Klemenz Bjarka sem spjölluðu við mig um skrifin og margt fleira. Villtasti draumur þeirra er að lifa af skrifunum einum saman og það var gaman að heyra af afrekum þeirra, verkum í vinnslu og hvernig er að tengja þetta allt við daglegt líf.   Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.
Hlín Agnarsdóttir
2021/08/22
Hlín Agnarsdóttir vílaði það ekki fyrir sér að keyra Reykjanesbrautina til að koma til mín í viðtal. Hún bjó einu sinni í Keflavík þegar hún vann sem ritstjóri en list, sköpun og tjáning eru sannarlega hennar ær og kýr. Hlín hefur skrifað mikið, gefið út, leikstýrt og lifað og hrærst í öllu sem því tengist.  Salka Valka hafði gífurleg áhrif á hana og hún kýs að lesa efni sem reynir á hana frekar en afþreyingu. Hlín hefur aðallega kennt leikritaskrif í ritlistarnámi Háskóla Íslands og finnst gífurlega mikilvægt að auka víðsýni nemenda.   Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldunum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netfangið [email protected] með ábendingar og vangaveltur.

Podcast reviews

Read Skúffuskáld podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Skúffuskáld relevant audience podcasts


What do you want to promote?