Advertise on podcast: Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
This podcast has
18 episodes
Language
IcelandicPublisher
KrabbameinsfélagiðExplicit
No
Date created
2020/01/21
Latest episode
2025/04/08
Average duration
23 min.
Release period
137 days
Description
Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins
Unlock Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Social media
Check Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins social media presence
Podcast episodes
Check latest episodes from Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins podcast
Slökun - Þakklæti
2025/04/08
Að þakka fyrir það sem maður hefur getur verið gagnlegt en það er ekki síður mikilvægt að fara inn á við og gefa líkamanum þakklæti, kærleik og skilning.
Meginverkefni líkamans er að koma jafnvægi á öll kerfi líkamans. Leyfðu þér að fara inn á við og fylgja flæðinu og tala persónulega við sjálfan þig með mildi og kærleik.
Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Yoga Nidra djúpslökun
2024/07/11
Velkomin í Yoga Nidra, leidda djúpslökun.
Tilgangur hugleiðslunar er að vinna með slökun líkamans og fara inn í djúpa kyrrð og ró. Ólafur Yoga Nidra kennari hjá Míró/Svefn Jóga leiðir þessa hugleiðslu sem virkjar heilunnarmátt líkamans, losar um venjur og viðbrögð líkama og huga. Þú sleppir tökum á hugsunum og hverfur til bakgrunnsins þar sem þú hvílir í eigin vitund.
Þú opnar á orkuflæði líkamans, finnur aukið jafnvægi og hugarró tengt viðbrögðum og venjum daglegs lífs.
Hugleiðslan hentar til að draga úr streitu, hægja á hugsunum og bæta svefn. Taktu þennan tíma frá fyrir þig og komdu þér vel fyrir á rólegum stað þar sem þú verður ekki fyrir truflun, helst í liggjandi stöðu (eða sitjandi í stól) með lokuð augu, púða undir höfði og hnésbótum.
Hafðu yfir þér teppi eða sæng þar sem líkami þinn kólnar í Yoga Nidra.
Í Yoga Nidra djúpslökun reynir þú að sofna ekki, líkaminn sefur en undirmeðvitundin vakir. Ef þú sofnar, mundu að þú getur alltaf komið rólega til baka að rödd minni. Þér á fyrst og fremst að líða vel, þessi stund er aðeins fyrir þig.
Ólafur Sigvaldason er Yoga Nidra kennari og eigandi Míró/Svefn yoga í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði. Hann hefur m.a. lokið framhaldsnámi í Yoga Nidra fræðum hjá Kamini Desai, I am Yoga Nidra og heldur hann reglulega námskeið í Lífsgæðasetrinu. Heimasíða Svefn yoga er svefnyoga.is.
Slökun - Núvitund og sjálfsmildi
2024/05/02
Í þessari hugleiðslu ætlum við að vinna með núvitund og mildi í eigin garð. Að læra að sýna sér mildi með aðferðum núvitundar snýst meðal annars um að geta brugðist við á styðjandi hátt gagnvart sér sjálfum líkt og þú myndir gera þegar vinur eða vinkona á í hlut. Aðferðir núvitundar og sjálfsmildi hjálpa þér líka að læra að sitja með erfiðum tilfinningum eða hugsunum og veita þeim einskonar hlýja nærveru í stað þess að leggja á flótta frá þeim og að læra þannig að þekkja þær betur.
Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Slökun - Öruggi griðarstaðurinn
2024/04/24
Að skapa sér stað í huganum sem gefur tilfinningu um öryggi og ró getur verið gott bjargráð til að nota í ýmsum aðstæðum. Til dæmis þegar þú upplifir kvíða, óvissu eða vilt auka vellíðan. Það er gott að gera þessa hugleiðslu eins oft og þarf til að móta staðinn þinn vel svo að það sé auðvelt að hverfa á hann hvenær sem þú þarft á að halda.
Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Slökun - Tenging við náttúru II
2023/11/30
Að tengja sig við móðir jörð og biðja um vernd er falleg byrjun á deginum. Að staldra við og leiða hugann inn á við og byrja hægt og rólega að treysta flæði lífsins hvernig sem lífið leikur við mann. Að biðja kærleiksljósið að umvefja þig með þakklæti og vernd.
Megi þú ganga með ljósinu til allra góðra verka kæra fallega sál.
Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Slökun - Tenging við náttúru I
2023/01/09
Komdu þér vel fyrir þannig að líkaminn nái að vera slakur. Gefðu þér leyfi til að taka nokkrar mínútur frá, eingöngu fyrir þig og tengjast móðir jörð. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Gangi þér vel.
Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Jóga Nidra
2022/11/29
Hér getur þú hlustað á leidda djúpslökun með aðferðum Jóga Nidra. Komdu þér vel fyrir í liggjandi stöðu þar sem þú verður fyrir sem minnstri truflun. Láttu fara eins þægilega um þig og mögulegt er og notaðu ábreiðu ef þú þarft. Það er gott að stilla hljóðið þannig að það sé mátulegt.
Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Njóttu vel.
Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Slökun - Sofðu rótt II
2022/11/29
Búðu þig undir að slaka á og svífa inn í svefninn. Slökun er gott tæki til að draga úr streitu, bæta svefngæði og auka almenna vellíðan. Slökun þarf gjarnan að ástunda reglulega til að ná árangri og dýpt. Æfingin skapar meistarann! Passaðu að vel fari um líkamann og að hljóðið sé mátulega stillt. Sofðu vel.
Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu leiðir slökunina.
Krabbameinsfélagið býður upp á ráðgjöf og stuðning við þá sem hafa greinst með krabbamein, aðstandendur og þá sem misst hafa ástvin úr krabbameini, þeim að kostnaðarlausu.
Hafðu samband í síma 800 4040 eða á [email protected].
Slökun - Sofðu rótt I
2022/11/23

Ástin, sorgin, samtöl og hugrekki - Að ræða við börn um alvarleg veikindi
2021/06/22
Þær Katrín Ösp Jónsdóttir og Regína Ólafsdóttir störfuðu saman að ýmsum verkefnum hjá Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis og Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins. Hér ræða þær á einlægan hátt um samstarfið og þau fjölbreyttu verkefni sem þær tókust á við sem ráðgjafar hjá félaginu. Þær ræða einnig um fræðslu sem þær þróuðu fyrir börn sem eru aðstandendur krabbameinsgreindra og hvernig þær studdu við foreldra sem stóðu frammi fyrir því að sjúkdómurinn væri ólæknanlegur.Mynd: KAONTónlist: Sin Fang: What's Wrong With Your Eyes. Notað með leyfi.
Slökun fyrir aðgerð
2021/01/11
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagins bíður þér að hlusta á “slökun fyrir aðgerð” þér að kostnaðarlausu. „Það skiptir ekki máli hvort þú sért að fara í aðgerð á spítala eða á stofu úti í bæ, hugurinn breytir þessu sjálfkrafa að þínum aðstæðum” segir Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur sem er höfundur þessa verkefnis. Niðurstöður rannsókna benda til þess að kvíði geti haft áhrif á innleiðslu svæfingar og valdið því að sjúklingar þurfi meira magn svæfingalyfja til að ná viðeigandi svæfingardýpt. Kvíði fyrir svæfingu virðist einnig auka á verki og ógleði hjá sjúklingum eftir aðgerð.Það ættu allir að geta nýtt sér þessa slökun fyrir aðgerð en mér hefur fundist þetta virka sérstaklega vel á þá einstaklinga sem eru mjög kvíðnir og skora hátt á kvíðakvarðanum
Morgunhugleiðsla
2020/06/15
Hugleiðsla í upphafi dags er gott veganesti hjálpar okkur að takast á við verkefni dagsins
Núvitund fyrir ungmenni sem hafa misst ástvin
2020/02/11
Hvernig er að missa ástvin þegar maður er ungur að árum og á yfirleitt nóg með að taka þeim áskorunum sem fylgja daglegu lífi? Hulda Pálmadóttir segir okkur frá því hvernig námskeið sem hún sótti hjá Eddu Guðmundsdóttur, sálfræðingi, hjálpaði henni að takast á við hversdaginn með aðferðum núvitundar. Edda Margrét segir okkur einnig frá námskeiðinu.
Er Flexitarian besta mataræðið fyrir mig og umhverfið?
2020/01/21
Flexitarian gæti dregið úr krabbameinsáhættu, segir Jóhanna Eyrún Torfadóttir, næringarfræðingur og sérfræðingur í forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu. Hún er einn höfunda greinar í Fréttablaðinu í dag sem ber yfirskriftina Mataræði sem stuðlar að sjálfbærni vistkerfisins og fækkar ótímærum dauðsföllum. Hún ræðir við Sigríði Sólan um hvernig Flexitarian getur stuðlað að sjálfbærni vistkerfisins og fækkað ótímabærum dauðsföllum.Jóhanna og meðhöfundur greinarinnar, Thor Aspelund, prófessor í læknadeild HÍ, halda erindi á Læknadögum í Hörpu annað kvöld þar sem þau fjalla nánar um þetta en fyrirlesturinn er öllum opinn.
Fysio Flow - gegn verkjum, streitu og stífleika
2020/01/15
Sjúkraþjálfarinn Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir talar við Birnu Þórisdóttur um Fysio flow, eða hreyfiflæði, sem hentar meðal annars þeim sem glíma við verki, streitu og stífleika.Fysio flow er æfingakerfi þróað af sjúkraþjálfaranum Pernille Thomsen út frá vísindalegri þekkingu á taugalífeðlisfræði, öðrum hreyfiformum og reynslu sem sjúkraþjálfari. Í Fysio Flow heru bandvefir líkamans hreyfðir með rólegum teygjum og æfingum.Heiðbjört starfar hjá Bata sjúkraþjálfun og sinnir meðal annars fólki með sogæðabjúg, vefjagigt og í endurhæfingu eftir greiningu krabbameins, auk þess að stjórna hópþjálfun í Fysio flow.Hún talar um áhrif álags á minni og að setja sér markmiðið sem eru ekki of há, maður þurfi til dæmis ekki að hlaupa maraþon. Heiðbjört bendir þó á að slökun sé afar mikilvæg:„Líkaminn þarf helst að fara í slökunarástand á hverjum degi og líka nokkrum sinnum yfir daginn, ekki bara klukkan hálfellefu á kvöldin þegar maður ætlar að fara í rúmið,“ segir Heiðbjört meðal annars í viðtalinu.Hún heldur hádegisfyrirlestur um Fysio flow hjá Krabbameinsfélaginu miðvikudaginn 15. janúar kl. 12:00-12:50. Ef áhugi er fyrir hendi verður boðið upp á námskeið í kjölfarið.
Podcast reviews
Read Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Hlaðvarp Krabbameinsfélagsins relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

3.71069113
Down The Hill: The Delphi Murders
HLN

4.716867
Forgive Me!
Rogue Dialogue

4.5142231
The Best of the Brutal Truth about B2B Sales & Selling - The show focuses on the enterprise Sales Process
Sales Author and Career Salesperson - Brian Burns

4.4479599
Data Skeptic
Kyle Polich

4.713455
Collective Evolution with Joe Martino
Collective Evolution

4.713746
پادکست جعبه // Jabe Persian Podcast (Mansour Zabetian)
Jabe podcast

4.5269440
With the First Pick: An NFL Draft Podcast from CBS Sports
CBS Sports, NFL Draft, Mock Draft, NFL, 2023 NFL Draft, NFL Combine, Bryce Young, CJ Stroud

4.8435587
Mindful Mama: Raising Kind, Confident Kids Without Losing Your Cool | Parenting Strategies For Big Emotions & More
Hunter Clarke-Fields

4.6210130
Not Alone
Valeria Lipovetsky

4.7166540
InnerVerse
Chance Garton