
Advertise on podcast: Lífsreynslusögur Vikunnar
Rating
5from
This podcast has
71 episodes
Language
IcelandicPublisher
Birtingur UtgafufelagExplicit
Yes
Date created
2020/01/28
Latest episode
2021/12/19
Average duration
41 min.
Release period
7 days
Description
Lífsreynslusögur með Guðrúnu Óla Guðrún Óla blaðamaður hjá Vikunni, les upp lífsreynslusögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíðina, en hér er sannleikurinn lyginni líkastur! Ekkert er gefið eftir og sögurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. www.vikan.is See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Unlock Lífsreynslusögur Vikunnar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Lífsreynslusögur Vikunnar podcast
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/12/19
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Með öllum ráðum:
„Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri konu, minnkaði samband okkar mikið en konan leit á mig sem ógn og reyndi með öllum ráðum að halda pabba frá mér.“
- Tíðahvörf ... eða kannski ólétta?:
„Ég var farin að nálgast fertugt þegar ég fór til spákonu ásamt vinkonu minni. Það sem hún sagði við mig var fáránlegt og olli okkur vinkonunum hláturskasti. En svo fóru spádómarnir að rætast hjá okkur báðum.
„Hún hristi höfuðið og sagðist sjá þrjú börn sem ég ætti sjálf. Hún talaði einnig um breytingar í vinnunni hjá manninum mínum og að yngri dóttirin myndi fara að læra eitthvað allt annað en hún hafði stefnt markvisst að árum saman.“ “
- Froskurinn sem breyttist í prins:
„Eftir skilnað við eiginmann minn til fimmtán ára kynnist ég manni sem ég var mjög hrifin af. En fyrri reynsla varð sennilega til þess að nýja sambandið stóð ekki lengi. Sá maður var vissulega ljúfur en það vantaði í hann alla drift og dugnað. Löngu seinna hittumst við og þá hafði orðið algjör viðsnúningur á lífi hans, vægast sagt.“
- Sérkennilegur skólabróðir:
„Ég var svo heppin að fá að fara í heimavistarskóla þótt ég byggi nánast í næsta húsi við ágætan menntaskóla í borginni. Á heimavistinni eignaðist ég marga góða vini sem ég á enn. Einn í hópnum var nokkuð sérstakur en hann hafði mikla þörf fyrir að vera öðruvísi en aðrir. Ég kalla hann Boga í þessari frásögn.“
- Hið fullkomna hjónaband:
„Ég hef verið gift tvisvar og skildi í bæði skiptin eftir að hafa gefist upp á eiginmönnunum. Ég er kannski ekki mesti mannþekkjari í heimi en ég taldi eitt öruggt í þessum heimi og það væri hið fullkomna hjónaband kunningjafólks míns.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/12/26
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Fátæka konan:
„Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“
- Skelfilegur stjúpi:
„Ég var að verða fimm ára þegar móðir mín fór að búa með manni. Frá upphafi var honum illa við mig og sýndi það á allan hátt. Hann hefur ekki bara eyðilagt samband mitt við mömmu, heldur líka við föður minn.“
- Allt betra en sannleikurinn?:
„Hjónaband mitt var sérlega gott, hélt ég, en ef ekki hefði verið fyrir frétt sem ég sá í sjónvarpinu lifði ég kannski enn í þeirri blekkingu.“
- Samþykki ömmu:
„Þegar ég kynnti ungan mann fyrir ömmu beið ég spennt eftir samþykki hennar en fékk það ekki þótt ég vissi að henni líkaði ágætlega við hann. Amma var eins konar véfrétt í fjölskyldunni og mér fannst álit hennar skipta öllu máli.“
- Lærdómsrík vinátta:
„Eitt sinn átti ég vinkonu sem ég umgekkst talsvert mikið. Hún hafði mikla þörf fyrir að sýna yfirburði sína á flestum sviðum sem var í lagi mín vegna því ég hafði yfirleitt bara gaman að þessu. Óvænt eyðilagði þessi þörf hennar þó vináttu okkar.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lifsreynslusögur Vikunnar
2021/10/17
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Þrjú skilyrði:
„Ég fylltist eldmóði þegar ég las sjálfsræktarbók og fór að reyna að laða til mín tækifæri, eins og kennt var þar. Ástin var ofarlega á blaði en ég hefði mátt forma óskir mínar aðeins betur ...“
- Óþægilegur „aðdáandi“:
„Ég bjó árum saman í frekar stórum kaupstað á landsbyggðinni með manninum mínum. Dætur okkar voru uppkomnar og sú yngri tiltölulega nýflutt að heiman þegar ég eignaðist „aðdáanda“, mann sem lét mig ekki í friði.“
- Eini sonurinn:
„Móðir mín hélt afar mikið upp á bróður minn, svo mikið að hún viðurkenndi eitt sinn þegar hún óttaðist um hann og var í mikilli geðshræringu að hún vildi frekar missa eina af okkur systrunum en einkasoninn.“
- Sviphreini nágranninn:
„Eitt sinn bjó ég í sama húsi og indælis fjölskylda. Mér líkaði sérstaklega vel við manninn sem var opinn, glaðlegur og virtist sérlega ljúfur en konan hans var hlédræg og feimin. Eftir að ég flutti frétti ég ekkert af
þeim fyrr en ég las blaðagrein sem góði granninn skrifaði og í kjölfarið kom margt í ljós sem kom mér mjög á óvart.“
- „Hún er svo heimsk, greyið“:
„Um nokkurra ára skeið bjó ég í kaupstað á landsbyggðinni. Ég kynntist þar skemmtilegri ungri konu, Sólrúnu, sem átti þó ekki upp á pallborðið hjá bæjarbúum vegna þess að hún skar sig úr. Var opin og einlæg og í raun allt of lífsglöð miðað við aðstæðurnar í lífi hennar.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lifsreynslusögur Vikunnar
2021/10/24
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Hress og harðdugleg ... :
„Ég stjórna fyrirtæki sem er starfrækt yfir vetrartímann. Eitt haustið, annað árið mitt sem yfirmaður, réði ég hressa og harðduglega konu sem öllum líkaði vel við. Hún reyndist þó ekki öll þar sem hún var séð og kenndi mér dýrmæta lexíu.“
- Hættuleg gestrisni:
„Ég bjó í Danmörku í nokkur ár þar sem ég var í námi. Einn daginn kynntist ég ljúfri konu og okkur varð vel til vina. Líf hennar hafði ekki verið auðvelt en hún var samt alltaf glöð og einnig gestrisnasta manneskja sem ég hef nokkurn tíma kynnst.“
- „Það verður mikið úr dóttur þinni“:
„Nokkrum árum áður en ég stofnaði fjölskyldu fór ég til spákonu sem sagði mér sitt af hverju merkilegt. Margt af því sem hún sagði kom fram en ég var búin að steingleyma því öllu þar til nýlega þegar ég fann óvænt miða sem ég hafði hripað niður spádóminn á.“
- Brúður á flótta:
„Ég er þrígift og hef skilið þrisvar. Vinir mínir gera stundum góðlátlegt grín að ástamálum mínum og kalla mig „runaway bride“ eftir bíómyndinni. Ég hef svo sem ekki hlaupið frá neinum við altarið, það tók mig alltaf einhver ár að fá nóg. Frá barnæsku lét ég allt yfir mig ganga, byrgði sárindin og reiðina innra með mér þangað til ég sprakk með látum.“
- Fyrstu góðu jólin:
„Ég var orðin unglingur þegar ég var loks tekin út af heimili mínu og komið fyrir hjá ókunnugum. Þar kynntist ég eðlilegu lífi og átti mín fyrstu alvörujól.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/10/31
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Vegalaus á Þorláksmessukvöld:
„Eftir að pabbi dó breyttust samskipti mín við mömmu. Ég var ósátt við hvernig hún deyfði sorgina með róandi lyfjum en batt þó vonir við að allt breyttist til hins betra þegar hún kynntist manni nokkrum árum eftir lát pabba.“
- Varð að hafna systur minni:
„Við systurnar höfum gengið í gegnum súrt og sætt saman og oftast stóðum við hvor með annarri þegar lífið lék okkur grátt. Hún hefur hins vegar stóra skapgerðargalla sem á endanum urðu til þess að ég varð að slíta öllu sambandi við hana.“
- Uppi á röngum tíma:
„Ég var orðin nokkuð fullorðin þegar ég áttaði mig á því að mamma var aldrei mikið fyrir börn. Hún reyndi að rækta hlutverk sitt sem heimavinnandi húsmóðir og móðir en leið sennilega afar illa í því sem bitnaði illilega á fjölskyldunni.“
- Ótrúlegur blekkingarleikur:
„Ég skildi við fyrri manninn minn seint á tíunda áratug síðustu aldar og var ekkert að flýta mér í annað samband. Ég ætlaði að byggja upp gott líf fyrir mig og dætur mínar tvær. Þetta var ekki auðvelt og einstæðar mæður hafa það sjaldan gott. Þegar ég kynntist Sigurði taldi ég mig hafa fundið ábyrgan og öruggan mann. Hann hafði farið í meðferð en var ákveðinn í að halda sér edrú og sagði mér að öll óregla væri að baki.“
- Hryllilega vont en þess virði:
„Margir hafa heyrt alls kyns hryllingssögur af fegrunaraðgerðum sem hafa mistekist og í mörgum tilfellum eru þær sjálfsagt sannar. Hins vegar heppnast meirihluti slíkra aðgerða vel og sjúklingarnir eru ánægðir með árangurinn. Ég er ein af þeim.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/12/05
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Ást í meinum:
„Sumarið sem ég varð nítján ára var ég döpur og vonsvikin. Ég hafði staðið mig illa í námi um veturinn og fannst að ég hefði klúðrað framtíðarmöguleikum mínum á að menntast. Mamma mín og pabbi voru líka að skilja og ég skammaðist mín fyrir það. Þegar mér bauðst mér að fara til Austurríkis og það fannst mér vera himnasending og tækifæri til þess að flýja ömurlegt líf mitt hér heima. Ég hafði ekki hugmynd um að innan skamms yrði ég ástfangin og depurð og iðrun vegna þeirrar ástar ætti eftir að fylgja mér nánast ævina enda.“
- Gallagripur í hamingjuleit:
„Þegar ég stóð í skilnaði í fyrsta skipti átti ég samúð vina og ættingja. Fólk kom gjarnan til mín og sagði mér hversu leitt það væri vegna þess að hjónabandið gekk ekki upp og var óspart á ráðleggingar. Þegar ég skildi við eiginmann númer tvö fékk ég allt öðruvísi viðbrögð og ég varð vör við gífurlega fordóma. Vinir og ættingjar veltu því fyrir sér hvað væri að mér og af hverju í ósköpunum ég gæti ekki haldist í hjónabandi. Skilaboðin sem ég fékk voru þau að ég hlyti að vera hinn mesti gallagripur.“
- Óvæntir endurfundir:
„Ég kynntist Sigrúnu þegar ég var 17 ára. Við vorum jafnöldrur, en ástæðan fyrir því að við kynntumst var sú að hún fór að vera með yngri bróður mínum. Sigrún varð strax góð vinkona mín og við urðum mjög nánar.“
- Fiðrildið, dóttir mín:
„Ég elska dóttur mína og hef alltaf haft lúmskt gaman af því hvernig hún lifir lífinu. Þrátt fyrir að hún sé alin upp á ofurvenjulegu heimili af mjög svo hversdagslegum foreldrum hefur litríkur persónuleiki hennar og val í lífinu ævinlega verið á skjön við hið hefðbundna. Helst dettur mér í hug að einhvers staðar í ættum okkar leynist ævintýrakvendi og gen hennar hafi öll safnast í þessa stúlku sem fer sínar eigin leiðir þvert á almenningsálitið.“
- Kletturinn minn:
„Ég og maðurinn minn rugluðum ekki saman reytum fyrr en eftir margra ára vinskap. Vinir mínir skildu ekkert í vináttu okkar tveggja í fyrstu, þeim þótti Jonni hálfskrítinn, að minnsta kosti frekar sérstakur og líkur mér, en þeir hefðu þá átt að kynnast tengdaforeldrum mínum og mági.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/12/12
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Þráði að kynnast systkinum mínum:
„Það hefur haft áhrif á allt mitt líf að ég var rangfeðruð. Ég var orðin fjórtán ára þegar mamma og pabbi viðurkenndu loks að ég ætti annan föður en þá hafði ég sífellt fengið að heyra frá fólki að pabbi ætti ekkert í mér. Ég hitti kynföður minn löngu seinna og enn síðar ákvað ég að hafa samband við hálfsystkini mín sem höfðu ekki haft hugmynd um tilvist mína.“
- Óvænt vinslit:
„Eftir að vera orðin edrú eftir margra ára óreglu eignaðist ég vinkonu sem ég taldi trausta og góða. Það tók mig mörg ár að sjá hvernig hún var í raun og veru og eftir á skildi ég ekkert í sjálfri mér fyrir að leyfa henni að koma svona fram við mig eins og hún gerði.“
- Svona hefði líf mitt orðið ... :
„Ég upplifði einstaka stund í brúðkaupsveislu sonar míns og fékk eins konar hugljómun um það hvernig líf mitt hefði orðið ef ég hefði ekki tekið afdrifaríka ákvörðun sem fór vægast sagt illa í fólkið í kringum mig..“
- Úlfur í sauðargæru:
„Ég hef búið í útlöndum frá unglingsaldri en lít þó alltaf á mig sem Íslending. Íslendingum hef ég einhvern veginn treyst betur en öðrum en fyrir mörgum árum fór ég flatt á því að treysta íslenskum manni sem var traustsins ekki verðugur.“
- Stelsjúka frænkan:
„Mamma mín og Ragna frænka voru fæddar með sextán mánaða millibili. Þetta gerði þær ákaflega nánar og í æsku voru þær aldar upp eins og tvíburar. Þær voru í eins fötum hvor í sínum litnum, voru settar í sömu tómstundir og eiginlega allaf gert ráð fyrir að þær hefðu sömu áhugamál. Mamma elskaði Rögnu systur sína en þegar systurdóttir hennar reyndist illa sjúk varð hún að velja og hún valdi mig.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/08/15
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Hún bara veit …
„Systir mín sér lengra en nef hennar nær og til eru margar sögur af henni og hugboðum hennar. Fyrr á árinu lenti hún í atviki en skjót viðbrögð hennar björguðu henni án efa frá vandræðum.“
- Óvænt umbreyting:
„Besta vinkona mín frá barnæsku barðist lengi við offitu. Hún náði stundum að léttast mikið en var ekki lengi að bæta öllum aukakílóunum á sig aftur þegar kúrnum lauk. Fyrir nokkrum árum tókst henni að komast í kjörþyngd og halda henni en í leiðinni gjörbreyttist persónuleiki hennar.“
- Mamma breyttist við skilnaðinn:
„Þegar ég var ellefu ára skildu foreldrar mínir. Pabbi hafði kynnst annarri konu og kom heim einn daginn og tilkynnti að hann væri farinn. Skiljanlega var þetta mömmu gríðarlegt áfall en það var bókstaflega eins og hún klikkaðist. Enn í dag á ég erfitt með að fyrirgefa henni margt af því sem gerðist fyrst eftir það.“
- Örlagarík áreitni:
„Einn veturinn fyrir mörgum árum fékk ég vinnu við kennslu úti á landi. Eftir að ég var flutt aftur í bæinn heyrði ég að kjaftasögur hefðu grasserað um ásókn mína í giftan mann á staðnum. Sannleikurinn er hins vegar gjörólíkur sögunni og áreitnin sem átti sér stað reyndist mér ansi örlagarík.“
- Á síðasta snúningi?:
„Lífið var svolítið tómlegt eftir skilnað við manninn minn til fimmtán ára. Sonur okkar kaus að verða eftir hjá pabba sínum en var afar duglegur að heimsækja mig. Ég var alveg opin fyrir nýju sambandi en að finna góðan mann til að verja lífinu með reyndist ekki auðvelt.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/08/22
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Undarlegt tilboð:
„Fyrir nokkru lenti ég í furðulegri reynslu þegar maður sem ég hafði aldrei hitt og þekkti bara í gegnum Facebook, gerði mér tilboð sem honum fannst greinilega að ég gæti ekki hafnað. Einhverju síðar fór eldri maður að gera hosur sínar grænar fyrir mér á ansi óþægilegan hátt.“
- Á einhverfurófi:
„Allt frá því ég var barn hef ég þurft að bera ábyrgð á systur minni. Hún rakst illa í hópi eins stundum er sagt, þótti sérstök og var því alltaf höfð út undan. Mamma ætlaðist til að ég sæi um hana, tæki hana með í afmæli og seinna partí sem mér var boðið í og að ég stæði stöðugt í að breiða yfir mistök hennar og bæta fyrir þegar upp úr sauð milli hennar og hinna krakkanna. Þegar hún var greind á einhverfurófi ríflega fertug skýrði það margt en gerði hana sannarlega ekki auðveldari í umgengni.“
- Fíklarnir í lífi mínu:
„Frá æsku stefndi ég að því að mennta mig og gera eitthvað mikið úr lífi mínu en strax í menntaskóla breyttist það. Ég sé þó ekki eftir neinu því ég er bæði reynslunni og yndislegum börnum ríkari.“
- Draumurinn varð að martröð:
„Eftir að hafa búið og starfað árum saman sem kennari og síðar skólastjóri á litlum stað á landsbyggðinni flutti ég, ásamt manni mínum og dóttur, í mun stærri bæ. Mig hafði dreymt um að verða „bara kennari“ á nýjan leik og hlakkaði til rólegra lífs. Sú varð nú aldeilis ekki raunin.“
- Ég veit ekki hvað kom yfir mig!:
„Vinkona mín skildi ýmsa eftir í sárum þegar hún tók vanhugsaða ákvörðun. Hún áttaði sig á mistökunum nánast strax en of seint.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/08/29
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Tíu daga martröð:
„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“
- Yfirgangssamir vinir:
„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“
- Óvænt vinslit:
„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“
- Bíræfinn bóndi:
„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“
- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:
„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikunnar
2021/09/05
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Hvern ertu að reyna að sannfæra?:
„Þegar systir mín gifti sig var ég viss um að samband hennar við mann sinn yrði farsælt, svo ástfangin voru þau og tilbúin til að verja lífinu saman. Þrjátíu árum síðar virtist allt vera í lukkunnar velstandi en svo heyrði ég samtal á milli hennar og vinkonu hennar.“
- Kaldlynd vinkona:
„Að missa ástvin er hluti af lífinu og huggunin er ekki síst fólgin í fólkinu í kringum mann sem styður og styrkir og hjálpar við að komast yfir sorgina. Vinkona mín til fjölda ára sýndi af sér undarlega framkomu þegar sameiginleg vinkona okkar upplifði sáran missi og síðar ég.“
- Allt of seint:
„Ég er elst af fjórum systkinum og man því vel eftir því þegar faðir okkar yfirgaf okkur. Hann skildi ekki bara við mömmu, heldur einnig okkur börnin sín. Löngu seinna, þegar við vorum orðin uppkomin og nutum öll velgengni, vildi hann taka upp samband við okkur.“
- Ofverndandi amma:
„Lífið var oft erfitt hjá vinkonu minni en þegar hún kynntist góðum manni og eignaðist með honum barn hélt ég að nú yrði allt gott. Mér skjátlaðist.“
- Neydd í umgengni:
„Fyrir fjölmörgum árum var mér og litla bróður mínum bjargað út af miklu óregluheimili og við sett í fóstur. Við höfðum þurft að þola það sem ekkert barn á að þurfa að þola en þrátt fyrir að vera komin í fóstur, vorum við ekki alveg sloppin.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Lífsreynslusögur Vikuknnar
2021/10/03
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir:
- Tíu daga martröð:
„Fyrir löngu síðan kynntist ég manni sem ég varð afskaplega hrifin af, svo hrifin að ég þáði með þökkum boð hans um að fara með honum í sumarbústað.“
- Yfirgangssamir vinir:
„Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað og þá bauðst mér og fjölskyldu minni að nota hann þegar hann var laus sem var mjög oft. Ég átti þó alls ekki von á því að vinafólk mitt myndi smám saman nánast leggja undir sig bústaðinn og okkur fjölskylduna.“
- Óvænt vinslit:
„Þegar tvær góðar vinkonur mínar eignuðust maka með stuttu millibili breyttist framkoma þeirra í minn garð og innan árs voru þær hættar að tala við mig.“
- Bíræfinn bóndi:
„Þegar ég var um tvítugt vissi ég ekki hvað mig langaði að gera við líf mitt. Mér fannst ég þurfa að breyta algjörlega til og í einhverju bríaríi svaraði ég auglýsingu um ráðskonustarf í sveit.“
- Þó andvarans söngrödd sé þögnuð …:
„Ég átti kærasta í tæpt ár og var mjög hrifin af honum. Hann var sérlega náinn fjölskyldu sinni sem mér fannst kostur en fyrir rest var mér farið að finnast það stór galli.“
See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Lífsreynslusögur Vikunnar relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.4371061566
The Megyn Kelly Show
SiriusXM

4.888901269
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network

4.8118931000
Mind Pump: Raw Fitness Truth
Sal Di Stefano, Adam Schafer, Justin Andrews, Doug Egge

4.8102131585
Tara Brach
Tara Brach

4.541561215
Something You Should Know
Mike Carruthers | OmniCast Media

4.513841343
Strictly Anonymous Confessions
Kathy Kay

4.8292781897
Fantasy Footballers - Fantasy Football Podcast
Fantasy Football

4.62382612
Football Weekly
The Guardian

4.45387666
Two Judgey Girls
Two Judgey Girls

3.8258501152
The Viall Files
Nick Viall