1497949171
Listin og lífið

Advertise on podcast: Listin og lífið

Categories
Country
Iceland
This podcast has
63 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2020/02/05
Latest episode
2022/06/20
Average duration
73 min.
Release period
21 days

Description

Hér komum við saman til að ræða um bækur, ljóð og leikrit í bland við allt sem tilheyrir lífinu.

Unlock Listin og lífið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Listin og lífið podcast


Doctor Strange / Everything Everywhere All at Once
2022/06/20
Er til önnur útgáfa af þér einhvers staðar þarna úti? Er til heimur þar sem þú kannt að skíða á höndum eða borðar með naflanum eða heimur þar sem allt er fjólublátt? Við munum sennilega aldrei komast að því en það er aftur á móti ENDALAUST hægt að velta sér upp úr því og bíómyndirnar tvær sem við tókum fyrir í þættinum eru einmitt af þeirri sortinni. Önnur er mögulega BESTA MYND ÁRSINS (já, þú last þetta rétt) en hin er talsvert verri🙈🙊
Eru SumarBækur betri en aðrar bækur?
2022/06/07
Leikhúsárið er að líða undir lok og það þýðir bara eitt: Loksins, loksins er komið SUMAR! Við ræddum síðustu leikhúsferðir vetursins, Room 4.1 og Sjö ævintýri um skömm, og fórum í gegnum himinháan sumarbókastafla🛫⛱
Looking for Alaska eftir John Green
2022/05/16
Fyrir þá sem ekki vita: John Green er enginn venjulegur maður. Hann er maðurinn sem færði okkur The Fault in Our Stars og Paper Towns, ógleymanlegar ungmennabækur (og kvikmyndir) sem breyttu allri okkar upplifun af því hvað ungmennabækur eru. Hér fjöllum við um hans fyrstu skáldsögu, Looking for Alaska sem kom út árið 2005 og olli þó nokkrum usla. 
Óskarsmyndir 2022
2022/05/02
Við fengum FRÁBÆRAN gest🐢 í verið í dag og fórum í gegnum þær kvikmyndir sem hlutu tilnefningu sem besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.
Eldarnir eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur
2022/03/21
Við erum í ANDLEGU ÁFALLI eftir þessa mögnuðu bók og þurfum sálfræðiaðstoð á stundinni😱
Batman og Milla
2022/03/09
Næturbröltarar, njósnarar, kvennabósar og þunglyndir ævintýrapésar. Batman/Robbi Patt og Milla úr samnefndri bók eftir Kristínu Ómars voru með okkur í þætti dagsins og komust að því að þau eiga hitt og þetta sameiginlegt.
Akam, ég og Annika
2022/02/11
Þórunn Rakel Gylfadóttir hlaut nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ungmennabók sína Akam, ég og Annika þar sem meðal annars er fjallað um framandleika, fordóma og réttlæti. Við ræddum allt þetta og fleira til í þætti dagsins. Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
The Lost Daughter
2022/01/24
Rithöfundurinn Elena Ferrante hefur slegið rækilega í gegn á síðustu árum og um þessar mundir er einmitt í sýningu bíómyndin The Lost Daughter sem byggð er á samnefndri bók höfundarins. Við dembdum okkur í bæði lestur og bíó og komum frekar ósammála upp úr kafinu. Þessi þáttur er í boði Senu. 
SPIDERMAN🕸
2022/01/10
Forfallnir aðdáendur Kóngulóarmannsins köfuðu í hugsanlega heima áttfætlunnar með Tobey Maguire, Andrew Garfield og Tom Holland.
Jól á eyjahótelinu (og fleira skemmtilegt)
2021/12/20
Í síðasta þætti fyrir jólafrí ræddum við jólabækur Angústúru; Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og Jól á eyjahótelinu eftir Jenny Colgan. Við spjölluðum líka um jólagjafir, jólatónlist, jólamyndir og allt hitt sem tilheyrir jólunum🎄 Þáttur er í boði bókaforlagsins Angústúru.
Að borða Búdda
2021/11/24
Við ræddum bókina Að borða Búdda - líf og dauði í tíbeskum bæ eftir Barböru Demick. Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
Yosoy
2021/11/10
Við töluðum um skáldsöguna Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur; sögu af líkamslistum, sársauka og mörkum hins siðlega sem dregur fram svo mikil óþægindi að við bókstaflega fundum það í líkamanum.

Podcast reviews

Read Listin og lífið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Listin og lífið relevant audience podcasts


What do you want to promote?