1512138568
Fram og til baka

Advertise on podcast: Fram og til baka

This podcast has
51 episodes
Language
Icelandic
Publisher
RÚV
Explicit
No
Date created
2020/05/07
Latest episode
2023/03/04
Average duration
114 min.
Release period
-7 days

Description

Felix Bergsson rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar notalega tónlist. Hann býður upp á hlustendagetraun og fær til sín góða gesti sem segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra.

Unlock Fram og til baka podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Fram og til baka podcast


Vilborg hin víðförla
2023/03/04
Í Fram og til baka koma gestir í fimmuna og ræða fimm atriði af sama tagi sem hafa haft áhrif á lífið. Að þessu sinni er það engin önnur Vilborg Halldórsdóttir leikkona, leiðsögumaður og ljóðskáld sem segir af fimm mögnuðum stöðum sem breyttu lífinu. Eitt er víst, Ítalía kemur við sögu. Í síðari hluta þáttarins ætlar Felix að spila lögin sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni í kvöld og segja af keppendum.
María Reyndal í fimmunni
2023/03/11
Gestur Felix Bergssonar í fimmunni í Fram og til baka er María Reyndal leikstjóri og handritshöfundur. Hún segir hlustendum af fimm skólum sem börnin hennar Hrafnhildur og Jörundur gengu í á ferðum fjölskyldunnar um heiminn. Skólarnir eru á Nýja Sjálandi, í Kanada, Bandaríkjunum, Portúgal og Íslandi. Í síðari hluta þáttarins koma þær Díana Júlíusdóttir og Ósk Ebenesardóttir og segja af sýningu félags áhugaljósmyndara í Borgarbókasafninu í Spönginni
Gísli varð fyrir hnjaski
2023/03/18
Gestur Felix þennan ljúfa laugardag er Gísli Einarsson fjölmiðlamaður, sögumaður og uppistandari. Gísli segir okkur af mismunandi hnjaski sem hann hefur orðið fyrir í gegnum tíðina en hefur alltaf leitt til jákvæðrar niðurstöðu. Gísli er þessa dagana að leika uppistandið sitt Ferðabók Gísla Einarssonar (en hvorki Eggerts né Bjarna) í Landnámssetrinu í Borgarnesi
Erna sagði já!
2023/03/25
Erna Hrönn söngkona, táknmálsfræðingur og fjölmiðlakona var gestur Felix í fimmunni í Fram og til baka. Hún sagði okkur af mikilvægustu já-unum í lífinu sem voru allt frá því að fá að komast í söngnám níu ára og yfir í jáið sem hún fékk frá Virk árið 2019, þá algjörlega búin á sál og líkama. Síðan kom menntaskólaneminn Heimir Árni Erlendsson úr Landeyjunum en hann sló í gegn í Gettu betur með liði FSu. Heimir Árni er líka mikill Eurovision aðdáandi og sagði okkur af uppáhaldslögunum sínum í keppninni í ár
Þórarinn og veiðin í lífinu
2023/04/01
gestur Felix í fimmunni í Fram og til baka var Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Þórarinn hefur komið víða við á ferli sínum og sagði af ýmsum ævintýrum lífsins í gegnum fimm veiðistaði. Þar hóf hann leik á bryggjunni í Keflavík og endaði með vinahópi í Vatnsdalsá. Svo hringdi Felix til Helsinki og heyrði í Reyni Þór Eggertssyni. Vorið er á leiðinni þó það sé enn snjór á jörðu og kalt í veðri. En sólin skín og Finnar eru bjartsýnir um gott gengi í Eurovision
Þar liðast sprænan Spree
2023/04/08
Felix verður í Berlín í þessum páskaþætti af Fram og til baka. Hann spilar tónlist sem tengist borginni og segir sögur af listamönnum sem þar hafa gengið um götur. Í seinni hlutanum skoðar hann það sem gerðist á deginum og þar koma við sögu meðal annarra Clash, NIrvana og Twin Peaks. Svo hitar hann upp fyrir Alla leið þátt kvöldsins í sjónvarpinu
Bjarni og bækurnar fimm
2023/04/15
Bjarni Snæbjörnsson hefur vakið mikla athygli fyrir leikverk sitt Góðan daginn faggi sem hann hefur leikið yfir 100 sinnum á síðustu tveimur árum, bæði í Þjóðleikhúsinu og út um allt land. Bjarni kom í fimmuna og sagði okkur af fimm bókum sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og hjálpuðu til dæmis við skrifin á leikverkinu. Bækurnar eru: The Velvet Rage - Alan Downs Daring Greatly - Brene Brown Untamed - Glenon Boyle Big Magic - Elisabeth Gilbert Human Kind - Rutger Brekman Og við héldum áfram að ræða bækur því framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík, Stella Soffía Jóhannesdóttir, mætti í spjall og talaði um hápunkta hátíðarinnar sem hefst á síðasta vetrardag. Nánari upplýsingar má finna bokmenntahatid.is
Birgir Steinn Stefánsson
2023/04/22
Birgir Steinn Stefánsson hefur vakið mikla athygli sem tónlistarmaður frá því að hann fór að senda frá sér tónlist fyrir nokkrum árum og hefur gríðarlega hlustun á Spotify. Birgir er sonur Önnu Bjarkar Birgisdóttur og Stefáns Hilmarssonar þannig að hann á ekki langt að sækja hæfileikana. Hann kom í ljúft spjall í Fram og til baka og sagði af fimm áhrifavöldum í lífi sínu. Í síðari hluta þáttarins fjölluðum við um söngleikinn Eitthvað rotið (Something Rotten) sem söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Dementz setur upp í Gaflaraleikhúsinu. Einn leikaranna, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir eða Sigga Ózk, kom í morgunkaffi daginn eftir frumsýningu!
Barátta Sonju fyrir betri heimi
2023/04/29
Sonja Ýr Þorbergsdóttir hefur vakið athygli fyrir skörulega framgöngu sem formaður BSRB og hún var gestur Felix í fimmunni í Fram og til baka. Fimm verkföll eða vinnudeilur urðu þemað og Sonja fór um víðan völl í skemmtilegu spjalli um réttindi af öllum toga og lífið og tilveruna. Í síðari hluta þáttarins töluðu Inga Rós Vatnsdal og Karl Ágúst Ipsen um Eurovision keppnina í Liverpool sem fer fram í byrjun maí
Gulli Jóns og stóra stökkið
2023/05/06
Það var Gunnlaugur Jónsson sem var gestur Felix í Fram og til baka. Hann talaði um fimm fjölmiðlaverkefni sem hann hefur komið að í gegnum tíðina en tilefnið eru nýir þættir í seríunni Árið er sem verða á Rás 2 í tilefni af 40 ára afmæli rásarinnar. Að auki ætlar Gulli að taka stóra stökkið og reyna sig við að vinna sem fjölmiðlamaður í fullri vinnu. Felix spilaði svo popptónlist frá Liverpool en hann er staddur þar vegna Eurovision 2023
Bítlar og baráttusöngvar
2023/05/20
Felix sendi okkur Fram og til baka að þessu sinni frá Berlín. Hann lét tónlistina ráða för og hún teymdi okkur í ýmsar áttir, allt frá Herstöðvaandstæðingum til Bítlanna og skoðunarferðar um Liverpool. Þá var fjallað um það helsta sem gerðist á þessum degi, 20. maí.
Ásdís, poppstjarna í Þýskalandi
2023/05/27
Gestur Felix í Fimmunni er Ásdís María Viðarsdóttir tónlistarmaður sem hefur slegið í gegn í Þýskalandi að undanförnu með kraftmikilli popptónlist. Ásdís talar um fimm áhrifavalda í tónlistinni og þar kennir margra grasa. Svo heyrum við af framtíðinni og nýja laginu sem mun koma út í júní Þátturinn er sendur frá Berlín

Podcast reviews

Read Fram og til baka podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Fram og til baka relevant audience podcasts


What do you want to promote?