
Advertise on podcast: Bíóblaður
Rating
5from
This podcast has
384 episodes
Language
IcelandicPublisher
Hafsteinn SæmundssonExplicit
No
Date created
2020/07/02
Latest episode
2026/10/14
Average duration
138 min.
Release period
27 days
Description
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Unlock Bíóblaður podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Bíóblaður podcast
#340 Bíóspjall II með Kidda
2026/10/14
Það eru um fjögur ár síðan Kiddi kom síðast í spjall til Hafsteins og það var því tímabært að fá hann aftur í heimsókn.
Í þættinum ræða strákarnir meðal annars House of the Dragon, stöðuna á Star Wars í dag, hvort það sé gott fyrir bransann að Paramount og WB séu að sameinast, hversu mikið Kiddi þolir ekki One Battle After Another, hvort A.I. geti bjargað okkur, hversu geggjuð Lanterns serían er og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Kiddi snýr aftur eftir fjögurra ára hlé
02:20 - Star Wars
15:19 - DC
46:15 - Paramount og WB samruninn
53:09 - A.I.
59:52 - Star Wars
1:05:29 - Westeros heimurinn
1:26:12 - One Battle After Another og pólitík
1:45:51 - Tölvuleikjabíómyndir
#339 The Odyssey og Marvel með Alex from Iceland
2026/09/30
Content creatorinn Alex Michael Green Svansson (Alex from Iceland) kíkti til Hafsteins til að ræða sérstaklega The Odyssey og stöðuna á Marvel í dag.
Í þættinum ræða strákarnir meðal annars Spider-Man: Brand New Day, hversu vel The Odyssey heppnaðist, hvort Avengers: Doomsday geti bjargað Marvel heiminum, hvort Dune 3 verði betri en númer 2 og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Coco Coast drykkurinn
05:34 - The Odyssey
1:00:00 - Brand New Day og Doomsday
2:03:31 - Hvað klikkaði með Blade myndina?
2:15:46 - The Batman Part II
2:22:27 - Dune og Obsession
#338 Topp 10 með Snorra Rafni
2026/09/10
Snorri Rafn Frímannsson er ungur leikari og tónlistarmaður. Snorri lék meðal annars eitt aðalhlutverkanna í kvikmyndinni Berdreymi árið 2022.
Snorri kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir.
Í þættinum ræða þeir meðal annars ástríðu Snorra á kvikmyndum, hversu mikill Daniel Day-Lewis aðdáandi Snorri er, hvort Stanley Kubrick sé ofmetinn leikstjóri, hversu vanmetin Joker 2 er og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Snorri Rafn eða Snow Raven
06:40 - Leiklist og kvikmyndaáhugi
32:00 - Honorable mentions
36:38 - Capote
40:20 - Phantom Thread
46:33 - There Will Be Blood
54:42 - Joker
1:03:28 - Dr. Strangelove
1:20:38 - Vonarstræti
1:32:55 - Eternal Sunshine of the Spotless Mind
1:42:10 - The Piano Teacher
1:46:44 - Forrest Gump
1:54:10 - Uppáhalds myndin hans Snorra
2:10:17 - Hot takes og grín
#337 Topp 10 með Coach Clean
2026/09/02
Hreinn Orri Hreinsson, betur þekktur sem Coach Clean, er fjarþjálfari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds kvikmyndir.
Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Snatch sé betri en Lock Stock, hversu mikill Will Smith aðdáandi Orri er, hvort það ætti að gera enn eina Ocean’s Eleven mynd, hvort Heat 2 verði góð, hver er lélegasta Tarantino myndin og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Hvað gerir Coach Clean?
11:41 - Orra gæði
14:51 - Kvikmyndaspjall
24:27 - Honorable mentions og Will Smith
33:38 - Topp 10 listinn
35:17 - Tropic Thunder
49:57 - Snatch
56:17 - Ocean’s Eleven
1:07:11 - The Hateful Eight
1:19:22 - The Rock
1:30:30 - The Departed
1:40:25 - Die Hard with a Vengeance
1:54:04 - The Dark Knight
2:07:13 - Heat
2:21:42 - Uppáhalds myndin hans Orra
2:43:41 - Lokaorð
#336 Bransaspjall með Christof Wehmeier
2026/08/24
Christof Wehmeier er sérfræðingur í markaðs- og kynningarmálum og hefur yfir 30 ára reynslu af markaðssetningu kvikmynda.
Christof hefur meðal annars séð um kvikmyndamarkaðssetningu hjá Stjörnubíó, Sambíóunum og Skífunni. Frá árunum 2007 til 2025 starfaði hann sem kynningarstjóri hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands þar sem hann kynntist vel innlendri kvikmyndagerð.
Christof hefur einnig leikið lítil hlutverk í ýmsum verkefnum og hefur skrifað handrit.
Hafsteinn var spenntur að spjalla við hann en í þættinum ræða þeir meðal annars ferilinn hans Christof, bestu Michael Mann myndina, stöðuna á Star Wars í dag, hversu mikil áhrif A.I. mun hafa á bransann, hvort Christopher Nolan sé stærsti leikstjóri heims í dag og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Hver er Christof Wehmeier?
04:41 - Christof og markaðssetning á kvikmyndum
20:53 - Christof, KMÍ og innlend kvikmyndagerð
35:17 - Innlend og erlend kvikmyndagerð á Íslandi
42:11 - Unga kynslóðin í kvikmyndagerð
53:35 - Christopher Nolan
57:20 - Nýjar raddir fyrir unga fólkið
1:00:26 - Christopher Nolan
1:03:43 - Ofurhetjur og Dunesday
1:11:29 - Netflix myndir og streymisveitur
1:21:08 - Er Hollywood á góðum stað í dag?
1:31:27 - Kvikmyndafókus hefur breyst
1:33:53 - Eldri kvikmyndir vs. nýjar
1:41:20 - Norræn kvikmyndagerð
1:48:26 - Star Wars
1:56:39 - Framhaldsmyndir
2:02:26 - Michael Mann
2:06:01 - Handritagerð
2:19:12 - James Bond
2:31:13 - Gervigreind
2:35:45 - Ásgeir Kolbeins fór með rangt mál
2:37:41 - Tom Cruise
#335 2025 með Ásgeiri Kolbeins
2026/01/06
Athafnamaðurinn Ásgeir Kolbeins kíkti til Hafsteins til að ræða árið 2025.
Strákarnir leggja helst áherslu á stóru kvikmyndirnar sem komu út á árinu en þeir voru sammála um að árið sem slíkt hafi verið fullt af vonbrigðum.
Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Leonardo DiCaprio hafi staðið sig vel sem aumingi í One Battle After Another, hvort Avatar: Fire and Ash sé besta Avatar myndin, hvort Ballerina hafi gengið vel sem John Wick mynd, hvort Ásgeir gæti sjálfur skrifað betri Jurassic Park mynd en myndirnar sem hafa komið út undanfarin ár, hversu slæmt ár þetta var fyrir Marvel, hvort það sé einhver von fyrir DC heiminn og margt, margt fleira.
00:00 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!
00:14 - Intro
00:29 - Ásgeir Kolbeins fær gjöf
03:19 - Avatar: Fire and Ash
23:20 - Var árið gott?
32:42 - One Battle After Another
51:03 - Sinners
1:10:07 - Weapons
1:30:35 - Jurassic World: Rebirth
1:37:51 - Marvel myndir ársins
1:57:50 - Ballerina og Nobody 2
2:24:19 - Grínmyndir ársins
2:39:16 - Mission Impossible: The Final Reckoning
2:55:35 - F1
2:58:36 - Superman
3:12:55 - Sjónvarpsseríur og Alien: Earth
#334 Best of the Best - The Final Round: Kilo og Ísrael vs. Óli og Máni
2025/12/21
Það er komið að úrslitum í fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs! Kilo og Ísrael unnu Odd og Tóta í undanúrslitunum og Óli og Máni unnu Hugleik Dagsson og Ævar.
Í þessum þætti mætast því sterkustu liðin í mótinu, Kilo og Ísrael á móti Óla og Mána. Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, löggur og bófa, nörda stuff, bardagastjörnur og margt, margt fleira.
Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.
00:00 - Bíóblaður er jólagjöfin í ár!
00:10 - Intro
00:25 - Jólaþátturinn í ár!
00:48 - Er Die Hard jólamynd?
03:22 - Bíóblaður spurningaspilið er komið í verslanir!
04:35 - Best of the Best úrslitaþáttur
14:48 - Atriði
30:22 - Almennar spurningar
41:48 - Plakatleikur
52:45 - Rétt eða rangt
1:02:19 - Persónur og leikarar
1:19:38 - Valmöguleikar
1:35:34 - Flokkar (Ártöl, Löggur og bófar, Nörda stuff, Bardagastjörnur)
1:57:29 - Sigurvegarar krýndir
#333 Avatar: The Way of Water með Jóhanni Leplat
2025/12/10
Í tilefni þess að nú er stutt í að þriðja Avatar myndin verði frumsýnd, þá ákvað Hafsteinn að opna fyrir gamlan áskriftarþátt þar sem hann og Jóhann Leplat Ágústsson, stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn, ræddu Avatar: The Way of Water.
Jóhann og Hafsteinn voru ekki sammála um gæði myndarinnar og úr myndaðist skemmtileg umræða. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort biðin hafi verið þess virði, hversu sturlaðar tæknibrellur eru í myndinni, hvort hún sé í rauninni bara endurgerð af fyrstu myndinni og margt, margt fleira.
#332 Best of the Best: Hugleikur og Ævar vs. Óli og Máni
2025/12/01
Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!
Í þessari seinni lotu keppa uppistandarinn og rithöfundurinn Hugleikur Dagsson og handritshöfundurinn Jóhann Ævar Grímsson við Bíóblaðurs fastagestina og quiz meistarana Óla Bjarka og Mána Frey.
Fyrir rúmu ári síðan keppti Hugleikur við strákana sem endaði með einungis tveggja stiga mun. Óli og Máni unnu þá keppni og nú er komið að stærsta rematch quiz-i ársins.
Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, James Bond, hryllingsmyndir, klassískar myndir og atriði úr bíómyndum. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.
00:00 - Intro
00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!
00:38 - Hugleikur er að gefa út spil fyrir jólin
07:10 - Best of the Best
11:40 - Plakatleikur
31:31 - Almennar spurningar
42:11 - Persóna og leikari
55:01 - Rétt eða rangt
1:02:25 - Atriði
1:11:08 - Flokkar (James Bond, Hryllingur, 1984, Bíómix)
1:35:58 - Sigurvegarar krýndir
#331 Best of the Best: Oddur og Tóti vs. Kilo og Ísrael
2025/11/25
Það er komið að fyrsta spurningamóti Bíóblaðurs!
Í þessari fyrstu lotu keppa hlaðvarpsstjórnendurnir Oddur Ævar og Tóti á móti Bíóblaðurs fastagestunum Kilo og Ísrael. Oddur og Tóti eru með kvikmyndahlaðvarpið Tveir á toppnum og eru því vel undirbúnir fyrir þetta mót. Kilo og Ísrael hafa áður keppt á móti hvor öðrum en í þetta skipti snúa þeir bökum saman gegn Oddi og Tóta.
Í þættinum þurfa keppendur að svara alls konar bíómyndatengdum spurningum en þar á meðal er spurt um plaköt, ártöl, persónur úr bíómyndum, evrópskar myndir, Clint Eastwood og Jessica Chastain. Þessi þáttur er skylduáhorf fyrir alla sem elska keppnir og kvikmyndir.
00:00 - Intro
00:15 - Bíóblaður spurningaspil er komið í verslanir!
01:58 - Ísrael og Kilo
03:04 - Tveir á toppnum (Oddur og Tóti)
10:40 - Almennar spurningar
16:00 - Plakatleikur
25:19 - Rétt eða rangt
38:09 - Atriði
50:06 - Hugh Jackman eða Jessica Chastain
59:17 - Persónur og leikarar
1:14:32 - Flokkar (Clint Eastwood, DC, Evrópa, Klassískar myndir)
1:36:40 - Sigurvegarar krýndir
#330 Nördaspjall með John Inga Matta
2025/11/03
John Ingi Matta hefur verið í kvikmyndabransanum síðan 2008. Hann hefur gert ýmislegt í bransanum en hefur þó undanfarið einbeitt sér að flest öllu sem snertir sjálfar tökuvélarnar.
John Ingi hefur meðal annars unnið við Game of Thrones, þrjár Star Wars myndir, tvær Transformers myndir, Sveppamyndirnar og The Marvels.
Hafsteinn var spenntur fyrir því að fá John Inga í spjall þar sem John vinnur ekki einungis í bransanum heldur er hann algjört bíónörd.
Í þessum risa þætti fara strákarnir um víðan völl en þeir ræða meðal annars bransann, franskar hryllingsmyndir, asískar hasarmyndir, John Woo, Marvel, stöðuna á Star Wars í dag, hvort James Gunn eigi eftir að standa sig vel með DC heiminn, Sinners, Weapons, One Battle After Another og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Samanburður á ólíkum myndum
09:16 - Hver er John Ingi?
16:17 - Íslenski bransinn
24:55 - Hryllingsmyndir
48:40 - The Raid og erlendir aðilar í Hollywood
51:39 - Franskar hryllingsmyndir og A Serbian Film
1:05:25 - Suður-Kóreskar og japanskar myndir
1:18:53 - Tony Jaa og Chow-Yun Fat
1:29:10 - John Wick og Ballerina
1:35:05 - Weapons og Sinners
1:51:04 - One Battle After Another
2:10:46 - Keanu Reeves, John Wick og The Matrix
2:22:55 - Star Wars, Disney og Netflix
2:58:59 - Marvel
3:12:14 - DC
3:27:45 - Ástríða fyrir bíómyndum og gervigreind
#329 Horror Quiz: Pétur vs. Jökull
2025/10/27
Hryllingsmyndaaðdáendurnir Pétur Ragnhildarson og Jökull Jónsson eru fastagestir Bíóblaðurs en strákarnir eru vanir að mæta í þáttinn og ræða einhverja hryllingsmyndaseríu.
Hafsteinn ákvað að breyta til í þetta skiptið og láta strákana keppa í spurningakeppni!
Pétur og Jökull þurfa að svara ýmsum spurningum sem allar eiga það sameiginlegt að tengjast hryllingsmyndum. Spurningaliðirnir eru meðal annars atriði úr myndum, scream queens, alls konar plaköt og almennar spurningar.
00:00 - Intro
00:15 - Pétur og Jökull hittust fyrir utan podcastið
10:17 - Atriði
22:00 - Plakatleikur
28:23 - Almennar spurningar
36:39 - Scream queens
46:54 - Rétt eða rangt
56:01 - Flokkar (Draugagangur, Beittar tennur, Blóðug slóð, Óþekk börn)
1:13:16 - Sigurvegari krýndur
1:17:29 - Hrekkjavöku meðmæli
#328 Old School Quiz: Kilo vs. Ísrael
2025/10/13
Ísrael Daníel Hanssen og Kilo eru báðir fastagestir Bíóblaðurs og Hafsteini datt í hug að fá þá til sín til að keppa í spurningakeppni.
Þema þáttarins eru 80’s og 90’s kvikmyndir og strákarnir keppa í nokkrum liðum.
Í þættinum eru meðal annars Tom Cruise spurningar, strákarnir fá að sjá nokkur plaköt þar sem titilinn vantar og þurfa að fylla í eyðurnar, þeir fá að sjá einn ramma úr bíómynd og þurfa að giska á úr hvaða mynd ramminn er og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
01:37 - Bíóblaður spurningaspil kemur út fyrir jól!
03:07 - Kilo og Ísrael
12:35 - Plakatleikur
25:41 - Valmöguleikar
46:39 - IMDB leikur
56:42 - Atriði
1:12:02 - Flokkar (1999, Tom Cruise, Julia Roberts, 1989)
1:22:00 - Sigurvegari krýndur
1:25:12 - Kilo og Ísrael team up?
#327 Dahmer með Kiddu Svarfdal
2025/10/08
Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða hina umdeildu Netflix seríu, Monster: The Jeffrey Dahmer Story.
Í þættinum ræða þau meðal annars hversu erfið serían er, hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þetta, hvort serían fari eftir öllum staðreyndum, hversu frábær Evan Peters er sem Dahmer, hvort það ætti yfirhöfuð að vera að fjalla um svona menn og margt, margt fleira.
#326 Bransaspjall með Ólöfu Birnu
2025/10/02
Ólöf Birna Torfadóttir er handritshöfundur og leikstjóri. Hún hefur meðal annars gert kvikmyndirnar Hvernig á að vera klassadrusla sem kom út árið 2021 og Topp 10 möst sem kom út árið 2024.
Ólöf kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá ferlinu á bakvið þessar kvikmyndir.
Þau ræða einnig hvernig gervigreind mun breyta kvikmyndaiðnaðinum, hversu mikilvægt það er að vera með gott handrit, hvernig Ólöf nálgast handritagerð þegar hún kennir nemum í Kvikmyndaskólanum, hvort sjónvarpsefni sé betra í dag en í gamla daga og margt, margt fleira.
00:00 - Intro
00:15 - Bíóblaður spurningaspil
02:01 - Handrit skipta máli
15:05 - Framtíð kvikmynda og A.I.
25:07 - Kvikmyndanám og gæði handrita
38:46 - Sjónvarpsþættir
45:49 - Streymisveitur og bíóaðsókn
59:07 - Hvernig á að vera klassa drusla
1:09:35 - Topp 10 möst
1:14:41 - Kvikmyndasjóður
1:28:20 - Genre myndir á Íslandi
1:30:36 - Topp 10 möst
1:50:16 - Grín er ekki að selja
2:06:57 - Kvikmyndasjóður
2:12:06 - Draumaverkefni og lokaorð
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Bíóblaður relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.629942025
Optimal Living Daily - Personal Development and Self-Improvement
Justin Malik

4.815451000
The Todd Herman Show
Radio America

4.6221722000
Mark Levin Podcast
Cumulus Podcast Network

4.6137791998
The Rubin Report
Dave Rubin

4.921801090
The Carl Jackson Podcast
Salem Podcast Network

4.922712003
First15 Devotional
First15

4.6313621086
Wow in the World
Tinkercast

4.723181969
Timeless Wisdom with Dennis Prager
Salem Podcast Network

4.814621647
The Big Honker Podcast
Andy Shaver & Jeff Stanfield

4.737211986
The Eric Metaxas Show
Metaxas Media