
Advertise on podcast: Handboltinn okkar
This podcast has
100 episodes
Language
IcelandicPublisher
Handboltinn okkarExplicit
No
Date created
2020/07/11
Latest episode
2022/05/30
Average duration
53 min.
Release period
11 days
Description
Þáttur þar sem er fjallað um handbolta frá öllum hliðum bæði hérlendis og erlendis
Unlock Handboltinn okkar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Handboltinn okkar podcast
Til hamingju Fram
2022/05/30
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 og 4 í úrslitum Olísdeildar kvenna. Í leik 3 voru Framkonur ákveðnari og fóru með sigur af hólmi og munaði mest um að Hafdís Renötudóttir markvörður Fram átti flottan leik og var með um 40% markvörslu. Leikur 4 var dálítið kaflaskiptur en Fram var þó ávallt með frumkvæðið, síðustu tíu mínútur leiksins voru þó æsispennandi en safamýrarliðið hafði þó betur að lokum og unnu sinn 23. Íslandsmeistaratitil.
Strákarnir hrósuðu Karen Kútsdóttur fyrir frábæra frammistöðu í úrslitaeinvíginu og hún sýndi öllum að hún er besti leikstjórnandi landsins og gerir heldur betur tilkall til þess að vera leikstjórnandi númer 1 í A-landsliðið kvenna.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Framkonum til hamingju með titilinn.
Til hamingju Valsmenn - Þarf handboltinn að finna sér nýtt heimili?
2022/05/29
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
Í þættinum fjölluðu þeir um leikir 3 og 4 í úrslitum Olísdeildar karla. Í leik 3 voru það eyjamenn sem köstuðu frá sér unnum leik á síðustu tíu mínútum leiksins og undir lok hans átti sér stað umdeilt atvik þar sem að ruðningur var dæmdur á eyjamenn. Strákarnir voru ekki sammála um réttmæti dómsins líkt og aðrir landsmenn. Spennan var svo í algleymingi í leik 4 þar sem að Valsmenn höfðu þó frumkvæðið og fóru að lokum með sigur og tryggðu sér þar með Íslandsmeistaratitilinn.
Strákarnir hrósuðu Snorra Steini þjálfara Vals sérstaklega en hann hefur greinilega farið í einhvers konar naflaskoðun og er orðinn miklu yfirvegaðari á bekknum og hættur að pirra sig á hlutum sem hann getur ekki stjórnað líkt og dómgæslu.
Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar óskar Valsmönnum til hamingju með titilinn.
Að lokum fóru þeir félagar yfir víðan völl og t.d. ræddu þeir það hvort að handboltinn þyrfti að finna sér annan samstarfsaðila þegar kemur að útsendingum frá deildunum því núverandi rétthafi væri ekki að sinna handboltanum eins og þeir ættu að gera að mati þáttastjórnenda.
Allt í járnum í úrslitaeinvígum karla og kvenna - Frábær dómgæsla í Eyjum - Sviptingar á þjálfaramarkaðnum
2022/05/24
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
Í þættinum fjölluðu þeir um fyrstu 2 leikina í úrslitum Olísdeildar karla þar sem að var um að ræða heldur betur ólíka leiki frá öllum hliðum séð. Í fyrsta leiknum voru eyjamenn bara hreinlega líkt og áhorfendur í fyrri hálfleik en náðu þó að eins að rétta hlut sinn í seinni hálfleik. Dómgæslan var heldur ekki burðug í þeim leik. Allt annað var uppá teningunum í leik 2 þar sem að ÍBV náði að svara fyrir sig en þar var Björn Viðar markvörður eyjamanna heldur betur í stuði og hélt sínum mönnum inní leiknum. Þeir félagar hrósuðu þó dómurunum sérstaklega en að þeirra mati dæmdu þeir Anton og Jónas leikinn óaðfinnanlega.
Drenginrnir fóru einnig yfir einvígi Fram og Vals í úrslitum Olísdeildar kvenna þar sem 2 leikir eru einnig búnir. Þeir voru gríðarlega ánægðir með spennuna sem er í þessu einvígi og spá því að þetta muni fara í oddaleik en þeir treystu sér þó ekki til þess að spá til um hvaða lið myndi standa uppi sem Íslandsmeistari.
Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
Selfyssingum sópað út á meðan Haukar halda lífi - Allt jafnt hjá KA/Þór og Val en Fram einu skrefi frá úrslitum í Olisdeild kvenna
2022/05/09
þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í dag.
Í þættinum fjölluðu þeir um leiki 3 í undanúrslitum karla þar sem að Haukum tókst að halda lífi í einvíginu gegn ÍBV en Selfoss féll úr leik eftir að hafa tapað einvíginu gegn Val 3-0.
Þá fóru þeir yfir leiki 2 í undanúrslitum kvenna þar sem að KA/Þór jafnaði einvígið gegn Val með sigri á heimavelli sínum fyrir norðan. Fram er hins vegar komið í 2-0 gegn ÍBV.
Að lokum fóru þeir yfir nýjustu fréttir og slúður í handboltaheiminum en það er allt að fara í gang á félagaskiptamarkaðunum þessa daganna.
Leikir 2 í undanúrslitum karla - Haukar og Selfoss komnir með bakið upp við vegg - rangfærslur leiðréttar
2022/05/05
Í þætti kvöldsins fjölluðu við um leiki 2 í undanúrslitum karla þar en eftir þá má með sanni segja að Haukar og Selfoss séu komnir með bakið upp við vegg þar sem liðin eru komin 2-0 undir í einvíginu. Þá fórum við aðeins yfir leik Fjölnis og ÍR í umspili um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Að lokum leiðréttum við rangfærslur sem við fórum með í síðasta þætti.
Undanúrslit í Olís karla - Rýnt í undanúrslit í Olís kvenna -Vilja stefnu frá HSÍ í útbreiðislumálum.
2022/05/03
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar gáfu út sinn fertugasta þátt vetrarins í dag.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir fyrstu leikina í undanúrslitunum í Olísdeild karla þar sem að þeim þykir vera einhvert andleysi yfir liði Hauka sem þeim líst ekki næginlega vel á. Þá voru þeir sammála um að Valur væri einfaldlega of stór biti fyrir Selfoss.
Þá kíktu þeir á úrslitakeppnina í Olísdeild kvenna þar sem þeir rýndu í undanúrslitin. Gestur spáði því að KA/Þór og ÍBV myndu leika til úrslita í vor og þá hófust miklar pælingar með það hvenær það hefði gerst síðast að hvorki Fram né Valur væri í úrslitarimmunni. Þáttastjórnendum sagði sá hugur að það væri líklega tímabilið 2007/2008 sem það hefði gerst en þó sagt án ábyrgðar.
Undir lok þáttar fóru þeir svo aðeins yfir ársþing HSÍ þar sem mesti tíminn fór í að ræða útbreiðslustarf og þeir félagar vilja sjá skýrari stefnu hjá HSÍ í þeim málum að breiða út íþróttina í ný bæjarfélög.
Allt um 8-liða úrslitin í Olísdeild karla - Stjarnan vonbrigði vetrarins - Spáð í undanúrslitin
2022/04/29
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og níunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson
Í þætti dagsins fóru þeir yfir 8-liða úrslitin í Olísdeild karla þar sem þeir voru heldur betur ekki ánægðir með frammistöðu Stjörnumanna og fannst þeim hún endurspegla leik liðsins í vetur þar sem þeir hafa hreinlega ekki verið að standa undir væntingum að þeirra mati.
Þá völdu þeir BK leikmenn einvíganna og munu svo setja af stað kosningu á samfélagsmiðlum sínum um það hvaða leikmaður er BK leikmaður 8-liða úrslitanna. Þeir leikmenn sem koma til greina eru Ólafur Gústafsson KA, Arnór Viðarsson ÍBV, Magnús Óli Magnússon Val og Hergeir Grímsson Selfossi.
Þeir félagar spáðu svo í spilin fyrir undanúrslitin þar sem að spá því að Valur og ÍBV sigra einvígin og leika til úrslita.
Uppgjör í Olísdeild og Grill66 deild karla - Til hamingju Hörður og Valur - Spáð í úrslitakeppnina
2022/04/11
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag eftir langa fjarveru og tóku upp sinn þrítugasta og áttunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange, Gestur Guðrúnarson og Arnar Gunnarsson
Í þætti dagsins fóru þeir yfir lokastöðuna í Olísdeild karla þar sem þeir fóru yfir hvernig hún var á móti spá þeirra félaga í haust. Þá spjölluðu þeir um það sem þeim fannst koma á óvart í vetur bæði jákvætt og neikvætt. Þá spáðu þeir aðeins í úrslitakeppnina sem hefst eftir viku og þar voru þeir félagar sammála um að það yrði hörkuskemmtun.
Þá fóru þeir einnig yfir málin í Grill66 deild karla þar sem að Hörður frá Ísafirði urðu deildarmeistarar. Þar fóru þeir yfir umspilið sem er framundan um laust sæti í Olísdeild karla á næstu leiktíð og þar voru þeir ekki alveg sammála um hvaða lið það yrði sem myndi hreppa það sæti.
Að lokum fóru þeir yfir landsleikina sem eru framundan gegn Austurríki og þar voru þeir sammála um að íslenska liðið myndi komast áfram úr því umspili.
Allt um Coca-Cola bikarkeppni karla og kvenna - Rýnt í úrslitaleikina - Aðeins meira um Selfoss og kvennalandsliðið
2022/03/12
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í dag og tóku upp sinn þrítugasta og sjöunda þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Gestur Guðrúnarson.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir undanúrslitaleikina í Coca-Cola bikar karla og kvenna. Þá rýndu þeir í úrslitaleikina sem fara fram síðar í dag. Þeir félagar eru sammála um að það verði hörku viðureign í kvennaflokki þegar að Valur og Fram mætast þar sem að þeir telja að úrslitin munu ráðast á loka andartökum leiksins.
Þeir voru ekki eins samstíga um karla leikinn þar sem að Valur og KA eigast við, Jói telur að Valsmenn eigi eftir að sigra þennan leik auðveldlega en Gestur var hins vegar ekki sammála því og telur að þetta verði hörkuleikur.
Að lokum tóku þeir félagar smá spjall um málefni Selfoss þar sem að þar hefur ýmislegt komið í ljós eftir að síðasta þætti lauk og þá fóru þeir aðeins yfir málefni A-landsliðs kvenna.
Farið yfir síðustu leiki - Vandræði á Selfossi - Fjarvera Karenar vekur spurningar
2022/02/23
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í kvöld og tóku upp sinn þrítugasta og sjötta þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange og Arnar Gunnarsson.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir leikina í 15.umferð í Olísdeild karla ásamt því að fara yfir 16- og 8-liða úrslit í Coca Cola bikar karla og kvenna.
Þá fóru þeir yfir málefni Selfyssinga en sögur herma að handknattleiksdeildin sé á bjarmi gjaldþrots. Samkvæmt heimildum skulda þeir um 30 milljónir og hafa tilkynnt leikmönnum að þeim sé frjálst að finna sér ný lið á næstu leiktíð.
Að lokum fóru þeir yfir leikina sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu en þær spila tvö leiki gegn Tyrklandi í næstu viku. Þáttastjórnendur furðuðu sig á því að það sé ekki pláss fyrir Karen Knútsdóttur í liðinu að þessu sinni en hún er ekki valin vegna þess að hún hafði skoðanir á sóknarleik liðsins.
EM gert upp - Sameining í umræðunni fyrir norðan
2022/02/02
Strákarnir í hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar settust í Klakastúdíóið sitt í kvöld og tóku upp sinn þrítugasta og fimmta þátt á þessu tímabili. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson.
Í þætti dagsins gerðu þeir Evrópumótið upp þar sem þeir voru sammála því að mótið hafi heppnast vel svona ef frá er tekið covid málin. En handboltalega hafi mótið verið spennandi og góð auglýsing fyrir handboltann. Þeir ræddu svo aðeins framtíð íslenska liðsins og þeir voru allir sammála því að það væri góður tímapunktur núna að fá nýja og ferska vinda í brúnna og þeir voru spenntir fyrir því að reyna að fá Dag Sigurðsson að borðinu.
Þá fóru þeir aðeins yfir það sem væri að frétta af málum innanlands en það styttist í það að keppni í Olísdeild karla hefjist á ný. Stærsta fréttin er líklega sú að það fréttist af fundi á Akureyri þar sem menn eru að ræða það að sameina KA og Þór á ný og verður spennandi að fylgjast með framvindu þess máls.
Að lokum fóru þeir yfir hver hefði verið sigurvegari í getraunaleik þeirra og BK Kjúklings. En að þessu sinni var það Svanur Bjarki Úlfarsson sem giskaði á rétt úrslit og hann fær 2 gjafabréf á BK kjúkling að launum.
Naumt tap gegn Noregi - Breiddin að aukast - Verða Svíar Evrópumeistarar?
2022/01/29
Þrítugasti og fjórði þáttur af hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar kom út í kvöld. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Gestur Guðrúnarson, Jói Lange og Arnar Gunnarsson.
Í þætti dagsins fóru þeir yfir leik Íslands og Noregs um fimmta sætið þar sem að Noregur hafði betur eftir framlengdan leik. Þeir félagar voru ánægðir með baráttuna í íslenska liðinu og voru virkilega ánægðir með að liðið skyldi aldrei gefast upp. Þeir voru sáttir með framlag leikmanna í leiknum og voru sérstaklega hrifnir af Janusi í leiknum og völdu hann sem BK leikmann leiksins.
Þeir voru heilt yfir ánægðir með gengi liðsins á þessu móti og að nokkrir leikmenn liðsins sýndu að þeim er vel treystandi til þess að koma inná og leysa af í 10-15 mínútur og að Guðmundur Guðmundsson þurfi ekki að vera hræddur við að hreyfa við mannskapnum.
Þá ræddu þeir aðeins úrslitaleikinn sem er framundan og voru sammála því að það yrðu Svíar sem myndu standa uppi sem sigurvegarar að þessu sinni.
Þá tilkynntu þeir um þann sem fékk BK gjafabréf í getraunaleiknum en að þessu sinni var það Árni Rúnar, formaður handknattleiksdeildar Þórs sem fékk gjafabréfið.
Podcast reviews
Read Handboltinn okkar podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Handboltinn okkar relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.9240126
ASAP: Another Shawn Allen Podcast
NearMe Media Network

4.283530
The Self Help Podcast
Live in the Present

52917
16 Sunsets
Antica & Telltale Studios

4.4134371
ON BOYS Podcast
Janet Allison, Jennifer LW Fink

4.6137101
Ecotopia | اکوتوپیا
Pouria Bakhtiari

4.914954
Why We Bleep
Mylar Melodies

4.9181145
The Cassandra McClure Show
Cassandra McClure

4.63375
Brushy: Fun Facts For Kids
Podspot

3.99110
Sacked in the Morning
BBC Radio Scotland

51197
Theory of Thing Investment Podcast
Muskets at Dawn Pty Ltd