1524145990
Ljósmyndaraspjallið

Advertise on podcast: Ljósmyndaraspjallið

Categories
Country
Iceland
This podcast has
23 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2020/07/18
Latest episode
2025/04/15
Average duration
52 min.
Release period
116 days

Description

Áhugaljósmyndarar spjalla um ljósmyndum við hvorn annan og við aðra ljósmyndara, atvinnu og áhugafólk.

Unlock Ljósmyndaraspjallið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Ljósmyndaraspjallið podcast


Laimonas Dom Baranauskas
2025/04/15
Laimonas er ljósmyndari sem kemur upphaflega frá Litháen og flutti til Íslands 2010 og á Sunday & White Studio. Laimonas segir okkur frá hvernig var að flytja til Íslands og hvernig myndavélin hjálpaði honum þegar hann var ekki búin að læra íslensku ásamt því hvað hann er að gera í dag. https://www.sundayandwhitestudio.com/ https://www.instagram.com/sundayandwhitestudio/ Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Rán Bjargar..............nokkrum árum síðar
2025/03/22
Ljósmyndaraspjallið tók á móti henni Rán Bjargar og er hún eini viðmælandi okkar sem kemur í sitt annað spjall hjá okkur. Tilefni þess er ótrúlegur árangur hennar í þeirri U-beyju sem ferillinn hennar tók á undanförnum misserum. Rán var í fremstu röð nýburaljósmyndara landsins en snéri við blaðinu og hóf að ferðast um landið og mynda sem skilaði henni þangað sem hún er í dag. Við ræddum við hana um hvernig er að byrja á núlli aftur, hvernig hún kom sér á framfæri, hvaða þýðingu dróninn hefur fyrir hana, einveru í Noregi, gagnvirkt dagatal frá Eimskip, leyniverkefni með kvikmyndastjörnum og margt fleira.  Við þökkum Rán kærlega fyrir komuna og óskum henni góðs gengis með allt í framtíðinni https://www.ranbjargar.com https://www.instagram.com/ranbjargar/ https://www.facebook.com/ranbjargar Linkar á efni sem minnst er á í þættinum: Dagatal Eimskips, myndir og klippur - https://www.eimskip.is/dagatal-2025/ Rán Bjargar í fyrra skiptið í Ljósmyndaraspjallinu https://ljosmyndaraspjallid.buzzsprout.com/1226261/episodes/9200759 Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Ívar Eyþórsson
2025/03/17
Til okkar í spjall kom hann Ívar Eyþórsson. Hann var Gunna kunnugur sem brúðkaupsljósmyndari og nokkuð áberandi á því sviði en það kom skemmtilega á óvart að Ívar er margt til lista lagt og hefur verið í alls kyns auglýsingaljósmyndun og gerð markaðsefnis. Bakgrunnur hans er einmitt að miklu leyti úr þeim geira. Ívar sagði okkur hvernig hann endaði með ljósmyndun sem starfsgrein og hvert hann stefnir sem slíkur. Það má segja að hann hafi nokkuð skýra sýn og viti hvert takmarið er. Ívar var einstaklega þægilegur og vinalegur gestur og þökkum við honum kærlega fyrir að segja okkur sína sögu.  Vefur:  www.ivareythorsson.com Vefur:  www.iestudio.is Instagram: https://www.instagram.com/ivareythorsso Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Tinna Magg
2025/03/02
Það hlaut að koma að því! Við ákváðum að bretta upp ermarnar og dusta rykið af Ljósmyndaraspjallinu okkar eftir langa fjarveru. Við vorum pínu ryðgaðir þegar við settumst niður með frábærum viðmælanda til að koma okkur í gang.  Til okkar kom Tinna Magg sem vakti athygli okkar fyrir rúmu ári. Á síðunni hennar má sjá að hún tekur portrait myndir af margvíslegum toga og eru þær verulega sérstakar. Þær eru bæði mjög tískuskotnar sem og hlýlegar og persónulegar en á sama hátt sýna konur í kraftmiklu ljósi. Til að átta sig á hvað við eigum við mælum við eindregið með því fólk skoði síðuna hennar og samfélagsmiðla. Tinna hannar marga af þeim “outfittum” eða búningum sem hún notar í tökurnar sínar og það ferli má t.d. sjá með að smella á hlekk hér að neðan. Tinna er einnig myndlistarmaður og hannar og framleiðir gjafakort undir sínu nafni Við þökkum Tinnu fyrir skemmtilegt spjall og óskum henni góðs gengis. Við vonumst til að sjá mikið meira af hennar verkum í framtíðinni. Frá hugmynd að veruleika - sjá hvernig Tinna hannar og býr til búning sem skilar sér svo í flottri ljósmynd Vefur: https://tinnamagg.com/about/ Instagram: https://www.instagram.com/tinna_magg Linkar á efni sem minnst er á í þættinum: Ljósmyndarafélag Íslands https://www.ljosmyndarafelag.is/ Canon á Íslandi Konur í ljósmyndun https://www.facebook.com/photo?fbid=1049913503832698&set=a.552710136886373 Ljósmyndaskólinn https://ljosmyndaskolinn.is/ Instagram mynd Óla hundur og norðurljós https://www.instagram.com/p/DGIQSEjCZ-u/?utm_source=ig_web_button_share_sheet&igsh=MzRlODBiNWFlZA== Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Gunnar Freyr Jónsson #19
2023/01/14
Jæja það gerðist, Óli Jóns og Gunnar Freyr gáfu sér loks tíma til að setjast niður og taka upp nýjan þátt af Ljósmyndaraspjallinu. Við leituðum ekki mjög langt af viðmælanda í þetta skiptið, Óli tók viðtal við Gunnar. Gunnar ákvað að demba sér í djúpu laugina og gerast atvinnuljósmyndari. Hann er kominn með ljómandi fínt stúdíó í Grafarvoginum og rekur sitt fyrirtæki undir nafninu Thule Photo. Í þessum þætti er farið aðeins yfir ferlið að fara frá áhugamanni í atvinnumann, hvað hefði mátt gera betur, hvað gekk vel og svo fram vegis. Græjuhornið er á sínum stað ásamt allskonar vitleysu og almennri umræðu um ljósmyndun í sínu víðasta samhengi. Af gefnu tilefni biðjumst við velvirðingar á hljóðgæðum en eitthvað hefur tæknistjórinn ryðgað í þessari pásu. Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Laufey Ósk #18
2021/10/05
Laufey Ósk Magnúsdóttir er ljósmyndari og eigandi Stúdíó Stund sem er ljósmyndastofa á Selfossi. Laufey hefur starfað sem ljósmyndari frá 2011.  "Við leggjum áherslu á að taka fjölskyldumyndir í öllum sínum fjölbreytileika og þá bæði við einhver tilefni eins og fermingar, stúdent og brúðkaup en líka án tilefnis.  Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Rán Bjargar #17
2021/09/15
Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Díana Júlíusdóttir #16
2021/08/11
Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Páll Jökull Pétursson #15
2021/07/24
Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Fjórtándi þáttur Elín Björg
2021/03/16
Elín Björg kom í spjall til Gunnars og Óla í síðast liðnum mánuði. Elín Björg segir okkur meðal annars frá Boudoir ljósmyndun. Á elinbjorg.om segir um Elínu; "I am a photographer based in Reykavik, Iceland. I specialize in event photography and boudoir. My goal with photography is empowering women by showing them how beautiful they are. I focus on photographing non-models. I studied at the technological school in Reykjavík, born in Iceland, raised in Sweden and returned to Iceland for an Icelandic education."  Hér má sjá Instagram síður Elínar Boudoir_by_elin og elinbjorgphoto Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Þrettándi þáttur Ásta Kristjáns
2021/02/18
Í þessu þætti spjalla Óli og Gunni við Ástu Kristjáns ljósmyndara. Hún hefur margra ára reynslu bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Ásta stundaði nám við Parsons í New York um tíma og lauk námskeiði hjá MASTERED í London undir leiðsögn Nick Knight. Ljósmyndir eftir Ástu hafa birst víða, bæði í tímaritum eins og Vogue Italia, Vogue India og Surface Magazine en líka sem auglýsingar fyrir fyrirtæki eins og LinkedIN, WOW Air, Dove og Amnesty. Hægt er að skoða þau verkefni á vefsíðu hennar www.astakristjans.com Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Tólfti þáttur Sigurður Ólafur Sigurðsson
2021/01/22
Sigurður Ólafur Sigurðsson er ljósmyndari með bakgrunn í leit og björgun og menntun björgunarfólks.  Hann útskrifaðist með hæstu einkun úr ljósmyndun frá Tækniskólanum vorið 2012 og hefur starfað við fagið síðan. Hann myndar mikið fyrir aðila í neyðargeiranum, ásamt fjölbreyttri flóru fyrirtækja og stofnana. Með ljósmyndun fyrir neyðargeirann sameinar hann tvö af sínum helstu hjartans málum, björgunarstörfum og ljósmyndun og reynslan úr þeirri vinnu nýtist vel í verkefnum fyrir aðra aðila. Siguður Ólafur gaf nýverið út bókina Shooting Rescue. Í þessu spjalli ræðum við tilkomu þessarar bókar, björgunarstörfin og ljósmyndun almennt. Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Ellefti þáttur Pétur Þór Ragnarsson
2021/01/11
Ellefti þáttur Ljósmyndaraspallsins lítur dagsins ljós, hressilegt og gott spjall við Pétur Þór Ragnarsson ljósmyndara.  Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Tíundi þáttur Gígja Einarsdóttir
2020/12/02
Ljósmyndarinn Gígja Einarsdóttir hefur síðustu ár fangað einstök augnablik af íslenska hestinum í sínu náttúrulega umhverfi. Myndir hennar hafa meðal annars birst á veggjum lúxushótela og fatnaði og vörum frá þekktum tískuvörumerkjum eins og H&M og Urban Outfitters. Hesturinn er einstaklega falleg og kraftmikil skepna og hefur heillað listamenn frá örófi alda. Hann er viðfang meðal annars í fornum hellaristum, teikningum frá miðöldum og óteljandi ljósmyndum, eftir að sú tækni kom til. Gígja er fjölhæfur ljósmyndari, en hefur einstaka hæfileika til að sjá hestinn í allri sinni fegurð. Hún er uppalin í sveit og hefur frá blautu barnsbeini rýnt í atferli í hrossastóði, á því mjög auðvelt með að ná trausti hestanna og nálgast þá. Instagram gigjae.com Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/
Níundi þáttur Eiríkur Ingi
2020/11/06
Eiríkur Ingi er tveggja barna faðir og ljósmyndari. Á eirikuringi.is segir um hann "Eins og sennilega allir í mínu fagi þá hef ég alltaf haft mikinn áhuga á ljósmyndun frá því ég man eftir mér. Ég byrjaði þó ekki að mynda af neinni alvöru fyrr en ég eignaðist son minn. Þá sá ég að þetta var eitthvað sem ég myndi vilja gera miklu meira af.Eftir átta ár í þessu starfi tel ég mig vera kominn góða reynslu og þekkingu af flestu sem við kemur ljósmyndun. Fjöldi ánægðra viðskiptavina tala sínu máli" Stjórnendur þáttarins Gunnar https://www.thulephoto.is/ https://www.instagram.com/thulephoto/ Óli Jóns jons.is/markadssetning-fyrirtækja https://www.linkedin.com/in/olijons/

Podcast reviews

Read Ljósmyndaraspjallið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Ljósmyndaraspjallið relevant audience podcasts


What do you want to promote?