
Advertise on podcast: Grænvarpið
Rating
5from
This podcast has
47 episodes
Language
EnglishPublisher
LandsvirkjunExplicit
No
Date created
2020/09/29
Latest episode
2026/10/09
Average duration
24 min.
Release period
39 days
Description
Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.
Unlock Grænvarpið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Grænvarpið podcast
Þurrkar, leysingar og vatnsáramót
2026/10/09
Hvers vegna hefst vatnsárið 1. október og hvaða áhrif hafa veður og úrkoma á raforkuvinnslu? Hörður Bragi Helgason, sérfræðingur í þróun vatnsafls hjá Landsvirkjun, fer yfir óvenjulegt vatnsár sem einkenndist af miklum þurrkum framan af, breytilegum leysingum og úrkomusömu hausti. Hann segir einnig frá því hvernig vatnafræðileg líkön og gervigreind nýtast við að spá fyrir um rennsli í ám og rifjar upp hvernig áhuginn á vatnafræði kviknaði á bökkum Lagarfljóts.
Að nýta allan jarðvarmann
2026/08/31
Alma Stefánsdóttir, sérfræðingur í þróun og auðlindum jarðvarma segir frá því hvernig nýta má jarðvarmann í margt fleira en raforkuvinnslu, og fjallar sérstaklega um samstarfið við GeoSilica á Þeistareykjum. Hún ræðir einnig tækifærin sem felast í nýsköpun og verðmætasköpun í nærumhverfi aflstöðva og þær breytingar sem hafa orðið á orkugeiranum með meiri fjölbreytni og fleiri konum í sérfræðistörfum.
Þátturinn á YouTube
Konan í brúnni
2026/05/29
Ásbjörg er framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Landsvirkjun og konan í brúnni á einu mesta framkvæmdatímabili í sögu fyrirtækisins. Hún segir okkur frá því hvernig gengur og hvernig er að stýra svo mörgum og viðamiklum verkefnum.
Þátturinn á YouTube
Kraftur breytinga í orkugeiranum
2026/04/30
Selma Svavarsdóttir segir frá þróun KÍO og stöðu kvenna í orkugeiranum. Þar hefur konum fjölgað – sérstaklega í hópi stjórnenda – en enn er langt í land. Selma undirstrikar að fjölbreytileiki, sýnilegar fyrirmyndir og markviss vinna skipti sköpum fyrir betri ákvarðanatöku og framtíð greinarinnar.
Þátturinn á YouTube.
Að borða fíl
2026/03/20
Hvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor.
Þátturinn á YouTube
Í nánum tengslum við nærsamfélagið
2026/02/27
Rætt er um mikilvægi opinna og traustra samskipta við nærsamfélagið í kringum aflstöðvar Landsvirkjunar. Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, fer yfir hvernig reglulegt samtal, fjölbreyttar samskiptaleiðir og gagnsæi stuðla að trausti og jákvæðum tengslum við íbúa og aðra hagsmunaaðila.
Þátturinn á YouTube
Erlend verkefni Landsvirkjunar
2026/01/28
Sérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi.
Nærsamfélag og vöktun á Austurlandi
2025/12/23
Vel hefur verið fylgst með áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar á samfélag og náttúru á Austurlandi í þau tæplega 20 ár sem liðin eru síðan stöðin var gangsett. Árni Óðinsson, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, hefur verið potturinn og pannan í þeirri vöktun og samskiptum við samfélagið á svæðinu síðustu 17 ár.
Þátturinn á YouTube
Lengi má gott bæta
2025/11/27
Hildigunnur Jónsdóttir er forstöðumaður endurbótadeildar, sem hefur viðamikil verkefni með höndum innan Landsvirkjunar og sér til þess að aflstöðvarnar séu í toppstandi, auk þess að bregðast við ófyrirsjáanlegum bilunum og atburðum í rekstri. Endurbætur eru mikilvægur þáttur í því að nýta auðlindirnar sem best og tryggja að rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar sé eins áreiðanlegur og hægt er.
Þátturinn á YouTube
Vatnsbúskapurinn skiptir sköpum
2025/10/31
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið.
Þátturinn á YouTube
Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismál
2025/10/06
Hvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál.
Þátturinn á YouTube
Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun?
2025/08/29
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr verkfræði og komin á bólakaf í verkefnastjórnun fyrir Vaðölduver.
Þátturinn á YouTube
Orkan í Ástralíu - Einar Erlingsson
2025/06/30
Einar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum.
Þátturinn á YouTube
Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson
2025/06/02
Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.
Þátturinn á YouTube
Jöklarnir og orkan - Magnús Tumi Guðmundsson
2025/04/22
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði og formaður Jöklarannsóknafélags Íslands til 24 ára, ræðir við Ívar Pál um íslenskar jöklarannsóknir og gæfuríkt samstarf við Landsvirkjun.
Þátturinn á YouTube
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Grænvarpið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.714121350
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7129372
10 to Life
Annie Elise

4.76753464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford

4.87523980
The Dr. John Delony Show
Ramsey Network

4.512623668
RedHanded
RedHanded

4.9247931451
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.8224811798
The Andrew Klavan Show
The Daily Wire

4.7278572000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.959892000
Legal AF by MeidasTouch
MeidasTouch Network

4.7292742000
The Michael Knowles Show
The Daily Wire