
Advertise on podcast: Móðurlíf
Rating
5from
This podcast has
24 episodes
Language
IcelandicPublisher
PodcaststöðinExplicit
No
Date created
2021/05/05
Latest episode
2021/12/13
Average duration
66 min.
Release period
8 days
Description
Hlaðvarpsþáttur þar sem vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín skyggnast inn í líf mæðra á Íslandi.
Unlock Móðurlíf podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Móðurlíf podcast
24. Fæðingarsaga & fyrstu dagarnir
2021/12/13
Lítil Jóhannesdóttir fæddist þann 14.nóvember síðastliðinn, en hún hefur verið með okkur alveg frá fyrsta þætti í móðurkviði.
Í þættinum segir Jóna okkur frá vægast sagt magnaðri fæðingarsögu sinni & fyrstu dögunum eftir að sú litla kom í heiminn.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is
23. Fæðingarreynsla & ófyrirséð veikindi
2021/12/02
Gestur þáttarins er Jóna Kristín Friðriksdóttir 33 ára móðir og viðskiptafræðingur.
Við fengum að heyra um erfiða fæðingarreynslu hennar, ófyrirséð veikindi dóttur hennar & af tímanum á vökudeild.
*TW* Við viljum benda á að efni þáttarins getur verið truflandi.
Einnig ræddum við um andlegu hliðina og mikilvægi heimaþjónustu eftir fæðingu.
Þátturinn er í boði
Einn tveir & elda
www.einntveir.is
22. Linnea Ahle - Saga Petit & burnout
2021/11/24
Linnea Ahle er þriggja barna móðir, tvíburamamma & brautryðjandi í innflutningi á lífrænum barnafatnaði á Íslandi en hún og maðurinn hennar eiga og reka fyrirtækið Petit ehf sem er ein fremsta barnavöruverslun á Íslandi í dag.
Við spjöllum um bakrunn hennar, uppbyggingu Petit samhliða barneignum, fórnarkostnaðinn og þrotlausu vinnunna í kringum það.
Linnea opnar sig um burnout og ADHD greiningu og er ófeimin við að tala um hlutina eins og þeir eru.
Einlægt og lærdómsríkt viðtal við þessa flottu fyrirmynd.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is
21. Leikskólaaðlögun
2021/11/15
Það er mikil breyting í lífi barns (og foreldra) að byrja í daggæslu, hvort sem það er hjá dagforeldri eða á leikskóla.
Í þætti dagsins förum við yfir hvernig þetta gekk hjá okkur og hvað við hefðum viljað heyra áður en barnið byrjaði í aðlögun.
Þátturinn er í boði :
Einn tveir & elda
www.einntveir.is
20. Undirbúningur fyrir komu barns
2021/11/06
Þegar von er á barni er vægast sagt margt sem breytist í lífi okkar.
Dínamíkin á heimilinu breytist með hverju nýju barni og er mikilvægt að undirbúa alla vel fyrir þær breytingar sem eru í vændum.
Við vinkonurnar eigum báðar von á barni svo eðlilega eru þessir hlutir okkur ofarlega í huga þessa dagana.
Í þessum þætti förum við yfir okkar persónulegu reynslu af undirbúningi fyrir komu barns og hvernig við höfum undirbúið okkar eldri börn fyrir komu systkinis.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is
19. Hildur Björns - Krabbamein eftir meðgöngu
2021/11/02
Hildur Björnsdóttir, þriggja barna móðir og borgarfulltrúi er viðmælandi þáttarins.
Í þættinum segir Hildur okkur frá því þegar hún greinist með krabbamein þegar yngsta barnið hennar er aðeins viku gamalt.
Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig hún nálgaðist veikindin gagnvart sínu elsta barni og aðstandendum.
Við ræddum einnig daggæslu- og húsnæðismál í Reykjavík.
Hildur er sönn fyrirmynd en hugarfrið og krafturinn sem hún býr yfir er vægast sagt aðdáunarverður.
Þátturinn er í boði :
Einn tveir & elda
www.einntveir.is
18. Sólveig - Heimakennsla & hæglæti
2021/10/24
Sólveig María er kennaramenntuð fjögurra barna móðir sem heldur úti instagram reikningnum Útivera og börnin.
Þau hjónin fara heldur óhefðbundnar leiðir í uppeldi barna sinna en hún leggur áherslu á hæglæti og útiveru og þar að auki kennir hún 7 ára syni sínum heima.
Við ræðum um heimakennsluna, meðvirkni og hvernig hún snéri lífi sínu við eftir burnout og áfall sem hún varð fyrir.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda www.einntveir.is
Kóðinn “LÍF10” veitir hlustendum 10% afslátt af matarpökkum í október.
Húsgagnaheimiliðwww.husgogn.is
17. Björkin - heimafæðingar
2021/10/17
Björkin fæðingarþjónusta veitir samfellda þjónustu ljósmæðra frá 34.viku meðgöngu og þar til barn er 7-10 daga gamalt.
Við áttum skemmtilegt spjall við Arneyju Þórarinsdóttir ljósmóður og annan eiganda Bjarkarinnar um starfsemi Bjarkarinnar & heimafæðingar.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is
Kóðinn “LÍF10” veitir hlustendum 10% afslátt af matarpökkum í október.
Húsgagnaheimilið
www.husgogn.is
16. Sigríður Björnsdóttir - Sálfræðingur
2021/10/10
*TW* Í viðtali þáttarins fjallar Sigríður um kynferðisofbeldi í æsku og efnið getur ýtt undir kveikjur hjá hlustendum. Fyrir þá sem hlusta, er því mikilvægt að hlúa vel að sér ef efnið veldur þeim hugarangri og geri ráðstafanir í samræmi við það. Efninu er ætlað að vera upplýsandi fyrir foreldra barna sem vilja auka þekkingu sína á forvörnum gegn kynferðisofbeldi og hvaða leiðir er hægt að fara til að vernda börn.
Viljum minna á að það er aldrei of seint að leita sér hjálpar og hvetjum hlustendur til að leita leiða sem hentar þeim best.
Hægt er að hafa samband við 1717, Drekaslóð, Stígamót, Aflið Akureyri og hjá sérfræðingum sem vinna með þolendum ofbeldis.
Þátturinn er í boði
Húsgagnaheimilið : www.husgogn.is
Einn, tveir & elda : www.einntveir.is
15. Ebba Guðný - næring barna
2021/10/02
Mataræði barnanna okkar skiptir okkur miklu máli og viljum við standa okkur vel á því sviði.
Oft mikla foreldrar það fyrir sér að byrja að gefa barninu sínu fasta fæðu, en staðreyndin er sú að það þarf ekki að vera flókið.
Í þessum þætti áttum við áhugavert og persónulegt spjall við Ebbu Guðný Guðmundsdóttur, matgæðing og höfund bókarinnar ''Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?''
Þátturinn er í boði :
Húsgagnaheimilið : www.husgogn.is
Einn, tveir & elda : www.einntveir.is
14. Uppeldi - okkar áherslur
2021/09/26
Það má segja að það sé ákveðin list að ala upp einstakling og það er ekki meðfæddur hæfileiki.
Því þurfa foreldrar að íhuga það vel hvað þeir vilja tileinka sér í uppeldi barna sinna.
Í nýjasta þættinum ræðum við um hvað við leggjum áherslu á í okkar uppeldishlutverki.
Þátturinn er í boði Einn, tveir & elda: https://www.einntveir.is
13. Þórdís Björk - sambandsslit á meðgöngu
2021/09/17
Við fengum til okkar Dísu, móðir og leikkonu í einlægt og skemmtilegt spjall.
Dísa var að ganga í gegnum sambandsslit þegar hún komst að því að hún var ólétt. Við fáum að heyra hennar upplifun af meðgöngunni og ræðum líka fæðinguna og lífið sem einstætt foreldri.
Þátturinn er í boði Einn, tveir & elda: https://www.einntveir.is/
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Móðurlíf relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.4371061566
The Megyn Kelly Show
SiriusXM

4.888901269
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network

4.8118931000
Mind Pump: Raw Fitness Truth
Sal Di Stefano, Adam Schafer, Justin Andrews, Doug Egge

4.8102131585
Tara Brach
Tara Brach

4.541561215
Something You Should Know
Mike Carruthers | OmniCast Media

4.513841343
Strictly Anonymous Confessions
Kathy Kay

4.8292781897
Fantasy Footballers - Fantasy Football Podcast
Fantasy Football

4.62382612
Football Weekly
The Guardian

4.45387666
Two Judgey Girls
Two Judgey Girls

3.8258501152
The Viall Files
Nick Viall