1586696218
Fjármálakastið

Advertise on podcast: Fjármálakastið

Categories
Country
Iceland
This podcast has
120 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2021/09/20
Latest episode
2026/10/11
Average duration
37 min.
Release period
9 days

Description

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Unlock Fjármálakastið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Fjármálakastið podcast


Þáttur 121 - Rætt um stjórnarstörf, stjórnarhætti og atvinnulífið
2026/10/11
Gestur þáttarins er Tryggvi Pálsson en hann er einn reyndasti stjórnandi og stjórnarmaður íslensks atvinnulífs. Hann hefur því víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnarháttum og samskiptum stjórna og framkvæmdastjórna. Hann er einnig einn af fjölmörgum gestakennurum á námskeiðinu Viðurkenndir stjórnarmenn sem haldið er á vegum Akademias. Í þessum þætt er rætt um hlutverk stjórna í fyrirtækjum, stjórnarhætti, reynslu Tryggva af stjórnarsetu og sitthvað fleira. Þátturinn fellur undir liðinn Sviðið í Fjármálakastinu og er gefinn út í samstarfi við Akademias. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Þáttur 120 - Rætt um bankaskattinn og rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja
2026/10/03
Gestur þáttarins þessa vikuna er Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um fyrirhugaða hækkun á bankaskatti, rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja og ýmislegt fleira. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og á fjarmalakastid.substack.com. Þar má einnig gerast áskrifandi af fréttabréfi Fjármálakastsins. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech.
Þáttur 119 - Viðtal við framkvæmdastjóra viðskipta hjá Nasdaq Iceland
2026/09/26
Gestur þáttarins þessa vikuna er Finnbogi Rafn Jónsson framkvæmdastjóri viðskipta hjá Nasdaq Iceland. Í þættinum er rætt um innleiðingu miðlægs mótaðila hjá Nasdaq Iceland sem tilkynnt var í síðustu viku, hvernig horfurnar eru fyrir nýskráningar í Kauphöll á næstunni, stöðuna á hlutabréfamarkaði og tækniframfarir hjá Nasdaq. ------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Þáttur 118 - Reynslumikill fjármálastjóri mætir í settið
2026/09/11
Gestur vikunnar í Fjármálakastinu er Ólafur Þór Jóhannesson fjármálastjóri ÞG verks og systurfélagsins Arcusar ehf, eignarhaldsfélags sem eru í fullri eigu Þorvaldar Gissurarsonar. Ólafur er reynslumikill fjármálastjóri en hann hefur starfað sem fjármálastjóri, forstjóri, endurskoðandi, kennari við Háskólann í Reykjavík, stjórnarmaður og ráðgjafi í ýmsum atvinnugreinum. Hægt er að bæði hlusta og/eða horfa á þáttinn á Spotify og hér að ofan. Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Þáttur 117 - Umræður um frumútboð Anthropic, rafmyntamarkaði og efnahagsmálin
2026/09/03
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt var um fyrirhugað frumútboð hjá gervigreindarfyrirtækinu Anthropic, það helsta sem er að eiga sér stað á rafmyntamörkuðum þessa dagana, horfurnar í efnahagslífinu og sitthvað fleira. ------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books, Akademias og Reykjavík Fintech
Þáttur 116 - Viðtal við Hönnu Kristínu um gervigreind í fyrirtækjarekstri
2026/08/26
Í þessum þætti er rætt við Hönnu Kristínu Skaftadóttur, doktor í gervigreind og sjálfvirknivæðingu ferla í viðskiptum og fagstjóra viðskiptagreindar við Háskólann á Bifröst. Hún er einnig hópstjóri gervigreindarhóps Reykjavík Fintech. Í þessum þætti er rætt um þau tækifæri sem felast í nýtingu gevigreindar í rekstri, hvar Ísland stendur á því sviði og einnig hópastarfið hjá Reykjavík Fintech. Umræddur þáttur er undir liðnum Sviðið en það er vettvangur þar sem samstarfsaðilar Fjármálakastsins fá aðgang að sviðsljósinu. --------------------- Samstarfsaðilar: Bella Books Reykjavik Fintech Akademias
Þáttur 115 - Viðtal við Ernu Björgu Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka
2026/08/21
Gestur þáttarins er Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. Farið var yfir efnahagshorfur og stýrivaxtahækkunina síðastliðinn miðvikudag. Samstarfsaðilar: Reykjavík Fintech Akademias Bella Books
Þáttur 114 - Viðtal við Ragnar Árnason prófessor í hagfræði
2026/08/11
Í þessum þætti er rætt við Ragnar Árnason prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands. Rætt er um áhrif þess á sjávarútveginn ef Ísland myndi ganga í ESB, áhrif aukinnar skattlagningar stjórnvalda á sjávarútveginn, gang greinarinnar, ETS kerfið og fleira. ------------ Samstarfsaðilar Reykjavík Fintech Bella Books Akademias
Þáttur 113 - Viðtal við Má Wolfgang Mixa prófessor við HÍ
2026/08/06
Í þessum þætti er rætt við Má Wolfgang Mixa prófessor við Háskóla Íslands. Rætt var um efnahagsmálin en stýrivaxtaákvörðun verður tilkynnt í lok mánaðar, einnig var rætt um hvort sameiningar á bankamarkaði séu mögulegar eftir að Samkeppniseftirlitið gaf út sína afstöðu til málsins og margt fleira. ----------- Samstarfsaðilar Akademias Reykjavík Fintech
Þáttur 112 - Rætt um horfur í ferðaþjónustunni við framkvæmdastjóra SAF
2026/07/20
Í þessum þætti er rætt við Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar um stöðu og horfur í greininni. Rætt er um fyrirhugaðar skattahækkanir stjórnvalda á greinina, boðaða neytendamarkaðssetningu, hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst blasir við greininni og margt fleira. ------------- Þátturinn er í samstarfi við Reykjavík Fintech.
Þáttur 111 - Spjall við Val Þór, meðstofnanda Taktikal
2026/07/17
Í þessum þætti er rætt við Val Þór Gunnarsson meðstofnanda tæknifyrirtækisins Taktikal. Rætt er um vöxt og rekstur fyrirtækisins, nýsköpunargeirann, þá hröðu tækniþróun sem er að eiga sér stað um þessar mundir og hvaða áhrif hún mun hafa á rekstur fyrirtækja og margt fleira. ---------- Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi
2026/07/09
Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira. Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com. Samstarfsaðili þáttarins er Reykjavik Fintech.
Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn
2026/07/02
Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira. Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.substack.com. Fjármálakastið er í samstarfi við Reykjavik Fintech. Beiðnir um auglýsingar, styrki eða annars konar samstarf má senda á [email protected].
Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd
2026/06/19
Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, vöxt hins opinbera og efnahagsmálin.
Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion
2026/06/11
Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.

Podcast reviews

Read Fjármálakastið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Fjármálakastið relevant audience podcasts


What do you want to promote?