1586828050
Geðslagið

Advertise on podcast: Geðslagið

This podcast has
13 episodes
Language
Icelandic
Date created
2021/09/21
Latest episode
2021/12/13
Average duration
49 min.
Release period
7 days

Description

Vinirnir Sigursteinn Másson og Friðrik Agni spjalla um geðheilsu og andleg málefni út frá ólíkum sjónarhornum. Deila eigin sögum, heyra í fólki og endurspegla málin á einlægan og hreinskilin hátt.

Unlock Geðslagið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Geðslagið podcast


Geðslagið #13 - Vonarljós
2021/12/13
Í landi myrkurs og kulda getur það reynst erfitt að sjá ljósið. Þegar von hverfur þá föllum við inn í myrkrið og vefjum utan um okkur klakabrynju og biturleika. En vill einhver lifa þannig? Von og ljós kviknar í okkar eigin höndum og við getum búið okkur til von í litlu hlutunum í daglegu lífi. Veljum að sjá ljósið. Sérstaklega nú þegar hátíð ljóss og friðar gengur í garð. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #12 - Mörkin
2021/12/06
,,Nei nú fórst þú sko langt yfir strikið" Hvað meinum við og hvað þýðir það raunverulega að draga skýr mörk? Hvað gerist þegar við virðum ekki annarra mörk eða okkar eigin? Friðrik og Sigursteinn kryfja mörkin út frá eigin reynslu og eins og áður koma þeir með spurningar út í kosmósið fyrir hlustendur að endurspegla. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #11 - Sjálfsmatið
2021/11/29
Út frá hvaða upplýsingum sköpum við okkar sjálfsmat og virði? Sjálfið okkar verður fyrir allskonar áreiti alla daga sem kalla fram allskyns hugsanir og tilfinningar. Ábyrgð, viðurkenning, höfnun, sorg, ást, reiði. Það skiptir máli hvernig við stöndum í fæturna og finnum hvar við erum sterkust til að eiga við allt áreitið án þess að sjálfsmatið okkar minnki eða hverfi jafnvel alveg. Og hvernig gerum við það? Friðrik Agni og Sigursteinn Másson reyna að leysa úr því. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #10 - Höfnunin
2021/11/22
Hann svarar ekki. Hann ,,lækar" ekki myndina mína. Hún hringir ekki til baka. Ég fæ ekki boð í viðtal. Ég er aldrei spurður um mitt álit. Við upplifum og túlkum höfnun við ýmsar aðstæður og jafnvel daglega. En er raunverulega verið að hafna okkur eða er hugurinn okkar að draga ályktanir? Engu að síður eru áhrifin á geðið okkar raunveruleg því tilfinningarnar trúa höfðinu. Höfnun er aðalumræðuefni Geðslagsins með Friðriki Agna og Sigursteini Mássyni í dag. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #9 - Samfélagsmiðlar
2021/11/15
Notkun samfélagsmiðla er að hafa áhrif á geðið okkar. Hvernig? Í þessum þætti ræða Sigursteinn og Friðrik Agni um alla þá möguleika sem við höfum til að triggerast á geðinu í gegnum samfélagsmiðla. En við getum væntanlega stjórnað því hvernig við túlkum samskipti okkar, eða hvað? Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #8 - Viðurkenningarþörfin
2021/11/08
Er munur á að vilja viðurkenningu og að þurfa viðurkenningu? Augljóslega vill flest fólk verið metið að verðleikum en hér ræða Sigursteinn og Friðrik Agni um það þegar þörfin á viðurkenningu hefur slæm áhrif á geðheilsuna. Einnig ræða þeir þá ráðgátu sem er að fólk á oft erfitt með að taka viðurkenningum sem það svo fær. Hvernig finnum við jafnvægi í þessu? Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #7 - Jafnréttið
2021/11/01
Við búum í heimi sem er langt frá því að vera réttlátur en hvaða áhrif getur misrétti haft á geðið okkar? Í þessum þætti fara Sigursteinn og Friðrik Agni aðeins yfir mikilvægi þess að tryggja jafnrétti þegar kemur að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og jafnrétti almennt. Mismunun og fordómar eru grasserandi ennþá árið 2021 og það endurspeglast í geðheilsu þeirra sem búa í samfélaginu okkar. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #6 - Meðferðin
2021/10/25
Hvað tekur við þegar þú missir stjórn á geðinu? Hvaða úrræði? Hvernig er kerfið sem grípur þig? Í þessum þætti velta Sigursteinn og Friðrik Agni fyrir sér meðferðarúrræðum sem fólki býðst innan geðheilbrigðiskerfisins og  varpa einnig fram fram nýjum hugmyndum sem að þeirra mati geta stuðlað að árangursríkari meðhöndlun á geðsjúkdómum. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #5 - Geðhvörfin
2021/10/18
Geðhvörf verða gjarnan í framhaldi af svefnleysi. Sigursteinn upplifði að vera bundinn á höndum og fótum niður í rúm í ótta og oflætiskasti og talar um reynslu sína. Aðdragandinn, geðveikin, meðferðin og lærdómurinn af geðhvörfum til umfjöllunar í þessum þætti Geðslagsins. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #4 - Svefninn
2021/10/11
Of lítill svefn er eitt mesta heilsufarsvandamál landsmanna og sem veldur margvislegum geðrænum og líkamlegum kvillum. Friðrik Agni og Sigursteinn eru að uppgötva að þeir sofa ekki nógu vel og tala hér um eigin reynslu af svefntruflunum og einfaldar viðurkenndar leiðir til að bæta svefninn. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst! Geðslagið tekur upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
Geðslagið #3 - Skipstjórinn
2021/10/04
Ert þú skipstjórinn á þinni lífssiglingu? Í þessum þætti ræðum við um hvernig við stýrum okkar lífi með skemmtilegri myndlíkingu um seglskútu á siglingu sinni um hafið. Í hvaða höfn ert þú að stefna, er logn, stormur eða stöðugur öldugangur, hverjir eru um borð og hvaða hlutverk hefur áhöfnin? Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst!
Geðslagið #2 - Fyrirgefningin
2021/09/27
Hvað þarf raunverulega til þess að sleppa tökum og halda áfram veginn? Fyrirgefningin spilar þar stærsta hlutverkið og hún er margþætt fyrirbæri. Í þessum sjálfstæða framhaldsþætti af fyrsta þættinum um áföll tölum við nánar um úrvinnslu áfalla. Viltu deila einhverju með okkur? Geðslagið er á Instagram og Facebook. Tengjumst!

Podcast reviews

Read Geðslagið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Geðslagið relevant audience podcasts


What do you want to promote?