
Advertise on podcast: Eftirmál
Rating
4.7from
This podcast has
37 episodes
Language
IcelandicPublisher
TalExplicit
No
Date created
2022/03/27
Latest episode
2026/10/01
Average duration
67 min.
Release period
43 days
Description
Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.
Unlock Eftirmál podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Eftirmál podcast
Edition-málið
2026/10/01
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yfir þetta mál og dóminn yfir Ming Ting, sem á engan sinn líka í nútíma réttarsögu, með Ómari Erni Bjarnþórssyni verjanda hennar.
Samsetning: Adelina Antal
Samstarfsaðilar Eftirmála:
🚗Go Bílaleiga
🩺 Intuens
✨Húðfegrun
🛒Krónan
🌀Sjóvá
🍬Góa
📲Alfreð
🤸🏼♂️ World Class
Eftirmál.is
Vertu með okkur á Instagram
Önnur mál #1- Birna Brjánsdóttir, harmleikur á Nýbýlavegi og hver var Catherine Mancel?
2026/10/01
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️
Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu.
** SÉRSTÖK TILKYNNING **
2026/09/30
Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál.
➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is
Hryðjuverkamálið
2026/07/28
Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann hans í þættinum. Málið er eitt umfangsmesta, umtalaðsta og umdeildasta sakamál sem komið hefur upp hér á landi.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Góa
- Húðfegrun
- Scandi Home
Leiðangur Johns Snorra á K2
2026/07/22
Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabragði og mistök geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Einar Bárðarson, vinur Johns Snorra, fer yfir málið með okkur og útskýrir af hverju hann vill halda minningu vinar síns á lofti og hvers vegna menn leggja í slíka hættuför.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Góa
- Húðfegrun
Ashley Madison og Vodafone-lekinn
2026/07/13
Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 kom fram á sjónarsviðið. Atli Fannar Bjakason blaðamaður þekkir málin vel og fer með okkur yfir þau í þættinum.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Sebastian hárvörur
- Birgisson
- Scandi Home
- Góa
- Húðfegrun
Krýsuvíkurmálið
2026/07/07
Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir það í þættinum.
Samsetning: Adelina Antal
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
- Birgisson
- Scandi Home
- Góa
- Sebastian hárvörur
- Bliss
- Húðfegrun
Morðið á Hannesi Þór Helgasyni
2026/04/01
Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrtur en hann fer yfir málið með okkur og lýsir þeim gríðarlega mótandi áhrifum sem það hafði á líf hans.
Rock star Supernova ævintýrið
2026/02/16
Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Við förum yfir Rock Star brjálæðið í Eftirmálum og ræðum bæði við Magna sjálfan og Magnús Ragnarsson, manninn á bak við þetta ævintýri.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-Nettó
-Eldum Rétt
-World Class
-Collab
- Alfreð
- Intuens
Wok On málið / Quang Le
2026/02/02
Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur Quang Le fer yfir málið með okkur.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
Nettó
Eldum Rétt
Collab
Alfreð
Intuens
World Class
PIP brjóstapúðamálið
2026/01/19
Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
Nettó
Eldum Rétt
Collab
Alfreð
Intuens
World Class
Skáksambandsmálið
2026/01/06
Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í málinu er enn ósvarað.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-Nettó
-NOLA snyrtivöruverslun / kóðinn EFTIRMÁL veitir 15% afslátt
-Eldum Rétt
-Collab
-Alfreð
-Intuens
-World Class
Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan
2025/12/22
Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættinum og ræðum við skyldmenni Ásu.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-Nettó
-NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38
-Eldum Rétt
-World Class
-Collab
Samsetning þáttar: Adelina Antal
Klippur í þættinum:
Is Rex Heuermann the serial killer behind the Gilgo Beach murders in Long Island? YouTube
Gilgo Beach suspect Rex Heuermann’s estranged wife screams at reporters YouTube
YouTube The Gilgo Beach Killer: House of Secrets Official Trailer Peacock Original YouTube
Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík
2025/12/08
Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns.
Styrktaraðilar Eftirmála eru:
-NOLA snyrtivöruverslun Ármúla 38
-Nettó
-Eldum Rétt
-World Class
-Collab
Braggamálið
2025/02/18
Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann.
Þátturinn er í boði:
Nettó
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% afsláttur með kóðanum EFTIRMAL
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Eftirmál relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.7106572000
FantasyPros - Fantasy Football Podcast
iHeartPodcasts

4.838282000
Entrepreneurs on Fire
John Lee Dumas of EOFire

4.6253262000
The Glenn Beck Program
Mercury Radio Arts

4.762542000
The Lawfare Podcast
The Lawfare Institute

4.922321824
The Ten Minute Bible Hour Podcast
Matt Whitman

4.913551954
Wholesaling Inc with Brent Daniels
Find distressed properties for pennies on the dollar and turn them for huge profits!

4.827571696
Earn Your Happy
Lori Harder | YAP Media

4.6137741968
The Rubin Report
Dave Rubin

4.7278012000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.732631937
The President's Daily Brief
The First TV