1665750771
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Advertise on podcast: Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Rating
★★★☆☆
3.3
from
3 reviews
This podcast has
1424 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Brotkast ehf.
Explicit
Yes
Date created
2023/01/16
Latest episode
2026/10/28
Average duration
14 min.
Release period
4 days

Description

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Unlock Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast


Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E40
2026/10/28
Hér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E39
2026/10/23
Fjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna niður opinberar byggingar, verslanir og bíla. En nú hefur forseti Frakklands reyndar gefið það út að skemmdarvargarnir séu fyrst og fremst öfgasinnaðir vinstrihópar sem vilja knésetja franska lýðveldið. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E62
2026/10/21
Geta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda? Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Jóhannes var áberandi í gagnrýni á sóttvarnaraðgerðir á COVID-tímanum og hefur undanfarin ár beitt sér fyrir því að vekja athygli á fólki sem telur sig hafa orðið fyrir alvarlegum aukaverkunum bóluefna. Í viðtalinu fer Jóhannes yfir niðurstöður könnunar sem Heilsuvon lét Maskínu framkvæma og telur benda til þess að fjöldi Íslendinga hafi orðið fyrir alvarlegum skaða í kjölfar bólusetninga. Hann gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að hafa ekki rannsakað mögulegar langtímaafleiðingar nægilega vel og varar við því að alvarleg heilsufarsvandamál kunni að koma fram mörgum árum eftir bólusetningar. Rætt er um möguleg áhrif á hjarta- og æðakerfi, blóðtappa, krabbamein, frjósemi og aðrar heilsufarsbreytingar sem Jóhannes telur ástæðu til að rannsaka betur. Hann setur jafnframt fram harða gagnrýni á lyfjaiðnaðinn, eftirlitsstofnanir og það hvernig brugðist var við þeim sem efuðust um öryggi bóluefnanna. Umræðan berst einnig að ivermektíni og öðrum lyfjum sem Jóhannes telur að hafi verið ýtt til hliðar á COVID-tímanum, mögulegum hagsmunaárekstrum innan heilbrigðiskerfisins og dómsmáli í Hollandi þar sem Bill Gates og fleiri áhrifamenn eru meðal stefndra vegna meintra afleiðinga bólusetninga. Í síðari hluta þáttarins er sjónum beint að Íslandi, ábyrgð stjórnvalda, mögulegum bótarétti þeirra sem telja sig hafa orðið fyrir bóluefnaskaða og nýjum sóttvarnalögum. Jóhannes lýsir sérstökum áhyggjum af því að löggjöfin veiti stjórnvöldum of víðtækar heimildir til inngripa í næsta heilbrigðisneyðarástandi. Höfum við lært eitthvað af COVID-tímanum eða er hætta á að sömu mistökin verði endurtekin? Ítarlegt og gagnrýnið samtal um heilbrigðisyfirvöld, vísindi, hagsmuni lyfjafyrirtækja, einstaklingsfrelsi og þá ábyrgð sem fylgir ákvörðunum sem hafa áhrif á heila þjóð. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E38
2026/10/20
Óeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna ástandinu. Og láta sig dreyma um að íslensk ungmenni taki sér óeirðaseggina til fyrirmyndar. Við fjöllum um þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E61
2026/10/12
Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana.Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir ævintýralegt lífshlaup sitt, allt frá fyrstu skrefunum í íslensku viðskiptalífi á tíunda áratugnum til uppbyggingar alþjóðlegs fyrirtækis. Hann segir frá því hvernig þrír ungir menn hófu rekstur með aðeins tvær milljónir króna, mættu tortryggni bankakerfisins og þurftu að sannfæra valdamikla menn um að þeir væru að gera hlutina á rangan hátt.En velgengni í viðskiptum tryggir ekki endilega hamingju. Reynir ræðir af mikilli einlægni um tímabil þar sem hann var afar óhamingjusamur þrátt fyrir mikinn árangur, um samband sitt við metnað, peninga og viðurkenningu annarra og hvernig viðhorf hans til lífsins hafa breyst með árunum.Í lok viðtalsins ræðir Reynir nýútkomna bók sína, Bókasafn gagnslausra hugsana, þar sem hann fjallar um þær neikvæðu og oft tilgangslausu hugsanir sem geta tekið yfir huga okkar. Hann segir frá því hvernig hugmyndin að bókinni kviknaði, meðal annars í óvenjulegri reynslu af hugvíkkandi efnum, og hvers vegna hann telur mikilvægt að læra að horfa á hugsanir okkar án þess að láta þær stjórna lífinu.Þetta er einlægt og áhugavert samtal um frumkvöðlastarf, áhættu, velgengni, óhamingju, sjálfsþekkingu og leitina að því sem raunverulega skiptir máli í lífinu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E60
2026/10/08
Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga?Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.Tilefnið er umdeild skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Niðurstöðurnar vöktu mikla athygli í íslenskum fjölmiðlum en sættu síðar harðri gagnrýni félagsvísindamanna vegna alvarlegra annmarka á rannsókninni.Kolbeinn gagnrýnir bæði rannsóknina og hvernig fjölmiðlar tóku niðurstöðum hennar. Hann telur málið afhjúpa mun stærra vandamál: Hversu auðvelt sé að koma vafasömum rannsóknum á framfæri ef niðurstöðurnar falla að ríkjandi pólitískri orðræðu.Umræðan víkkar síðan út í gagnrýna skoðun á stöðu félagsvísinda, kynjafræði og pólitískrar hugmyndafræði innan háskólasamfélagsins. Þeir Frosti rifja meðal annars upp hið fræga Grievance Studies Affair, þar sem þrír fræðimenn komu tilbúnum og fáránlegum rannsóknargreinum í gegnum ritrýni fræðitímarita.Kolbeinn ræðir mikilvægi vísindalegrar aðferðafræði, hættuna sem felst í því að pólitískar skoðanir ráði niðurstöðum rannsókna og hvers vegna fræðimenn verði að vera tilbúnir að gagnrýna hver annan, jafnvel þegar það veldur óþægindum.Einnig er rætt um þá neikvæðu mynd sem gjarnan er dregin upp af íslenskum körlum og hvernig sú mynd samræmist öðrum rannsóknum á jafnréttisviðhorfum.Er háskólasamfélagið að sinna hlutverki sínu sem vettvangur frjálsrar þekkingarleitar eða hefur pólitísk hugmyndafræði fengið of mikið vægi?Um þetta og margt fleira í nýjasta þætti Spjallsins með Frosta LogasyniFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E59
2026/10/05
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans.Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum, meintum endurheimtum flýgildum og verum sem eiga ekki að vera af mannlegum uppruna. Samhliða hafa málefni UAP-fyrirbæra ratað inn í bandaríska þingið og opinber gögn og myndbönd verið birt.Gunnar hefur sökkt sér ofan í þennan heim og segist í dag hundrað prósent sannfærður um að hér sé eitthvað raunverulegt á ferðinni – þótt stóra spurningin sé hvað það sé í raun.Í þættinum ræða Frosti og Gunnar meðal annars nýjustu vendingar í UFO/UAP-málum, frásagnir David Grusch, meintar verur og flýgildi, dularfull fyrirbæri neðansjávar og möguleikann á að sumar þeirra vera sem menn hafa talið „geimverur“ komi alls ekki utan úr geimnum heldur úr öðrum víddum – eða hafi jafnvel verið hér á jörðinni miklu lengur en mannkynið.Samtalið færist síðan út fyrir hinn hefðbundna UFO-heim og inn á mörk meðvitundar og efnisveruleika. Gunnar segir frá eigin reynslu af DMT og ayahuasca, kynnum sínum af því sem hann upplifði sem verur í öðrum veruleika og þeirri hugmynd að hugvíkkandi reynsla, trúarbrögð, meðvitund og UFO-fyrirbærið kunni að tengjast með einhverjum hætti.Ný bók Gunnars, UFO 202, tekur einmitt meira á þessum andlegu og heimspekilegu spurningum en fyrri bókin: Hvað er meðvitund? Hvað er tími? Hvaðan komum við? Og er mögulegt að veruleikinn sem við upplifum dagsdaglega sé aðeins lítið brot af einhverju miklu stærra?Óvenjulegt, opinskátt og á köflum algjörlega lygilegt samtal um spurningar sem fyrir örfáum árum hefðu varla ratað inn í alvarlega umræðu.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E37
2026/10/01
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu með drjúgri aðstoð úr sjóðum skattgreiðenda og fjöllum um óhóflega notkun Íslendinga á sterkum geðlyfjum, þrátt fyrir að vera ein hamingjusamasta þjóð heims. Allt þetta og miklu meira í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E58
2026/09/29
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni.Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi.Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og hugmyndafræðilegan kraft, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn fjarlægðist hluta af sínum gömlu rótum og hvers vegna hann telur hörð hugmyndafræðileg átök nauðsynleg í heilbrigðu lýðræðissamfélagi.Rætt er um ríkisrekstur og einkaframtak, skattkerfið, heilbrigðisþjónustu, Ríkisútvarpið og þá róttæku hugmynd Óla Björns að gjörbreyta hlutverki þess. Þá er farið ítarlega yfir útlendingamálin, breytingarnar á útlendingalögum árið 2016 og þann pólitíska rétttrúnað sem hann telur hafa haft mikil áhrif á stjórnmál síðustu ára.Undir lokin rifjar Óli Björn upp átökin innan ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna, hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur og ákvörðun sína um að hætta sem formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins.Ítarlegt samtal um frelsi einstaklingsins, vald ríkisins, hugmyndafræði og hvað fór úrskeiðis hjá íslenskum hægrimönnum.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E36
2026/09/23
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað upp. Við fjöllum um þetta og fleiri mál líðandi stundar í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E57
2026/09/21
Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálaráðherra.Í viðtalinu ræðir Jón Helgi hvers vegna eigin gjaldmiðill sé mikilvægt hagstjórnartæki fyrir lítið og opið hagkerfi og segir upptöku evru jafngilda fastgengi sem henti Íslandi illa. Hann telur að eftir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar eigi stjórnvöld að einbeita sér að því að bæta íslenska peninga- og lánakerfið.Þá útskýrir hann hvernig viðskiptabankar búa til nýja peninga með útlánum, hvers vegna ráðstöfun lánsfjár getur ýtt undir verðbólgu og eignabólur og hvað megi læra af hugmyndum hagfræðingsins Richards Werners.Jón Helgi fjallar einnig um tæknibreytingar sem geti rofið forréttindastöðu bankanna, gert fólki kleift að varðveita rafrænar eignir utan hefðbundins bankakerfis og aukið samkeppni í fjármálaþjónustu. Hann varar jafnframt við þeirri miðstýringu sem geti fylgt fyrirhugaðri stafrænni evru Evrópska seðlabankans og segir hættulegt að byggja kerfi sem stjórnvöld gætu síðar misnotað.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E35
2026/09/16
Erlendir ríkisborgarar eru aðeins um fjórðungur vinnuaflsins en tæplega 57% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá fyrstu sjö mánuði ársins. Við ræðum þessar sláandi tölur og spyrjum hvers vegna stjórnvöld virðast hafa meiri áhyggjur af umræðunni en vandanum sjálfum.Við förum einnig yfir hvernig stríð stjórnvalda gegn nikótínpúðum virðist hafa leitt til aukinna sígarettureykinga meðal ungmenna, kynjafræði sem vill nú tala um „typpabörn“ og „píkubörn“ og hvernig sænska hægrið virðist endanlega hafa slátrað framtíð landsins með því að flytja inn hundruð þúsunda erlendra kjósenda á síðasta kjörtímabili.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“ | Spjallið með Frosta | S04E56
2026/09/15
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til að sameina þjóðina og telur fráleitt að halda lífi í gamalli aðildarumsókn eftir að þjóðin hefur sagt nei.Þá fer Sigmundur hörðum orðum um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hann segir skatt- og gjaldahækkanir bitna á venjulegu fólki, ýta undir verðbólgu og sýna að stjórnvöld hafi ekki vilja til að ráðast í raunverulegan niðurskurð ríkisútgjalda.Stór hluti samtalsins snýst um útlendingamál, hælisleitendakerfið og þróunina í Evrópu. Sigmundur segir nauðsynlegt að semja ný útlendingalög frá grunni, koma í veg fyrir misnotkun kerfisins og ná stjórn á landamærum Íslands áður en vandinn verði óviðráðanlegur.Einnig er rætt um uppgang AfD og annarra hægriflokka í Evrópu, áhrif innflytjenda á stjórnmálin, samband Íslands við Bandaríkin og viðbrögð íslenskra stjórnmálamanna við umdeildri kortamynd Donalds Trump. Sigmundur segir Trump hafa gaman af því að leika „nettröll“ og telur íslensk stjórnvöld hafa brugðist við málinu af óþarfa móðursýki.Að lokum ræðir hann framtíð ríkisstjórnarinnar, efnahagsmálin og hvað Miðflokkurinn myndi gera öðruvísi kæmist hann til valda.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra - reikningurinn okkar | Harmageddon | S04E34
2026/09/09
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari bótum og aðgerðum sem gætu aukið verðbólguþrýsting. Við förum yfir það sem leyndist á bak við glansandi kynninguna og spyrjum: Eru fjárlögin raunverulega hallalaus - eða hefur reikningurinn einfaldlega verið færður yfir á almenning? Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“ | Spjallið með Frosta | S04E55
2026/09/07
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta gagnrýnisröddin gegn nútíma kynvitundarpólitík og þeirri hugmyndafræði sem hún telur hafa tekið yfir umræðuna um transfólk.Í þessu ítarlega viðtali ræðir Debbie við Frosta Logason um eigin æsku, vanlíðanina sem leiddi til kynleiðréttingar og hvers vegna hún hafnar nú hugmyndinni um meðfædda „kynvitund“. Hún segir líffræðilegt kyn vera óbreytanlegan veruleika, transkonur vera líffræðilega karla og að fólk geti breytt líkama sínum og framsetningu án þess að samfélagið þurfi að afneita raunveruleikanum.Debbie fjallar einnig um sjálfskilgreiningu kyns, persónufornöfn, kvennarými og fangelsi, réttindi transfólks, bakslagið gegn transhreyfingunni og þá hörðu gagnrýni sem J.K. Rowling og Graham Linehan hafa sætt.Sérstök áhersla er lögð á börn. Debbie gagnrýnir harðlega notkun kynþroskablokka og hormónameðferða, segir hugmyndina um „transbörn“ geta ýtt undir gamaldags staðalímyndir og telur að börn eigi að fá svigrúm til að vaxa úr grasi áður en þau taka óafturkræfar ákvarðanir um líkama sinn.Að lokum beinir hún orðum sínum sérstaklega til Íslands, þar sem hún telur sömu hugmyndafræði hafa náð fótfestu og í Bretlandi og Bandaríkjunum.„Líffræðilegt kyn skiptir máli. Fólk á að vera frjálst til að tjá sig eins og það vill – en það breytir ekki kyni þess.“Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Podcast reviews

Read Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast reviews


3.3 out of 5
3 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir relevant audience podcasts


What do you want to promote?