1669224885
Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Advertise on podcast: Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
66 episodes
Language
Icelandic
Date created
2023/02/01
Latest episode
2026/07/07
Average duration
110 min.
Release period
9 days

Description

Birkir Fjalar og Hörður Ólafsson láta móðinn mása um þungarokk frá ýmsum sjónarhornum.

Unlock Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn podcast


066: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Bassalífsinsleikur
2026/07/07
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Stokkið í eldinn fjélgar koma sjálfum sér og hvorum öðrum rækilega á óvart með lagavali kvölds sem var. Ferskir vindar gnauða milla eyrna þeirra beggja og uppgröftur af dýpri sortinni gefur hann góðann. Vonandi hafið þið gagn og gaman af þessu. Lög frá eftirfarandi listamönnum lágu til grundvallar:FOX JAWZORNVIRUSDISFIGURING THE GODDESSTHE CONTORTIONISTSGRAVE SUPERIOREXCIDEVið minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Sjáumst á Sátunni 2027! Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
065: MASTODON - Blood Mountain
2026/06/27
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Við erum komin í þriðju plötu Atlantasveinanna í MASTODON er nefnd var - og heitir enn - Blood Mountain (Relapse 2006) og einhver hafa haldið því fram að hér kveði við nýjan tón og að annað hljóð sé komið í skrokkinn o.s.frv.  svo mikið reyndar að hún virðist stundum týnast á milli Leviathan og Crack The Sky í Mastadonheimsþvaðrinu. Hví er það svo?  Höddi gefur ekki þumlung eftir er hann heldur áfram að draga Birki um lendur loðfílsins og lætur engan Bilbo á sér finna. Tónlist í þættinum SCREAMS OF AGONY - Scared of Heights (2026) Upphafsstef Stokkið í eldinn Allow Us To Live með PATRONIAN af Stabbed With Steel (2022)Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi.  Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram. Alltaf sama platan er kirfilega studd af Luxor: tækjaleigu og sölu.  Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.  Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt.Luxor er þekkingarhús viðburða.  Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöf
064: SÁTAN 2026 - Dagur 3 yfirferð
2026/06/12
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Það er eitthvað svo dásamlegt að hugsa til þess að við styðjum Sátuna. Það er að segja; þegar við félagarnir lesum nótur hvers þáttar og í þeim stendur að Stokkið í eldinn styður Sátuna. Við styðjum hana með stolti og þannig min það áfram vera! Alltént, þá lögðum við upp með nokkur markmið varðandi aðdraganda Sátunnar 2026 og svo, sem okkur þótti mikilvægast, var að reyna að færa hlustendum glóðvolgar fréttir og rafmagnaða stemmningu "beint" frá Sátunni, þ.e. í eins beinni útsendingu og mögulegt er í gegn um svona hlaðvarpsmiðil. Og það tókst að mestu. Við gerðum þrjá þætti á meðan hátíðinni stóð og hér er svo síðastði þátturinn vegna Sátunnar 2026... Dagur þrjú skveraður! Við förum yfir alla tónleikana sem áttu sér stað í íþróttahúsinu sem og hitamælum off-venue fílinginn ásamt fleiri atriðum. Tónlist í þættinum DRÁPA - Medicate (2024)Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi.  Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
063: SÁTAN 2026 - Dagur 2 yfirferð (Sindri Kamban, Móa Hlíf, Haukur Þór, Arnar Eggert o.fl.)
2026/06/07
Moonstone tattoo studio Reykjavík færir þér... Í þessum þætti verður allt vitlaust. Það er margt um manninn, það er hangið harkalega og galsinn töluverður enda fólk upp um alla veggi í fíling að tala (hrópa) á hvort annað um það sem máli skiptir; þungarokk, vináttu og sjónvarpsþættina um Hunter og bestu vinkona hans hana DeeDe McCall. Til að aðstoða okkur við að skvera dag tvö Sátunnar 2026 fengum við Sindra "Skúbbara" Kamban, Hauk Þór, Móu Hlíf, Arnar Eggert og fleiri í stólana og það var og!Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
062: SÁTAN 2026 - Dagur 1 yfirferð (Kristján Breytari & Smári Tarfur)
2026/06/05
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hráir og fínir í nánast lifandi útsendingu frá SÁTUNNI 2026 allt svo hlustendur geti sjálfur tekið púlsin heima í stofu. Hljómgæðin eftir því en samt drullunett hvað sem öllu öðru líður. Kristján Breytari Heiðarsson, af sinni alkunnu snilld, fór yfir tónleika fimmtudagsins. Smári Tarfur tróð inn tríninu og sagði okkur aðeins frá ráðstefnuaugnabliki hvar Haukur Þór Valdimarsson blés viðstöddum í brjósti. En hann lét ekki staðar numið þar heldur lak í okkur sjóðheitum fréttum, gerði upp sár fortíðar og bað Breytarann afsökunar á meðan Hörður og Birkir þurrkuðu krúttleg tár af hvarmi.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
061:Stokkið á rúntinn - LEIÐIN Á SÁTUNA 2026 m. Ingólfi Erni Hallgrímssyni
2026/06/04
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir HVAÐ ATHUGIST: Þátturinn er tekinn upp við nokkuð frumstæðar aðstæður og ber hljómurinn (á köflum) þess glöggt vitni. Samt þrælnett! Stokkið í eldinn bræður eru hér komnir um borð í skrjóðnum hans Ingó-Djóks og leiðin liggur á Sátuna 2026!  Dauðafæri til að Stökkva á rúntinn; spila fyrir hvorn annan nokkur hressandi lög og auðvitað tala um Sátuna.Ingólfur Örn (Görn); takk fyrir okkur elsku hjartans pungurinn.  Vonandi hafið þið gagn og gaman af þessu. Lög frá eftirfarandi listamönnum lágu til grundvallar:MASTODONMONOLORDCYNICURNEUNLEASHEDSADUSDESOLUSVið minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
060: STRIGASKÓR NR. 42 - Blót m. Hauki Bragasyni
2026/05/31
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Ævintýri. Þor. Landamæraleysi. Fífldirfska. Framsækni. Þrekvirki. Leikur. Galdrar. Draumar. Martraðir. Athafnir. Sveppatripp. Hugbreytandi. Þyngdarleysi. Víddir. Ímyndunarafl. Sannfæring. Þjóðlegt. Draugalegt. Ágengt. Heillandi. Þetta er bara brot af þeim orðum sem koma til tals þegar hin ómótstæðilega og undraverða Blót fer á fóninn.  Kópavogs fyrirbærið STRIGASKÓR NR. 42 gáfu út Blót sitt, upp á eigin spítur, haustið 1994. Kraftaverkið átti sér stað í Hljóðrita undir dyggri stjórn, vökulu eyra og opnum hug Jóns Skugga (Jóns Þorleifs Steinþórssonar). Plata hlaut mikið lof gagnrýnendur og langt leiddir kafarar héldu ekki vatni yfir plötunni og þannig er það enn. Nýlega bættist Hörður okkar Ólafs í hóp téðra kafara og er það vel. Maðurinn breyttist í trekt en Birkir... "Ég; persónulega þá er þetta erfiðasti þáttur sem ég hef tekið upp. Mér er, að er virðist, í blóð borið að tala um þessa plötu og það hef ég gert áratugum saman enda er hún mitt eftirlæti. En með hljóðneman í tríninu og með hlustendur í huga, þá minnkar völlurinn (böllurinn?) á mér. Stress, efi og smæð gagnvart sköpunarverkinu nær á mér takinu.En ekki örvænta, B. Þetta er bara fyrsti þátturinn í umfjöllun okkar um Blót. Ójá. Meira á leiðinni!" Sérstakur gestur þáttarins er Haukur Bragason; lundarmannagoðinn, hlaðverpill (hlustið á Tvo Kalla hér)og þungarokkari. Blót er hliðstæðulaus. Komið með okkur í ferðalag og reynið að kryfja plötuna með okkur og njóta því það er svo margt sem hægt er að segja, svo margt sem hún örvar og við erum bara rétt að byrja! SJÁUMST Á SÁTUNNI KÆRU VINIRSÁTAN 2026 ER Á NÆSTA LEITI.TRYGGIÐ YKKUR MIÐA HÉR. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.
059: AT THE GATES - The Ghost of a Future Dead + PATRONIAN
2026/05/17
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Þá er komið að því. Tilhlaupið var langt; rúmar þrjár vikur síðan platan kom út í áþreyfanlegu og Birkir eins nálægt því að vera andlega tilbúinn í verkefnið og hægt var miðað við tímaramma. En samt bara alls ekki! Burðarstólpar öfgaþungarokks á heimsvísu, hjartahljómsveit Birkis og tiltölulega ný máltíð á matseðli Hödda, AT THE GATES kveðja með síðustu plötu sinni vegna þess að stofnmeðlimur og goðsögnin sem syngur, hr. Tomas ' Tompa' Lindberg, lét nýverið lífið eftir báráttu sína við sjaldgæft krabbamein.  Það var í október í fyrra að við blésum til Tomas Lindberg hugveikju (HLUSTA) hvar við kvöddum hann eins vel og við gátum miðað við efni. En hér er síðasta verk aðalhljómsveitar hans tekið til gagns í svokölluðum neyðarþætti. Efnistökin í neyðarþáttum eru á þann veginn að þáttarstjórnendur byggja ekki undir efnið með því að sanka að sér upplýsingum og staðreyndum heldur vaða áfram á tilfinningunni og gefa hljómplötun og lögum þeirra einskonar gagnrýni og einkunn. Er fyrst er fremst er þetta til gamans gert til þess að halda samtalinu um tónlist gangandi sem og nær okkur í tíma.AT THE GATES AÐ EILÍFU! Tónlist í þættinumPATRONIAN - Fyrr skal hún dauð liggja (2026)SÁTAN 2026 ER Á NÆSTA LEITI.TRYGGIÐ YKKUR MIÐA HÉR. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
058: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Tæmt úr pokanum og minningasjóður Hafnafjarðar
2026/05/12
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Drengirnir halda áfram á rúntinum og ílengjast í Hafnafirði. Við ítrekum að hljómgæðin og tja, hljóðstílinn á talinu, er frábrugðin því sem gengur og gerist í þáttunum sem við gerum í hljóðveri vegna þess að við erum vissulega á rúntinum. Við erum á raunrúntinum, krakkar, með þráðlausa hljóðnema og ég veit ekki hvað og hvað.Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið í eldinn bræður og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænýrri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli. Til grundvallar lágu lög frá:DISMEMBERKISS IT GOODBYEBRUTUSCONJURERSLIFTSLUGDGE Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að samlokum.SÁTAN 2026 ER Á NÆSTA LEITI.TRYGGIÐ YKKUR MIÐA HÉR. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
057: STOKKIÐ Á RÚNTINN - Lífsmark og losað um málbein (Wacken MB, KORN o.fl.)
2026/05/09
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Eftir að hafa lent undir fyrirséðum árstíðarskaflinum þá eru félagarnir Hörður Ólafs og Birkir Fjalar komnir á rúntinn og hlustendum Þungarokksþáttarins Stokkið í eldinn  er boðið með. Meðal efnis í snörpum þætti eru niðurstöður Wacken Metal Battle á Íslandi 2026, Sátan 2026, önnur ný CONVERGE, GAVIN PORTLAND furðumál, tónleikavenjur Íslendinga, þrass á Akranesi nýjasta lag krakkanna í KORN og sitthvað fleira.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
056: NEUROSIS - An Undying Love for a Burning World m. Birnir Halldórssyni + KVARV
2026/03/29
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Er það að bera í bakkafullan lækinn að fá að baða sig í nýrri NEUROSIS plötu og sérstaklega plötu þá sem við höfðum ekki hugmyndaflug til að trúa að kæmi nokkurn tíman út því NEUROSIS voru sannarlega dauðir? Steindauðir. Dauðir á svo marga vegu að fljótt á litið munum við ekki eftir jafn afgerandi dauða hljómsveitar. Nema hvað...An Undying Love for a Burning World birtist þungarokksheimsbyggðinni eins og óvænt leiftur eða eins konar stjörnuhrap nema að ofan í gígnum, sem stjarnan skildi eftir sig hvar hún brotlenti í moldinni, var að finna hljómplötu þá sem liggur hér til grundvallar.  Við finnum þarna fyrir nýrri liðskipan en turn einn er nefnist Aron Turner (ISIS, SUMAC, OLD MAN GLOOM) er kominn um borð og hvernig mun það nú hljóma? Getur sveitin staðist væntingar? Er yfirleitt hægt að vænta einhvers upp eða niður? Fer þessi plata og tilvist hennar með þáttarstjórnendum á tilfinningalega rönguna? Er í lagi með fólk? Til að hjálpa okkur fengum við rithöfundinnn Björn Halldórsson (Stol, Smáglæpir, mikið slamm á tónleikum o.fl.) til liðs við okkur og hann hljóp með þetta helvíti, eins og Kaninn segir gjarnan. Ný Íslensk þungarokkshljómsveit (í alvöru?) -- KVARV --  gekk nýverið í Leynifélag Stokkið í eldinn og í þessum þætti fáum við að deila óútgefnu lagi þeirra með ykkur, hlustendur kærir. Þetta er eini staðurinn í veröldinni hvar það er yfirleitt mögulegt. Lagið heitir Hamar og má með sanni segja að KVARV hafi með því stungið stálinu svo harkalega og djúpt í eldinn að lætin munu bergmála löngu eftir að laginu lýkur.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
055: STOKKIÐ Á RÚNTINN - 2. hluti (Tæmt úr pokanum) og Wacken Metal Battle
2026/03/26
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Fyrsti Stokkið á rúntinn gekk svona glimrandi vel en vegna tímaskorts þá gátum við bara farið yfir og brugðist við lögunum frá Hödda. Upphaflega áformið var, að á sama rúnt, fengi Höddi að hlusta á þrjú lög frá Birki. Nýverið var unnin bragabót á þessu öllu saman þegar kumpánarnir fóru á annan kærkominn rúnt til að hlusta á og tala um tónlist líkt og tíðkaðist svo gjarnan árum áður þegar snældur og Sony Discman réðu ríkjum í bifreiðum tónlistaþyrstra landsmanna. Upplegg og nálgun er einhvernvegin svona; Birkir ber undir Hörð þrjú lög sem hann að öllum líkindum þekkir ekki en þarf að bregðast við í rauntíma. Kemur þá í ljós hvort hann hafi haft gaman af, hvað stóð hæst, hvað var ábótavant og svo framvegins. Svo er allur gangur á því hvert umræðurnar leiða. En við getum þó sagt sem svo að STRIGASKÓR NR. 42 hugvekja hafi átt sér stað með tilheyrandi þrýstingi og losun. Stokkið á rúntinn er til svo að Stokkið í eldinn bræður og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænýrri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli. Til grundvallar lágu lög frá:UNDEATHSTRIGASKÓR NR. 42BLACK SABBATHPOISON THE WELL fylgdu svo óvænt með til viðauka. Einnig var lauflétt farið yfir tilvonandi Wacken Metal Battle Iceland sem fram fer í Iðnó 26. apríl næstkomandi. Tryggið ykkur miða HÉR. Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að leikslokum. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
054: STOKKIÐ Á RÚNTINN
2026/03/21
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Hörður sín Ólafsson heldur áfram að vera uppspretta góðra hugmynda. Innblásin af gömlu verkefni Birkis og Andrew Westerhouse, skapara aversionline.com, sem nefndist The Mystery Grab Bag (sjá dæmi eins og þetta og þetta) kom hann á legg pokapælingu sem fram fer inn í bíl á meðan rúntað er um götur Stór-Höfuðborgarsvæðisins. Hörður ber undir Birki þrjú lög sem hann að öllum líkindum þekkir ekki en þarf að bregðast við í rauntíma (eins og gerðist gjarnan á rúntinum til forna) og svo gerir Birkir slíkt það sama og Hörður tekur við að fábúlerar yfir mælaborð bíls síns. Þetta er gert svo að Stokkið í eldinn bræðurnir og hlustendur hlaðvarpssins geti kynnst ýmist glænærri tónlist frá óþekktum sveitum nú eða kynnst djúpskurði frá eldri og stærri sveitum sem einhverra hluta vegna náðu aldrei almennilega upp á dekk og auðvitað allt þarna á milli. Til grundvallar lágu:DUMB WAITER NI MIZMOR SIX FEET UNDER Þessi dagskrárliður er í þróun og efnistökin verða kvik eftir því. Smyrjum að leikslokum. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
053: SÁTAN 2026 undirmulningur m. Kidda Crowley (Ultra Magnus/Málmsmiðjan/X977)
2026/03/18
Moonstone Tattoo Reykjavík kynnir Birkir Fjalar fær loksins að nördast og grallarast með Kidda Crowley sínum (og Hörður Ólafs fær kærkomið frí frá þeim fyrr nefnda) þegar blásið var til Sátufundar vegna ærinnar ástæðu... Jú jú; SÁTAN 2026 er handan við Skessuhornið! Í mannsögulegu samhengi þá er 'etta að bresta á, vinir! Kristinn Reyr og Birkir Fjalar fara í þessum þætti yfir það sem er í vændum á SÁTUNNI en fyrst og fremst er um fögnuð að ræða. Einhver myndu kalla þetta upphitun en fyrir okkur er þetta sálumessa. Og við erum bara rétt að byrja. Birkir talaði um WORLD NARCOSIS í 537. skiptið og Kristinn lúslas jarðfræðigögn og rannsóknir á jarðlögum í og við fjallið Gölt í Súgandafirði. Mjög þungarokks, því getum við lofað. Sérstaka þakkir fær Tommi Steindórs og X977. Kaupið miða og dagspassa sem fyrst HÉRNA.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp
052: CROWBAR sendinefnd Íslands í Englandi & nýtt Sepultura
2026/03/15
Moonstone Tattoo ReykjavíkCROWBAR er hjartahljómsveit Birkis og fleiri Reyðfirðinga og sömuleiðis er það hjartahljómsveit Sigvalda dordinguls Ástríðarsonar góðavinar þáttarins, aldavinar Birkis. Það spurðist svo út að CROWBAR væru á leið í túnfót Íslands, einnig þekktur sem Bretlandseyjar, þá hófst Birkir handa við að róta saman fólki sem farið gæti með honum út til að sjá hetjurnar. Alltént mátti þetta tækifæri til að sjá sína uppáhalds í fyrsta og jafnvel eina skiptið ekki renna honum úr greipum. Hvernig valdist í hópin getur almættið eitt útskýrt en góður var hann. Á augabragði varð til fimm manna föruneyti elskandi vina sem sá CROWBAR í Portsmouth einn daginn og London þann næsta. Afraksturinn er skríkjandi tættur þáttur hvar gleði, galsi, gauragangur, karlakímni og einkahúmur ríður við einteyming ásamt "dýnamískum" hljóðheim út af sottlu. Alveg óvænt; krúttleg upphaf-vináttu-saga Valla og Birkis. Áður en við dembum okkur saman í CROWBAR af fullum þunga þá kölluðum við Kristján B. Heiðarsson til verka enda er útkomið splunkunýtt lag með krökkunum í SEPULTURA. Það yrðum við allir að tækla. Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar. Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Skoðið 2026 dagskránna hér. Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar. Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.   Stokkið í eldinn er kirfilega studdur af Luxor: tækjaleigu og sölu.   Ljós // Hljóð // Mynd // Svið.   Tæki og þekking. Luxor eiga ljós, myndavélar, hljóðkerfi, svið og skjávarpa til sölu og leigu svo fátt eitt sé nefnt. Luxor er þekkingarhús viðburða.   Smellið á www.luxor.is og rannsakið. Sláið á þráðinn og fáið ráðgjöfSNÆFUGL hlaðvörp

Podcast reviews

Read Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn podcast reviews


5 out of 5
1 reviews
★★★★★
Valli Dordingull 2023/09/22
Ástríða fyrir tónlist
Það er magnað að hlusta á þennan þátt og heyra þá ástríðu fyrir þungarokki sem þeir félagar bera. Skiptir ekki máli hvor um er að ræða stuttan eða lan...
check all reviews on apple podcasts

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn relevant audience podcasts


What do you want to promote?