
Advertise on podcast: Samstöðin
This podcast has
600 episodes
Language
IcelandicPublisher
SamstöðinExplicit
No
Date created
2023/07/06
Latest episode
2026/10/25
Average duration
149 min.
Release period
1 days
Description
Samstöðin er fréttamiðill og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meginstraumsmiðla. Þættir Samstöðvarinnar eru allt í senn fréttir, fundir, sjónvarps-, útvarps- og hlaðvarpsþættir og innlegg í gagnvirka umræðu á samfélagsmiðlum. Samstöðin er opin fyrir allt fólk sem vill styðja við baráttuna fyrir réttlæti, jöfnuði og samkennd.
Unlock Samstöðin podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Samstöðin podcast
Sunnudagurinn 25. október Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall
2026/10/25
Sunnudagurinn 25. október
Synir Egils: Mótmæli, átök, fylgi og fall
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Andrea Sigurðardóttir blaðakona, Rakel Þorbergsdóttir samskiptaráðgjafi og fyrrum fréttastjóri Ríkisútvarpsins og Róbert Marshall fjallamaður, fyrrum þing- og blaðamaður og ræða átök í Evrópu og innan flokka á Íslandi, niðurskurð hjá Borginni, umdeildan sýknudóm í kynferðisbrotamáli, fylgi flokka og margt fleira. Að því loknu ræðum við mótmælin í Evrópu við þau Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði, Gígju Söru Björnsson, sem er sviðshöfundur og íslensk-frönsk, Morgane Priet-Mahéo straumfræðingur og Ara Orrason formann UngVG. Hverjir mótmæla hverju? Er ungt fólk í Evrópu að hafna stefnu yfirvalda? Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Einar Bárðar
2026/10/24
Laugardagur 24. október
Helgi-spjall: Einar Bárðar
„Það eru sirka tveir á Íslandi sem ég hef ekki hringt í,“ segir Einar Bárðarson, athafnamaður og alþýðuskáld sem hefur komið víða við, allt frá tónlistarbransanum og viðburðahaldi til hjólreiðakeppna, plokks og umhverfismála. Hann segir samskiptahæfni sína helsta styrkleika, á auðvelt með að setja sig í spor annarra og hugsar frekar „Hvað get ég gert?“ en „Hvað getur kerfið gert fyrir mig?“ Í Helgispjalli hjá Ásdísi Olsen segir Einar frá skiptinemaárinu í Bandaríkjunum sem breytti lífssýn hans, kynnum við föður sinn á fullorðinsárum, baráttunni við Orkuveituna og leyndarmálinu á bak við hamingjuna. Og auðvitað nýja hárinu!
Föstudagur 23. október Vikuskammtur: Vika 43
2026/10/23
Föstudagur 23. október
Vikuskammtur: Vika 43
Í Vikuskammti verður rætt um árstíðarskipti, umhverfismál, hegðun Íslendinga á samfélagsmiðlum, rasisma, bókasöfn, stjórnmál og fleira spennandi. Gestir þáttarins eru Margrét Tryggvadóttir og Guðmundur Andri Thorsson, bæði rithöfundar, Lára Sigurðardóttir læknir og Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar.
Rauða borðið 22. okt - Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt
2026/10/23
Fimmtudagur 22. október
Rasismi, mótmæli, reynsluboltar, lög og regla og sátt
Jasmina Vajzovic ráðgjafi bregst við málflutningi um að varast þurfi innflytjendur frá ákveðnum heimssvæðum. Jasmina segir fordóma hafa aukist gegn útlendingum og enn sé alvarleg stigmögnun í rasisma hér á landi. Einar Már Jónsson sagnfræðiprófessor emeritus í París greinir mótmælaölduna í Frakklandi í samtali við Gunnar Smára. Sigurjón Magnús Egilsson ræðir við Helga Hjörvar fyrrum þingmann, Vilhjálm Bjarnason fyrrum þingmann og Ernu Bjarnadóttur hagfræðing um fréttir líðandi stundar. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir lagaleg álitaefni, umdeildan sýknudóm Landsréttar í nauðgunarmáli, vanhæfi eða ekki vanhæfi sveitarstjóra og samkeppnismál í samtali við Björn Þorláks. Draumey Aradóttir lýsir í samtali við Ásdísi Olsen ævintýri sem hún upplifði í ljóðabókinni Syngur í skógi.
Sjávarútvegsspjall - 94. þáttur: Af Alþingi
2026/10/22
Fimmtudagur 22. október
Sjávarútvegsspjall - 94. þáttur
Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar Alþingis og þingmaður Flokks fólksins er gestur Grétars að þessu sinni.
Rauða borðið 21. okt - Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar
2026/10/21
Miðvikudagur 21. október
Kynlífsofbeldi, fyrirgefning, sálgreining og læknar
Edda Björk Þórðardóttir dósent í faraldsfræði og annar aðalhöfunda rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna og Jenný Kristín Valberg teymisstýra Bjarkarhlíðar ræða við Gunnar Smára um sýknudóm Landsréttar og aukið ofbeldi í kynlífi ungra kvenna. Magnús Geir Þórðarson leikstjóri og leikararnir Jakob Van Oosterhaut, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Edda Björg Eyjólfsdóttir ræða við Gunnar Smára um Högg, sýningu Þjóðleikhússin á sögu manns sem verður valdur að dauða annars og hvernig hann og foreldrar fórnarlambsins lifa af með sorg og sekt. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir segir Ásdísi frá því hvernig sálgreining getur hjálpað okkur að skilja okkur sjálf betur og þeirri miklu sjálfsvinnu sem hún vann sjálf til að geta hjálpað öðrum. byggði upp bakdeild í Stykkishólmi sem færði mörgum bata og vakti víða athygli.
Græna borðið 25. þáttur - Gagnaver
2026/10/21
Miðvikudagur 21. október
Græna borðið 25. þáttur - Gagnaver
Pólitíska forystu og reglur um starfsemi og vöxt orkugleypandi gagnavera skortir á Íslandi. Eftirlit með greininni og lög um hana vantar og gagnaver þurfa ekki einu sinni að fara í umhverfismat, þótt eitt slíkt geti haft víðtækari áhrif á náttúruna og samfélagið en heil stórvirkjun. Andstaða við þau er stórpólitísk í mörgum löndum. Geir Guðmundsson, orkuverkfræðingur, Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur og Gauti Kristmannsson prófessor, ræða gagnaverabúskapinn. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir stýra umræðum.
Rauða borðið 20. okt - Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
2026/10/20
Þriðjudagur 20. október
Réttlæti, nauðungarsölur, hjúkrunarheimili, þriðja æviskeiðið, Gunnella og barnabók
Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú og sanngirnisbætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Ásta Lóa Þórhallsdóttir þingkona ræðir við Sigurjón Magnús um svínarí við nauðungarsölur og frumvarp sitt til úrbóta. Hjúkrunarheimili ættu sem endastöð að taka mjög vel á móti fólki en því miður skortir töluvert upp á það. Þetta segir Árni Kjartansson aðstandandi sem ræðir við Björn Þorláks. Ásdís Olsen ræðir við dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, fyrrverandi rektor Háskólans í Reykjavík um þriðja æviskeiðið. Katla Þórudóttir Njálsdóttir höfundur og leikari, Aron Már Ólafsson leikari og Killian G.E. Briansson leikstjóri ræða við Gunnar Smára um Gunnellu sem þráir að ættleiða barn. Sigmundur Ernir Rúnarsson sendir frá sér nýja bók sem kallast Barnabók. Hann segir Birni Þorláks frá lífinu á Akureyri fyrr á tímum.
Bókaborðið - 6. þáttur: Bókin er töfraafl sem við megum ekki týna
2026/10/20
Þriðjudagur 20. október
Bókaborðið - 6. þáttur: Bókin er töfraafl sem við megum ekki týna
Páll Valsson útgáfustjóri Bjarts bókaútgáfu og Sigþrúður Silju Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins hafa starfað að bókaútgáfu frá því á síðustu öld og hvergi næri hætt. Þau ræða við Brynhildi um bókaútgáfu, ritstjórn, gervigreind og bókaást.
Rauða borðið 19. okt - Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir og söfn
2026/10/19
Mánudagur 19. október
Trump, Ilmur, gervigreind, ásakanir, söfn
Friðjón R. Friðjónsson varaborgarfulltrúi, Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur og Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur ræða við Gunnar Smára um Trump og komandi kosningar í Bandaríkjunum. Ilmur Kristjánsdóttir leikari deilir áhyggjum sínum og þekkingu af umhverfismálum í samtali með Birni Þorlákssyni. Sérstakan óhug þennan daginn vekur þungmálmamengað drykkjuvatn á Svalbarða. Þóroddur Bjarnason prófessor og Þorsteinn Siglaugsson heimspekingur og hagfræðingur og stjórnarmaður í Samtökum um mannvæna tækni ræða við Gunnar Smára um gervigreind og hvaða áhrif hún hefur á okkur og samfélag okkar.Ásdís Olsen ræðir við Gísla Bachmann stjörnuspeking um áhrif fréttaumfjöllunar Kompás ásakanir um ofbeldi af hans hálfu. Hugvekja um söfn og samfélag er heitið á nýrri bók eftir Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor. Hann ræðir við Björn Þorláks um persónulega sýn fræðimannsins.
Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar
2026/10/19
Mánudagur 19. október
Manngildi - 1. þáttur: Ekkert um okkur án okkar
Í fyrsta þætti Manngildis er gesturinn Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun. Við kynnumst Sóldísi, ræðum starf Átaks og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun fái sjálft að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða líf þess. Hlustar samfélagið á raddir fatlaðs fólks? Hvernig stöndum við okkur þegar kemur að sjálfsákvörðunarrétti, sjálfstæði og þátttöku í samfélaginu? Manngildi er nýr samtalsþáttur á Samstöðinni þar sem við gefum fólki rödd, aukum skilning og ræðum hvernig við getum skapað betra samfélag fyrir okkur öll.
Synir Egils 18. okt - Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
2026/10/18
Sunnudagurinn 18. október
Synir Egils: Upplausn í flokkum og ASÍ, fákeppni og misnotkun, stríð og staða flokka
Við ræðum fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins við góða gesti; fyrst koma Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB, Helga Vala Helgadóttir lögmaður og Þórður Snær Júlíusson framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar og ræða ágreining innan Viðreisnar og Alþýðusambandsins, okur og fákeppni, stöðu stjórnar og flokka og margt annað. Þá kemur nýr forseti Alþýðusambandsins að borðinu, Georg Páll Skúlason, og ræðir um stöðu ASÍ við bræðurna og Sigurð Pétursson sagnfræðinginn sem er manna fróðastur um sögu verkalýðsbaráttunnar. Í lokin fara þeir bræður, Sigurjón Magnús og Gunnar Smári, yfir pólitíkina með sínu nefi.
Rauða borðið - Helgi-spjall: Edda Björgvins
2026/10/17
Laugardagur 17. október
Helgi-spjall: Edda Björgvins
Edda Björgvinsdóttir segir frá æsku sinni og uppruna, lífinu og leikhúsinu, hlátri og grát.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 42
2026/10/16
Föstudagur 16. október
Vikuskammtur: Vika 42
Þau koma að Rauða borðinu, Magnea Gná Jóhannsdóttir varaborgarfulltrúi, Jóhanna Malen Skúladóttir jarðeðlisfræðingur og varaforseti Ungra umhverfissinna, Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona og Viktor Pétur Finnsson varaþingmaður og ræða við Gunnar Smára um fréttir vikunnar sem einkenndust af átökum og deilum, svindli og afsögnum, óveðri og óknyttaskap.
Rauða borðið 15. okt - Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
2026/10/15
Fimmtudagur 15. október
Reynsluboltar, verkó, norrænt sambandsríki, umhverfistímarit, andlegur þroski og Heilsuerla
Margrét Sanders, Arnar Björnsson og Gunnar Salvarsson voru gestir Sigurjóns að þessu sinni. Þau tala af reynslu og yfirvegun um helstu málefni líðandi stundar. Sigurður Pétursson sagnfræðingur ræðir við Gunnar Smári um spennu milli VR og Eflingar og átökin innan Alþýðusambandsins. Hrannar Björn Arnarsson formaður Norræna félagsins og Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur og ævisöguritari Gunnars Gunnarssonar ræða um sambandsríki Norðurlandanna í tilefni af fyrirlestri Gunnars Wetterberg á morgun. Jean-Rémi Chareyre segir Gunnari Smára frá Umskipti tímariti um framtíðarvelsæld og þolmörk jarðar. Sigurður Skúlason segir Gunnari Smára frá andlegri þroskasögu sinni og bókinni Í leit að því sem er, sem fjallar um það ferðalag. Heilsumarkþjálfinn landsþekkti, Erla Guðmundsdóttir örmagnaðist og grét í þrjár vikur. Hún leitaði sér aðstoðar og komst að því að hún hafði lent í einelti, verið meðvirk og aftengd sjálfri sér. Hún lærði að hlusta á innsæið, velja það sem nærir hana og láta álit annarra ekki stjórna sér. Ásdís ræðir við Erlu.
Podcast reviews
Read Samstöðin podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Samstöðin relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.91363711
The Learning Leader Show With Ryan Hawk
Ryan Hawk

4.92112501
the bossbabe podcast
Natalie Ellis

4.3385921998
The Megyn Kelly Show
SiriusXM

4.947754411
The Shawn Ryan Show
Shawn Ryan

4.5185359
Who, When, Wow!
Tinkercast | Wondery

4.6687771116
Armchair Expert with Dax Shepard
Armchair Umbrella

4.9554112195
The MeidasTouch Podcast
MeidasTouch Network

4.639655
Only Murders in the Building Podcast
Straw Hut Media

4.7831518
The Home Service Expert Podcast
Tommy Mello: $200 Million Founder|Forbes, Inc., Entrepreneur Columnist

4.443481356
Something You Should Know
Mike Carruthers | OmniCast Media