
Advertise on podcast: Tveir á toppnum
This podcast has
167 episodes
Language
IcelandicPublisher
Tveir á toppnumExplicit
No
Date created
2023/07/13
Latest episode
2026/10/15
Average duration
71 min.
Release period
9 days
Description
Blaðamennirnir Oddur Ævar og Tóti eru Tveir á toppnum og halda áfram að ræða kvikmyndir, sjónvarp og allt þar á milli í óbeinu framhaldi Bíóvarpsins sem dó með Fréttablaðinu. „Tveir á toppnum er óvenju góð flétta [...] þar sem mannlegi þátturinn hefur ekki gleymst.“ - Morgunblaðið 1987 - [email protected].
Unlock Tveir á toppnum podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Tveir á toppnum podcast
#167- The Brink of War
2026/10/15
Í þessum þætti má segja að Tveir á toppnum séu í raun „Two on the Summit“ enda í hvínandi kaldastríðsfílíng, með stjórnmálafræðinginn Eirík Bergmann á línunni, þegar þeir tækla Reykjavíkurdramað The Brink of War með þá Míkhaíl Gorbatsjof og Ronald Reagan í forgrunni bíómyndarinnar um sögulegan fund þeirra í Höfða 1986.
#166-Digger
2026/10/08
Diggarðu Digger eða ekki? Þar er efinn sem þessi þáttur gereyðir enda ekki í kot vísað þegar Tveir á toppnum fá alhliða bransameistarann Jón Gunnar Geirdal til þess að ræða þessa umtöluðu, umdeildu og að því er virðist stórkostlega misskildu mynd.
#165-Meiriháttar kombakk!
2026/10/01
Tveir á toppnum bæta fyrir messufall síðustu viku með því að troða bókstaflega ÖLLU í þennan 70 mínútna endurkomuþátt eftir langt veikindaleyfi Tóta. Hvað gerði Oddur á meðan og er eitthvað til í því að Tóti hafi verið meðferð og logið sig veikan á meðan? Þetta er þátturinn með öll svörin!
#164-Ekkjuvogur og Apple TV á Íslandi
2026/09/17
Emmy-verðlaunin eru í brennidepli þáttarins og þá sérstaklega sigurvegari hátíðarinnar, Apple TV, sem er nú loks aðgengilegt á Íslandi með eðlilegum og fullkomlega löglegum hætti. Fagnaðarlæti Odds yfir þessum tímamótum eru dálítið ýkt en fastasti fastagestur þáttarins og maðurinn sem uppgötvaði Ekkjuvogsþættina á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, nálgast tíðindi vikunnar af sinni alkunnu yfirvegun.
#163-Frjálst og óháð bull
2026/09/02
Frjáls tími hjá Tveimur á toppnum þar sem Oddur og Tóti leyfa sér stjórnlausan og ómarkvissan kjaftavaðal. Reyna að selja notuð nagladekk og barnaföt á milli þess sem hrært er í gláppottum líðandi stundar, fréttastofu Stöðvar 2/Sýnar er minnst og Tóti klárar Mickey Rourke fyrirlestur síðasta þáttar.
#162-Síðasti þáttur fyrir Dómsdag
2026/08/28
Tveir á toppnum breyta um stefnu í síðasta þætti sínum fyrir Dómsdaginn 29. ágúst þegar alþjóðastjórnmálafræðingurinn Oddur Ævar er fenginn til að ræða kosti og galla ESB-aðildar. Þó finnst einnig pláss til að minnast Dollyjar Parton og Tims Curry en Tóti er síðan stöðvaður í miðjum fyrirlestri um Mickey Rourke.
#161 - House of the Dragon 3
2026/08/19
Útvarpsstjarnan Nanna Guðrún Sigurðardóttir á Rás 2 stígur niður á hlaðvarpsplanið og ræðir 3. vertíð House of the Dragon í Tveimur á toppnum, sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpi upplýsta og djúppælda fólksins!
Einnig: Hayden Panettiere, Stallone á Menningarnótt og listi yfir þolgóðar hlaupamyndir fyrir þau sem nenna ekki að púlla Dustin Hoffman og hlaupa Reykjavíkurmaraþonið.
#160 - Spider-Man: Brand New Day
2026/08/05
Áttfættu hlustendur! Velkomin að Marvel-troginu þar sem Spider-Man: Brand New Day er veislukosturinn að þessu sinni. Oddur sleikir út um á meðan Arnar Tómas talar enga tæpitungu þegar hann kennir honum borðsiði.
Einnig: Tóti tengir ESB-tryllinginn við Invasion of the Body Snatchers.
Sérstakur heiðurgestur: Stefán Atli Sigtryggsson, okkar Marvel-maður í Svíþjóð.
#159 - Talking Bollocks!
2026/07/29
Hefðbundin dagskrá trufluð og þætti #159 er droppað á miðvikudegi svo Oddur geti kastað sér head first ofan í Marvel-trogið á fimmtudaginn. Stjórnlaust og tilgangslaust blaður Tveggja á toppnum þar sem verslunarmannahelgin, bláir gaskútar og alls konar annað er tæklað ásamt skúbbi vikunnar: HVAÐA ÞJÓÐÞEKTTA MENNINGARDROTTNING GEKK ÚT AF THE ODYSSEY Í HLÉI????
#158 - The Odyssey
2026/07/23
Þátturinn sem er búinn að vera u.þ.b. 3200 ár á leiðinni er loksins í höfn! Christopher Nolan er tekinn á beinið og Ódysseifskviðu hans snúið á alla kanta í epískum panel með Illuga Jökulssyni, sem kannast eitthvað aðeins við frumtextann sem myndin byggir á, og Birgi Olgeirssyni, sem hefur aldrei verið jákvæðari en að þessu sinni.
#157 - Frjáls tími og glápskýrslur
2026/07/16
Þátturinn um allt sem hefur ekki komist að í fjarveru Odds ásamt tveimur stórfréttum sem skekið hafa heimsbyggðina; andlát Sam Neill og íslenskt Love Island.
#156 - Stallone 80 ára
2026/07/06
Sylvester Stallone, okkar eigin Sly, fagnar 80 ára afmæli í dag, 6. júlí, og ekki annað hægt en sýna honum þann sjálfsagða sóma að rjúfa hefðbundna dagskrá með sérstökum þætti.
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur, rithöfundur og jafnaldri fyrstu Rocky-myndarinnar, stígur aftur í hringinn og fer með Tóta yfir langan, glæstan en þó brokkgengan feril rómuðustu hasarhetju síðustu áratuga í 130 mínútur sem gerir þáttinn að langlengsta Tveir á toppnum þætti allra tíma.
#155 - Citizen Vigilante
2026/07/01
Eldfimur þáttur þar sem Kristinn Theódórsson er kallaður til og fenginn til þess að ræða umtalað furðuverkið og svimandi lélega ruslið Citizen Vigilante jafn vítt og breitt og takmarkaður efniviðurinn leyfir.
Myndin og áróðurinn sem hún rekur eru þess eðlis að umræðunum fylgja allar mögulegar og ómögulegar trigger warnings, til hægri og vinstri.
#154 - Disclosure Day
2026/06/18
Undarlegur þáttur hlaðinn sláandi afhjúpunum þar sem hæst ber að Oddur er í gíslingu vondra hvalfangara og missir því af gesti þáttarins sem er af því kalíberi að hann þarfnast ekki kynningar. En við kynnum hann nú samt:
Sjáðu-maðurinn sjálfur Ásgeir Kolbeins ræðir við Tóta um nýjustu Spielberg-myndina, Disclosure Day, og alls konar annað mismerkilegt en allt skemmtilegt.
#153 - Obsession
2026/06/11
Öll og afar þeirra obsessa nú yfir Obsession. Maðurinn sem uppgötvaði Obsession á Íslandi, Arnar Tómas Valgeirsson, lætur sig því ekki vanta í þáttinn og þar sem hermt er að um sérstaka Gen Z-mynd sé að ræða voru sérstakir fulltrúar kynslóðarinnar, Ragga Björt Tótadóttir og Alda Örvarsdóttir, kallaðar til lóðbeint úr MH.
Podcast reviews
Read Tveir á toppnum podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Tveir á toppnum relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.920741185
Toni and Ryan
Toni Lodge and Ryan Jon

4.824771883
Deck The Hallmark
Bramble Jam Podcast Network

4.762602000
The Lawfare Podcast
The Lawfare Institute

4.736021313
The Bonfire with Big Jay Oakerson and Robert Kelly
SiriusXM

4.723812000
Everything Everywhere Daily
Gary Arndt

4.6221732000
Mark Levin Podcast
Cumulus Podcast Network

4.732711972
The President's Daily Brief
The First TV

4.913561971
Wholesaling Inc with Brent Daniels
Find distressed properties for pennies on the dollar and turn them for huge profits!

4.814621650
The Big Honker Podcast
Andy Shaver & Jeff Stanfield

4.7368511291
Louder with Crowder
Louder with Crowder