1711636937
Pallborðið

Advertise on podcast: Pallborðið

This podcast has
55 episodes
Language
Icelandic
Publisher
visir
Explicit
No
Date created
2023/10/12
Latest episode
2026/09/24
Average duration
52 min.
Release period
44 days

Description

Viðtalsþáttur á Vísi þar sem kafað er í mál í brennidepli.

Unlock Pallborðið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Pallborðið podcast


Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm
2026/09/24
Kjaramál voru til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út eftir sléttar tvær vikur, eða þann 8. október. Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mættust í Pallborðinu.
Línurnar lagðar fyrir spennandi þing
2026/09/03
Gera má ráð fyrir að þingveturinn hefjist með hvelli enda nóg um að vera í samfélaginu. Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár, forsendur kjarasamninga eru brostnar og enn er óvíst hvernig fer með umsókn Íslands að Evrópusambandinu eftir að þjóðin hafnaði aðildarviðræðum.  Við snertum á þessum málum og mörgum öðrum í beinni útsendingu í Pallborðinu á Vísi.
Satt, logið og um­deildar aug­lýsingar
2026/08/27
Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. Stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir mæta í fyrri hluta þáttarins og ræða upplýsingaóreiðu, samsæriskenningar og fullyrðingar í baráttunni sem tæplega standast skoðun.  Í síðari hluta munu Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona rýna í kosningabaráttuna frá ólíkum sjónarhornum, ræða umtalaðar auglýsingar og andlega líðan þjóðar.
Hasar í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna
2026/08/26
Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis að viðræðum fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá sem fulltrúar Já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd Nei-ara.
Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst?
2026/08/20
Evrópumálin eru enn í brennidepli í Pallborðinu. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að því hvað innganga í Evrópusambandið myndi þýða fyrir ungt fólk á Íslandi. Hvort ætti ungt fólk að kjósa já eða nei? Gestir eru Jóhannes Óli, María Malmquist, Magnea Gná og Steinar Ingi.
Já-arar og nei-arar í Pallborði
2026/08/20
Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, og Gréta María Grétarsdóttir, stjórnarkona í Já til að sjá mættu þeim Ernu Bjarnadóttur, stjórnarkonu í Heimsýn, og Júlíusi Viggó Ólafssyni frá Áfram Ísland í pallborðsumræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Evrópusambandið: Nei eða já?
2026/07/23
Rætt var um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu voru Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur, Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur, Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður og Gauti B. Eggertsson prófessor í hagfræði.
Ofbeldisalda hjá ungmennum
2025/03/20
Gestir Bjarka Sigurðssonar í Pallborðinu eru þau Hermann Austmar, faðir í Breiðholti, Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, Elísa Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur og Helga Þórðardóttir, formaður skóla- og frístundasviðs borgarinnar.
Um­ferðar­öryggi og 200 milljarða viðhaldsskuld
2025/03/13
Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, Ólafur Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur, Guðmundur Valur Guðmundsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar og Þorgrímur Sigmundsson þingmaður Miðflokksins í Norðausturkjördæmi voru gestir Hallgerðar Kolbrúnar E. Jónsdóttur í Pallborðinu.
Hvar stendur Ís­land gagn­vart Trump, tollastríði og breyttri heims­mynd?
2025/03/06
Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen voru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi.
Brýnustu verkefnin í borginni
2025/02/27
Berghildur Erla fékk til sín oddvita í Reykjavík til að ræða brýnustu verkefnin í borginni sem framundan eru. Gestir voru Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknar, Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Helga Þórðardóttir, oddviti Flokks fólksins og Líf Magneudóttir oddviti Vinstri grænna.
Áslaug Arna og Guðrún í Pallborðinu
2025/02/24
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir, frambjóðendur til formanns Sjálfstæðisflokksins, mættu í Pallborðið til Vésteins Arnar Péturssonar.
Fjórir berjast um for­manns­sætið í VR
2025/02/18
Bjarni Þór Sigurðsson, stjórnarmaður í VR, Flosi Eiríksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og núverandi ráðgjafi hjá Aton, Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Þorsteinn Skúli Sveinsson, sérfræðingur á mannauðs- og stefnusviði BYKO voru gestir Hólmfríðar Gísladóttur í Pallborðinu þar sem formannskjör VR voru til umræðu.
Kjara­deila grunn­skóla- og leik­skóla­kennara
2025/02/05
Þau Ragnheiður Stephensen grunnskólakennari í Garðaskóla í Garðabæ, Kristófer Már Maronsson í málsóknarfélagi barna og formaður fræðslunefndar í Skagafirði og Jón Pétur Zimsen fyrrverandi kennari og skólastjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins voru gestir Berghildar Erlu í Pallborðinu á Vísi.
Handboltaæði runnið á þjóðina
2025/01/22
Stefán Árni Pálsson hitar upp fyrir leik Íslands og Egyptalands og keppni í milliriðlum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla ásamt þeim Ásgeiri Erni Hallgrímssyni og Bjarna Fritzsyni í Pallborðinu.

Podcast reviews

Read Pallborðið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Pallborðið relevant audience podcasts


What do you want to promote?