
Advertise on podcast: Úti
Rating
5from
This podcast has
79 episodes
Language
IcelandicExplicit
No
Date created
2023/11/08
Latest episode
2026/10/07
Average duration
61 min.
Release period
18 days
Description
ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: [email protected] eða [email protected] Instagram: @utihladvarp Hjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton
Unlock Úti podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Úti podcast
Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir
2026/10/07
Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.
Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)
2026/09/23
Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mörgu um klifursenuna á Íslandi.
Hægt er að fá góða vettlinga í Peloton, eins og fram kemur í þættinum. Gott að kíkja þangað.
Eins má fá flenni fínan vatna- og sjóúbúnað hjá Villimanninum um að gera að græja sig upp þar.
Róbert Marshall og meira úti
2026/09/02
Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.
Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.
Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi
2026/08/19
Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér.
Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar).
Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadal og hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni.
Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.
Birta & Emil - Allir í skátana!
2026/08/05
Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum, skelltu upp tjaldbúðum og sóttu veglega og fjölbreytta dagskrá. Birta og Emil komu reynslunni ríkari heim og þau hvetja alla til að koma í skátana.
Úti er í boði Peloton ævintýra-verslunar, um að gera að sækja sér útbúnað þangað.
Um að gera að kynna sér dagskránna hjá Úti hreyfingunni fyrir þau sem vilja keyra á útivist næsta haust.
Eins erum við með fréttabréf fyrir áhugasöm. Þar koma tilkynningar um nýja þætti og einhverjar hugrenningar dagskrárstjóra svona af og til.
María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift
2026/07/22
Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá hliðarlínunni.
Þessi þáttur er í boði Peloton þar sem er hægt að fá allskonar snilld í ævintýrin.
Eins má endilega kynna sér snildina sem er í boði hjá Úti ef einhver áhugi er á að gíra sig í útið.
Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið
2026/07/08
Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði).
Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi.
Bestu þakkir fá BL fyrir að lána okkur Dacia Bigster sem kom að mjög góðum notum við andlega krefjandi aðstæður.
Eins viljum við benda fólki á Villimanninn, verslun með vörur fyrir sjó- og vatnasport.
Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára
2026/06/24
Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag.
Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægastur, hvaða námskeið skal velja, hvernig maður öðlast sjálfstraust til að byrja og gefast ekki upp, hvernig maður heldur sér við eftir barnsburð og margt fleira.Takk fyrir komuna Sigga Bára.
Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.
Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip
90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir
2026/06/10
Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun.
Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða skoða vöruúrvalið á netinu.
Tónlist í þáttunum er eftir DJ flugvél og geimskip
Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi
2026/05/27
ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið.
Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu.
Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.
69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig
2026/05/07
Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur.
Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar má versla ýmiskonar ævintýraútbúnað.
Það er annað ævintýri fram undan, endilega fylgist með.
68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf
2026/04/01
Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/
67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur
2026/03/18
Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu. Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengdum; fitufordóma og þyngdarhlutlausa nálgun.
Hjólavarpið er í boði Peloton hjólreiða og útivistarverslun sem staðsett er í Klettagörðum 23. Þar má finna frábæran fatnað til að takast á við ævintýri við íslenskar aðstæður.
66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn
2026/02/18
Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún hefur áður komið til mín eða í þætti 46.
Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á peloton.is @pelotoniceland
65. Rafmagnshjól
2026/02/04
Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt.
Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól.
Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá má finna í Klettagörðum ef þú vilt kíkja í heimsókn.
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Úti relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.41164993
Extratime
Major League Soccer

4.8815227
ArtCurious Podcast
Jennifer Dasal/ArtCurious

4.9328361398
REAL AF with Andy Frisella
Andy Frisella

3.99019564
20/20
ABC News

4.91364712
The Learning Leader Show With Ryan Hawk
Ryan Hawk

4.92112502
the bossbabe podcast
Natalie Ellis

4.3386152000
The Megyn Kelly Show
SiriusXM

4.947791414
The Shawn Ryan Show
Shawn Ryan

4.5185359
Who, When, Wow!
Tinkercast | Wondery

4.6687991120
Armchair Expert with Dax Shepard
Armchair Umbrella