1718968828
Spursmál

Advertise on podcast: Spursmál

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
121 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2023/11/29
Latest episode
2026/02/06
Average duration
89 min.
Release period
6 days

Description

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is Þar eru stóru mál samfélagsins krufin með afdráttarlausum hætti undir stjórn Stefáns Einars Stefáns­sonar sem fær til sín valinkunna gesti í settið alla föstudaga kl. 14. Fylgstu með lifandi, fjölbreyttri og kraftmikilli umræðu í Spursmálum á mbl.is.

Unlock Spursmál podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Spursmál podcast


#109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?
2026/02/06
Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi. Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi. Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum. Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?
Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
2026/02/05
Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.
#108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?
2026/01/30
Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá. Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins. Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.
#107. - Baráttan um völdin hafin
2026/01/26
Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum. Flokksþing fram undan Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður kjörinn á flokksþingi Framsóknarflokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson, sem verið hefur formaður frá því í október 2016 gaf það út fyrr í vetur að hann hygðist söðla um og láta af embætti. Hann tók við formennskunni á róstursömum tíma í íslenskum stjórnmálum þegar hann sigraði sitjandi formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson með ríflega 52% atkvæða. Í kjölfarið klauf Sigmundur Davíð flokkinn og stofnaði Miðflokkinn. En hvert hyggjast þær Ingibjörg og Lilja taka Framsóknarflokkinn, fái þær umboð til þess að leiða hann næstu árin? Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað í lifandi og hispurslausri umræðu á vettvangi Spursmála.
#106. - Harðir slagir framundan
2026/01/23
Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar. Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.
#105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum
2026/01/16
Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda. Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn mæta þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við þrjá oddvitaframbjóðendur Viðreisnar í Reykjavík um áherslur þeirra, komist þau til valda að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi. Þar fara þau Róbert Ragnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Björg Magnúsdóttir.
Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars
2026/01/14
Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að ræða efni og inntak bókarinnar í víðu samhengi. Ekki síst hvaða skírskotun hún hefur inn í nútímann.
#104. - Evrópubrölt gegn öryggishagsmunum Íslands
2026/01/09
Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það. Aðild kann að veikja stöðu okkar Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár. Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafnsson, starfsmaður Miðflokksins og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu rýna í stöðuna. Sterkari eða veikari með Ragnar Þór um borð? Er ríkisstjórnin sterkari eftir að Guðmundi Inga Kristinssyni var skipt út fyrir Ragnar Þór Ingólfsson og hvaða áhrif mun það hafa á störf þingsins að Sigurjón Þórðarson skuli nú vera orðinn formaður fjárlaganefndar Alþingis?Aukinn þungi færist einnig í umræðuna um sveitarstjórnarmál en Íslendingar ganga sem kunnugt er að kjörborðinu þann 16. maí næstkomandi. Hver verður oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og getur Björn Ingi eitthvað upplýst um hver leiða muni Miðflokkinn á sama vettvangi?
#103. - Ársuppgjör Spursmála: Hver á veiðiheimildirnar?
2025/12/19
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins. Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant. Hispurslaus umræða Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér. Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð. Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmundur hefur sterkar skoðanir á þessu og liggur ekki á þeim. Hann ræðir einnig umbúðalaust um nýjan makrílsamning en sitt sýnist hverjum um vinnubrögð stjórnvalda í aðdraganda undirritunar hans.
#102. - Ragnandi þingforseti og borgarlína í uppnámi
2025/12/12
Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta þáttarins mæta þau Eggert Skúlason, fjölmiðlamaður með meiru og Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og stjórnarmaður í RÚV og ræða fréttir vikunnar. Þar ræða þau meðal annars um hvort Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta þingsins, sé sætt eftir að hún kallaði stjórnarandstöðuþingmenn „djöfulsins, helvítis andskotans pakk.“Borgarlína í brennidepli Í öðrum hlutanum ræða þau Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sama vettvangi um borgarmálin. Í morgun greindi Morgunblaðið frá því að óeining sé innan borgarstjórnar um nýja deiliskipulagstillögu vegna borgarlínu eins og henni er ætlað að liggja um Suðurlandsbraut. Þá berst talið einnig að Brákarborg, ónýtum leikskóla en nýreistum sem kostað hefur borgarbúa 3.200 milljónir króna nú þegar og enn má búast við að kostnaðurinn færist í aukana. Gaf skít í Spotify Í þriðja og síðasta hluta þáttarins er svo rætt við Fannar Inga Friðþjófsson, forsprakka Hipsumhaps en hann tók afdrifaríka ákvörðun í lok nóvember þegar hann tók efni sitt út af efnisveitunni Spotify. Sneisafullur þáttur af öflugri og upplýsandi umræðu við áhugavert fólk.
#101. - Titringur á stjórnarheimilinu og jólaverslun í algeymi
2025/12/05
Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular? Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag. Jólaverslun og kræsingar Þeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023. Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum, auk aukaþátta sem efnt hefur verið til vegna stórtíðinda á heima- og alþjóðavettvangi. Auk Sigurðar Kára og Össurar fær Stefán Einar til sín góða gesti úr raunhagkerfinu. Það eru þau Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður og eigandi Farmers Market, og Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar. Þau gefa sér tíma frá hinni miklu jólavertíð sem senn nær hámarki. Þau munu fara yfir stöðuna á miðborginni og jólaverslunina á þessu ári sem að einhverju marki gæti litast af versnandi efnahagshorfum.
Bókaspjall - Helförin með Þór Whitehead
2025/12/03
Það var ekki svo að nokkrir menn í Þýskalandi hafi vaknað upp morgun einn og ákveðið að útrýma öllum gyðingum. Morðhyggjan sem heltók Evrópu var langtímaþróun sem náði hámarki í helförinni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stórfróðlegu spjalli Þórs Whitehead, fyrrverandi prófessors í sagnfræði, á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála. Í lok nóvember komu klúbbmeðlimir saman á Vinnustofu Kjarvals þar sem bókin Helförin í nýju ljósi, eftir breska fræðimanninn Laurence Rees var til umfjöllunar. Var þátttakan með miklum ágætum og um 80 manns sem mættu til leiks.
#100.- Þjarmað að Guðrúnu og gallað fæðingarorlofskerfi?
2025/11/28
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún til ráða?Þá mæta sjónvarpsmennirnir knáu Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir vikunnar. En nýverið hleyptu þeir af stokkunum þættinum Gott kvöld á Sýn. Þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum og lofar virkilega góðu.Guðfinna Kristín Björnsdóttir, læknanemi í Danmörku, skrifaði fyrr í vikunni grein sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni hennar á fæðingarorlofskerfið á Íslandi. Hún mætir á vettvang Spursmála og ræðir íslenska fæðingarorlofskerfið sem hún segir mjög brogað.
#99. - Þungir dómar felldir og Kerecis sendir milljarð til Úkraínu
2025/11/22
Mikils titrings gætir meðal menningarelítunnar vegna leikhúsdóma Símons Birgissonar sem hann hefur birt að undanförnu á Vísi. Þar lætur hann leikskáld, leikstjóra og leikara gjarnan hafa það óþvegið og hafa sumar leiksýningar endað með svo lítið sem eina stjörnu. Hann ræðir menningargagnrýni og gildi hennar ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Spursmálum dagsins. Kolbrún hefur lengi verið virkur þátttakandi í bókmenntagagnrýni hér á landi, ekki síst á vettvangi Kiljunnar í Ríkissjónvarpinu. Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis en fyrirtæki hans hefur á undanförnum árum veitt stuðningi inn í stríðshrjáða Úkraínu og nemur hann í dag yfir milljarði króna.
#98. - Tollastríð ESB og Íslands
2025/11/19
Evrópusambandið situr fast við sinn keip og leggur verndartolla á íslenskan iðnað. Hvað segja fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu um málið? Það kemur fram í aukaþætti af Spursmálum sem efnt er til í ljósi nýjustu vendinga þar sem Evrópusambandið heldur fast við þá ákvörðun að leggja toll á kísilmálm sem framleiddur er á Íslandi og í Noregi. Snorri Másson úr Miðflokki og Dagbjört Hákonardóttir frá Samfylkingu mæta á vettvang í Hádegismóum og takast á um stöðuna, ekki síst hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið á hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins.

Podcast reviews

Read Spursmál podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Spursmál relevant audience podcasts


What do you want to promote?