1720209236
Álhatturinn

Advertise on podcast: Álhatturinn

Rating
★★★★★
4.5
from
2 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
72 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Álhatturinn
Explicit
No
Date created
2023/12/07
Latest episode
2026/09/11
Average duration
119 min.
Release period
0 days

Description

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn

Unlock Álhatturinn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Álhatturinn podcast


Artemis II tunglverkefnið var sviðsett
2026/09/11
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-áætlunina. Erum við að horfa á spánýtt og ótrúlegt vísindaafrek eða dýrustu og tæknilega fullkomnustu sviðsetningu og blekkingarleik sögunnar? Opinbera sagan segir að Artemis 2 sé mönnuð geimferð, en hvers vegna var henni skotið á loft á sjálfan 1. apríl? Er skuggavaldið hreinlega að hlæja framan í okkur á sjálfan alþjóðlega hrekkjadeginum? Strákarnir rýna í myndatökur úr hylkinu sem sýna undarleg sjónarhorn þar sem enginn hefði átti að vera; hver hélt  á myndavélinni og „panna“ yfir á jörðina með svona mikilli nákvæmni ef allir geimfararnir voru í mynd? Voru hinir meintu geimfarar bara leikarar frá  „Central Casting“ eða raunverulegir geimfarar? Strákarnir rýna í feril Christina Koch og velta því fyrir sér hvernig hún hefur tíma til að vera bæði geimfari og leikkona með IMDb-prófíl. Hvers vegna er háskerpumyndin svona „fullkomin“ á köflum en líkist svo camcorder-upptöku frá 1998 þegar lendingin í hafinu á sér stað? Hvar er gufan og sjóðandi vatnið þegar hylkið, sem á að hafa náð 5.000 gráðu hita, lendir í sjónum? Og hvernig geta starfsmenn strandgæslunnar snert hylkið með berum höndum án þess að brenna sig? Er NASA hreinlega hætt að reyna að fela grænskjáinn og CGI-brellurnar? Svo eru það hin einkennilegu mismæli og framkoma geimfaranna á blaðamannafundum. Hvers vegna verða þeir flóttalegir þegar spurt er út í stjörnurnar eða Van Allen geislunarbeltið? Hvað á konan við með setningunni “þið eruð áhöfnin”(e:you are the crew)?  Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í Artemis-áætlunina. Þeir ræða meintar myndatökur Stanley Kubrick, týndu segulböndin og spyrja hversu lengi er hægt að halda úti þessu sjónarspili þegar eldflaugarnar sjást bókstaflega „beygja“ út af leið og hverfa út í hafið í stað þess að fara upp í himinhvolfið. Þetta CGI-geimfarar og svo margt, margt fleira í Álhattinum. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni
2026/09/11
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor.  Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941.  Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og heimsbyggðinni allri i opna skjöldu. Aldrei hefði nokkurn Bandaríkjamann grunað að ráðist yrði á flotastöð hersins, hvað þá svona rétt í bakgarðinum heima fyrir. Rúmlega 3400 mans féllu í árásinni sem vakti upp mikla reiði og ótta hjá Bandarísku þjóðinni.  Franklin D. Rooseveltuk þ Bandaríkjaforseti, sem hafði verið kjörinn m.a vegan loforða um að Bandaríkin myndu ekki láta draga sig út í þáttöku í stríðinu varð að bregðast skjótt við og sýna að Bandaríkin væru engar undirlægjur sem létu vaða yfir sig á skítugum skónum.  Bandaríkin brugðust því skjótt og örugglega við og svöruðu fyrir árásirnar af fullum krafti. Stuðningur við þáttöku í stríðinu rauk upp meðal almennings og nýskráningum í herinn fjölgaði svo um munaði.  Efnahagurinn sem hafði verið í tómu tjóni og algjöru rugli allt frá kreppunni miklu tók skyndilega mikla hreppstjórabeygju og einhver mesta efnahagslega velsæld sögunnar tók við af harðindum og eymd. Mikið atvinnuleysi hafði plagað þjóðina og nú rétt einsog hendi væri veifað var það orðið að engu og allir sem á annaðborð höfðu áhuga á að vinna gátu fengið vinnu og FDR var endurkjörinn forseti með yfirburðum. Oftar en einusinni. Enginn Bandaríkjaforseti hefur setið jafn lengi á valdastóli eða náð viðlíka vinsældum og Franklin D. Roosevelt. En getur virkilega verið að árás Japana hafi komið Bandaríkjunum í algjörlega opna skjöldu? Grunaði engan í hernum eða stjórninni nokkurn skapaðan hlut? Heyrst hefur að viðvaranir hafi borist frábæði Kínverjum og Rússum auk þess er starfsmaður bandaríska sendiráðsins í Japan hafði virðað áhyggjur sínar af því að Japanir hygðust ráðast á bandaríska herstöð.  Dulkóðunar g dulmálssérfræðingar innan hersins höfðu ráðið í skeytasendingar Japana og einhverjir vilja meina að það sé ekki nokkur leið að Bandaríkin afi ekki vitað af hinni yfirvofandi árás.  Til eru sagnfræðingar sem segja að bandaríski rauði krosinn hafi flutt gífurlegt magn líkpoka, blóðbyrgða og lyfja til Hawaii á dögunum fyrir árásirnar og þá hefur það vakið mikla furðu Álhatta að stærstu flugmóðuskip Bandaríkjanna hafi skyndilega verið flutt úr höfn rétt áður en árásirnar urðu. Tilviljun?  Guðleg íhlutun eða var það gert af yfirlögðu ráði í ljósi þess sem koma skyldi.Þetta og svo margt fleira áhugavert og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar em þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Bandaríkin hafi leyft árásunum á Pearl Harbor að gerast svo þau hefðu ástæðu til þess að taka þátt í seinni heimsstyrjöldinni. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: https://youtu.be/JBDbrf6Nktk?si=ddKqySFqW1Y-TE85https://www.youtube.com/watch?si=qSu_w2ec0286h-h6&v=lK8gYGg0dkE&feature=youtu.behttps://y2mate.nu/en-NLKu/Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Fæðuráðleggingar yfirvalda snúast ekki um heilsu þína heldur gróða stórfyrirtækja
2026/09/11
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu, góðu og áhyggjulausu lífi. Heilsuhraust og hamingjusöm. Ekki satt? En hvaðan koma eiginlega þessar ráðleggingar yfirvalda og hverjir skrifa þær? Snúast þær raunverulega um að nýta bestu mögulegu vísindalegu þekkinguna hverju sinni til þess að bæta lýðheilsu og auka vellíðan okkar allra eða eru dekkri annarlegri markmið að baki?  Ef læknar og vísindamenn eru svona klárir og ráðleggingarnar eru svona skotheldar og góðar af hverju erum við ekki að verða heilbrigðari og hraustari? Hvernig má þá vera að hjarta og æðasjúkdómar verða sífellt algengari og nánast önnur hver manneskja er orðin sykursjúk og í ofþyngd?  Hvert er upphaf þessara ráðlegginga og hvert er raunverulegt markmið þeirra? Í rúmlega hálfa öld höfum við hlustað á yfirvöld og hlustað á sérfræðinga en samt verðum við bara feitari og feitari og veikari og veikari. Hvaðan kom fæðu pýramídinn og hver ber ábyrgð á honum? Getur verið að pýramídinn sé á hvolfi eða ætti hann kannski að vera hringur? Er fita hinn raunverulegi óvinir eða eru það kolvetnin sem eru gjörsamlega að ganga fram af okkur?  Getur plöntufæði bjargað málunum eða er kjötið kjörið til þess að bæta meltingu heilsufar og fas? Hversu mikið af kolvetnum, trefjum eða kjöti er ráðlagt að borða og er raunverulega raunhæft að lifa eftir ráðleggingum landlæknis og yfirvalda?  Það er flókið og kostnaðarsamt lifa heilbrigðu lífi og erfitt getur verið að leggja mat á hvaða ráðleggingar reynist bestar? Er virkilega raunhæft að smíða ráðleggingar sem raunverulega virka fyrir alla, óháð kyni, kynþætti og aldri? Eða erum við kannski bara öll mismunandi og það sem virkar fyrir einhvern einn virkar ekkert endilega fyrir aðra?  Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum skoða vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór nýjustu fæðuráðleggingar landlæknis og fara yfir sögu og þróun fæðuráðlegginga á vesturlöndum. Um leið og þeir velta því fyrir sér hvort eitthvað sé til í þeirri skemmtilegu samsæriskenningu að fæðuráðleggingar yfirvalda snúist ekki um að bæta almennings heldur gróða stórfyrirtækja. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=0_OjKe4BuDEhttps://www.youtube.com/watch?v=qQsFeaQdGAchttps://www.youtube.com/watch?v=fIGXkh6S8Zw&tSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald
2026/09/11
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir.  Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þeir saman eins og ormur á gulli á tæplega 5% heildar auðs heimsins. Auk þess er þessir sjóðir eiga stóran hlut í uþb 89% af fyrirtækjunum sem skráð eru á SPP500 hlutabréfavísitöluna. Í öllum þessum fyrirtækjum eiga sjóðirnir stjórnarmenn sem ganga erinda þeirra og kjósa eftir þeirra höfði. Það má því með sanni segja að sjóðirnir fari með völd og ráði yfir allflestum fyrirtækjum á bandarískum hlutabréfamarkaði og jafnvel víðar. Sjóðirnir eiga til að mynda hlut í íslenskum fyrirtækjum á borð við Marel og Össur auk þess að erfitt er að finna það alþjóðlega fyrirtæki sem þeir eiga ekki hlut í.  Getur verið að þessir sjóðir hafi t.d áhrif á efnisval sjónvarpsstöðva eða streymisveita í þeirra eigu? Hvaðan kemur þessi krafa um svokallaðar sjálfbærnis og jafnréttis vottanir og eru þær smfélaginu í raun til góða eða búa annarlegar og afkáralegar hvatir að baki? Getur verið að illa innrætt fólk vilji knésetja fjölskyldueininguna og útrýma öllum þjóðlegum eða persónulegum gildum? Til þess að við missum sjónar af sjálfum okkur og því sem raun skiptir máli. Vilja stjórnvöld að við upplifum okkur útundan og ein svo auðveldara sé að selja okkur lygina og stjórna okkur? Hvað og hverjir ráða því í hvaða fyrirtækjum sé fjárfest og hvaða fyrirtækjum ekki? Og til hvers eru eiginlega allar þessar tilgerðarlegu og tilbúnu vottanir sem þýða í raun ekkert þar sem þær ganga hvort sem er kaupum og sölum á almennum markaði? Allt tal um lífrænar vottanir, kolefnisfótspor og jafnlauna vottanir er í raun tilgangslaust hjal og merkingarlaust þvaður þegar vottanirnar eru keyptar og seldar á markaði og seldar hæstbjóðanda. Snúast þessar vottanir þá fyrst og fremst um peninga en ekki umhverfisvernd?  Þurfa fyrirtæki þá að þóknast þessum sjóðum og ákveðnum stjórnmálamönnum til þess að eiga séns á að lifa af, fremur en að fara eftir þar til gerðum umhverfis reglum? Snýst þetta bara allt um ofsagróða hinna fáu og ríku fremur en hagsmuni náttúrunnar og almennings?  Og hvernig stendur eiginlega á því að sömu þrír sjóðirnir fái að eiga svo stóra hluti í svo gott sem öllum fyrirtækjum á markaði. Hverra erinda ganga þeir og hversvegna? Snýst þetta einungis um að tryggja sjálfbærni og velferð mannkyns eða eru annarlegar og vofeiginlegar ástæður að baki. Þetta og svo margt, margt fleira skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarni Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að BlackRock og Vanguard stjórni heiminum í gegnum krosseignarhald.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://www.youtube.com/watch?v=iCa4L22Fle4https://www.youtube.com/watch?v=k1gG0twZIEshttps://www.youtube.com/watch?v=Mvh4o6x3-GQSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Dauði Elvis Presley var sviðsettur
2026/09/11
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina.  Elvis sökk djúpt í fen óreglu og fíknar og endaði sem offitusjúklingur og lyfjafíkill sem lést af völdum hjartaáfalls langt fyrir aldur fram. Eða svo segir sagan. En getur verið að Elvis eða einhverjri aðrir á hans vegum hafi hreinlega sviðsett dauða hans?  Var þetta ein allsherjar blekking skipulögð af Elvis og útgáfurisunum til þess að græða meiri peninga? Eða fór Elvis í vitnavernd og felur eftir að hafa borið vitni gegn svikahrappi fyrir rétti? Eða getur verið að mafían og aðrir eigendur spilavídda í Vegas hafi haft eitthvað með málið að gera? Hvað með vini allra álhatta í FBI? Eða vildu Elvis og fjölskylda kannski fá frið frá öllu sviðsljósinu og um leið skapa mystík í kringum andlát hans til þess að geta markaðssett búgarð hans og heimili Graceland sem stórfenglegan ferðamannastað um ókomna tíð og gera plötur hans vinsælli? Lengi hefur fólk karpað um það hvort Elvis hafi raunverulega látist 16.Ágúst 1977 eða hreinlega farið í felur. Ef Elvis væri enn á lífi væri hann orðinn níræður sem verður að teljast afar ólíklegt í ljósi óheilbrigðra lifnaðarhátta hans og rokkstjörnu lífernis.  Hann var í mikilli yfirþyngd og bruddi allskyns lyfseðilsskyld lyf af mikilli áfergju, slíkt getur hæglega dregið mann til dauða. En kannski er það bara yfirklór frá FBI, mafíósum til þess að fela sannleika? Heyrst hefur að maður að nafninu John Burroughs, sme var þekkt dulnefni Elvisar,  hafi keypt flug frá Menphis til Argentínu sama dag og Elvis lést, en það hefur ekki fengið staðfest auk þess er ekkert beint flug var frá Memphis til Argentínu á þessum tíma.  Hvers vegna var nafnið hans rangt skrifað á dánarvottorðið og legsteininn? Hvað raunverulega varð um Elvis, hvort hann lést 16.ágúst 1977 eða mörgum árum síðar eða lifir jafnvel enn góðu lífi á einhverri sólarströnd, hefur löngum verið mörgum aðdáendum tónlistarmannsins og Álhöttum um veröld alla mikil ráðgáta.   En þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri langlífu og mjög svo áhugaverðu samsæriskenningu að dauði Elvis Presley hafi verið sviðsettur og eitt stórt sjónarspil. Yfirgaf Elvis í raun bygginguna sem vér köllum Hótel Jörð eða er hann etv enn í byggingunni og á meðal vor? HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://youtu.be/rtiIkgfHnWQ?si=2s_V1v-XNC2d9WGvVhttps://youtu.be/szH-VfhXejQ?si=X9NhZYh6k8r_Fcy-https://www.youtube.com/watch?v=EDTbURuSPp4Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna
2026/09/11
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki.  Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergju á nánast allt sem að streymisveiturnar og stóru stúdíóin senda frá sér. Enda fínasta dægrardvöl og oft á tíðum jafnvel fræðandi í leiðinni.  En getur verið að þessi dægurmenning sé ekki einunigs saklaust afþreyingarefni hannað til að stytta fólki stundir og okkur til yndisauka? Hvað ef Hollywood stúdíóin og streymisveiturnar eru að lauma duldum skilaboðum og jafnvel heilaþvotti í afþreyinguna til þess að ganga erinda eiganda sinna eða hulduaflanna? Eru moldríku jakkafatakakkalakkarnir í Hollywood með stór plön og annarleg markmið um að stýra heiminum og umræðunni í ákveðna átt, svo þeir geti grætt enn meiri pening eða komið sínu fólki að í stjórnmálum? Eða snýst þetta kannski bara um að reyna að gera gott bíó og þjóna almenningi með því að færa fólki það sem það vill?  Stýra fjölmiðlar samfélaginu eða endurspegla þeir einfaldlega samfélagið hverju sinni? Eða eru hin margumræddu hulduöfl allt í öllu í kvikmynda og skemmtanaiðnaðinum og ekki verður komist hjá því að lenda í heilaþvottavélum iðnaðarins?  Hverjir eiga í alvörunni þessar streymisveitur og kvikmyndaver og hversu mikil raunveruleg afskipti hafa þessir aðilar af efnistökum afþreyingarinnar? Ef einhver? Hittast oligarkarnir og peningapúkarnir reglulega í reykfylltum bakherbergjum og ræða hvaða woke málefni skuli sett á oddinn næst og hvaða hræðsluáróður skuli næst notaður til að stjórna fólki? Þetta er einmitt umræðuefni nýjasta þáttarins af Álhattinum hvar þeir kumpánar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Netflix og stóru Hollywood kvikmyndaverin séu heilaþvottavélar fyrir hulduöflin í samfélaginu.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Brainwashed America: The Secret Of Subliminal Messaging | Absolute DocumentariesHow Hollywood Sells Us WarBill Clinton's Favorite Movie: CNN "High Noon" Interview With Harvey WeinsteinHarvey Weinstein gave inaugural Advocate for Change Award to former President Bill Clinton p.1George Harrison talking about taking LSD with John Lennon .. "the notorious wonder drug" (1971)KGB defector Yuri Bezmenov's warning to America (1984)Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu
2026/09/11
Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæðri. Hvort sem það var vegna trúar, litarhafts, fötlunar eða einhvers annars. Áður en langt um leið höfðu þessi fúlmenni og keyrt öfgastefnu sína fram af slíku offorsi að þeim hafði tekist að murkað lífið úr miljónum manna og leggja hálfa heimsálfuna í rúst og gott betur en það.  Að lokum tókst Bandamönnum og Sovétmönnum þó blessunarlega að þjarma nóg að nasistunum svo Hitler og kumpánar gáfust upp og Hitler flúði ofan í neðanjarðarbyrgi sitt, þar sem hann ákvað að binda endi á þetta allt saman og taka bæði inn blásýru og skjóta sig. Eða hvað? Er möguleiki í að Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu 30.Apríl 1945 og komist lífs af til Argentínu?  Lengi hafa verið til sagnfræðingar sem efast hafa um söguskýringuna og bent hafa á að það sé örlítið varasamt að fara að treysta orðum Sovétmanna, sem segjast hafa komið á vettvang eftir að líkið hafði verið brennt og flutt öskuna í burtu og grafið á leynilegum stað.  Það myndi eflaust henta þeim afar vel að stjórna söguskýringunni og koma út einsog einhverskonar sigurvegarar og frelsarar Evrópu. Svo hefur fundist fjöldinn allur af neðanjarðarbyrgjum og leynigöngum í allar áttir, sem staðfest hefur verið, að notuð voru af öðrum háttsettum nasistum, sem síðar dúkkuðu upp í Argentínu og víðar í S-Ameríku.  Þá eru það allir sjónarvottarnir hingað og þangað um heiminn sem eru sannfærð um að þau hafi séð Hitler á vappi, sprelllifandi og kampakátann. Allt frá Danmörku og Noregi til Spánar, Portúgal og jafnvel Kólumbíu, Brasilíu og einmitt Argentínu. Allskonar fólk sem er alveg 100% sannfært um að það hafi séð Hitler sprækan einhversstaðar á stangli. Meira að segja er til fólk sem fullyrðir að þau hafi aðstoðað við að koma Hitler undan huldu höfði.  Eru þetta bara glórulausar staðhæfingar einhverra vitfirringa í óráði eða er eitthvað mögulega til í þessum staðhæfingum? Hvers vegna eyddi Bandaríska alríkislögreglan(FBI) tíma og orku í að rannsaka málið ef ekki er arða af sannindum til í kenningunni? Hvernig stendur þá á því að Josef Stalin, og Dwight D Eisenhower stóðu í þeirri trú að Hitler hafi komist undan? Við erum vissulega með framburð fjölda vitna úr neðanjarðarbyrginu sem segjast öll hafa séð Hitler skjóta sig en þau voru öll nánir samstarfsmenn Hitlers og yfirlýstir nasistar, af hverju ættum við að treysta þeim? Gætu þau ekki allt eins hafa verið með í ráðum? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór, ræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að Adolf Hitler hafi ekki látist í neðanjarðarbyrgi sínu, heldur komist lífs af og flúið til Argentínu, þar sem hann lifði til gamals aldurs.  Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð
2026/09/11
Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim.  Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega  öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannarlega í fararbroddi.  En frægðin og áreitið sem fylgdi í kjölfarið fór misvel í meðlimi sveitarinnar og fljótt fór að bera á orðrómum um mikla vímuefnaneyslu meðlima og þá sérstaklega söngvarns Kurt Cobain. Hann átti I stormasömu sambandi við Courtney Love sem var söngkona grugg sveitarinnar Hole og saman áttu þau eina dóttur að nafni Frances Bean Cobain. Að endingu gekk neyslan það langt að hann sá sér ekkert annað fært en að skrá sig í meðferð á Exodus meðferðarheimilið í Kaliforníu. En einungis degi síðar gengur Kurt út af meðferðarheimilinu og fer heim í bíl með æsku vini sínum sem hafði komið að sækja hann.  Nokkrum dögum síðar finnst Kurt látinn í gróðurhúsi á heimili sínu, þar sem talið er að hann hafi fyrirfarið sér með hagglabyssu. Fljótlega runnu þó tvær grímur á fólk sem töldu afar ólíklegt að Kurt hafi þar sjálfur verið að verki. Benti fólk á þá staðreynd að gífurlega mikið magn af heróíni hafi mælst í blóði Kurt og að afskaplega ólíklegt þætti að hann hefði haft mátt í líkamanum til þess að hleypa af byssunni. Þá eru víst afar fátítt að fólk í heróín vímu skjóti sig og vilja einverjir álhattar jafnvel meina að Kurt sé eini maðurinn í sögunni sem hefur skotið sig í hausinn með hagglabyssu í heróín vímu.  Þá hafa einnig stigið fram einstaklingar sem hafa sagt að Courtney hafi boðið þeim peninga fyrir að myrða Kurt en þessir  einstaklingar fundust svo afhausaðir á lestarteinum stuttu síðar.  Sviplegur og óvæntur dauði Kristen Pfaff, bassaleikara Hole, berst einnig í tal og því velt fyrir sér hvort Courtney hafi mögulega einnig haft eitthvað með hann að gera, enda voru Kristen og Kurt milir og góðir vinir og neyslufélagar. Sem gæti hafa valdið öfund eða afbrýðissemi hjá Courtney.  Þetta og margt margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta fyrir sér þeirri lífseigu og afar áhugaverðu samsæriskeningu að Kurt Cobain hafi ekki framið sjálfsmorð árið 1994 heldur hafi hann verið myrtur. HLEKKIR Á ÍTAREFNI Soaked in Bleach - Kurt Cobain Murdered DocumentaryThe Last 48 Hours of Kurt CobainKurt & Courtney heimildarmynd frá 1998what Actually Happened To Kurt Cobain?Did Allen Wrench Kill Kurt Cobain?Did Courtney Love Kill Kurt Cobain? What Happened During His Final Days? Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi
2026/09/11
Hvaða rákir eru þetta sem  standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn?  Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna?  Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast verulega af veikindum almennings, eða eru þetta mögulega brjálaðir vísindamenn sem vilja stjórna veðrinu og drottna yfir náttúrunni?  Samsæriskenningin um efnarákir(chemtrails) er síður en svo ný af nálinni og kenningin nýtur merkilega mikils stuðnings víðsvegar um heiminn. Svo virðist vera sem rákirnar megi finna á himnum í svo til hverju einasta sveitafélagi, fylki eða borg í hverju einasta landi varaldar.  Ef um samsæri er að ræða, þá er væntanlega um eitt stærsta og umfangsmesta samsæri veraldar að ræða. Hversu margir eru með í ráðum? Allir flugmenn, flugumferðarstjórar, hleðslu fólk á jörðu niðri? Eða er kannski samsærið falið fyrir þeim öllum líka? Og leynilegum eiturefnum blandað í flugvélabensínið? Hvað í veröldinni voru Project Cirrus, Project Cumulus eða Project Skyfire? Hvers vegna myndu stjórnvöld og vísindamenn vilja stjórna veðrinu og hverra hagsmuna er þá verið að gæta? Opinberu skýringarnar eru þær að mögulega megi koma í veg fyrir þurrka og uppskerubrest og þannig hugsanlega einnig koma í veg fyrir kreppur og ef til vill afstýra byltingum og óeirðum. Hvað ef þau eru ekki bara að reyna stjórna veðrinu? Geta þau kannski stjórnað hugsunum okkar og gjörðum með þessum efnum?  Hverju eru þau að spreyja og hvaða heilsufarsleg áhrif hefur það á fólk, plöntur og dýr? Eru ál, baríum og brennisteinn í snefilmagni raunverulega skaðleg og ástæða þess að svo gífurleg aukning hefur orðið í tilfellum krabbameina og alzheimers í heiminum? Eða hefur það kannski meira með hækkandi aldur og auknar lífslíkur fólks að gera? Hvað í veröldinni er skýja sáning(e.cloud seeding)? Hver eru Council of foreign relations og hvers vegna í veröldinni vilja þau samtök dimma himininn?  Getur verið að hér sé hugsanleg lausn á loftslagsvánni og hamfarahlýnun? Eða eru hér á ferðinni gífurlega valdamikil hagsmunasamtök sem bera einungis eigin hag í húfi?  Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sneisafullur af bitastæðu efni, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá stórkostlega skemmtilegu og áhugaverðu kenningu að efnarákum(chemtrails) sé skipulega úðað í andrúmsloftið með annarleg markmið að leiðarljósi. Hlekkir á ítarefni: The dimming, climate engineering documentary Holes in Heaven? HAARP and Advances in Tesla Technology" (1998)FrankenskiesWhat in the World Are They SprayingWhy in the World Are They SprayingSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis
2026/09/11
Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hluti af teyminu sem kom á Creative Commons. Þekktastur er hann þó eflaust fyrir baráttu sína gegn frumvörpunum SOPA og PIPA sem voru frumvörp sem hefðu takmarkað verulega athafnar og tjáningarfrelsi fólks á netinu. En þökk sé baráttu Aaron og fleiri þá tókst almenningi að stöðva frumvörpin ógurlegu. Auk þess að brjótast inn í MIT háskólann og fela þar fartölvu sem hann hafði forritað sérstaklega til þess að stela gífurlegu magni af gögnum á ógnarhraða. Fyrir þetta sóttu Bandarísk yfirvöld fast á hælar honum og hugðust draga Aaron fyrir alríkisdóm og skella honum í margra áratuga fangelsi. En á meðan Aaron beið réttarhalda sinna fremur hann öllum á óvörum sjálfvíg í búð sinni. Eða svo segir amk opinbera sagan sem yfirvöld vilja að við trúum. En ekki eru allir sem kaupa þessa sögu yfirvalda og telja afar ólíklegt að Aaron hafi fallið fyrir eigin hendi. Getur kannski verið að Aaron hafi fundið eða séð eitthvað af gögnum sem ekki máttu líta dagsins ljós eða komast í hendur almennings?  Hvernig tengist þetta hinum títtnefndu og margumræddu hulduöflum og hvað í veröldinni hefur Epstein góðvinur þáttarins með málið að gera? Hversvegna valdi Aaron að brjótast inn í MIT en ekki einhvern annan háskóla og hvernig tengist þetta hinum gífurlega metnaðarfullu "góðgerðarverkefni" One Laptop Per Child? Þetta, Julian Assange, Alexei Navalny og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum.  HLEKKIR Á ÍTAREFNI: The Internet's Own Boy: The Story of Aaron Swartz | full movie (2014)'The Murder of Aaron Swartz' - RumbleDad_ The govt. killed my son, Reddit co-founderPresident Joe Biden Boasted About Using A Billion-Dollar Loan Agreement With Ukraine As LeverageAaron Swartz_ How We Stopped SOPAWhat Is Reddit_ How Reddit became the front page of the internetHunter Biden on _Beautiful Things_ and his struggles with substance abuseHow Downloading Too Much Destroyed Reddit's Founder One Laptop Per ChildTop MIT Official Resigns Over Epstein DonationsCornyn Questions Holder Over Death of Aaron SwartzSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Hamskiptandi eðlufólk er meðal vor og gegnir áhrifastöðum í öllum krókum og kimum samfélagsins
2026/09/11
Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans.  En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það?  Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til?  Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri samsæriskenningum sem til eru en lifir þó góðu lífi og á sér merkilega marga fylgjendur. Svo marga fylgjendur að sjónvarpsstöðvar framleiða heilu þáttaraðirnar um kenninguna og fylgjendur hennar og reglulega er vísað í kenninguna í bíómyndum og annari dægurmenningu.  En er eitthvað sem raunverulega styður við kenninguna eða er þetta bara glórulaust en fyndið þvaður misvitra einstaklinga? Hvað hefur þetta td með blóðflokka að gera(ef eitthvað) og hversvegna fæðist sumt fólk með skott? Eru þau kannski afkomendur eðla? Tengist þetta jafnvel á einhvern hátt fornri menningu Egyptalands eða Mesopotamiu? Eða er þetta kannski bara eitt stórt peningaplokk og svikamylla og David Icke og félagar eru einungis að ganga erinda hulduaflanna og í raun gagngert og skipulega að reyna að kasta rýrð á samsæriskenningar og fylgjendur þeirra? Svo eru þau til sem segja kenninguna ekkert annað en dulbúið gyðingahatur.  Hvort sem að eðlufólk er til og hversu valdamikil sem þau eru í raun verður amk að viðurkennast að kenningin er í það minnsta áhugaverð þó sumt fólk kunni að kalla hana gjörsamlega galna.  Þetta er einmitt umfjöllunarefni nýjasta þáttarins af Álhattinum þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór reyna að ræða á eins vitrænan en jafnframt glórulausan hátt og á annað borð er hægt um þá kenningu að einhverskonar eðlufólk gangi á meðal vor og sé búið að koma sér fyrir í öllum krókum og kimum samfélagsins þar sem þau stjórna í raun öllu bakvið tjöldin. Allt frá stjórnmálum til skemmtanaiðnaðarins.  Hlekkir á ítarefni sem er til  umræðu í þættinum: THEY LIVE Clip - Obey (1988)Species (1995) | Official TrailerDavid Icke claims that he's the "Son of God"David Icke talks conspiracy theories - BBC NewsDavid Icke: Conspiracy of the Lizard Illuminati (Part 1/2)David Icke Animated Video - The Spider, The Cult & The PyramidAncient Aliens: The Hollow Earth Theory (Season 10) | HistoryRichard E. Byrd's second trip to the Antarctic, 1935Louis C.K. Asks Donald Rumsfeld If He Is A LizardCrab people....crab peopleSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Eigendur Manchester City hafa óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna
2026/09/11
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög.  Áður höfðu kaup Roman Abramovich á Chelsea vissulega vakið efasemdir einhverra stuðningsmanna annara liða og einhverjir kváðu oft við þegar Real Madrid og Barcelona kepptust við að slá metin yfir dýrustu leikmenn sögunnar á sínumtíma. En sú gagnrýni var ekkert í líkingu við þá gagnrýni sem komið hefur fram eftir kaup olíusjóðs sameinuðu arabísku furstadæmanna á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. En hvað hefur þetta eiginlega að gera með Álhatta og samsæri kann einhver að spyrja?  Er möguleiki á að eigendur Manchester City séu það auðugir og valdamiklir í krafti auðjöfra sinna að það sé farið að hafa áhrif á dómara og dómgæslu í úrvalsdeildinni almennt? Í nýjasta þættinum af Álhattinum ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór þá skemmtilegu samsæriskenningu að Manchester City séu ekki bara skekkja leikinn og kaupa titla með kaupum á öllum dýrustu og bestu leikmönnum á markaðnum heldur séu þeir einnig að hafa óeðlileg áhrif á dómara í ensku úrvalsdeildinni.   Hlekkir á efni rætt í þættinum: Man City boosted its finances through creative plays, documents showWhy Haven't Man City Been Punished Yet?Heimildarmynd um spillingu CityVörn City stuðningsmannaGAGNRÝNIR ÞAÐ AÐ DÓMARI FRÁ MANCHESTER DÆMI MAN CITY - LIVERPOOLThe issues with multi-club ownershipCity Football Group. A Brand Of Its OwnHvaða úrvalsdeildarlið græða mest á VAR? 2019-202020-212021-222022-232023-24Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Handritshöfundar The Simpsons eru með dulda vitneskju um atburði framtíðarinnar, sem þau setja í þættina sína
2026/09/11
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.   Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um. Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrrverandi forseti borgarstjórnar og einn fremsti Simpsons sérfræðingur landsins. Spádómar ræddir í hlaðvarpinu Apple Watch og skjásímarHestakjöti blandað í máltíðirSnjallsímar og auto-correctFIFA spillingGrikkland er til sölu á ebayDisney kaupir 20 Century FoxLady Gaga á Super BowSigfried og Roy tígrisdýra árásTop 4 spádómar Donald Trump er forseti USABoson guðeindin og formúlanThe Simpsons sýna hringborð ræða plott um að sleppa Zika Virus á almenningSpádómur um 11 september 2001Hlekkir á annað ítarefni sem er nefnt í þættinum: Listi yfir allar spár í Simpsons25 atriði sem Simpsons hafa spáðSjónarhorn Sviss (hlutlausa fólksins)Hvernig fókus þáttana færist frá prakkaranum Bart yfir til “vitleysingsins” Hómer Góð yfirferð þar sem spádómarnir eru útskýrðir frá sjónarhorni efahyggjufólksKenningin rifin í sig af efasemdarfólkinu á snopes.comReuters með áreiðanleika athugun á fullyrðingunni og spádómunumHvað er forvirk samfélagsforritun og hvernig virkar hún?Matt groening ferðast með lolita express Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Díana prinsessa var ráðin af dögum að undirlagi Bresku konungsfjölskyldunnar
2026/09/11
Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni. Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að hvíslast út sögur um ótryggð og framhjáhald þeirra hjóna. En það var ekki bara stormasamt sambandið sem Díana vakti athygli fyrir. Því auk þess að þykja einstaklega vel gefin og máli farin þá þótti hún einnig einkar glæsileg og var hún talin ein fegursta kona Bretlands. Eftir nokkur hræðilega erfið og óhamingjusöm ár í hjónabandi skyldu Karl og Díana að borði og sæng árið 1992 þó lögformlegum skilnaði hafi ekki lokið fyrr en 1996. Eftir það voru bæði Karl og Díana mikið á milli tannana á fólki og stöðugt fjallað um þau í breskum götublöðum og fjölmiðlum.  Það var svo að kvöldi 31.ágúst 1997 sem Díana og elskhugi hennar Dodi Fayed létust í árekstri ásamt bílstjóra sínum, Henri Paul, í Pont de Alma göngunum í París. Upphaflega var talið að um slys vegna háskaaksturs væri að ræða, sem skrifa mætti á glæfralegan eltilingarleik undan ágengum blaðaljósmyndurum en síðar breyttist skýringin og skuldinni skelt á bílstjórann, sem var sagður hafa verið dauðadrukkinn og sótölvaður. En hvað ef að ekki var um slys að ræða? Getur verið að áreksturinn hafi verið planaður af konungsfjölskyldunni til þess að taka Díönnu og Dodi úr umferð?  Var samband Díönnu og Dodi í óþökk fjölskyldunnar eða getur verið að pólitísk barátta Díönnu, td barátta hennar gegn jarðsprengjum, hafi verið það sem kom henni í koll? Þetta og margt fleira í nýjasta þættinum af Álhattinum.  Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
Avril Lavigne er dáin eða horfin og staðgengill hennar er loddari
2026/09/11
Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni. Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna algjört kjaftæði en fjölmargir aðdáendur um allan heim segjast sjá miklar breytingar á Avril síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og þetta hreinlega sé ekki sama manneskjan. Er hin raunverulega Avril enn á lífi? Eða hefur henni verið skipt út fyrir klón/tvífara? Er hún fangi í dýflissu níðinga eða lést hún kannski í bílslysi? Af hverju myndi einhver skipta henni út og hvar væri á bakvið slíkan óverknað? Strákarnir gefa einkunn á skalanum 1-10 í byrjun þáttarins sem og í lok þáttarins og kemur þá í ljós hversu mikið eða lítið þeir hafa breytt um skoðun í afstöðu sinni til kenningarinnar. Hér má finna ítarefni sem minnst er á í þættinum: Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=5vCRFCLdvkQ Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=zCecV_hg1FM Raunverulega Avril - https://www.youtube.com/watch?v=9pqRQlpkdWE Loddara Avril - https://www.youtube.com/watch?v=LiaYDPRedWQ Heimildarmyndin hans Guðjóns - https://www.bitchute.com/video/4Ivy8v4sXWZw/?fbclid=IwAR1sCn8dlKJZ2fhJuBJ9un616OodO8wRxe7MKby_aqDJQU-_n7eDta3Obt0 Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Podcast reviews

Read Álhatturinn podcast reviews


4.5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Álhatturinn relevant audience podcasts


What do you want to promote?