
Advertise on podcast: Búbblur & Bjór
Rating
5from
This podcast has
144 episodes
Language
IcelandicPublisher
Búbblur & BjórExplicit
Yes
Date created
2024/01/01
Latest episode
2026/10/25
Average duration
60 min.
Release period
7 days
Description
Birkir, Davíð og Þröstur hittast til þess að ræða um allt á milli himins og jarðar, Daði mætir við og við þegar það er ekki fótbolti í sjónvarpinu til þess að leggja málefnum misvel lið, sumt sem skiptir máli, annað sem skiptir engu máli, en oftast eitthvað sem skiptir ekki máli, en skiptir samt máli! Svo stundum gætu komið spennandi og áhugaverðir gestir í spjall. Podcastið sem er um allt og ekkert, skál!
Unlock Búbblur & Bjór podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Búbblur & Bjór podcast
Árið er 1986
2026/10/25
Tríóið er mætt, Birkir, Davíð og Þröstur og þeir eru í banastuði í þessum þætti, þeir ætla að fara yfir árið 1986 í tilefni þess að það eru 40 ár síðan það var, þá voru þeir allir fæddir, Birkir og Þröstur voru í leikskóla og Davíð á öðru ári í framhaldsskóla. Algjörar risaeðlur allir þrír. Þetta ár komu út magnaðar bíómyndir sem allir þekkja, tónlistin var mögnuð og ótrúlegir atburðir gerðust, eins og Chernobyl slysið, þessi þáttur er algjör veisla!
Óútskýranlegir hlutir
2026/10/18
Ripp, Rapp og Rupp. A.K.A. Birkir, Davíð og Þröstur ætla að fara yfir óútskýranlega hluti í þessum þætti, til dæmis þegar “Crystal skulls” finnast, London hamarinn og margt margt fleira, Birkir vill trúa því að þetta sé allt eitthvað mysterious dæmi en Davíð og Þröstur hafa sínar efasemdir og reyna að “debunka” þetta allt saman.
Ekki bara gaman, heldur líka fræðsla í Búbblum & Bjór.
Topp 10 eitthvað
2026/10/11
Skytturnar þrjár eru mættar og Daði fær að vera með aftur, en einfaldlega vegna þess að strákarnir gleymdu honum í stúdíóinu í síðustu viku. Hann var kominn í góða heiminn og fattaði ekki neitt. En í þessum þætti er farið yfir allskyns topp 10 lista. Birkir var til dæmis með topp 10 hasarmyndir frá níunda áratugnum, Davíð strögglaði eitthvað við þann lista enda eldri en sólin, en Daði var með lista yfir 10 greddupöddur sem létu lífið í samlífi....sem er fínt orð yfir kynlíf!
Miðaldra
2026/10/04
Þrír miðaldra karlar, Birkir, Davíð og Þröstur fá fjórða miðaldra karlinn í heimsókn, hinn eina sanna Daða, ansi langt síðan hann stoppaði við í þætti. Þeir grípa tækifærið og fara yfir það í þessum þætti hvað það er að vera miðaldra, enda allir að verða góðir í því fagi með hverjum deginum. Hver kannast ekki við það að vera illt í bakinu, stynja þegar það er staðið upp úr sófa, nú eða tala um veðrið alveg upp úr þurru.
Shower Thoughts
2026/09/27
Birkir og Davíð manna skútuna í dag og þeir ætla að fara yfir allskyns sturtupælingar, nei, það er ekki eins og það hljómar...engan perraskap, heldur eru þetta hinar þekktu "Shower thoughts" á enskunni. Djúpar og/eða heimskulegar pælingar, sem fer þó alveg eftir því hver er að hugsa þær!
Kraftaverk
2026/09/20
Birkir og Davíð standa vaktina í dag á meðan Þröstur er í bústaðnum sínum, en strákarnir bjalla í hann í smástund og taka púlsinn. Birkir reynir svo að sannfæra Davíð um að kraftaverk séu til, eins og allt sem Jesús og Móses gerðu, en efasemdarmaðurinn Davíð er ekki sannfærður!
Ömurlegar framhaldsmyndir
2026/09/13
Birkir og Davíð standa vaktina í þessum þætti á meðan Þröstur smíðar sér bústað. Þeir ræða um hvað sumar framhaldsmyndir eru gjörsamlega ömurlegar, eins og til dæmis Jaws 3D, Matrix 4 og Home Alone 3.
Óútskýranlegir atburðir
2026/09/06
Birkir og Davíð eru í banastuði í þessum þætti og það var ansi mikið hlegið, enda elska þeir ekkert meira en kjánalegar hörmungar annarra! Þeir fara hér yfir óútskýranlega hluti, eins og Bermúda þríhyrninginn, spontaneous human combustion eða á íslenskunni, sjálfskviknun, og margt margt fleira!
Thriftshopping
2026/08/30
Strákarnir eru mættir, þeir Birkir, Davíð og Þröstur á þessum frábæra degi og ræða hvað er hægt að græða á því að fara í góða hirðirinn eða thrift shopping. Það er ekki mikið hægt að græða á því hér á Íslandi en úti í hinum stóra heimi er hægt að græða milljónir eins og ein í Bandaríkjunum sem keypti skál á nokkra dollara og seldi skálina aftur á yfir milljón dollara!
Samsæriskenningar #2
2026/08/23
Þríeykið er sameinað eftir sólarlandaferðina hans Þrastar, þá er ekkert annað að gera en að setja upp álhattana og komast að hinum raunverulega sannleika þarna úti! Strákarnir fara yfir helling af samsæriskenningum, eins og The Matrix (ekki beinlínis bíómyndin en samt), Charlie Kirk pælingar, Flat Earth snilldina og svo kemst smá hiti í leikinn þegar Birkir spyr strákana út í ESB kosningar!
Leikjaþáttur #2
2026/08/16
Birkir og Davíð fá Krissu aftur í heimsókn af því að Þröstur er enn að tana suður með sjó. Í þessum þætti fara þau í nokkra leiki, hvort myndirðu frekar, are you smarter than a 5th grader og Krissa kannar hvor þekkir hvorn betur af strákunum.
Morðingjar
2026/08/09
Birkir og Davíð fengu Krissu í heimsókn á meðan Þröstur er á Spáni að sóla á sér rassinn, þau ætla að fara yfir fullt af morðum og morðingjum í þessum þætti, þátturinn er jafn heillandi og hann er ógeðslegur...er heillandi rétt orð yfir þetta?....Birkir fer rækilega yfir kvenkyns morðingja enda algjör kvennabósi, og Davíð og Krissa fara yfir smáatriðin í nokkrum skuggalegum morðum, þorir þú að hlusta?
Útihátíðir
2026/08/02
Skytturnar þrjár eru mættar til þess að tala um bestu útihátíðir á Íslandi og erlendis, eins og til dæmis Þjóðhátíð í Eyjum, Ein með öllu, Woodstock fyrri og seinni og fleira
Er 80´s vanmetinn áratugur?
2026/07/26
Birkir leggur áhugaverða pælingu undir hjá Davíð og svo fara strákarnir að kafa djúpt ofan í 80´s og kanna hvað kom gott út úr þeim áratug, var þetta vanmetinn áratugur eða ekki? Þú kemst að því í þessum þætti!
I am Batman
2026/07/19
Spliff, donk og gengja eru mættir til þess að tala um Batman. Hver er besta Batman myndin? Hver er besti Batman, hver er besti Bruce Wayne, er Batman cool? Hér eru alls ekki allir sammála!
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Búbblur & Bjór relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.512623668
RedHanded
RedHanded

4.9247931451
Unashamed with the Robertson Family
Tread Lively

4.8224811798
The Andrew Klavan Show
The Daily Wire

4.7278572000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.959892000
Legal AF by MeidasTouch
MeidasTouch Network

4.7292742000
The Michael Knowles Show
The Daily Wire

4.890631580
Fearless with Jason Whitlock
Blaze Podcast Network

4.7106622000
FantasyPros - Fantasy Football Podcast
iHeartPodcasts

4.942051993
Chente Ydrach
Chente Ydrach

4.8121171000
Mind Pump: Raw Fitness Truth
Sal Di Stefano, Adam Schafer, Justin Andrews, Doug Egge