
Advertise on podcast: Besta sætið
This podcast has
100 episodes
Language
IcelandicPublisher
bestasaetidExplicit
No
Date created
2024/01/04
Latest episode
2026/10/26
Average duration
23 min.
Release period
2 days
Description
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Unlock Besta sætið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Besta sætið podcast
26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?
2026/10/26
Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.
Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum
2026/10/24
Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park.
Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma.
Að baki er mikil vinna en Amin bætti á sig átta kílóum af vöðvum á undirbúningstímabilinu með KR síðasta vetur og tala menn í Vesturbænum um að þeir hafi vart séð leikmann bæta sig eins ört á skömmum tíma.
Valur Páll Eiríksson ræddi þennan öra uppgang við Amin stuttlega í Besta sætinu.
23. okt - Lyfjamál Veigars, hvort fellur KA eða Þór og jólasöngur
2026/10/23
Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.
22. okt - Ruglið hjá Man. Utd krufið og er Grindavík búið að ná botninum?
2026/10/22
Það er hver höndin upp á móti hver annarri hjá Man. Utd og frammistaðan gegn Como í gær var hreinasta hörmung. Grindavík og Stjarnan eru í leit að fyrsta sigrinum í körfunni og Aron Sigurðarson þarf að skora um helgina.
21. okt - Van Dijk í ruglinu, ÍA fær að heyra það og hættið að skrifa á ensku
2026/10/21
Skammarbréf mótanefndar KSÍ til ÍA var stórskemmtilegt en ekki verður aftur spilað á einu sögufrægasta grasi Íslands. Meistaradeildin var frábær og leikmenn sem leggja skóna á hilluna og skrifa það á ensku fá skammir.
20. okt - Grindjánar pakksaddir, Blikastelpur bestar og bilun í Bakgarðinum
2026/10/20
Ömurleg byrjun á körfuboltavetrinum hjá Íslandsmeisturum Grindavíkur, Breiðablik tók af okkur úrslitaleikinn í Bestu kvenna, ótrúlegt bakgarðshlaup, hræðileg meðferð á Jalen Hurts og Meistaradeildin.
19. okt - Kane lentur, enski, Besta og Bakgarðurinn
2026/10/19
Af nægu að taka í dag. Þór getur fellt KA, United getur ekkert í enska, Kane lentur og gæti spilað fyrir Grindavík í kvöld og ótrúlegir Bakgarðshlauparar.
16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri
2026/10/16
Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn. Viðtalið íþróttadeildar við Arnar Gunnlaugsson ber einnig á góma og svo kom í ljós að það eru til miðar á HM í handbolta.
Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna
2026/10/16
Agabrot landsliðsmanna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í landsliðsþjálfaratíð Arnars Gunnlaugssonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka umrædda leikmenn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægilega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.
15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá?
2026/10/15
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.
14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA
2026/10/14
Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.
13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet
2026/10/13
Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.
12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd
2026/10/12
Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.
9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný
2026/10/09
Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.
8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla
2026/10/08
Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.
Podcast reviews
Read Besta sætið podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Besta sætið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.8219787
Imperfect Action
Steph Taylor

4.727561589
This Past Weekend w/ Theo Von
Theo Von

4.713027376
The Tim Dillon Show
The Tim Dillon Show

4.115993461
The Tucker Carlson Show
Tucker Carlson Network

4.828061453
Huberman Lab
Scicomm Media

4.240683
To Be The Man
Podcast Heat | Cumulus Podcast Network

4.41511512000
The Ben Shapiro Show
The Daily Wire

4.2155648
TENNIS.com Podcast
TENNIS.com Podcast/Tennis Channel Podcast Network

4.510858774
The Joe Budden Podcast
The Joe Budden Network

4.611654506
The Bulwark Podcast
The Bulwark