1727961876
Stjörnuspekiskólinn

Advertise on podcast: Stjörnuspekiskólinn

Categories
This podcast has
40 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/01/28
Latest episode
2026/10/09
Average duration
64 min.
Release period
53 days

Description

Í þessu podcast mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið f*g en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá aðalþætti sem leggja grunninn að stjörnuspekinni og byggja ofan á það. Stjörnuspekin er túlkun hvers stjörnuspekings fyrir sig og því mun ég kenna stjörnuspekina eins og ég upplifi hana. Von mín með þessu podcasti er að hlustendur geti að lokum fylgt eftir stjörnuspeki útskýringum og skilið hvað sé verið að ræða. Stjörnuspekin er mögnuð og mig langar að fleiri eigi þá gjöf að skilja gjafir hennar.

Unlock Stjörnuspekiskólinn podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Stjörnuspekiskólinn podcast


40. þáttur - Orka fiskanna
2026/10/09
Hérna fer ég yfir orku fiskanna. Þetta er einnig fyrsti þátturinn sem ég prófa að taka upp á myndbandi.
39. þáttur - Ás nautsins og sporðdrekans
2026/06/23
Í þessum þætti fer ég ögn betur yfir hvernig þessar andstæður í stjörnumerkjunum virka og hvernig er hægt að nýta sér þær til þess að dýpka skilning sinn á merkjunum sem og öllu faginu. Ég tek ögn steingeitar og krabba ásinn fyrir en aðalefni þáttarins er nauts og sporðdreka ásinn.
38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið
2026/06/08
Ég fann köllun til að segja frá minni hlið eftir að hafa verið tekinn fyrir í Kompás í maí 2022, hérna á mínum vettvangi/podcasti fyrir ykkur hlustendum mínum, því þetta markaði gífurlega mína vegferð sem stjörnuspekingur en einnig í lífinu almennt. Ég tók þennan þátt upphaflega upp í apríl 2026 en eftir að Sölvi Tryggvason vildi fá okkur Elínu konuna mína til sín í podcastið sitt þá ákvað ég að bíða með að birta þetta þangað til eftir að það hafi verið gefið út. Ég er þarna í miðri vinnu við að setja upp úthornalista þannig það eru allskyns aukahljóð í upptökunni.
37. þáttur - Norður og suður nóðan
2025/11/12
Hérna fer ég yfir norður og suður nóðurnar í gegnum öll stjörnumerkin.
36. þáttur - Orka meyjunnar
2025/10/30
Í þessum þætti fer ég yfir orku meyjunnar.
35. þáttur - Fyrsta viðtalið
2025/10/18
Fyrsta viðtal stjörnuspekiskólans leit dagsins ljós þar sem Aðalheiður Sigursveinsdóttir bauðst til að mæta og ræða upplifun sína af því að mæta í stólinn og spegla masculin og feminin partana innra með sér. Ég fékk upptökubúnað lánaðan sem ég kunni ekki almennilega á og því eru hljóðgæðin töluvert verri en ég hefði viljað en engu að sýður þá vona ég að þið munið hafa gaman af.
34. þáttur - Orka vatnsberans
2025/10/05
Í þessum þætti tala ég ítarlega um orku vatnsberans en í upphafi þáttarins kynni ég hlustendur fyrir retreati sem verður núna helgina 23.-26. október á skálholtsbúðum. Ef áhugi er á að bóka hjá mér einkatíma þá getið þið fundið tíma hér: https://noona.is/gislihrafn
33. þáttur - Tvö stjörnukort
2025/09/29
Í þessum þætti tek ég fyrir uppgvötun mína á því að við séum ekki með einungis eitt stjörnukort heldur tvö, og að þessi tvö stjörnukort eru orkukort fyrir þá tvo einstaklinga sem eru innra með okkur. Í flestum tilvikum er samruni þessara beggja einstaklinga nánast algjör en í sumra tilvikum er þessi aðgreining mjög skýr. Í þættinum fjalla ég um þessa uppgvötun og leiðina að því að ná þessum tveimur pörtum í mér í samskipti og að lokum samvinnu.
32. þáttur - Stjörnukort Íslands
2025/05/16
Í þessum þætti fer ég yfir stjörnukort Íslands, 17. júní 1944 kl. 14:00 á Þingvöllum. Fyrir ykkur sem viljið sjá mynd af stjörnukortinu þá getið þið farið inná facebook síðu Stjörnuspekiskólans eða einfaldlega flett því upp.
31. þáttur - Orka ljónsins
2025/01/09
Í þessum þætti fer ég yfir orku ljónsins.
30. þáttur - Hugleiðingar: Að stýra eigin tíma
2025/01/03
Hér í þessum þætti tala ég um mína dýpstu þrá um að geta stjórnað mínum eigin tíma, um hvernig samfélagið okkar er uppbyggt hvað varðar kröfu einstaklinga um tíma sinn, eða lífið sitt, og hvernig hægt sé að virða þetta fyrir sér með augum vatnsbera orkunnar. Að velta því fyrir sér hvort þetta sé eðlilegt eða það sem við myndum nokkurn tíman kjósa yfir okkur ef við áttuðum okkur á því að við höfðum val.
29. þáttur - Allt sem á upphaf á sér stjörnukort
2024/10/24
Í þessum þætti fjalla ég um mismunandi nýtingu stjörnukorta á öllum mögulegum sviðum lífsins. Að brúðkaupsdagurinn eigi sér stjörnukort, að ný atvinna eigi sér stjörnukort, að lönd eigi sér stjörnukort rétt eins og við einstaklingarnir.
28. þáttur - Sálar plánetan
2024/10/17
Í þessum þætti fer ég lauslega yfir upprunalegu tengingu mína við sálarorkuna og hvernig sálar plánetan barst mér hvernig ég túlka hana. Ég lýsi mikilvægi sálar plánetunnar hjá hverjum og einum og hvaða hlutverki hún gegnir í stjörnukorti hvers og eins.
27. þáttur - Miðhimininn
2024/10/10
Í þessum þætti reyni ég að koma miðhimninum vel frá mér þannig fólk geti skilið, tengt við og speglað við sitt eigið stjörnukort. Miðhimininn er ein mikilvægasta staðan til þess að skilja í stjörnukortunum okkar og hérna segi ég frá minni upplifun og reynslu af því hvernig þessi orkustöð virkar.
26. þáttur - Hnígandinn
2024/10/04
Í þessum þætti fer ég yfir hnígandann og hvers vegna hann er mikilvægur að tengjast innra með okkur öllum. Þar komust við í tengingu við raun karakterinn sem býr innra með okkur sjálfum og leiðin að hnígandanum er í gegnum traustið, gagnvart öðrum einstaklingum og síðan traustið gagnvart okkur sjálfum.

Podcast reviews

Read Stjörnuspekiskólinn podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Stjörnuspekiskólinn relevant audience podcasts


What do you want to promote?