1762636571
Tveggja Turna Tal

Advertise on podcast: Tveggja Turna Tal

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
Categories
Country
United States
This podcast has
80 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/08/13
Latest episode
2026/01/15
Average duration
75 min.
Release period
12 days

Description

Turninn Jón Páll fær til sín hina ýmsu turna úr íslensku íþróttalífi.

Unlock Tveggja Turna Tal podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Tveggja Turna Tal podcast


#65 Björn Daníel Sverrisson part II
2026/01/15
Þáttur vikunnar er seinni hluti spjallsins við Björn Daníel Sverrisson. Björn Daníel er þjálfari, leikmaður, tónlistarmaður og lífskúnsner!
#64 Aron Baldvin Þórðarson
2026/01/08
Aron Baldvin Þórðarson er aðstoðarþjálfari Sölva Geirs Ottesen hjá karlaliði Víkings í fótbolta. Aron Baldvin komst í fréttirnar í vikunni þegar Eyjamenn reyndu að fá drenginn til Eyja úr hamingjunni. Víkingar vildu ekki selja. Í þessum þætti kynnumst við Aroni og áttum okkur glögglega á því hversvegna Víkingar vildu ekki missa hann frá borði!
#63 Andri Freyr Hafsteinsson
2025/12/29
Andri Freyr Hafsteinsson er bóndasonur úr Skagafirði sem fékk snemma dellu fyrir fótbolta og þjálfun. Ejub Purisevic fékk hann til Ólafsvíkur sem leikmann, en fljótlega beindist allur fókus Andra Freys að þjálfun. Í Eftir að Andri Freyr flutti í bæinn hélt hann áfram í læri hjá miklu fagfólki, meðal annars Helga Jónasi Guðfinnssyni, Einari Einarssyni og Kristjáni Guðmundssyni. Andri Freyr hefur þjálfað hjá Stjörnunni, KR og FH á höfuðborgarsvæðinu, en býr í dag á Stykkishólmi þar sem hann rekur vefsíðuna aperformance.net, sem býður upp á þjónustu fyrir félög, þjálfara og leikmenn. Við Andri fórum vítt yfir sviðið. Hvernig er hægt að þjálfa 100 stráka í 4. flokki og gera það faglega? Hvernig leysir maður flækjustigið í því að halda úti 2. flokksstarfi kl. 20:45 í febrúar? Eru leikmenn of oft meiddir á undirbúningstímabilinu og af hverju? Þetta er þáttur fyrir þjálfara, foreldra, stjórnendur og alla sem vilja skilja betur hvað fagleg uppbygging í íslenskum fótbolta krefst. Turnarnir eru í afar nánu og góðu samstarfi við nokkra góða aðila: Hafið Fiskverslun Lengjan Spíran Dave & Jones Budvar World Class
#62 Björn Daníel Sverrisson
2025/12/25
Fyrsti gestur annarar seríu er einn af bestu sonum Hafnfirðinga, Björn Daníel Sverrisson. Þessum jólaþætti er skipt í tvennt, svo mikið er efnið. Ljónin og gírafarnir í S-Afríku með Viking Stv, ávöxtun sektarsjóða, óvæntur áhrifavaldur í lífi Björns, Heimir og Eiður Smári, þjálfun og miklu meira er tekið fyrir í þessum hluta. Samstarfsaðilar Turnanna eru: Hafið FIskverslun Lengjan Budvar Dave&Jones Valitor Ferðaskrifstofa Spíran World Class
#14 Turnar Segja Sögur: Graeme Souness
2025/10/03
Graeme Souness var leikmaður, þjálfari og sjónvarpsmaður og var sigursæll en einnig afar umdeildur. Saga Liverpool FC, söguleg endurkoma Glasgow Rangers, Rod Stewart að drekka bjór með Sigga Jóns í Reykjavík, borgarastyrjöld í Istanbul, sögur af ofbeldi og frændi George Weah koma við sögu í þætti dagsins. Turnar segja sögur ætla að ræða Graeme Souness í þætti dagsins.
#61 Milan Stefán Jankovic
2025/09/29
Milan Stefán Jankovic er lifandi goðsögn í fótboltanum á Íslandi. Janko, líkt og hann er kallaður, kom til Íslands árið 1992 og hefur hann svo sannarlega skilað sýnu til fótboltasamfélagsins á Íslandi. Við fórum yfir ferilinn hans, bæði hérlendis og erlendis. Samstarfsaðilar okkar Turnanna eru Visitor, Lengjan, Hafið, World Class og Budvar félagi okkar!
#13 Turnar Segja Sögur: Svikarhrappar & sóun á hæfileikum
2025/09/12
Andri Geir kom í heimsókn og við ræddum svikahrappa, drullusokka og leikmenn sem hefðu getað nýtt hæfileikana sína betur!
#12 Turnar Segja Sögur: Danmörk 1992
2025/08/29
Evrópuævintýri Dana sumarið 1992 í Svíþjóð er merkileg saga. Krissi veit meira um knattspyrnusögu daga en Sacchi um 442 leikkerfið. Njótið vel!
#60 Dagbjartur Sigurbrandsson
2025/08/25
Dagbjartur varð á dögunum Íslandsmeistari í golfi, eingöngu 22 ára gamall. Hann er þrátt fyrir ungan aldur útskrifaður úr háskóla í Bandaríkjunum og stefnir á að verða atvinnumaður í golfi á næstunni. Við fórum yfir hvernig þetta byrjaði, hvað er í gangi hjá honum og hvert hann er að fara!
#11 Turnar Segja Sögur: Risar vs Dvergar
2025/08/21
Ómar Freyr Rafnsson, Bangsinn, kom í heimsókn til okkar og við skiptum í tvö lið. Risarvaxnir leikmenn gegn stórum egóum með færri sentimetra í vegabréfinu. Getur De La Pena dekkað Duncan Ferguson í föstum leikatriðum? Góða skemmtun!
#10 Turnar segja sögur: Pizzagate
2025/08/15
Sir Alex Ferguson og Arsène Wenger eru tveir goðsagnakenndir knattspyrnustjórar sem gerðu Manchester United og Arsenal að risum í ensku úrvalsdeildinni. Þeir börðust á banaspjótum í meira en áratug, skiptust á að vinna titla og kveiktu í áhorfendum með ógleymanlegum leikjum. En úr eldi hatursins kviknaði virðing og úr virðingunni óvænt vinátta.“
#59 Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2025/08/14
Guðrún Brá Björgvinsdóttir varð um helgina Íslandsmeistari í golfi í fjórða sinn þegar hún sigraði á frábæru móti á Keilisvelli í Hafnarfirði. Hún hefur verið atvinnumaður í golfi undanfarin ár, fór í gegnum háskólagolf í Bandaríkjunum og má segja að golfið hafi verið henni í blóð borið , hún fékk það nánast með móðurmjólkinni! Saga Guðrúnar Brár er bæði áhugaverð og lærdómsrík. Hún hefur frá miklu að segja: kostir og gallar þess að spila golf á námsstyrk, samskipti við kylfusveina á atvinnumannaröðinni, hvernig stress getur virkað jákvætt og margt fleira. Vinir Turnanna eru: Hafið fiskverslun World Class Visitor ferðaskrifstofa Lengjan Budweiser Budvar
#9 Turnar segja sögur: Gullit & Rijkaard
2025/08/08
Félagarnir Hermann Rijkaard og George Gullit fóru með skipi frá Surinam til Hollands árið 1957. Í septembermánuði fimm árum seinna áttu þessir félagar báðir eftir að eignast syni sem áttu eftir að breyta fótboltanum í Hollandi og víðar. Njótið vel!
#58 Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
2025/08/04
Andrea Rán á nokkuð áhugaverðan knattspyrnuferil. Hún byrjaði að spila 15 ára í efstu deild á Íslandi og hefur spilað í Bandaríkjunum í tveimur efstu deildunum þar, í háskólaboltanum í Frakklandi og í Mexico! Í dag er hún akkeríð á miðju FH-inga sem tryggðu sér sæti í bikarúrslitum á dögunum. Við fórum yfir þetta allt saman ásamt því að fara yfir það hvernig þarf að búa til sterka liðsheild, hvað sé mikilvægt í fari þjálfara og margt fleira. Góða skemmtun
#8 Turnar segja sögur: El Fenomeno
2025/07/31
Ronaldo Nasário var með ljótustu hágreiðslu knattspyrnusögunnar á HM 2002 í undanúrslitum gegn Tyrkjum og í úrslitum gegn Þjóðverjum. Afhverju skartaði hann þessari sjónmengun. Við fórum yfir sögu þessar hágreiðslu í þætti dagsins. Ronaldo - El Fenomeno

Podcast reviews

Read Tveggja Turna Tal podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Tveggja Turna Tal relevant audience podcasts


What do you want to promote?