1763220307
Skuggavaldið

Advertise on podcast: Skuggavaldið

Rating
★★★★★
4.9
from
8 reviews
This podcast has
52 episodes
Language
Icelandic
Publisher
skuggavaldid
Explicit
No
Date created
2024/08/16
Latest episode
2026/09/28
Average duration
54 min.
Release period
15 days

Description

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu. Framleitt af Tal.

Unlock Skuggavaldið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Skuggavaldið podcast


#51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur
2026/09/28
Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur
2026/09/14
Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi
2026/08/31
Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#48 - Evrópusambandið og sögurnar um það
2026/08/17
Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða?
2026/08/03
Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði
2026/07/20
Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar sem menn leita að týndum jarðhæðum stórborga. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.  Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].
#45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur
2026/07/06
Umturnaði samsæriskenningin um útskiptin miklu Vestrænum stjórnmálum varanlega? Í seinni þætti af tveimur um útskiptin miklu ræða Eiríkur og Hulda hvernig óttinn um „Evrarabíu“ færðist úr afviknum kimum internetsins og beint inn í hjarta stjórnmálanna í kjölfar áfalla á borð við 11. september, fjármálahrunið og flóttamannakrísuna.   Kíkt er ofan í vélarúm popúlismans, hvernig hefðbundnir flokkar hafa brugðist við, og að lokum veltum við upp sálfræðinni. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur
2026/06/22
Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um Evrarabíu og „útskiptin miklu“ (The Great Replacement). Í fyrri þætti af tveimur rekja Eiríkur og Hulda tilurð sögunnar og kryfja hvernig slíkar samsæriskenningar færðust af myrkum jaðri internetsins og urðu að hversdagslegu stjórnmálavopni. Rætt er um Le Pen í Frakklandi og Glistrup í Danmörku og rýnt í það hvernig útskúfuð kynþáttahyggja fór í spariföt og sneri aftur sem „kynþáttafjölhyggja“ til að gera hræðsluáróður boðlegan á ný. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda
2026/06/08
Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára martröð. Hulda og Eiríkur rekja sögu Tuskegee-rannsóknarinnar, þar sem læknar meinuðu mönnum vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt. Við kryfjum þetta raunverulega samsæri yfirvalda, mál sem skapaði djúpstætt vantraust og elur enn þann dag í dag á nýjum samsæriskenningum. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur
2026/05/25
Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#41 - Geimverur fyrri þáttur
2026/05/11
Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfsemi í Area 51 í Nevada kynti enn frekar undir grunsemdum. Loks er rifjað upp þegar hópur Íslendinga beið eftir geimverum á Snæfellsjökli árið 1993. Með því að flétta saman stjórnmálasögu og sálfræði er leitað svara við því hvers vegna þessi fyrirbæri eru loks tekin alvarlega eftir áratugi af þöggun og háði.  Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar?
2026/05/06
Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar? Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti
2026/04/13
Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“. Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld. Skuggavaldið er í samstarfi við  bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti
2026/03/30
Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles. Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]
#37 - Sölumaður óttans: Alex Jones
2026/03/16
Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]

Podcast reviews

Read Skuggavaldið podcast reviews


4.9 out of 5
8 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Skuggavaldið relevant audience podcasts


What do you want to promote?