1775718680
Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Advertise on podcast: Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu

Categories
This podcast has
26 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/10/23
Latest episode
2026/10/20
Average duration
41 min.
Release period
51 days

Description

Í Sólinni er rætt um bækur sem koma út hjá Benedikt bókaútgáfu. Höfundar lesa úr og segja frá verkum sínum og góðir gestir spjalla um þýddar bækur.

Unlock Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu podcast


Höfundaspjall: Brynja Hjálms og María Elísabet
2026/10/20
Brynja Hjálmsdóttir og María Elísabet Bragadóttir bera saman bækur sínar: Undir fögru skinni og Þúsund barna móðir!
Einfætta ballerínan: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur
2026/10/14
Nýr þáttur af Sólinni: Inga Bjarnason ræðir við Hlín Agnarsdóttur um endurminningabók sína, Einfætta ballerínan, og um lífið og listina. Bókin kemur út í byrjun nóvember .Endurminningar Ingu Bjarnason eru dásamlegur aldarspegill, í senn tragískur, fjörugur og fyndinn. Inga heillaðist snemma af leiklist og kom víða við í heimi leikhússins. Af fullri einlægni lýsir hún baráttu sinni við eigin takmörk, segir frá ástum og sorgum, sigrum og ósigrum – og leitar loks sátta við liðna tíð. Þar er fátt dregið undan.
Höfundaspjall: Kari Ósk og Karólína Rós
2026/10/06
Höfundaspjall: Kari Ósk Grétudóttir og Karólína Rós Ólafsdóttir ræða um ljóðabækurnar þeirra, Undir þér jörðin og Lífskán.
Fríða Þorkelsdóttir ræðir Kæri fáviti eftir Virginie Despantes
2026/06/25
Upptaka frá Sólarkvöldi í Skáldu 18. júní 2026. Einar Kári Jóhannsson ræðir við Fríðu Þorkelsdóttur um skáldsöguna Kæri fáviti eftir Virginie Despentes, í íslenskri þýðingu Kristínar Jónsdóttur. Um bókina: Þrjár ólíkar raddir segja frá – útskúfaður rithöfundur, þekkt leikkona og róttækur femínisti. Í gegnum tölvupóstsamskipti þeirra fáum við innlit í heim gegnsýrðum af kynbundinni valdbeitingu, afleiðingum #MeToo, fíkn, vináttu og leit að merkingu í heimi sem virðist oft vera að hrynja. Snjöll samtímasaga frá einum áhrifamesta höfundi Frakklands.
Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman um Þyngsta frumefnið
2025/12/15
Fríða Ísberg ræðir við Jón Kalman Stefánsson um fimmtu ljóðabók hans; Þyngsta frumefnið. Upptakan var gerð fyrir framan fullan sal af fólki í Skáldu bókabúð 5. nóvember 2025.
Sigríður Hagalín ræðir Vegur allrar veraldar
2025/12/08
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Sigríði Hagalín Björnsdóttur um skáldsöguna Vegur allrar veraldar - Skálkasaga, sem er sjálfstætt framhald af Hamingja þessa heims - Riddarasaga. Þau ræða söguna, sagnaritun, heimildir og söguleganskáldskap.
Dagur Hjartarson ræðir Frumbyrjur
2025/11/25
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Dag Hjartarson um skáldsöguna Frumbyrjur. Um bókina: Það er aðfangadagur og hjónin á Kölduhömrum búa sig undir jólahaldið. Handan áramóta eiga þau von á sínu fyrsta barni og spennan í kviðnum smitar andrúmsloftið. Snjórinn hleðst upp og vegurinn út úr firðinum hefur ekki enn verið ruddur. Þegar kýrin á bænum tekur sótt hrökkva dyr upp á gátt sem ekki verður lokað.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir Fröken Dúllu: Ævisögu Jóhönnu Knudsen
2025/11/18
Einar Kári Jóhannsson ræðir við sagnfræðinginn og skáldið Kristínu Svövu Tómasdóttur um bókina Fröken Dúlla: Ævisaga Jóhönnu Knudsen sem nýlega kom út á vegum Benedikts bókaútgáfu. Jóhanna Knudsen, kölluð Dúlla af ástvinum sínum, er alræmd vegna rannsókn hennar á siðferðisástandinu í Reykjavík á árum seinni heimsstyrjaldar. Nærgöngular yfirheyrslur hennar yfir stúlkum sem grunaðar voru um samneyti við erlenda hermenn hafa verið kallaðar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar. En hver var Dúlla Knudsen?
Sif Sigmarsdóttir ræðir Allt sem við hefðum getað orðið
2025/11/10
Sif Sigmarsdóttir ræðir við Helgu Ferdinands um skáldsöguna Allt sem við hefðum getað orðið. Bókin fjallar um þrjár konur og leyndarmál sem leiðir þær saman. Blaðamaðurinn Lilja fær veður af því að hún sé líklegt fórnarlamb niðurskurðar. Þegar henni er falið að fjalla um nýútkomna bók um Annie Leifs, eiginkonu tónskáldsins Jóns Leifs, vakna hjá henni grunsemdir. Getur verið að mislyndi skjalavörðurinn á Landsbókasafninu sé að spila með hana?
Fríða Ísberg um Huldukonuna
2025/11/07
Fríða Ísberg ræðir við Einar Kári Jóhannsson um skáldsöguna Huldukonan. Þau ræða hvernig er að fylgja eftir fyrstu skáldsögu með bók númer tvö, fortíðarþrá, nútímavæðingu, rómans og margt fleira.
Natasha S. spjallar um Mara kemur í heimsókn
2025/04/30
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Natöshu S. um nýjustu ljóðabók hennar, Mara kemur í heimsókn. Bókin fjallar um heimkomu til Rússlands eftir langa fjarveru, en er um leið uppgjör við pólitískt og menningarlegt ástand í gamla heimalandi ljóðmælanda.
Fríða Ísberg spjallar um Stargate eftir Ingvild Rishøi
2024/12/10
Fríða Ísberg spjallar við Einar Kára Jóhannsson um skáldsöguna Stargate eftir Ingvild Rishøi. Stargate er jólaævintýri frá Noregi sem hefur farið sigurför víða um heim og endaði meðal annars á lista Oprah Winfrey yfir bækur ársins 2024. Fríða ræðir líka um útkomu Merkingar á ensku í sumar, kunningsskap þeirra Ingvild Rishøi og áhuga sinn á bókmenntum frá Norðurlöndum.
Eva Rún Snorradóttir spjallar um Eldri konur
2024/11/25
Eva Rún Snorradóttir spjallar við Einar Kára Jóhannsson um sína fyrstu skáldsögu, Eldri konur. Þau ræða þráhyggju höfundar fyrir eldri konum, bókmenntahátíðina Queer Situations og að kerlingabylting sé leiðin til að breyta heiminum til betri vegar.
Eva Rún Snorradóttir les úr Eldri konur
2024/11/19
Eva Rún Snorradóttir les úr sinni fyrstu skáldsögu, Eldri konur.
Þórdís Gísladóttir spjallar um Aðlögun og þýðingar
2024/11/08
Þórdís Gísladóttir ræðir við Einar Kára Jóhannsson um ljóðabókina Aðlögun. Þau ræða líka feril Þórdísar og þýðingar hennar á tveimur nýjum bókum, Þessir djöfulsins karlar eftir Andrev Walden og Æsku eftir Tove Ditlevsen.

Podcast reviews

Read Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Sólin - Hlaðvarp Benedikts bókaútgáfu relevant audience podcasts


What do you want to promote?