1777994455
Á ég að hend'enni?

Advertise on podcast: Á ég að hend'enni?

Rating
★★★★★
5
from
2 reviews
This podcast has
72 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2024/11/05
Latest episode
2026/02/04
Average duration
36 min.
Release period
8 days

Description

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.  Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.  Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.  Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli? Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa? Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!

Unlock Á ég að hend'enni? podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Á ég að hend'enni? podcast


Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025
2026/02/04
Send us a text Tímabær andlátsfrétt  en afskaplega eldheitur útfararstjóri;) Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar  á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum.  Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs sem er heimsfrægur Sykurmoli og handritshöfundur með meiru!  Hlustendum og áskrifendum þökkum við  innilega fyrir samferðina því án ykkar hefði þetta ekki verið hálft gaman en þetta er ekki BLESS heldur HALLÓ.  Bestu kveðjur Dóra Wonder og Steinunn Ólína Takk fyrir samstarfið:  Eldum Rétt, Mama Veitingahús, Icelandair, Íslandsbanki, O.Johnson & Kaaber, Hagkaup, og auðvitað fá líka þakkir allir vinir og vandamenn sem fylgdust misspenntir en styðjandi við uppátækið. Support the show
72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi
2026/01/07
Send us a text Á veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum. Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku þá sem hefur lifað með manninum frá örófi alda. langt áður en nokkrum datt í hug að eitthvað yrði til í framtíðinni sem héti spítali hvað þá heibrigðisfræði. Frábær gestur og fróður. Góða skemmtun! Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Support the show
70. Áramótaþáttur II.hluti
2026/01/05
Send us a text Þessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig  fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið! Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Support the show
71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti
2026/01/05
Send us a text Þessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur! Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Support the show
69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti
2025/12/31
Send us a text Í þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin.  Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem  er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, drottningin á Skrauthólum, sem nemur og les fjöllin og árnar,  hafbrimið og hvísl vinda háloftanna og þær skrafa um landið okkar fagra, tungumálið, áramót, það að vera dreki og gæta þess hvert halinn mann slæst eð aí hvað eða hvern... Ingibjörg Magnadóttir myndlistarmaður og sprenglærður þerapisti sest við hringborðið og  þá tekur sköpunarverkið sem þátturinn allur er bæði nýjar og spennandi vendingar. Við áramót er að mörgu að hyggja, hverju á að sleppa og hvað skal varðveitast áfram í huga og hjarta! Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu gleraugnaverslun Support the show
67. Gleðilegur jólaþáttur 2025
2025/12/24
Send us a text Það eru lúnar vinkonur sem fara yfir jólaundirbúninginn sem virðist vera lítill sem enginn en þó, Halldóra, keypti sófa og Steinunn Eldar rétt um jólin í fyrsta sinn! Annars er sagt frá tilurð skemmtilegasta skötuboðs aldarinnar sem fram fór á Þorláksmessu 2025. Geta líksnyrtar gefið ráð gegn ólykt, Steinunn hringir í besta útfararstjóra landsins og fær hjá honum góð ráð! Börnin, mennirnir og hvað vilja þeir eiginlega í jólagjöf! Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun Til að gerast áskrifandi þarf að fara á tal.is/hendenni Support the show
66. Virk-ilega farið yfir víðan völl
2025/12/17
Send us a text Steinunn vill gjarnan vinna við að ferðast um heiminn og stofna fyrirtæki sem hitir Tent-Living en Dóra segir þetta bara vera glorified tjaldútilegu. Varnarkerfi líkamans er til umræðu en er kerfi eins og hænsnanet Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun Fullan þátt má hlusta á hér: https://feeds.buzzsprout.com/2419952.rss Support the show
65. Dauði hjartans viðtal við Jared Wholeheart
2025/12/09
Send us a text Í  þessum þætti fá Halldóra og Steinunn til sín enn að leiðbeinendum Halldóru, Jared Wholeheart, en hann er sprenglærður ráðgjafi og hefur átt litríkan starfsferil. Einnig ræða þær um andlega vakningu, dauða hugans og hjartans á þeirri leið. Hvað sambönd geta kennt okkur um okkur sjálf og um hið magnaða samspil hins kvenlega og karlmannlega í fari hvers og eins. Hvernig getum við lært að vinna með eigin orku og finna jafnvægi í því  karlmannlega og kvenlega sem býr í öllum. Konur þurfa gjarnan að stíga inn í karlmannlega framkvæmdaorku en hjartað má ekki vanta. Og auðvitað verjum við tíma í að skýra nýjasta áhugamál Dóru eða light/dark feminine og light/dark masculine. Allan þáttinn fyrir þá sem kjósa að gerast áskrifendur má finna hér: https://tal.is/hendenni Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun Support the show
64. Steinn um Stein frá Steini til Steins (Steinn Steinarr)
2025/12/03
Send us a text Halldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn segir.  Fyrrilíf eru til umræðu enda varð Steinunn fyrir þeirri merkilegu reynslu að reyna það líkamlega að hafa verið skopparakringla í fyrra lífi. Draumar um nýjar útflutningsvörur eru reifaðir og svo sökkva þær stöllur sér ofan í nokkur ljóð Steins Steinarrs sem mörg eru svo óheyrilega skemmtileg. Support the show
63. Einsetukonur og tækifærissinnar
2025/11/25
Send us a text Steinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokkuð frekar.  En stöllurnar eru að leita a vit nýrra ævintýra á sama tíma og móðurhlutverkið er að hristast af þeim. Þetta er umhleypingatími í lífi beggja og vaxtarkippirnir hríslast um stúdíóið. Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu.  Við kunnum að meta stuðninginn! Ást og friður Til að gerast áskrifandi og sérlegur stðningsmaur hlaðvarpsins:  tal.is/hendenni Support the show
61. ,,Ég er eiginlega alveg orðlaus“ Ólafur Stefánsson eins og hann er bestur
2025/11/19
Send us a text Steinunn þekkir tvo íþróttamenn og annar er gestur þeirra Halldóru í þessum mjög  þætti.  Gesturinn er enginn meðalmaður, óvanalegur og  einlægur,  sá einstaki Óli Stef! Í fyrstu er gesturinn orðlaus, sem hann segir hollt.en þetta einlæga samtal fer um víðan völl enda þrír sveimhugar í leit að kjarna sem hvergi er að finna. Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu.  Við kunnum að meta stuðninginn! Ást og friður Support the show
60. Þetta er fyrsti verulega SEXÝ þátturinn!
2025/11/12
Send us a text Í þessum þætti verður farið yfir óvenjulegt boðskort sem Halldóra hlaut á dögunum.  Þar verður í boði að vera allsber en töluverður áhugi er að myndast hjá þeim stöllum um að ganga um naktar en sérstaklega ber á þessu hjá Halldóru.   En hvað er nánd og hversu mikil nánd er Ok, of mikil o.s frv. Allt þetta of fleira á lendum þess erótíska verður rætt og krufið. Elsku áskrifendur, þessi fyrsti þáttur í læstri dagskrá er krassandi, allavega finnst okkur það enda báðar annálaðar teprur. Þau sem vilja gerast svo elskuleg að gerast áskrifendur færið ykkur hingað hlustið á þáttinn í heild sinni hér: https://tal.is/hendenni.  Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að meta stuðninginn! Support the show
59. Viðtal við algjöran Eðalmann - ADI ÆVINTÝRI
2025/11/04
Send us a text Sumir þættir podcastsins eru teknir upp á matsölu-og samfélagsstaðnum Mama í Bakarabrekkunni. Þar er fallegt og ört stækkandi samfélag fólks sem kýs að leggja stund á andlega iðkun, borða heilnæma náttúrufæðu og drekka gullna túrmerik drykki og draga sér svo sem eins og eitt tarot spil. Einn höfuðpaurinn á Mama er Adi Ævintýri, andlegur kennari og leiðbeinandi. Hann leggur ástundun á Natha Yoga, hefur heillandi hugmyndir um lífið o tilveruna og er alveg ævintýralega opin, fróður og skemmtilegur gaur.  Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki, Sjáðu Gleraugnaverslun og Eldum Rétt við kunnum að meta stuðninginn Support the show
58. Hjónalíf, James Bond á Bora Bora – Halldóra ræðir við eiginmann sinn
2025/10/28
Send us a text Steinunn skrópaði í þennan þátt og því brá Halldóra á það ráð að taka viðtal við eiginmann sinn Nikkó en um engan er þeim Steinunni meira tíðrætt um.  Hjónin stikla á hjónamálum, Nikkó segir sögur frá uppvaxtarsögur frá Marokkó, kostulegar sögur af skurðlækninum pabba hans  og einhver óskiljanlegur galdur er í því að heyra hjón tala saman þó þau viti vel að það er verið að taka þau upp.   Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslun • uppruni í Marokkó og sundruð minning • kerfi eins og skóli og heilbrigðisþjónusta sem flækjur • flutningar, tungumál og auðkenni sem áskoranir • ferðir og tákn, frá Galapagos til poppmenningar • líkamsþröskuldar og þjálfun sem mælanleg saga • netumræða, misskilningur og hægari skýringar • fjölskylda sem bæði skjól og stormur • smáar gjörðir sem byggja upp daglegt öryggi Support the show
57. Veitingahúsið Mensa og minningarnar
2025/10/22
Send us a text Hvað gerist þegar kakóbolli kveikir á minningu og bók breytist í brú á milli heima? Við sitjum saman yfir Mensu, matreiðslu- og minningabók sem setur fjölskyldu, unglingsár og samfélagið okkar við saman borð þar sem rababarabaka, salöt og glæstar kökur voru meira en bara matur.  Sögur sem eru bæði fyndnar og hjartnæmar: konan sem borgaði með fallegum steinum, draugurinn sem tók hljóðlátan morgungang, og búálfar sem fela lykla þar til þú biður kurteislega. Á leiðinni heiðrum við konur sem þora og gera, eins og Gunnhildi og Pat, og rifjum upp litla greifann og fleiri litrík andlit sem lifðu á Mensu. Takk fyrir stuðninginn Íslandsbanki og Sjáðu Gleraugnaverslun við kunnum að meta stuðninginn Support the show

Podcast reviews

Read Á ég að hend'enni? podcast reviews


5 out of 5
2 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Á ég að hend'enni? relevant audience podcasts


What do you want to promote?