1801817120
Bíófíklar

Advertise on podcast: Bíófíklar

Categories
This podcast has
163 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2025/03/12
Latest episode
2026/10/30
Average duration
63 min.
Release period
3 days

Description

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson, Atli Freyr Bjarnason og Tómas Valgeirsson.

Unlock Bíófíklar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Bíófíklar podcast


The Batman (2022)
2026/10/30
Enn ein Batman endurræsingin eða kannski bara 'útskriftarmyndin'? Á þessum tímapunkti mætti léttilega halda að meira eða minna allt hafi verið sagt og gert hvað Leðurblökumanninn á hvíta tjaldinu varðar. Að vísu er um að ræða eina vinsælustu hetjuna í sögu dægurmenningar í allri sinni mynd, sem hefur verið sundurtekin, sett saman og tækluð á allan mögulegan máta í myndasögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Hafsjórinn er gífurlegur en nýir vinklar eru alltaf velkomnir. Gömlu túlkanirnar hverfa ekki og það telst til hins besta máls ef eitthvað getur verið í boði fyrir alla, hvort sem áhorfandinn vill sinn LEGO-Batman, ýktari Batman, kjánalegri Batman, stílískari Batman, reiðari Batman í túlkun Zacks Snyder eða raunsærri Batman-sögu í anda Heat, svo dæmi séu nefnd. Hér er allavega kvikmynd sem hefur vel unnið fyrir því að vera með greini í titlinum. The Batman er satt að segja fyrsta kvikmyndin um þessa fígúru sem hefur eitthvað fyrir stafni og almennilegt að segja um sjálfan Batman! Ekki bara Bruce Wayne; markmiðið, óttann, sorgina, græjurnar eða illmennin, heldur hvað kryddar mótiveringuna, geðshræringuna, hvað lætur kuldalega einstaklinginn tifa og hvernig Batman sem fígúra er í sjálfu sér flótti hjá tilfinningalega lokuðum Bruce Wayne til að hefna sín á krimmahyski borgarinnar, og þá miskunnarlaust með óttastjórnun sem útrás fyrir áfallið að hafa misst foreldra sína. Það er ekkert hetjulegt við Batman á hans upphafsstað í þessari sögu, þrátt fyrir að hafa gegnt markmiði sínu í tvö ár. Innkoma hans í augum andstæðingana og vegfarenda er líkari hryllingsfígúru en hetju með siðgæðisreglurnar eða prinsippin á hreinu. Ýmist er til þess að skoða við þessa hundlöngu en stórlega athyglisverðu endurræsingu. Bíófíklarnir Kjartan, Atli og Tommi fengu DC-prófessorinn Magnús Frey Magnússon aftur i sttúdíóið til að rannsaka og rökræða betur allt sem Matt Reeves, Robert Pattinson og stærra teymið hafa fram að færa með þessum 'Se7en/Zodiac' vinkli á Batman-sögu. Smellum á okkur grímurnar, upp með hafnarboltakylfurnar og blöstum hljóðkerfinu í Batman-bílnum; þetta verður djöfulsins fjör! Efnisyfirlit: 00:00 - Slasher-Batman! 17:29 - Pattinson og Bruce 27:21 - Ráðgátan og spillarnir 36:24 - Hasar og ofbeldi 48:44 - "Útskriftarverk" 56:21 - Hvað veit Riddler? 01:08:41 - Hvað framundan er...
Clayface (2026)
2026/10/26
Þessar svokölluðu skúrka- eða óþokkamyndir tilheyra eigin undirflokki ofurhetjumynda á þessu stigi. Nýi DC heimurinn tekur hérna stórt skref í áttina að fjölbreyttari nýjungum með bíómynd sem engan afslátt veitir í sinni ‘body horror’ nálgun. Eða svo deila Bíófíklar um þó allir séu samþykkir því hversu brakandi fersk og kærkomin Clayface er í flóru hasarblaðamynda. Í gestasætinu er DC séníið Magnús Freyr Magnússon, mættur með ótæmandi þekkingu á rótum fígúrunnar Clayface ásamt breiðari sagnarheim, stílum og sögu Leðurblökumannsins. Drengirnir komast heldur ekki hjá því að ræða brenndu brýr svonefnda DCEU heimsins undir taumi Zacks Snyders, samanburði við aðrar illmennamyndir (t.a.m. Joker) og að sjálfsögðu hryllingssnilldirnar The Fly og The Substance, sem Clayface hefur sótt töluverðan innblástur í. Að ógleymdri Darkman, vitaskuld. Best að hlera spjallið og sjá hvað hnoðast úr þessu öllu. Efnisyfirlit: 00:00 - DCEU'ið 14:07 - DCU'ið... 19:53 - Clayface 28:48 - Pre-spoiler samantekt 43:37 - Yfir í spoilera... 49:12 - Helvítis klúbbasenan! 55:28 - Hinn heimtufreki Hagen
Street Fighter (2026)
2026/10/25
Hér er hún; Þriðja tilraunin að því að koma leikinni kvikmyndaseríu af stað eftir þekktu slagsmálaleikjunum frá Capcom. Nú er sett allt í botn hvað ‘90s fílinginn varðar og í rauninni alla þvæluna eins og hún leggur sig. Hefur kannski loksins náðst að gera vel heppnaða Street Fighter mynd? Grínistinn, fastagesturinn og poppkúltúrs-sérfræðingurinn Bjarni Gautur er mættur aftur til Bíófíkla þar sem saman velta þeir fyrir sér ástand tölvuleikjamynda, skoða alls konar samanburði og klóra sér jafnframt í kollinum yfir því hvers vegna Hollywood þorir sjaldan að fara alla leið með ‘vitleysuna’ þegar kemur að sumu source material’i. Upp með hárið og hafðu eyrun opin. Þetta verður litríkur slagur…! Efnisyfirlit: 00:00 - Meiri kjánaleika, takk! 08:47 - Nýja Street Fighter 16:35 - Lögin, litirnir og vitleysan 27:05 - Samskonar leikjamyndir 34:11 - Nálgun leikstjórans 42:59 - Sækókraftar og Bison-dúkkur 50:19 - "Góður kapítalismi!" 56:21 - Samantekt
Súrt og svarað: Besta hótelið í hryllingsmynd
2026/10/23
Hver er besta Halloween myndin sem gengur undir titlinum 'Halloween'? Hvaða tónskáld í samtímasögu kvikmynda hafa staðið upp úr og með hvaða leikstjórum? Hvaða fígúra myndi hræða þig mest í svefnherberginu þínu? Hvaða trúður ætti helst ekki að vera í barnaafmæli? Hvað er það sem gerði Digger svona umdeilda og óvinsæla? Og af hverju Kevin?! Fyrir utan hentugt og spaugilegt hrekkjavökuþema þá vill svo skemmtilega til að hlustendur og notendur spjallvettvangs Bíófíkla á Facebook sömdu allflestar spurningarnar að sinni. Sumar þeirra mátulega pönnusteiktar og gallsúrar, og þá er það undir mönnunum við míkrafónana komið að svara þeim. Í svokallaða heita- og gestasætinu er kvikmyndakeisarinn og reynsluþjarkurinn Þórarinn Þórarinsson, betur þekktur sem Tóti úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Tóti svarar þarna með prýðum í stúdíó Podcaststöðvarinnar með Atla Frey og Tomma þó vissulega gangi liðurinn út á það að aldrei eru nein rétt eða röng svör; Bara skemmtileg og leiðinleg svör! Þú vilt heyra þetta sprell. Efnisyfirlit: 00:00 - Tóm krús og Digger 06:33 - Hvort er betra kombó? 09:59 - Þrjár samnefndar... 14:21 - Kruger eða Klippikrumla 17:41 - Framúrskarandi og tímalaus 20:15 - Af hverju Kevin? 24:45 - Hótelpælingar 27:17 - Trúðaleg umræða 29:45 - Gervigreindarmörk 35:55 - Bregðusenuhopp 49:20 - Yfirnáttúruleg reynsla
Trick 'r Treat (2007)
2026/10/20
Er kveikt á graskerinu þínu? Ertu ekki alveg örugglega með nammi til þess að gefa öllum krökkunum? Það er eins gott. Annars gætirðu lent í hrekkjavökuandanum Sam. Trick ‘r Treat er safnverkamynd (e. Anthology film) þar sem við fylgjumst með fjórum (eða fimm, ef þú ert Íris) hryllingssögum sem gerast á sömu hrekkjavökunni. Þar fá þau sem brjóta reglur hrekkjavökunnar ill örlög af höndum hrekkjavökuandans eða einhvers þaðan af verra í sönnum teiknimyndasögustíl.  Íris fær til sín í stúdíóið hryllingsmyndaáhugamanninn og söngfuglinn Jökul Erni Jónsson sem er mikill hrekkjavökumaður. Þau ræða um hrekkjavökuhefðir, hrekkjavökumyndir og kryfja síðan sögurnar sem Trick ‘r Treat fjalla um. Þau ræða um reglur myndarinnar, hvaða saga þeim fannst best, vísanir í aðrar hryllingsmyndir -og þætti og margt fleira. Kveikið á kerti, dragið fyrir og njótið. En ekki gleyma að fylgja reglunum. Efnisyfirlit: 00:00 - Hryllingshefðir 14:53 - Trick 'r Treat/Skólastjórinn 21:08 - Vinkonurnar fjórar 39:14 - Draugasöguvæbið 53:00 - Sælgætisskrímslið
The Guest (2014)
2026/10/19
Hver elskar ekki Dan Stevens? Svona í alvörunni… Þennan fáránlega myndarlega og hæfileikaríka mann sem gladdi fyrst ófáu hjörtun með hlutverki sínu í Downton Abbey áður en hann fór að spreyta sig í margs konar litríkum rullum. Misgáfulegum kannski, en allavega fjölbreyttum. Kómíski hryllingsþrillerinn The Guest markaði gífurleg kaflaskil hjá Stevens þar sem hann þótti ekki lengur vera bara “gæinn úr Downton Abbey,” heldur allur fjandinn. Að sama skapi fór Maika Monroe að rísa hærra upp stjörnuhimininn með þessari næstum-því-óflokkanlegu mynd. Engu að síður er þetta bráðskemmtileg költ-mynd sem tvímælalaust er þess virði að ræða og stúdera aðeins, og þá sérstaklega svona í mánuði Hrekkjavöku. Í þessum merkilega ‘gestalausa’ þætti fara Bíófíklar yfir lítt séðu legasíu þessarar hressilegu myndar. Þá koma þeir einnig inn á feril Adams Wingard og þennan umræðuverða ‘þemaþríleik’ sem samanstendur af You’re Next (2011), The Guest og Onslaught (2026). Sperrum öll upp eyrun og víkkum út augun fyrir bræðandi og stórhættulegu töfrum fyrrum "Downton Abbey-gæjans" eða hvað hann heitir... Efnisyfirlit: 00:00 - Kvikmyndaárið 2014 10:12 - Aðeins um Adam Wingard 20:39 - Dan fokkin' Stevens! 30:01 - KPG 38:52 - Þegar stórt er spurt... 43:20 - Þegar allt fer til fjandans 47:56 - Aftur að Wingard 51:11 - Tillaga...
Street Fighter (1994)
2026/10/13
Hvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum, vitleysu, áróðri, búningum, nefnið það. Þetta er 'næntís' myndin Street Fighter. Bíófíklar taka glettilega á móti Bjarna Gauti og Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Í sameiningu skulu þeir krafsa í þessari gölnu stúdíómynd sem gerði svo ótrúlega margt rétt og ótrúlega margt kolvitlaust á sama tíma. Þá skal einnig ræða anime viðaukann 'Street Fighter II: The Animated Movie...' (... Arnóri til mikillar gremju) Beint í búningana með alla, upp með pósurnar og smellum Martin Luther King á fóninn. Þetta verður gufuruglað! Efnisyfirlit: 00:00 - "70 karakterar í bíómynd" 08:50 - Kóngurinn 'Húlía'! 24:00 - Steven De Souza 33:19 - 'Bisonics' 38:43 - 'Vei, stríð!' 42:42 - Street Fighter II: The Anime... 51:51 - "We Can All Go Home"...
Hedwig and the Angry Inch (2001)
2026/10/12
“Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!” Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur. Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig leikstýrði henni meira að segja! Hún græddi lítið í bíó en þegar á vídjóleigurnar var komið fann hún sinn aðdáendahóp eins og gengur og gerist með költmyndir. Ásamt því hefur söngleikurinn notið meiri vinsælda í gegnum tíðina, sérstaklega eftir að Neil Patrick Harris söng hlutverk Hedwig á Broadway 2014.  Íris fær Hauk Heiðar Steingrímsson til sín í stúdíóið enn á ný en í þetta skiptið dregur hann eiginmann sinn og rokksöngleikjaáhugamanninn Jón Baldur Bogason með sér. Þar kryfja þau atburðarrás myndarinnar ásamt lögunum. Þar kviknuðu upp margar spurningar: Hvaða lag var best? Hvað er kyngervi Hedwig? Er Yitzhak karl eða kona og hvernig á maður að bera fram þetta nafn? Hver er í rétti, Hedwig eða Tommy Gnosis?  Taktu hárkolluna úr kassanum því nú ætla þau að leiða þig í gegnum þennan grimma, litla bæ. Efnisyfirlit: 00:00 - Þættir og bíóuppeldi 10:10 - Pönkið í Hedwig 18:01 - Geggjuð tónlist 31:22 - Litríkar aukapersónur 40:10 - Um ákvörðunarrétt 46:04 - Hvað með þennan endi? 52:04 - Samantekt
Topp 5: Alex Garland
2026/10/09
Alex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í leikstjórasætinu en þess vegna liggur hann nú undir smásjá Bíófíkla. Gestur er Þorsteinn Valdimarsson og slæst í för þremenningana um að bera saman gerólíka lista, mismunandi kríteríur og einna helst hvort sjónvarpsserían Devs fái að fljóta með? Svarið er já. En þá er enn haugur af safaríkari spurningum eftir og misskýrum svörum, pælingum eða umræðupunktum, sem ætti að vera í ágætum stíl við Garland sjálfan. Efnisyfirlit: 00:00 - Af hverju Garland? 12:09 - Þungbær breyskleiki… 30:01 - Ólíkir listar 33:45 - Warfare 38:20 - MEN 40:45 - Annihilation 43:21 - 28 Years Later 47:41 - Dredd 51:04 - Devs 55:34 - 28 Days Later ofl.
Coyote vs. Acme (2026)
2026/10/03
Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum málum og þar af leiðandi gefa myndinni tækifæri til þess að eiga eitthvað líf eða í það minnsta skila sér til áhorfenda. Coyote vs. Acme tekur frumlegan vinkil á dómsmálaþriller í hálfgerðum '90s stíl og sýnir hvað tæki við ef hinn góðkunni Wylie E. Coyote myndi loksins ákveða að lögsækja stórrisana hjá Acme kompaníinu eftir síendurteknar bilanir á græjunum þeirra. Eftir taumlausar feilaðar tilraunir til að klófesta Road Runner-fuglinn er komið að hörðu baráttunni, en það lögsækir enginn stórfyrirtæki eins og Acme án afleiðinga og mögulegra ormagryfja. En ætli þá sléttúlfurinn komist þá nokkuð nær stóra draumnum að ná þessum blessaða fugli eða er stærri hugsjónarbarátta tekin yfir? Bíófíklar fengu brellumeistarann og trausta fastagestinn Fannar Traustason til að veita örlitla innsýn á bak við gerð þessarar myndar. Upp koma líka stærri spurningar, eins og hvort þetta gæti sennilega verið langbesta 'Looney Tunes' myndin, eða í það minnsta sú snjallasta. Fannar vekur einnig upp spurninguna um hvort myndin gæti líklega verið *of* snjöll ef ekki fullorðinsleg fyrir yngri hópana. Og talandi um það, ætli einhver fjórmenninganna í stúdíóinu hafi horft á hana með íslensku tali? Ein leið er til að komast að þessu, og það er að skella sér í sparifötin, setjast í dómsalinn, sperra upp eyrun og hlera drengina kveða upp úrskurðinn um ágæti (eða ofmat...) þessarar leiknu- og teiknuðu bræðingarmyndar. Hlaupum af stað og könnum málið. *Meep meep!* Efnisyfirlit: 00:00 - Aðkoma Fannars að myndinni 07:48 - Langt ferðalag útgáfunnar 19:03 - Looney Tunes minningar 27:30 - Meira um brelluvinnu 40:03 - Bíófíklar vs. Acme 48:48 - Ný hlið fígúranna 51:06 - Spillar og sprell 01:00:56 - Í samanburði við…
Clue (1985)
2026/09/29
Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Upphaflega gefið út undir nafninu 'Cluedo'. En vissir þú að nafnið Cluedo væri samblanda af Clue+Ludo? og að það hafi alltaf verið upprunalegt nafn spilsins en breytt fyrir amerískan markað? Og eigum við að ræða hvað frammistaðan og hlaupagangurinn hjá Tim Curry* í þessari mynd er mikil frussandi snilld?! Íris, Tommi og Auður Svavars eru sest við matarborðið til að finna út hvernig í ósköpunum þessi mynd fúnkerar svona vel og hvað dræma aðsókn hennar á sínum tíma hefur rænt frá okkur heilu flóruna sem við hefðum getað fengið af flippuðum borðspilsförsum. En... Upp með vopnin og í gang með fókusinn. Nú þarf að leysa eina galna ráðgátu... *Og hvíl í friði, elsku Tim! Bíófíklar eru þér ómælanlega þakklátir fyrir allar yfirdrifnu minningarnar og ekki síst hláturinn. Efnisyfirlit: 00:00 - ‘Gistipartímynd’ 07:53 - Ólíku endarnir 12:45 - Karaktersúpusnilld 21:41 - Borðspilsmyndir 31:28 - Í andstæðulitum 36:36 - Íslenskt Clue 48:07 - Samantekt
Primetime (2026)
2026/09/29
Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen. Mynd þessi er algjörlega gerð án samþykki Hansens og fjallar um áhugavert tímabil í bandarískri sjónvarpssögu þar sem þættirnir To Catch a Predator hófu göngu sína áður en allt framleiðsluferlið varð að hreinræktaðri katastrófu. Bíófíklar buðu Gabríel Jean-Sage De-Fontenay aftur velkomnum í stúdíó Podcaststöðvarinnar þar sem margbrotið umræðuefni er til umfjöllunar. Drengirnir við míkrafónanna stúdera stílbrögð, narratífu og almennan árangur þessarar bíómyndar auk þess að kafa aðeins út í ‘TCAP’ bóluna, áhrif hennar og eftirleiki. Hlustandi er hvattur til að fá sér sæti og láta vel (en ekki of vel…) um sig fara, því nú hefst óþægilega samtalið. Efnisyfirlit: 00:00 - Skandalar í brennidepli 07:17 - To Catch a Predator 13:23 - Peningar, frægð og status 20:03 - Lance Oppenheim er… 32:02 - Ósamþykki Hansens 37:13 - Um dekruð börn… 41:15 - Fávitar og spillar 49:51 - (Sjálfs)blekkingarleikir
Resident Evil (2002-2017)
2026/09/25
Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna. Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-Sage De-Fontenay stiginn inn í stúdíóið. Skemmst er frá því að segja að Gabríel er mikill unnandi leikjanna. Merkilegt nokk þá sammælast mennirnir við mækana ekki um hver er besta eða skásta myndin í þessari bíóseríu, en hvað með verstu? Dúndrum okkur í leðrið og leggjumst í sameiningu öll á kaf inn í þennan viðbjóð. Efnisyfirlit: 00:00 - Um tölvuleikina… 06:51 - Resident Evil 17:02 - Apocalypse 24:40 - Extinction 32:14 - Afterlife 42:07 - Retribution 47:12 - The Final Chapter ofl.
Resident Evil (2026)
2026/09/21
Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Road leikjamyndanna.’ Viktor Árni Júlíusson fastagestur er dyggur aðdáandi Resident Evil tölvuleikjanna og gekk hæstánægður út af þessari mynd. Bíófíklar tóku honum og alls konar umræðum um Cregger, hinar bíómyndirnar og vörumerkið sama og fagnandi. Ekki eru allir á sömu skoðun við borðið um óheflaða hæpið eða ótvíræðu gæði þessarar Resident Evil myndar, en það er heldur betur nóg til að róta í hvað varðar framsetningu, stíl og endalausu páskaegg myndarinnar. Upp með byssurnar, hunsið hengilásin og tökumst á við þessa bölvuðu blóðugu vitleysu saman. Efnisyfirlit: 00:00 - Páskaegg Creggers08:45 - Röfl um lúxussali ofl.19:47 - Samantekt án spilla26:55 - Spillar hefjast…33:19 - Bregður og viðbjóður40:14 - Austin power’ið52:25 - Meira svona?
The Invite (2026)
2026/09/20
Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton. Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum. Upp með glösin, niður með buxurnar og leggjumst öll á gott trúnó um stórskemmtilega mynd. Efnisyfirlit:00:00 - Boð og boð13:35 - Þras eða ró24:02 - Ræða Nortons32:02 - Að njóta eður ei44:20 - Endirinn…

Podcast reviews

Read Bíófíklar podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Bíófíklar relevant audience podcasts


What do you want to promote?