
Advertise on podcast: Skattaspjallið
This podcast has
35 episodes
Language
IcelandicPublisher
Samtök skattgreiðendaExplicit
No
Date created
2025/04/16
Latest episode
2026/10/02
Average duration
25 min.
Release period
19 days
Description
Skattaspjallið er hlaðvarp Samtaka skattgreiðenda og mun til að byrja með koma út annan hvern miðvikudag. Stjórnandi hlaðvarpsins er Sigurður Már Jónsson og fjallað verður um skatta út frá sjónarhóli skattgreiðenda og starf samtakanna.
Unlock Skattaspjallið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Skattaspjallið podcast
#35 - Skattlaust ár komið til að vera?
2026/10/02
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Skattaspjallsins að þessu sinni. Fyrir stuttu kom út ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Óli Björn víkur eðli málsins samkvæmt að skattheimtu og fyrirkomulagi hennar. Í viðtalinu er farið yfir það en Óli Björn setur fram nýjar hugmyndir á ýmsum sviðum skattkerfisins, svo sem hvernig hægt sé að koma á skattlausu ári og gefa þannig öllu ungu fólki tækifæri til að spara og koma sér rækilega af stað út í lífið. Sannarlega áhugaverð hugmynd. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#34 - Hvað borgar þú í skatta?
2026/09/20
Það er þekkt spakmæli að ekkert er víst nema skatturinn og dauðinn. Allir borga skatta með einum eða öðrum hætti en veit fólk almennt hvað það borgar í skatta? Nú hefur Viðskiptaráð smíðað gagnvirka skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Nú geta skattgreiðendur slegið inn eigin forsendur og séð hvað þeir greiða í skatta á mánuði. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, kom í þáttinn að þessu sinni og benti á að heildarskattbyrði einstaklinga er umtalsvert meiri en ætla mætti út frá þeim sköttum sem koma fram á launaseðlinum einum. Heildarskattbyrðin ræðst af tekjum, neyslumynstri og öðrum aðstæðum hvers og eins. Með reiknivélinni er núna hægt að leggja mat á skattbyrði miðað við eigin forsendur og fá þannig heildstæðari mynd af því hversu stór hluti tekna rennur til hins opinbera í formi skatta. Hugsanlega bregður mörgum í brún þegar endanleg tala birtist!Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#33 - Loftslagsskattar í ógöngum
2026/08/24
Hvernig er haldið á hagsmunum Íslands þegar skattar og gjöld tengd loftslagsmálum eru annars vegar? Fáir hafa kynnt sér þennan málaflokk jafn vel og Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum. Hann starfaði um árabil sem ráðgjafi Davíðs Oddssonar, þegar hann var forsætisráðherra, í utanríkismálum og síðar sem sendiherra Íslands. Albert segir að Ísland eigi að nýta sér sérstöðu sína í orkumálum og að íslenskur almenningur muni aldrei sætta sig við að greiða fyrirséðan kostnað við aðgerðir í loftslagsmálum, sem hvíli á alþjóðlegum samþykktum. Albert segir að Ísland eigi ekki að sæta sömu ráðstöfunum í loftslagsmálum og önnur ríki í ljósi þess að ríflega 80 prósent af orkunotkun landsins komi frá endurnýjanlegum orkugjöfum. Samsvarandi tala hjá Evrópusambandinu er 25%. Albert segir að Íslendingar eigi ekki að vera feimnir við að grípa í taumana og frábiðja sér alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum á meðan aðrar þjóðir séu langt á eftir Íslendingum í notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Ísland eigi hins vegar að vera tilbúið að taka þátt þegar aðrar þjóðir fari að nálgast okkur.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#32 - Skattar og efnahagsleg farsæld
2026/07/31
Það er ekki alltaf svo að hækkun á sköttum leiði til efnahagslegrar farsældar. Þvert á móti geta slíkar hækkanir haft margar óæskilegar hliðarverkanir. Verst er að þær geta svipt samfélagið framtíðarhagnaði sem byggist á því að einstaklingar noti fjármuni til skynsamlegra og arðbærra fjárfestinga. Tap á tækifærum í framtíðinni verður aldrei metið til fjár.
Erlendur Magnússon bankamaður og fjárfestir hefur starfað víða um heim og hefur haft aðstöðu til að rýna í dýpri strauma fjármálakerfisins og um leið hvaða áhrif skattheimta og skattkerfi geta haft á framleiðni og hagsæld. Erlendur er gestur Skattaspjallsins í dag.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#31 - Erlendur kostnaður menntakerfisins
2026/07/06
Greining Samtaka skattgreiðenda á kostnaði vegna íbúa af erlendum uppruna heldur áfram. Að þessu sinni beinum við sjónum okkar að því hver áhrif íbúa af erlendum uppruna séu á kostnað íslenska menntakerfisins. Í nýlegri greiningu þeirra Arnars Arinbjarnarsonar, Kristins Sv. Helgasonar og Róberts Bragasonar er reynt að áætla slíkan kostnað með tilliti til fjögurra stiga skólakerfisins: leik-, grunn-, framhalds- og háskóla, fyrir bæði ríkissjóð og sveitarfélög. Þeir Kristinn og Róbert koma í Skattaspjallið að þessu sinni og ræða forsendur útreikninganna og hvernig þeir unnu þá gagnvinnu sem er að baki.
Óhætt er að segja að greiningar þeirra félaga komi á óvart. Í fyrsta lagi vegna þess að enginn hefur unnið slíkar samantektir á nýlegum og síkvikum útgjaldaliðum sem kosta nú skattgreiðendur árlega háar upphæðir. En ekki síður vegna þeirra niðurstaðna sem þeir hafa dregið fram.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#30 - Skattar og gjöld ferðaþjónustunnar
2026/06/14
Ferðaþjónustan er sú grein sem skilar mestum gjaldeyristekjum í þjóðarbúið eða um 650 milljörðum króna á ári. Um leið er skattspor ferðaþjónustunnar um 200 milljarðar króna. Enn er greinin í uppbyggingar- og fjárfestingarfasa en á sama tíma dynja skattahækkanir og ný gjöld á greininni. Til að ræða þetta kemur Bjarnheiður Hallsdóttir í Skattaspjallið til okkar en hún lét af störfum sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar eftir sex ára setu árið 2024. Hún hefur um áratugaskeið rekið ferðaskrifstofuna Kötlu DMI sem sérhæfir sig í að flytja þýska ferðamenn til Íslands. Fáir þekkja rekstrarumhverfið betur en Bjarnheiður sem skrifaði nýlega grein þar sem hún talaði um galna skattheimtu ríkisstjórnarinnar. Hún segir að nýlegar og fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu muni hafa gríðarlega slæm áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar og þar með aðstöðu hennar til verðmætasköpunar um landið allt.Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#29 - Hvað kostar sveitarfélagið þitt?
2026/05/29
Samtök skattgreiðenda hafa gefið út tvö ný gagnvirk mælaborð og Arnar Arinbjarnarson verkfræðingur og sérfræðingur Samtaka skattgreiðenda kemur til okkar í þáttinn til að fræða okkur um þetta. Fyrra mælaborðið nær yfir öll 62 sveitarfélög landsins með gögnum úr ársreikningum sem ná aftur til ársins 2002 og fram til 2024. Viðmótið er skýrt og notandi velur sveitarfélag og fær fullbúna sundurliðun á útgjöldum, tekjum, skuldum, lýðfræði og þróun síðustu rúmlega tveggja áratuga.
Síðara mælaborðið gerir notendum kleift að leita beint í 1,1 milljón greiðslna sem Reykjavíkurborg hefur innt af hendi frá 2014 til 2025. Heildarútgjöld borgarinnar á tímabilinu eru rúmir 1.018 milljarðar króna. Hægt er að velja birgja, svið, deild, ÍSAT-atvinnuflokk, tegund kostnaðar eða tímabil - og rýna í einstaka birgja með nákvæmri sundurliðun eftir árum og sviðum. Mælaborðið byggir á sömu hönnun og opnir reikningar ríkisins sem samtökin gáfu út fyrr á árinu og hafa verið vinsælasta efni okkar.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#28 - Sveitastjórnir og samsærið gegn skattgreiðendum
2026/04/29
Sveitarstjórnarkosningar eru fram undan en víðast hvar eru skattstofnar keyrðir í botni. Hvergi þó eins og í stærsta sveitarfélaginu, sjálfri höfuðborginni. Kjartan Magnússon hefur áratugareynslu af setu í borgarstjórn Reykjavíkur og þekkir vel sögu skattahækkana og útþenslu borgarbáknsins. Hann er gestur Skattaspjallsins í dag. Eiga skattgreiðendur einhverja möguleika þegar kjörnir stjórnmálamenn og embættismenn snúa bökum saman um að stækka báknið? Líklega ekki, en Kjartan rekur þessa sögu í Reykjavík og fer yfir nokkur dæmi um hvernig löggjafinn hefur sett af stað ferli sem skilar sér í gríðarlegum hækkunum til borgaranna. Er þetta sjálfvirkt ferli kostnaðar- og skattahækkana eða er þetta samsæri gegn skattgreiðendum?
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#27 - Velferðarkerfið á krossgötum
2026/04/16
Í dag renna um 53 prósent allra ríkisútgjalda til velferðarmála, svo sem örorku- og atvinnuleysisbóta, málefna fjölskyldna og aldraðra, auk heilbrigðisþjónustu, en þetta hlutfall var um 46 prósent í upphafi aldarinnar. Slík útgjöld eru líkleg til að vaxa hratt á næstu árum vegna öldrunar þjóðarinnar sem og vegna aukinnar þátttöku íbúa af erlendum uppruna í hinum ýmsu bótaflokkum velferðarkerfisins. Þessi þróun getur teflt fjárhagslegri sjálfbærni íslenska velferðarkerfisins í tvísýnu. Hver eru áhrif íbúa af erlendum uppruna á kostnað íslenska velferðarkerfisins?
Til að ræða þetta kemur dr. Kristinn Sv. Helgason, sérfræðingur í opinberri stefnumótun og fyrrverandi starfsmaður Sameinuðu þjóðanna, í Skattaspjallið að þessu sinni. Kristinn hefur víðtæka reynslu eftir að hafa starfað víða um heim, lengst af við kostnaðargreiningar vegna þróunarmála. Hann hefur mikilvæga innsýn í hvert stefnir á Íslandi.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#26 - Þversögn í sölu ríkisins á áfengi
2026/04/01
Skattgreiðendur landsins hljóta stöðugt að spyrja sig hvar verkefni ríkisins eigi að vera og hvort réttlætanlegt sé að greiða niður starfsemi sem einkaaðilar geta sinnt, oft með það á vörum að það sé „skynsamlegt“ fyrirkomulag eða stutt „lýðheilsusjónarmiðum“. Það á sannarlega við um sölu ríkisins á áfengi í gegnum verslunarrekstur ÁTVR sem í dag rekur 53 smásöluverslanir með áfengi, allar með tapi. Gestur Skattaspjallsins að þessu sinni er ötull baráttumaður gegn ríkisrekstri og sóun fjármuna skattgreiðenda. Arnar Sigurðsson, eigandi og stofnandi vínbúðarinnar Sante, þekkir vel að eiga við einokunarstöðu ríkisins. Arnar ræðir þá baráttu sem sjálfstæðar vínbúðir standa í við hið opinbera en um leið ætlar hann að fara yfir dulda skattheimtu og sóun opinberra fjármuna. Arnar liggur ekki á skoðunum sínum og alltaf fræðandi að hlusta á hann.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#25 - Er ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti?
2026/03/18
Samtök skattgreiðenda hafa sent Fjársýslunni og Fjármálaráðuneytinu erindi þar sem samtökin bjóðast til þess að taka að sér að birta öll opinber gögn um allar greiðslur hins opinbera, skattgreiðendum að kostnaðarlausu. Þetta gerist um leið og annað mælaborð Samtaka skattgreiðenda hefur verið birt, en að þessu sinni er um að ræða betrumbætt viðmót á opna reikninga ríkisins (opnirreikningar.is). Komið hefur í ljós að þrátt fyrir fögur fyrirheit er hinu opinbera ómögulegt að birta opinber gögn með aðgengilegum hætti – alltaf þarf að fela eitthvað fyrir skattgreiðendum. Í Skattaspjalli við þá Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason, sérfræðinga Samtaka skattgreiðenda, er farið yfir þessa sögu.
Samtök skattgreiðenda fá mikinn fjölda ábendinga um hvernig megi fara betur með opinbert fé og einnig berast upplýsingar um umdeilanlega gjörninga. Þannig var upplýst að ein og sama manneskjan hefur fengið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála þrjú ár í röð um leið og viðkomandi hafi tilkynnt um framboð sitt í komandi borgarstjórnarkosningum. Það undarlega er að þessi verkefni lúta að því að auka kosningaþátttöku innflytjenda sem setur frambjóðandann í óheppilega stöðu.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#24 - Hagræðing og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis
2026/03/04
Hver heldur hagsmunum skattgreiðenda á lofti í sölum Alþingis þegar flestir flokkar styðja aukna útþenslu ríkisins og skattahækkanir? Fjárlagafrumvarpið var samþykkt með hvorki meiri né minni en 143 milljarða hækkun á fjárheimildum milli ára. Þetta jafngildir 9% hækkun en skattar eru hækkaðir um rúmlega 30 milljarða króna en ríkissjóður afgreiddur með 28 milljarða halla. Skattgreiðendur framtíðarinnar fá sinn reikning því skuldir aukast. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir settist inn á þing fyrir Miðflokkinn að loknum síðustu kosningum og hefur gert sig að eindregnum talsmanni hagræðingar og sparnaðar í ríkisrekstri. Í Skattaspjallinu í dag ræðir Nanna Margrét hvernig það er að berjast við allt að því sjálfvirka útgjaldaþörf ríkisins og hvernig það er að orða hagræðingu og einkaframtak sem lausn í sölum Alþingis.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#23 - Hafa Íslendingar efni á því að vera á vinnumarkaði?
2026/02/18
Samspil almannatrygginga, lífeyrissjóða og annarra opinberra stuðningskerfa er flókið og verður í raun stöðugt flóknara. Yfirsýn er því lítil og um margt skortir heildstæða gagnasöfnun sem varð til þess að sérfræðingar Samtaka skattgreiðenda, þeir Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hafa tekið saman mikið yfirlit um það hvort að Íslendingar hafi yfirhöfuð efni á að vera á vinnumarkaði? Niðurstaða þeirra er að það skorti fullkomlega á yfirsýn og að endurskoða þurfi bótakerfin frá grunni, án aðkomu stofnana og sérfræðingastétta sem staðið hafa fyrir hönnun núverandi kerfis. Þá kemur í ljós að kjör öryrkja eru mjög ólík eftir kyni og fjölskyldugerð. Öll umræða um kjör öryrkja sem ekki tekur tillit til fjölskyldubóta missir því marks.Sláandi niðurstöður úr kerfinu sýna að til að ná sömu ráðstöfunartekjum eftir húsnæðiskostnað og einstæð þriggja barna móðir á örorku þarf þriggja barna einstæð móðir á vinnumarkaði að hafa um 1,4 milljónir á mánuði í heildartekjur. Gríðarlegur fjárhagslegur hvati er því fyrir foreldra barna að komast á örorku en þó sérstaklega fyrir einstæðar mæður.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#22 - Peningar skattgreiðenda út í loftið
2026/02/04
Tekjur af sköttum tengdum loftslagsmálum aukast jafnt og þétt, bæði hér á landi og í Evrópusambandinu. Í haust fékk þingmaðurinn Karl Gauti Hjaltason svar við fyrirspurn þar sem hann spurði um þá fjármuni sem veitt er til loftslagsmála árlega. Svarið sem Karl Gauti fékk var á margan hátt ófullnægjandi en þó eru ýmsar tölur þar sláandi. Upplýst var að á tímabilinu 2017 til 2024 hefðu runnið 144 milljarðar króna til loftslagsmála eða rúmlega 20 milljarðar á ári. Um leið var sagt að áætlanir gerðu ráð fyrir að á næstu fimm árum verði enn gefið í og upphæðin verði rúmlega 113 milljarðar. En í hvað fara peningarnir? Um það er heldur fátt um svör. Karl Gauti kemur í Skattaspjallið og ræðir flæði lofts og peninga.
Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
#21 - Hættumerki í velferðarkerfinu
2026/01/21
Miklar breytingar hafa orðið á velferðarkerfinu á undanförnum áratug en nú er svo komið að fjórða hver kona á vinnualdri þiggur örorkubætur. Róbert Bragason, sérfræðingur hjá Samtökum skattgreiðenda, kemur í Skattaspjallið til að rýna í tölur úr velferðarkerfinu og við ræðum hvernig breytingar á samfélaginu birtast í gegnum útgjöld þar. Nýjar upplýsingar sýna að hlutfall Íslendinga af báðum kynjum á vinnualdri sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri hækkar úr 13% árið 2012 í 18% árið 2025. Þar munar um mest að hlutfall kvenna á vinnualdri, sem fær endurhæfingar- eða örorkulífeyri, fer úr 17% í 23% á sama tímabili og hlutfall karla úr 10% í 13%.Þá hefur fjöldi einstaklinga með erlendan bakgrunn sem fá endurhæfingar- eða örorkulífeyri sexfaldast frá árinu 2012 en sé litið til kvenna eingöngu hefur fjöldinn sextánfaldast á sama tíma. Þessar tölur vekja athygli en ekki síður sú staðreynd að framkvæmdavaldið veitir ekki upplýsingar um barnalífeyrisgreiðslur í nýlegu svari til þingmanns. Starfsemi Samtaka skattgreiðenda er rekin fyrir mánaðarlega styrki einstaklinga og fyrirtækja. Ef þú vilt koma í hóp velgjörðarmanna okkar, er hægt að styrkja samtökin hérna eða senda okkur póst til að fá nánari kynningu á starfseminni á [email protected]
Podcast reviews
Read Skattaspjallið podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Skattaspjallið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.73422781
The Ancients
History Hit

4.89130312
The Why Files: Operation Podcast
The Why Files: Operation Podcast

51088171
Middle Children
Jessie Jolles and Chris Burns

4.8265112000
Morning Wire
The Daily Wire

4.518778373
American Scandal
Audible

4.689371215
Get Sleepy: Sleep meditation and stories
Slumber Studios

4.79026375
Life is Short with Justin Long
Audible

4.714118349
Bad Friends
Bobby Lee & Andrew Santino

4.7128971
10 to Life
Annie Elise

4.76752464
Criminology
Emash Digital & Mike Ferguson, Mike Morford