
Advertise on podcast: Hið yfirnáttúrulega
Categories
This podcast has
127 episodes
Language
IcelandicPublisher
Ghost Network®Explicit
No
Date created
2025/05/04
Latest episode
2026/10/26
Average duration
27 min.
Release period
6 days
Description
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.
Unlock Hið yfirnáttúrulega podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Hið yfirnáttúrulega podcast
127. Andlegt trúnó. Chakra dans og margt fleirra
2026/10/26
Í þætti dagsins ræðum við um ferðalag okkar í gegnum orkustöðvarnar 7.
Marta Eiríks bauð okkur í 4 tíma orkustöðva/Chakra dans á dögunum. Við mættum upp í Hugarhlýju sem er æðisleg aðstaða sem Svava Bjarnadóttir rekur og fengum þessa frábæru dans upplifun.
Við dönsuðum í gegnum orkustöðvarnar 7 og fengum allskyns upplifanir með hverri og einni orkustöð.
Í þættinum förum við einnig yfir hvað við höfum upplifað eftir þessa mögnuðu reynslu og segjum frá aðsendri sögu sem okkur fannst alveg hreint mögnuð!
Við elskum að heyra frá ykkur elsku nornafjölskyldunni okkar 3
Hægt er að hlusta á þáttinn í fullri lengd á www.patreon.com/hidyfirnatturulega
126. Draugagangur og næmnin er að aukast.
2026/10/19
Hvað ætli sé í gangi hjá Selmu núna? Það hafa verið skítnir hlutir að gerast hjá henni sem er ekki hægt að útskýra. Ætli hún sé að opnast?
Þegar næmnin eykst og fólk fer að heyra hluti sem eiga sér ekki sýnilegar útskýringar og breytist skynjunin gjarnan í svokallaða miðilsheyrn, sem getur birst með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða ytri heyrn, þar sem hljóðin virðast koma beint úr líkamlega umhverfinu, eins og fótatak á hæðinni fyrir ofan, bank í veggi, hvísl í tómu herbergi eða hljóð líkt og hlutir séu færðir til. Hins vegar getur hún birst sem innri heyrn, þar sem raddirnar hljóma inni í höfðinu en koma manni samt algjörlega á óvart. Þetta birtist oft sem skýr orð, eigið nafn kallað í hálfsvefni, eða heilu setningarnar sem koma eins og utanaðkomandi hugsanir með öðrum raddblæ en manns eigin innri rödd. Þessar sveiflur eru taldar eðlilegur hluti af því að vera næmur.
Hægt er að þjálfa þessa skynjun og er hluti af þjálfuninni er að byggja upp traust á eigin skynjun. Sniðugt er að halda dagbók og skrifa niður allt sem þú heyrir eða skynjar, jafnvel þótt það sem þú heyrir eða skynjar virðist ekki meika sense. Með tímanum fer fólk að sjá mynstur, og þegar upplýsingar sem heyrðust reynast síðar eiga við rök að styðjast, styrkist hæfileikinn.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
125. Hin yfirnáttúrulega Geimsýra
2026/10/10
Áskriftarþátturinn kemur út aðeins fyrr en vanalega þar sem við ætlum að vera með samruna Hins yfirnáttúrulega og Geimsýrunnar einu sinni í mánuði!
Við og Geimsýran sameinum krafta okkar og ræðum um allt milli himins og jarðar. Gunnar Dan vinur okkar er orðinn góðvinur þáttarins og er hann alger sérfræðingur í Ufo málaflokknum enda búinn að gefa út tvær bækur tengt Ufo.
Við snertum á allskonar málefnum í flæði og erum að reyna að komast að því hvernig þessi heimur virkar og allt þetta sem tengist hinu yfirnáttúrulega og óútskýrða.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
124. Andleg næturvinna
2026/10/05
Á meðan líkami þinn hvílist í djúpum svefni, er ekki víst að sálin sé að hvílast, hún gæti hreinlega verið mætt á næturvaktina í öðrum víddum.
Fyrir næmt og andlegt fólk er svefninn nefnilega ekki bara endurheimt, heldur dularfullur vinnustaður þar sem undirmeðvitundin sinnir stórtækum verkefnum og stundum án þess að viðkomandi viti af því að hann sé að vinna í andlegri vinnu á nóttunni.
Þessi ósýnilega næturvinna spannar allt frá því að virka sem andleg orkuhreinsun og heilun yfir í að vera leiðbeinandi fyrir týndar sálir sem þurfa hjálp við að finna ljósið. Sumir hafa farið í andlega skóla og gengið inn í risastór dulspekileg bókasöfn og læra nýja visku, á meðan aðrir funda með sálum úr vakandi lífi til að leysa úr karmískum hnútum og gömlum ágreiningi.
Ef þú vaknar oft úrvinda þrátt fyrir átta tíma svefn, hrokknar upp með öran hjartslátt milli klukkan tvö og fjögur, eða upplifir drauma sem eru svo raunverulegir að þeir skilja eftir sig líkamleg áhrif, þá ert þú mögulega einn af þessum andlegu næturvörðum sem eru að breyta og heila heiminn á meðan restin af mannkyninu sefur.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
123. Starcodes Academy viðtal við Ölmu og Hrabbý
2026/10/01
Þessi þáttur kemur aðeins fyrr út en vanalega en í þessum þætti fengum við yndislegu Ölmu og Hrabbý í viðtal en þær reka saman Starcodes Academy.
Við ræðum saman um þeirra vegferð og hvernig þeirra samvinna þróaðist yfir í stofnun Starcode Academy. Þar bjóða þær upp á margvísleg námskeið sem eru afar áhugaverð og í þættinum fara þær lauslega yfir hvaða námskeið eru í boði og hvernig þau eru.
Ef þið hafið áhuga á að skoða það sem þær bjóða upp á er heimasíðan þeirra www.starcodesacademy.is
Þar er hægt að skoða hvað er í boði og srká sig á námskeiðin þeirra. En þær eru m.a. með engla reiki, starcodes eða ljóskóða, heilun ættarlína og margt fleira.
122. Chis Bledsoe - brottnuminn af geimverum
2026/09/28
Chris Bledsoe er einn þekktasti og umdeildasti maðurinn í heimi UAP (fljúgandi furðuhluta) og geimverurannsókna, en líf hans breyttist til frambúðar árið 2007 eftir meint brottnám við Cape Fear ána í Norður-Karólínu. Hann hvarf sporlaust í fjórar klukkustundir, og lýsti síðar fundi sínum við lýsandi kúlur, smáar verur með rauð augu og guðdómlega kvenveru sem hann kallar The Lady. Ólíkt dæmigerðum geimverusögum er upplifun hans mjög andleg; hann heldur því fram að verurnar hafi læknað hann af alvarlegum Crohn's sjúkdómi og fært honum boðskap um kærleika og andlega vakningu mannkyns.
Sagan hans Chris er alveg mögnuð og hljómar pínu ótrúlega, en enn þann daginn í dag er hann að deila myndböndum af ufo ljósum eða plasma orbs sem hann getur framkallað með huganum einum. Hann framkallar þessi ljós nánast daglega með fjölda vitna sér við hlið. Hægt er að sjá þessi myndbönd á instagraminu hans.
Í dag er Bledsoe afar eftirsóttur fyrirlesari á alþjóðlegum vettvangi og hefur gefið út ævisöguna UFO of God. Hann ver tíma sínum í að miðla reynslu sinni, en frásögn hans hefur vakið mikinn áhuga hjá vísindamönnum NASA, leyniþjónustustofnunum og stjórnmálamönnum sem rannsaka tengsl meðvitundar og óútskýrðra fyrirbæra. Hann heldur því jafnframt fram að hann upplifi enn reglubundnar heimsóknir og búi yfir hæfileika til að lækna aðra.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
121. Heimsljós, heilun og andlegt trúnó.
2026/09/25
Við viljum byrja á að segja TAKK.
TAKK allir sem komu og hittu okkur á Heimsljósi 19-20 september, það var ómetanlegt og svo gaman að hitta ykkur og spjalla. Takk fyrir stuðningin, peppið og hrósið, við erum svo þakklátar fyrir ykkur og yfirnáttúrulega samfélagið sem við erum að mynda hérna sem fer ört stækkandi. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að deila hlaðvarpinu með vinum og vandamönnum og takk fyrir ykkur, við erum bara mjög þakklátar eftir dásamlega Heimsljós helgi.
Í þessum þætti förum við yfir Heimsljós helgina og förum á andlegt trúnó. Við getum talað endalaust um andleg málefni, okkar upplifanir og það sem við erum að læra alla daga inná okkar næmni og þennan ósýnilega heim sem er svo töfrandi og skemmtilegur! Maður er sko aldrei búinn að læra og það er það sem er svo skemmtilegt við lífið.
Við erum fullar af þakklæti eftir að hafa kynnst helling af dásamlegum andlegum lífverum sem hafa gefið okkur fróðleik, gleði og visku og það er svo gaman að hitta aðra og heyra hvernig þeir skynja og hvernig þeirra næmni er.
Við ræðum um hvernig við upplifðum að transheila tvær saman á eina manneskju og það var vægast sagt magnað og ótrúlega gaman! Við erum bara rétt að byrja og finnum að krafturinn er að koma með haustinu.
Okkur hlakkar til að hitta ykkur aftur og skipulegga skemmtilegan viðburð þannig við getum sem flest hisst, spjallað og nornast saman. Við finnum að það er mikill áhugi fyrir því, enda er bara ekkert skemmtilegra en að vera umkringdur fólki sem er með sömu áhugamál og maður getur verið bara nákvæmlega maður sjálfur og rætt þessa hluti án þess að vera dæmdur stórfurðulegur og mæta bara skilning og áhuga í staðinn!
Við viljum minna á að ef þið viljið segja okkur sögur, deila reynslu, hafið spurningar eða ábendingar þá má alltaf hafa samband og senda okkur póst:
[email protected]
Við elskum að heyra frá ykkur! Hafið það gott og takk fyrir ÞIG.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Mentioned in this episode:
d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Galdrabox
Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is
Ástargaldur
Hreinsunar og verndargaldur
Manifest galdur
Komdu í áskrift
120. Tulpa - máttur hugans - manifest - hvar er sálin okkar?
2026/09/21
Þessi þáttur tók óvænta stefnu og alltaf erum við að læra og reyna að komast að svörum við stóru spurningunum: Hvað erum við, afhverju, hvað er sálin, hvar er sálin?
En við byrjum á að ræða um magnaðar aðferðir munka og hvað þeir hafa náð að framkvæma með mátt hugans. Tulpa er mjög áhugaverð aðferð þar sem munkar og fleiri sem hafa náð að gera þetta, en þá með markvissri og mikilli hugleiðslu og ákveðinni hugleiðsluaðferð þá náðu munkarnir að sanna það að við getum framkallað allt sem við viljum með huganum einum. Þú getur því framkallað manneksju, lífveru, dýr eða það sem þú ákveður að framkalla og það mun birtast þér! Þetta hefur svo sannarlega verið gert sem er vægast sagt MAGNAÐ!
Við förum yfir í að ræða sálina og hvar ætli hún sé staðsett. Við að sjálfsögðu leysum öll mál í þessum þáttum hjá okkur og komumst alltaf örlítið nær að sannleikanum.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
119. Galdrar - nornir - álög
2026/09/14
Í þessum þætti tölum við um galdra, hreinsanir, hugarfar og ásetning. Hvað við erum að gera og galdra fram þessa dagana og förum yfir í extreme nornir og nornamenningu sem finnst að mestu erlendis.
Galdrar, álög og bölvanir hafa fylgt mannkyninu frá örófi alda og endurspegla ríka þörf mannsins fyrir að skilja, stjórna eða hafa áhrif á umhverfi sitt með yfirnáttúrulegum leiðum.
Nútímanornir eru oftast andlegir leiðbeinendur sem vinna með náttúruna, kristalla, jurtir og heilunar orku til að hjálpa fólki í daglegu lífi. En svo eru aðrar "nornir" sem fara aðeins lengra og vilja vinna með dekkri öfl, þær eru ekki að þessu að heillindum og gera allskonar til þess að hafa pening af fólki og setja smá skugga á orðið norn.
Sumar af þessum sem starfa sem norn og eru bara atvinnunornir þær hafa farið aðeins út af veginum og fara galdrarnir að snúast um að setja á álög fyrir viðskiptavini, sem í nútímasamhengi þýðir að beina orku og ásetning á ákveðinn farveg fyrir fólk.
Algengt er að nornir séu fengnar til að framkvæma ástargaldra, laða að peninga og velgengni í viðskiptum, eða búa til sérstaka varnargaldra fyrir heimili.
Á sama tíma er jafnvel enn stærri markaður í því að setja á OG taka af álög og bölvanir og taka fúlgu fjár fyrir.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
118. Íslenskar draugasögur - Poltregeist draugar
2026/09/07
Íslenskar draugasögur eiga sér djúpar rætur í þjóðarsálinni og endurspegla lifnaðarhætti, einangrun og harðbýla náttúru landsins í gegnum aldirnar. En sumir draugar skilja eftir sig meiri spurningar en aðrir og eru eftirminnilegri.
Vorið 1964 á sveitabænum Saurum í Austur Húnavatnssýslu gerðist eitthvað sem skók allt íslenska samfélagið. Þetta var ekki hefðbundin sending í leit að hefnd, heldur fágætt og ofsafengið dæmi um ærsladraug eða poltergeist á íslenskum sveitabæ.
Draugagangurinn var svakalegur og vitnin mörg, þetta mál varð að algeru fjölmiðlafári og varð rannsóknarefni. Hlutir flugu um loftið, þungir skápar ultu um koll og ískaldur gustur fyllti baðstofuna á meðan fjölmiðlar, prestar og sálarrannsakendur fylgdust agndofa með.
Í þættinum í dag köfum við ofan í magnaðasta draugagang nútímasögunnar á Íslandi.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
117. Sólgos, sólmyrkvi, fullt tungl - Jörðin er að ganga í gegnum mikla orkubreytingu.
2026/08/31
Jörðin og alheimurinn eru að ganga í gegnum gríðarlega orkubreytingu!
Við höfum nýlega upplifað bæði sólmyrkva og tunglsmyrkva, en í yfirnáttúrulegum skilningi eru þetta ekki bara stjarnfræðilegir atburðir heldur öflugar gáttir. Sólmyrkvinn táknar dramatísk þáttaskil þar sem ljósið víkur augnablik fyrir skugganum, sem neyðir okkur til að horfast í augu við okkar eigin dökku hliðar og loka gömlum dyrum. Tunglsmyrkvinn fylgir svo í kjölfarið með tilfinningalega úthreinsun, þar sem hlutir sem hafa verið faldir í undirdjúpunum koma upp á yfirborðið.
Á sama tíma er eitthvað stórfellt að gerast í hinu ósýnilega orkusviði jarðarinnar. Schumann resonance, sem oft er kölluð hjartsláttur jarðar, hefur verið að sýna óvenjulega tinda og sveiflur. Þessi náttúrulega rafsegultíðni jarðar, sem venjulega slær í rólegum 7,83 hertzum, virðist vera að rjúka upp, og margir trúa því að jörðin sé að hækka tíðni sína. Þegar þessi tæknilegi hjartsláttur jarðar mætir kosmísku orkunni frá smyrkvanum, þá finnum við það beint á eigin skinni. Það lýsir sér í skrýtnum draumum, skyndilegri þreytu, höfuðverk eða tilfinningu um að tíma brenglun.
Við erum bókstaflega að tengjast nýrri orku, endurforrita okkar eigin tíðni og stíga inn í hærra meðvitundarstig. Spurningin er bara: hefur þú fundið fyrir orkunni?
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
116. Andlegt trúnó
2026/08/24
Við erum á persónulegum nótum i þessum þætti og segjum frá hvað við höfum verið að upplifa frá okkar andlegu hlið og ástundun í sumar. Lífið er allskonar og suma daga er maður í geggjuðu jafnvægi og með allt á hreinu, aðra daga er maður með allt niður um sig, í lárri tíðni að reyna að koma sér á andlega vagninn aftur og lyfta sér upp.
Okkur finnst mikilvægt að lýsa raunveruleikanum eins og hann er hverju sinni og tala í einlægni.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
p.s. Við vonumst til að sjá ykkur á Heimsljósi 19-20 september!
Linkur á Heimsljós:
https://heimsljos.is/
115. Gunnar Dan - Ufo 202, kómísk uppljóstrun með Dr Phil og allt milli himins og jarðar.
2026/08/19
Gunnar Dan vinur okkar hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum enda er hann aðal upplýsingaveita Íslendinga um það sem er að gerast í Ufo heiminum. Hann var að gefa út bókina sína Ufo 102 sem er hreint út sagt stórkostleg og full af fróðleik!
Gunnar hefur upplifað margt í lífinu og andlega vakningin er að koma til hans af miklum krafti og tenging við hinn æðri mátt, hver sem þessi máttur er. Í þessum þætti förum við um víðan völl, ræðum um stýrðu uppljóstrnunina sem er vægast sagt kómísk þegar enginn annar en Dr Phil er kominn á settið. Við ræðum um Dmt og Ayahuasca í andlegum tilgangi og margt fleira.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Við mælum svo sannarlega með að þið fylgist með honum Gunnari og Geimsýrunni þar sem hann segir okkur nánast daglega frá nýjum fréttum.
Bókina Ufo 101 og Ufo 102 er að finna í öllum helstu bókasölum og bókasöfnum.
Þið getið fylgt Gunnari á facebook og fengið nýjustu fréttir þar:
https://www.facebook.com/gunnar.wiium
Geimsýran á youtube:
https://www.youtube.com/@vottahusi1119
Mentioned in this episode:
Galdrabox
Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is
Ástargaldur
Hreinsunar og verndargaldur
Manifest galdur
d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Komdu í áskrift
114. Afhverju eru þessir vísindamenn að deyja?
2026/08/17
Rúmlega tíu toppvísindamenn með háleynilega öryggisvottun í geimvísindum og kjarnorkutækni hverfa eða finnast látnir við furðulegar aðstæður, spyrja netverjar sig, er þetta tilviljun? Sú staðreynd að eftirlitsnefnd Bandaríkjaþings og FBI þurftu að skerast í leikinn þykir mörgum sanna að stjórnvöld séu að reyna að stýra umræðunni og hylma yfir sannleikanum.
Nýjasta tilvikið er hann Joe Felz sem lést núna í sumar, hann safnaði og skjalfesti sjaldgæf fornrit og gamlar biblíur, sem vöktu mikla athygli.
Það sem margir þessara vísindamanna og uppljóstrara eiga sameiginlegt er það að margir hafa gert yfirlýsingar um það að þau hafi ekki verið í sjálfsvígshugleiðingum og ef þau myndu finnast látin þá væri það ekki á þeirra vegum heldur einhver annar sem var þeim að bana. Það er stór undarlegt að margir þessara vísindamanna höfðu svipaðar sögur að segja, t.d. með það að fylgst hafi verið með þeim, sum höfðu verið fyrir hljóðbylgju árásum eða verið elt á röndum í einhvern tíma til þess mögulega að láta þau hljóma og líta út fyrir að hafa misst vitið og síðan "framið sjálfsvíg".
Er þetta tilviljun? Eru þau öll látin? Eða er mögulega djúpríkið með þau í haldi að plotta eitthvað svakalegt.....?
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
113. Tvífarar
2026/08/10
Eigum við okkur öll tvífara? Einhver sem gengur um á jörðinni sem er alveg eins en hefur ekki hugmynd um það?
Í þessum þætti ætlum við að tala um tvífara. Er þetta fyrirbæri bara algjörlega tilviljunarkennt eða er eitthvað yfirnáttúrulegt á bakvið það?
Paul McCartney lenti í slæmu bílslysi Þegar Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar og vilja margir meina að hann hafi látist í slysinu og var fenginn tvífari til að taka við. Stórt samsærismál hefur verið um söngkonuna Avril Lavigne að hún hafi í raun látist ung og að tvífari hafi tekið hennar stað.
Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Podcast reviews
Read Hið yfirnáttúrulega podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Hið yfirnáttúrulega relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.662872000
The Dr. Laura Podcast
Dr. Laura Schlessinger & SiriusXM

4.920741185
Toni and Ryan
Toni Lodge and Ryan Jon

4.824771883
Deck The Hallmark
Bramble Jam Podcast Network

4.762602000
The Lawfare Podcast
The Lawfare Institute

4.736021313
The Bonfire with Big Jay Oakerson and Robert Kelly
SiriusXM

4.723812000
Everything Everywhere Daily
Gary Arndt

4.6221732000
Mark Levin Podcast
Cumulus Podcast Network

4.732711972
The President's Daily Brief
The First TV

4.913561971
Wholesaling Inc with Brent Daniels
Find distressed properties for pennies on the dollar and turn them for huge profits!

4.814621650
The Big Honker Podcast
Andy Shaver & Jeff Stanfield