
Advertise on podcast: Silfrið
This podcast has
48 episodes
Language
IcelandicPublisher
RÚV HlaðvörpExplicit
No
Date created
2025/09/02
Latest episode
2026/10/27
Average duration
53 min.
Release period
12 days
Description
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Unlock Silfrið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details
Email contact information
Direct podcast contact details

Listeners
Audience numbers & engagement insights

Audience details
Podcast Insights

Podcast episodes
Check latest episodes from Silfrið podcast
Aðför að landsbyggðinni?
2026/10/27
Hallar á landsbyggðina í verkum ríkisstjórnarinnar? Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar og jafnvel talað um aðför í því sambandi. Sem dæmi eru nefnd breytingar á Loftbrú, hækkun veiði- og kílómetragjalds, náttúru- og vinnviðagjald, sameining lögregluembætta og fleira. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, Dagur B. Eggertsson, varaformaður fjárlaganefndar, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði, fara yfir stöðuna í Silfrinu í kvöld. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Heilbrigð þjóð í hraustum líkama
2026/10/19
Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar? Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Samtal við forsetann
2026/10/12
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, er gestur Silfursins. Um helgina stóð hún fyrir viðburðinum Tölum saman, þar sem ungt fólk ræddi hvernig samfélag það sér fyrir sér og hvernig við nýtum gervigreind til góðs. Þá átti hún fund með alþjóðlegum leiðtogum í Höfða í gær, í tilefni af því að 40 ár voru liðin frá Höfðafundinum. Í síðari hluta þáttar erum við á vettvangi dagsins með þeim Hallgrími Helgasyni, rithöfundi, Ásthildi Sturludóttur, fyrrverandi bæjarstjóra, og Höllu Hrund Logadóttur, alþingismanni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Atvinnuleysi á tímum gervigreindar og Anne Applebaum
2026/10/05
Meira en 180 manns misstu vinnuna í hópuppsögnum í september. Stór hluti þeirra eru forritarar og tölvunarfræðingar; auk þess sem bankastarfsmenn og opinberir starfsmenn, t.d. lögfræðingar hafa verið að missa vinnuna í smærri uppsagnarlotum. Er áhrifa fjórðu iðnbyltingarinnar, gervigreindarbyltingarinnar, farið að gæta á íslenskum vinnumarkaði? Hvernig er best að bregðast við þeim nýju kröfum sem gervigreindin gerir á vinnustöðum landsins? Gestir þáttarins eru Ásta Ásgeirsdóttir deildarstjóri greiningardeildar Vinnumálastofnunar, Hjálmar Gíslason formaður starfshóps um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku stéttarfélags og Þorsteinn Víglundsson formaður Samtaka iðnaðarins og fyrrverandi félagsmálaráðherra. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsækir Ísland í dag. Í seinni hluta þáttarins verður rætt við einn þekktasta stjórnmálagreinanda samtímans, bandaríska sagnfræðinginn og blaðamanninn Anne Applebaum, um breytta utanríkismálastefnu Bandaríkjanna, uppgang og aukið samstarf einræðisstjórna í heiminum, og stöðu Íslands. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Siðferðislegt hugleysi og heimurinn í dag
2026/09/28
Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum. Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Jón Ólafsson heimspekingur ræða stöðuna í alþjóðamálum. Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Trumpískar vindmyllur og tjóðruð gervigreind
2026/09/21
Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna.
Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Þessi þungu högg - sleggjan og hallalaus fjárlög
2026/09/14
Fjárlagafrumvarpið og þingmálaskrá vetrarins verða efst á baugi í Silfrinu í kvöld. Eru hallalaus fjárlög lykillinn að lægri verðbólgu eða eru skatta- og gjaldskrárhækkanir olía á eldinn?
Þingmennirnir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Sigurjón Þórðarson og Þórarinn Ingi Pétursson fara yfir stöðuna
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Ísland - hvað nú? Verkefnalistinn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna
2026/09/08
Þjóðin hefur svarað spurningunni um það hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB. Svarið var neitandi, en þó standa eftir margar spurningar sem þarf að svara á næstu misserum. Silfrið verður helgað þeim verkefnum sem framundan eru í hagkerfinu og samskiptum Íslands við umheiminn, m.a. í gegnum EES-samninginn og Atlantshafsbandalagið.
Gestir verða Benedikt Gíslason, forstjóri Arion banka, Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, Björn Bjarnason, fv. dómsmálaráðherra, Sigríður Mogensen, sviðstjóri hugverka og iðnaðar hjá Samtökum iðnaðarins, Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi Vinstrisins.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Formenn gera upp þjóðaratkvæðagreiðslu
2026/09/01
Meirihluti kjósenda hafnaði í gær að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi gera þjóðaratkvæðagreiðsluna upp í Silfrinu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Kjör almennings og viðsjár í veröldinni
2026/09/01
Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi.
Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Atvinnulífið, fullveldið og Evrópusambandið
2026/09/01
Fólkið og fyrirtækin í landinu velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En önnur verkefni bíða líka; forsendur kjarasamninga eru brostnar og óvíst hvernig megi berja í brestina svo samningarnir haldi. Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur líka vakið þjóðina til umhugsunar um fullveldi sitt og sambandið við umheiminn.
Gestir þáttarins eru Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands og sagnfræðingur, Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims hf., Halla Gunnarsdóttir formaður VR stéttarfélags og Sveinn Sölvason forstjóri Emblu Medical/Össurar.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Formenn takast á um aðildarviðræður
2026/09/01
Silfrið hefur göngu sína á ný að loknu sumarleyfi. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi - Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Inga Sæland, Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Lilja Alfreðsdóttir - mætast í beinni útsendingu. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
36. þáttur: Um hvað yrði samið í nýjum aðildarviðræðum?
2026/06/09
Hvað gerist ef þjóðin greiðir atkvæði með því að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið 29. ágúst?
Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra og aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðunum 2009-2013 segir frá samningaferlinu og því ferli sem tekur við ákveði Íslendingar að ganga aftur að samningaborðinu.
Í síðari hluta þáttarins koma Gylfi Magnússon hagfræðiprófessor við HÍ, Margrét Einarsdóttir prófessor í Evrópurétti við HR, Kolbeinn Árnason ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytisins og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur og ræða helstu málefni sem þyrfti að semja um í aðildarviðræðunum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
35. þáttur: Hvað myndi það þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið
2026/06/05
Í þætti kvöldsins verður rætt um hvað það myndi þýða fyrir Ísland að ganga í Evrópusambandið.
Gestir þáttarins:
Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra úr Viðreisn
Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
34. þáttur: Örmagna oddvitar gera upp kosningar
2026/05/18
Silfrið verður á sunnudagskvöldi í þessari viku vegna sveitarstjórnarkosninga.
Oddvitar þeirra sjö framboða sem náðu kjöri í Reykjavík fara yfir kosningaúrslitin og ræða hugsanlegar meirihlutamyndanir.
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Podcast reviews
Read Silfrið podcast reviews
Podcast sponsorship advertising
Start advertising on Silfrið relevant audience podcasts
You may also like to advertise on these Podcasts

4.7278812000
The Matt Walsh Show
The Daily Wire

4.84323901
The Liz Wheeler Show
Blaze Podcast Network

4.97421822
Despertando
Dudas Media

4.922742003
First15 Devotional
First15

4.813862000
Daily Tech News Show
Tom Merritt

4.725221000
Chicks on The Right Show w Mock and Daisy
Chicks On The Right - Radio America

4.629942052
Optimal Living Daily - Personal Development and Self-Improvement
Justin Malik

4.732101362
Money Guy Show
Brian Preston and Bo Hanson

4.819452000
Football Ramble
Stak

4.6432811265
Verdict with Ted Cruz
Premiere Networks