1837967029
Gímaldið

Advertise on podcast: Gímaldið

Categories
Country
United States
This podcast has
100 episodes
Language
Icelandic
Publisher
Gímaldið
Explicit
No
Date created
2025/09/05
Latest episode
2026/10/24
Average duration
39 min.
Release period
5 days

Description

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Unlock Gímaldið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Gímaldið podcast


Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar
2026/10/24
Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög. Ekki síst hefur hann verið öflugur sagnamaður, sett hlutina í samhengi með persónulegri nálgun og miðlað óskiljanlegum niðurstöðum rannsókna vísindasamfélagsins á aðgengilegan hátt sem snúa að loftslagsbreytingum, súrnun sjávar og afleiðingum þess. Þrátt fyrir þessa velgengi hefur ekkert verið auðvelt að standa undir þessu. Andri hefur sætt hörðum árásum úr mörgum áttum, það hefur markvisst verið gert lítið úr hans vinnu og hann hefur átt í vök að verjast á köflum. Hann segist sjálfur eiga í ást- og haturssambandi við að vera þessi talsmaður náttúrunnar og fengið hjartsláttartruflanir af álagi sem því hefur fylgt. Auk þess upplifir hann sterkt að sumt fólk skilur hreinlega ekki og gæti ekki staðið meira á sama um loftslagsbreytingar, súrnun sjávar og bráðnun jökla og áttar sig ekki á hvaða raunverulegu afleiðingar það hefur. Hann upplifði líka hálfgerða kulnun, sem enginn vissi hvað var fyrir tuttugu árum, eftir útgáfu Draumalandsins og hefur saknað Andra Snæs sem skrifaði ljóðrænar skáldsögur og barnabækur. Helga Arnardóttir ræddi við Andra Snæ Magnason í hlaðvarpi Gímaldsins. Í viðtalinu ræðir hann um myndina Tímann og vatnið, um baráttuna fyrir náttúrunni og segir frá nýrri bók sem hann er með í smíðum og kemur út á næsta ári.    Bókin Um tímann og vatnið sem kom út árið 2019 hefur farið sigurför um heiminn og verið þýdd á 32 tungumál. Andri hlaut ítölsku verðlaunin Premio Tiziano Terzani árið  2021 fyrir bókina Um tímann og vatnið þar sem dómnefnd sagði verkið vera áhrifaríkt neyðarkall til heimsbyggðarinnar.Heimildarmyndin TIME and WATER í leikstjórn Íslandsvinarins Sara Dosa í samvinnu við National Geographic var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni í janúar 2026.  Myndin er unnin upp úr bók Andra og umfangsmiklu fjölskyldumyndasafni sem hann hefur viðað að sér í gegnum árin frá afa sínum og ömmu sem voru jöklafarar og miklir náttúruunnendur. Í maí 2026 hlaut Andri Snær WWF-Póllandsverðlaunin - Rödd fyrir lifandi plánetu sem veitt voru fyrir þátttöku hans og hlutverk í heimildarmyndinni Um tímann og vatnið (National Geographic), en verðlaunin eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða í þágu náttúrunnar. Í september 2026 fékk Andri Snær náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti á degi íslenskrar náttúru en verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.   Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu
2026/10/20
Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna. Meðal efnis í þættinum: Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Eggertssonar innan Samfylkingarinnar? Rýnt í hvernig þeir hafa spilað ólíkt úr sinni stöðu. Áform um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár eru komin í samráðsgátt.Bankastjórar þriggja stærstu bankanna vilja afnema verðtrygginguna. Af hverju gengur ríkisstjórnin ekki lengra?Hvaða áhrif hefur styttri lánstími á tekjulága fyrstu kaupendur?Lífeyrissjóður varar við: verðtryggð lán geti verið skynsamleg í hávaxtaumhverfi.Af hverju megum við ekki bera okkur saman við Færeyinga? Þar bjóðast 30 ára lán á 4,8% föstum vöxtum.Matarverð: Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir á sama tíma og verslanir frysta verð.Hvernig hefur þingmönnum farnast sem yfirgefa þingflokka sína á miðju kjörtímabili?Forystuleysi, veikindaleyfi og þingflokkur án formanns: hvað er að gerast innan Viðreisnar?Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim
2026/10/15
Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd. Árni Sveinsson starfaði í átján ár sem ráðgjafi fyrir foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar reglulega feður sem voru að koma úr afplánun. Meistararannsókn hans í afbrotafræði við Háskóla Íslands ber yfirskriftina „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ og tók hann viðtöl við fimm feður sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni. Erla Hlynsdóttir blaðamaður ræðir við Árna um rannsóknina.  Meðal þess sem fram kemur: Feðurnir lýsa aðstæðum til heimsókna í fangelsin sem kuldalegum og óbarnvænum.Viðmót starfsfólks á vakt getur breytt tilhlökkun og gleði í kvíða og óöryggi, bæði hjá börnunum og feðrunumEinn faðirinn sem fékk dóttur sína í heimsókn var miður sín eftir að kynlífshljóð heyrðust þaðan sem aðrir fangar tóku á móti maka sínum. Annar faðir sem afplánaði á Kvíabryggju fór út með börnin til að létta andrúmsloftið en þegar þau komu aftur inn lágu dæmdir barnaníðingar á dótinu þeirra. Það er á herðum nánustu ættingja að koma með börnin í heimsókn til föður síns í fangelsið. Að vera fluttur í fangelsi sem er lengra í burtu frá þeim getur gert heimsóknir stopulli.Mæður fanganna, ömmurnar, lögðu mikið á sig til að viðhalda tengslum þeirra og barnanna.Félagsleg stimplun fylgir þeim út úr fangelsinu og þeir upplifa kvíða við að gera hversdagslega hluti á borð við að fara út í búð eða mæta í skóla barnanna sinna.Einn af feðrunum sem Árni ræddi við var að taka einn við uppeldi dóttur sinnar þegar hann kæmi úr fangelsi og óttaðist að gera mistökSkortur á stuðningi við þá sem foreldra innan fangelsiskerfisins og þegar þeir eru búnir að ljúka afplánunÁrni segir það samfélagslega mikilvægt að styðja þessa feður, ekki aðeins þeirra vegna heldur líka vegna barnanna þeirra. Viðmælandi í þættinum er Árni Sveinsson. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf
2026/10/10
Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi? Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason rýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar frammistaða íslenskra nemenda er borin saman við önnur lönd og fyrri kannanir. Þeir útskýra hvers vegna PISA er í raun eins og risastórt skákmót þar sem andstæðingurinn er prófspurningin.  Í þættinum er meðal annars farið yfir: Hvers vegna PISA er ekki próf í hefðbundnum skilningi og hvernig Elo-stig úr skák skýra útreikninganaHvaðan 500 stiga viðmiðið kemur og hvað 422 stig í lesskilningi þýða í raunHæfniþrepin og hvers vegna OECD líkir þeim við fatastærðirAf hverju PISA segir margt um hópa en lítið um einstaka nemendurFallið 2018–2022 í samanburði við lækkunina 2022–2025, og Ísland í samanburði við DanmörkuCovid, lesfimi og skortinn á árlegum mælingumHvers vegna England hefur haldið sínu striki og hvað íslenska PISA-skýrslan segir um stöðugleika í stefnumótunFjölgun nemenda af erlendum uppruna og samsetningaráhrifÞýðingar á prófspurningum: skipta þær máli?PISA sem hitamælir en ekki greiningartólSirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út þar sem rýnt er í fréttir í tölum og tölur í fréttum. Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar?
2026/10/08
Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega blaðamenn?  Þetta eru hugtök sem margir rugla saman enda ekki furða því hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari í íslensku fjölmiðlaumhverfi. Í þessum þætti verður gerð tilraun til að skýra af hverju hlaðvörp, hvort sem þau eru skemmtiefni eða eitthvað annað, teljast fjölmiðlar í skilningi laganna eins og þau eru núna en umsjónarmenn þeirra teljast ekki endilega blaðamenn. Helga Arnardóttir blaðamaður Gímaldsins ræðir við Elfu Ýr Gylfadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og Sigríði Dögg Auðunsdóttur formann Blaðamannafélagsins sem ætla að reyna greiða úr þessari hugtakaflækju.  Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur engu að síður boðað breytingar  á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa.  Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá.  Áskriftum af hlaðvörpum fjölgar á meðan áskriftum af fréttafjölmiðlum fækkar samkvæmt úttekt Fjölmiðlanefndar. Nokkrir umsjónarmenn vinsælla hlaðvarpa sem teljast fjölmiðlar samkvæmt lagalegri skilgreiningu hafa neitað, af prinsipp ástæðum segja þeir, að skrá hlaðvörpin sín sem fjölmiðla og horfa nú fram á íþyngjandi sektir frá hinu opinbera þrátt fyrir að tvö dómsmál hafi í raun staðfest að hlaðvörp séu sannarlega fjölmiðlar.  Eru fjölmiðlalögin úrelt eftir að hlaðvörpin fóru að ryðja sér til rúms í ríkari mæli?  Nei, segir Elfa Ýr Gylfadóttir fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar sem telur lögin mjög skýr í þessu efni  og raunar séu þau nútímalegri en í mörgum öðrum löndum þar sem þau séu tæknióháð.  Af hverju vilja sumir umsjónarmenn hlaðvarpa ekki skrá þau sem fjölmiðla þótt það sé að öllu leyti frítt og hvaða afleiðingar hefur það að gera það ekki?  Hver er kosturinn við það að skrá sig og hvaða vernd hefur það í för með sér fyrir bæði almenning og fjölmiðilinn sjálfan? Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur boðað breytingar  á fjölmiðlalögum þar sem til stendur að endurskoða lögin í heild sinni og hluti af því snýr að skráningarskyldu hlaðvarpa.  Til stendur að leggja fram breytingar á lögunum í mars á næsta ári samkvæmt þingmálaskrá. Viðmælendur í þessum þætti eru Elfa Ýr Gylfadóttir framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins  Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“
2026/10/04
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum.  Meðal umræðuefna: Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.Viðtalið við Kristrúnu á Gímaldinu: https://gimaldid.is/kristrun-samfylkingin-hafdi-fjarlaegst-hinn-venjulega-islending/ Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi
2026/10/01
Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa komin í einhvers konar skuggastríð. Vopnin eru ekki hefðbundin stríðstól heldur svartir listar, frysting eigna og efnahagsþvinganir.  Aðalheiður Ámundadóttir stjórnmálaskýrandi Gímaldsins rýnir í svörtu listana, en á þeim eru ekki lengur bara ólígarkar og auðmenn heldur áhrifavaldar og álitsgjafar. Eyrún Magnúsdóttir stýrir þættinum.  Meðal efnis:  Evrópusambandið samþykkti á dögunum að framlengja gildistíma á lista yfir 3.000 Rússa sem taldir eru ógna Evrópu.Drónaárásin í Leipzig, lofthelgisbrot í Finnlandi og vaxandi fjölþáttaógnir í Evrópu„Móðurlistinn“ frá 2014 með um 3.000 nöfnum og „áróðurslistinn“ frá 2024 með rúmlega hundrað nöfnumHverjir eru á listunum og hverjir hafa losnað þaðan?Neitunarvaldið og dramatíkin í Brussel í september, þegar listinn var framlengdur til þriggja ára gegn því að tveir menn færu af honumViðbrögð Úkraínu og krafan um að Vladimir Lisin og Vladimir Potanin fari á listannEvrópa hlífir þeim sem hún þarf sjálf á að halda, stáli, nikkeli og palladíumFjölmiðlakonan Xenia Fedorova af RT France sett á áróðurslistann í september Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli
2026/09/28
Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið þitt lækkar einhvern tímann? Í þessari umfjöllun er útskýrt á mannamáli hvernig síhækkandi vísitala hefur langvarandi áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána, hvernig þau eru reiknuð og hvað þarf til að þau lækki. Þá eru borin saman lánakjör hér á landi og í Danmörku með tilliti til lánaforma og vaxtakjara. Rætt er við Helgu Björgu Helgadóttur á 68. aldursári sem hugar brátt að starfslokum. Hún keypti íbúð árið 2005 í Norðlingaholti ásamt eiginmanni sínum. Þau endurfjármögnuðu fasteignalánin í Covid 2020 þegar vextir voru sögulega lágir.Eftir þrálátt verðbólguskeið og hátt vaxtastig síðustu ár hafa verðtryggðu lánin á íbúð Helgu hækkað um 11 milljónir og greiðslubyrðin tvöfaldast.Rætt er við Ragnhildi Þórðardóttur sálfræðing og heilsuáhrifavald betur þekkt sem Ragga nagli, sem hefur búið í Kaupmannahöfn síðan 2009 og keypti íbúð þar með hefðbundnu óverðtryggðu láni.Kjör Helgu og Ragnhildar eru borin saman því munurinn er mikill. Á meðan 11 milljónir hafa hlaðist á höfuðstól verðtryggðu láni Helgu hefur Ragnhildur greitt niður 16 milljónir af sínu hefðbundna óverðtryggða láni í Danmörku.Skýrt verður út fyrir fólki hvernig hin svokallaða vísitala neysluverðs þróast með hækkandi og lækkandi verðlagi á vörum og þjónustu sem við landsmenn kaupum og hvernig það hækkar eða lækkar lánin okkar.Stærðfræðingur Ásta Jenný Sigurðardóttir útskýrir hvernig síhækkandi vísitala hækkar verðtryggð lán landsmanna og forstöðumaður hjá áhættustýringu Íslandsbanka útskýrir hvernig verðtryggðu lánin eru reiknuð með vísitöluhækkun.Viðmælendur í þættinum: Helga Björg HelgadóttirRagnhildur ÞórðardóttirBreki KarlssonÁsta Jenný SigurðardóttirKristján Rúnar KristjánssonBendikt Gíslason Handrit og dagskrárgerð: Helga ArnardóttirHljóðvinnsla og tónlist: Bragi Þór HinrikssonMynd: Pixabay Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“
2026/09/19
Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra. Hópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, sex þingmenn úr hverju kjördæmanna sex. Hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti og þeim útdeilt til kjördæma í hlutfalli við tölu kjósenda á kjörskrá. Þá leggur hópurinn til að úthlutun jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt svo hún verði stöðugri. Meðal efnis í þættinum:  Framsóknarflokkurinn hagnaðist mest á misvægi milli flokka á 20. öld. Árið 1931 fékk flokkurinn 36 prósent atkvæða en 58 prósent þingmanna.Landsbyggðin nýtur forréttinda í atkvæðavægi á Íslandi og í Noregi en hefur enga aukamenn í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi.Engin gögn sýni að hagur landsbyggðarinnar sé betri þar sem hún nýtur forréttinda í kosningakerfinu.Ólafur segir áhyggjur af hagsmunum landsbyggðarinnar minna á þá fyrirgreiðslupólitík sem var allsráðandi á síðustu öld.Hvert kjördæmi fengi sex kjördæmissæti og 27 jöfnunarsæti myndu skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda.Norðausturkjördæmi fengi aðeins sex þingmenn en Kraginn fengi átján þingmenn.Hringekja jöfnunarsæta á kosninganótt yrði minna vandamál með tillögum hópsins og uppákoma á borð við Borgarnesendurtalninguna 2021 endurtæki sig ekki.Samfylkingin fékk þrjá þingmenn í kosningunum 2016, alla af landsbyggðinni, þótt flokkurinn hefði mest fylgi í Reykjavík. Tillögur hópsins hefðu breytt því.Réttur til að greiða atkvæði til vara gæti komið í veg fyrir að atkvæði til smáflokka falli dauð. Hópurinn leggur það ekki til en bendir á þann möguleika.Þingmenn hafa verið 63 frá 1987 og Ólafur telur mörg rök mæla með fjölgun þeirra, þótt hún sé óvinsæl.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. Ljósmynd: Ragnar Visage/RÚV
Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál
2026/09/18
Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin.  Meðal þess sem rætt er í þættinum: Haustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.Stemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.Þingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.Öryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.Tóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.Ráðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.Auknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskráNokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.Ræða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Ekkert óveðursský yfir Alþingi
2026/09/14
Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þinginu.  Meðal efnis í þættinum: Er óveðurský yfir Alþingi þetta haustið?Hvernig forseti býr sig undir erfiðar umræður.Ofstopi, hótanir og hatursorðræða gegn þingmönnumFram að jólum hefjast allir þingfundir á sama tíma, kl.13:30. Þetta er tilraun þingforseta til að gera þingið að betri vinnustaðFarið verður í saumana á þingsköpunum og gerð atlaga að breytingum ef vilji og skýr markmið eru fyrir hendi.Fundarstjórn forseta: Stundum verða menn að fá að pústa.Eru allir jafn áfram um að þingstörfin gangi vel? Heimsókn þingforseta Úkraínu í ágúst og samstarf þingforseta.Er Alþingi úrelt tæknilega séð?Í lokin: þingstörf komandi viku og andlegt ástand flokkannaÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“
2026/09/11
Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það.  Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 sem fyrst og segir málið ekki koma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu við á nokkurn hátt. Hún telur afleiðingarnar alvarlegar verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið tapi því.Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp um innleiðingu bókunarinnar á þingi í þessum mánuði. Þetta verður í fjórða skipti sem frumvarpið er lagt fram, tvisvar sinnum hefur það dagað uppi í tíð núverandi ríkisstjórnar og einu sinni í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Nú telja stjórnarflokkarnir brýnt að bókunin verði innleidd til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að þörf sé á lögfestingu Bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi. Í þættinum er farið yfir hvernig viðsnúningur í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands síðustu ár hefur haft þau áhrif að nú er íslenska ríkið undir miklum þrýstingi að innleiða bókunina.  Helga Arnardóttir hefur umsjón með þættinum.
Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum
2026/09/04
Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað.  Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins. Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðlaÞjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilarHvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistökDraumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifendaHvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máliReglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldinAf hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmálHvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeimHefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á [email protected] — eða almennar ábendingar á [email protected].
Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar
2026/09/01
Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar. Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum: Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni? Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?Eru ræðuhöld aftur komin í tísku?  Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Brexit stundin runnin upp
2026/08/28
Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum fullyrðingum er haldið á lofti sem aldrei fyrr. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Helga Arnardóttir fara yfir stöðuna á lokaspretti baráttunnar. Þær ræða kappræður, skoðanakannanirnar, baráttuaðferðir, upplýsingaóreiðuna og lygarnar og ábyrgðarleysið sem fylgir þjóðaratkvæðagreiðslum.  Engin könnun hefur sýnt marktækan eða afgerandi mun á fylkingum. Niðurstaðan mun ráðast á lokametrunum og því hverjir mæta á kjörstað.Kappræðurnar á RÚV skorti staðreyndavöktun en Kristrún tók hana að sér. Sólveig Anna með nýja sýn á stéttamun í íslensku samfélagi. Aldrei fyrr verið logið jafn mikið um orkumál.Ábyrgðarleysið er kerfisgalli þjóðaratkvæðagreiðslna: hver svarar fyrir lygarnar á sunnudaginn?Geta samfélagsmiðlar talist vettvangur lýðræðis af því allir hafa míkrófón?Er þjóðaratkvæðagreiðslan sjálf ef til vill ólýðræðisleg í eðli sínu?Bankastjóri Arion banka segir verðtrygginguna úrelta og lánasambandið óheilbrigt.Sama hvernig fer á laugardag: neytendamál, matarverð og vextir eru komin á kortiðÞátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. Athugið að í upphafi fór röng hljóðskrá inn en henni var skipt út eftir nokkrar mínútur. Hljóð í upphafi eldri hljóðskrár var brotið, við biðjumst velvirðingar á því.

Podcast reviews

Read Gímaldið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Gímaldið relevant audience podcasts


What do you want to promote?