1840744033
Tvær á báti

Advertise on podcast: Tvær á báti

This podcast has
28 episodes
Language
Icelandic
Date created
2025/09/18
Latest episode
2026/10/12
Average duration
60 min.
Release period
20 days

Description

Álfrún Tryggvadóttir og Linda Heiðarsdóttir eru tvær miðaldra hlaupakonur sem hafa náð góðum árangri í hlaupum í aldursflokknum 40 – 49 ára. Þær þreytast ekki á að tala um hlaup og setja sér ný markmið. Í hlaðvarpsþættinum Tvær á báti ræða þær um hlaup út frá ýmsum hliðum, fá til sín góða gesti og segja hlaupasögur. Fyrst og fremst eru þær þó venjulegar konur að gera hlaðvarp fyrir venjulega hlaupara.

Unlock Tvær á báti podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Tvær á báti podcast


Íslandsmeistararnir!
2026/10/12
Álfrún og Linda fara yfir þrjú keppnishlaup síðustu viku ásamt æfingaálaginu í saunu. Nýkrýndur Íslandsmeistari fer yfir hlaupið í smáatriðum og hvernig svengdin hellist yfir fólk eftir maraþon.
Gucci gellan í Köben
2026/10/01
Í þættinum fara Álfrún og Linda yfir hálfmaraþonið í Kaupmannahöfn, verðlaun fyrir ekki pb og Valencia æfingablokk sem er að hefjast. Létt körfuboltahorn í lokin.
Samkeppni í flokkinn!
2026/09/14
Linda og Álfrún heyra í Fríðu Hrund sem er einmitt líka fædd 1982 og hefur náð eftirtektarverðum árangri í flokknum 40-44 ára á liðnu hlaupasumri. Þær fara líka yfir æfingar liðinnar viku, frábært Hjartadagshlaup og stutta innsýn inn í hálft maraþon í Porto.
Gríðarleg eftirspurn!
2026/09/07
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar opna Linda og Álfrún hlaupahaustið með einum léttum upphitunarþætti fyrir það sem koma skal hlaupahaustið 2026. Báðar ætla þær að gera aðra atlögu að Valencia heilu maraþoni í desember og munu leyfa hlustendum að fylgjast með æfingum og undirbúningi.
Stein Olav í Samfó!
2026/05/12
Á lokasprettinum í fyrir borgarstjórnarkosningar fengu Linda og Álfrún til sín Stein Olav sem er í 5. sæti hjá Samfylkingunni í Reykjavík. Hann er venjulegur hlaupari, langar að hlaupa maraþon, klára samgöngusáttmálann og fá fleira fagfólk inn í skólana. Hann er norskur og flutti til Íslands árið 2018.
Fritz í framboði!
2026/05/06
Linda og Álfrún halda áfram að fá til sín frambjóðendur á hlaupum. Að þessu sinni er það Bjarni Fritzson sem er í 8. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Hann er allt í senn rithöfundur, þjálfari, hlaupari, hlaupahaldari Græna Gímalds hlaupsins og frambjóðandi. Í spjallinu var farið um víðan völl í bókstaflegum skilningi!
Bakgarður og borgarstjórn
2026/04/29
Linda og Álfrún eru ekki bara að detta í hlaupagírinn fyrir sumarið heldur eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti og þær ætla að fá til sín góða gesti, frambjóðendur úr nokkrum framboðum sem eru líka venjulegir hlauparar. Í þættinum ræða þær við Söndru Hlín Guðmundsdóttur sem er í 6. sæti lista Viðreisnar í Reykjavík.
Afrek afrekanna
2026/04/01
Í þættinum fá Linda og Álfrún til sín frábæran viðmælanda sem þær hafa beðið eftir að spjalla við. Steinunn Lilja Pétursdóttir segir frá hlaupaferli sínum, hvernig hún æfir undir leiðsögn Fjallahlaupaþjálfunar, mikilvægi næringar og kolvetnainntöku og síðast en ekki síst ótrúlegu afreki hennar þegar hún hljóp Laugaveginn undir fimm tímum sumarið 2025.
100 km
2026/03/29
Í þættinum fylgjast Linda og Álfrún með Arnari Péturssyni stórbæta eigið Íslandsmet í 100 km. Á meðan ræða þær um hlaup vikunnar, eymsli sem Linda glímir við út frá kálfastífleika og hvernig Álfrún mætti næstum því á æfingu hjá hlaupahópi Þróttar.
Parísardömurnar
2026/03/20
Katrin.is kíkti í settið með hlaupasöguna frá París og fór yfir farsælan feril. Heyrðum líka í Fjólu í Fætur toga sem sagði okkur frá undirbúningi fyrir fyrsta Laugaveginn sem hún ætlar að hlaupa í sumar og gaf okkur góð ráð varðandi val á hlaupaskóm.
Næstum komnar á beinu brautina og ræðum brautina!
2026/03/03
Linda og Álfrún eru næstum komnar aftur á beinu brautina eftir að hafa lagt allt í sölurnar í maraþoni fyrir tæpum þremur mánuðum. Þær ræða einnig brautina, MÍ öldunga, MÍ 2026, hálft í París eftir viku og langan aðskilnað í febrúar.
Þjálfari ársins
2026/02/13
Þjálfari ársins hjá Þrótti, Jens Elvar Sævarsson mætti sem gestur og gestastjórnandi í fjarveru Álfrúnar. Hann er án gríns alltaf í góðu skapi og segist tileinka sér jákvæða hluti í fari annarra. Haustið 2025 byrjaði hann með hlaupahóp Þróttar og stefnir á að ná fjöldanum upp í 100 meðlimi. Það skemmir svo ekki fyrir að honum finnst hrikalega gaman að rausa um hlaup og heilbrigðan lífsstíl og smellpassaði því í settið.
Reiknum okkur góðar
2026/02/06
Í þættinum ræða Linda og Álfrún við Fríðu Rún hlaupakempu með meiru. Hlaupari á heimsmælikvarða í sínum aldursflokki. Hún sagði frá mjög áhugaverðum ferli, gaf góð ráð og kom á óvart með skemmtilegum sögum af sjálfri sér. Frábær hlustun fyrir langa hlaupið um helgina.
Raus um janúarlægðina
2026/01/29
Tvær á báti eru að komast upp úr janúarlægðinni og fóru um víðan völl í rausi dagsins. Félagaskipti, sól í perlu, hvernig þær komast reglulega í tísku og síðast en ekki síst mini körfuboltahorn.
Hulda Guðný-fimmtug á árinu og í fantaformi!
2026/01/16
Í þættinum fá Álfrún og Linda hlauparann Huldu Guðnýju Kjartansdóttur í viðtal en hún hljóp sitt besta maraþon í Valencia á dögunum. Þær þrjár fóru yfir hlaupaferil Huldu og markmiðin hennar fyrir 2026. Þegar þessar þrjár hittast er heldur betur malað og nauðsynlegt að hafa framhaldsþátt.

Podcast reviews

Read Tvær á báti podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Tvær á báti relevant audience podcasts


What do you want to promote?