1842134217
Jón Ólafs á spjallinu

Advertise on podcast: Jón Ólafs á spjallinu

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
47 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2025/09/25
Latest episode
2026/10/21
Average duration
116 min.
Release period
10 days

Description

Jón Ólafs á spjallinu er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón ræðir við skemmtilegt og áhugavert fólk um lífið og tilveruna. Hann hefur um árabil verið með annan fótinn í fjölmiðlum meðfram tónlistinni og komið víða við. Fjölmiðlaferilinn hóf hann sem blaðamaður á Tímanum og þegar Rás 2 var stofnuð var Jón einn fjórmenninganna sem stýrðu fyrsta þættinum á stöðinni. Ekki leið á löngu þar til hann fór í sjónvarp og margir kannast við þættina Af fingrum fram sem svo breyttust í spjalltónleika í Salnum sem sér ekki fyrir endann á. Það er von Jóns að hlustendur verði margs vísari að lokinni hlustun.

Unlock Jón Ólafs á spjallinu podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Jón Ólafs á spjallinu podcast


47.þáttur: Vilhjálmur Guðjónsson
2026/10/21
Það er óhætt að segja að Vilhjálmi Guðjónssyni sé margt til lista lagt.  Hann teflir 3-4 skákir á hverjum degi og þeysir þess á milli á mótorhjólinu út um allar koppagrundir.  Vilhjálmur nýtur mikillar virðingar í íslenskum tónlistarheimi enda einn fjölhæfasti tónlistarmaður sem Ísland hefur alið.  Nánast öll hljóðfæri leika í höndunum á honum þó saxófónninn og gítarinn séu þar fremst í flokki.  Hann hefur stjórnað fjölda hljómsveita, allt frá rokktríóum til stórsveita; samið fyrir leikhús og kvikmyndir auk þess sem hann átti um árabil 80-90% allra auglýsingastefja sem við heyrðum á öldum ljósvakanna.  Vilhjálmur er einn af frumherjum Tónlistarskóla FÍH og þeir eru ófáir tónlistarmennirnir sem hann hefur kennt á löngum ferli.
46.þáttur: Sr. Davíð Þór Jónsson
2026/10/14
Davíð Þór Jónsson varð fyrir einelti þegar hann flutti, ungur drengur, í Hafnarfjörðinn og því linnti ekki fyrr en hann skipti um lið og gerðist gerandi sjálfur.  Hann fann hamingjuna í Flensborgarskóla þar sem hann kynntist sínum bestu framtíðarvinum við félagsmálastörf.  18 ára gamall eignaðist Davíð sitt fyrsta barn og var í litlu sambandi við dóttur sína lengi framan af ævi hennar en í dag eru þau góðir vinir.  Þrisvar sinnum sótti hann um inngöngu í Leiklistarskóla Íslands en var hafnað í öll skiptin.  Þeir Steinn Ármann fóru svo í útvarpið og þátturinn þeirra hlaut nafnið Radíus og til urðu þá Radíusbræður sem skemmtu landsmönnum í mörg ár með húmor sem í dag þætti með öllu óviðeigandi.  Nú starfar Davíð Þór Jónsson sem prestur í Laugarneskirkju og en sinnir jafnframt kveðskapnum sem hann hefur stundað í áratugi.  Svo fer hann stundum í Taekwondo.
45.þáttur: Karen Kjartansdóttir
2026/09/30
Kjarnorkukonan, Karen Kjartansdóttir, vakti líklega fyrst athygli sem fréttamaður og í því starfi undi hún sér æði vel í áratug áður en hún spreytti sig í almannatengslum og fleiru.  Hún var óhrædd að liðsinna umdeildum fyrirtækjum og samtökum og er með tandurhreina samvisku.  Í dag starfar hún hjá Veðurstofu Íslands og unir sér vel.  Skrif hennar á fésbók um ólíklegustu málefni eru eftirtektarverð enda á hún til að greina hlutina í þaula áður en hún lætur eitthvað frá sér.  Karen gekk fyrir skemmstu yfir Grænlandsjökul og gerir ekki lítið úr þeirri þrekraun.
44.þáttur: Eyþór Gunnarsson
2026/09/18
Eyþór Gunnarsson hefur í áratugi verið einn fremsti hljómborðsleikari þjóðarinnar.  Hann vakti ungur athygli fyrir hæfileika sína og 16 ára gamall var hann farinn að leika á böllum með hljómsveitinni Tívolí.  Þar kynntist hann Ellen Kristjánsdóttir sem síðar varð eiginkona hans.  Saman hafa þau hjón gengið í gegnum súrt og sætt og kvöddu Bakkus fyrir margt löngu sem var þeirra besta ákvörðun.  Á næsta ári verða liðin 50 ár frá því að þeir Eyþór, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson stofnuðu hljómsveitina Mezzoforte og stendur ýmislegt til.
43.þáttur: Lalli töframaður
2026/09/14
Lalli töframaður er besti vinur barnanna og nýtir eigin lífsreynslu óspart þegar hann skemmtir þeim.  Töfri töfri kallast sýning sem hann var að frumsýna í Tjarnarbíói og fjallar um ofurkraftana hans sem hann tengir við greiningar sínar, adhd, lesblindu og tourette.  Hann er menntaður smiður en undanfarin ár hefur hann nær eingöngu starfað sem skemmtikraftur á eins marga vegu og sá starfstitill rúmar.  Lalli hefur gefið út plötu, skrifað bók og er ávallt reiðubúinn í sínum grunnbúning að skemmta fólki - stundum með nær engum fyrirvara!
42.þáttur: Rán Flygenring
2026/09/02
Rán Flygenring ólst upp á heimili arkitekta og fyrir vikið var hún síteiknandi sem barn og sér ekki fyrir endann á þessu.  Hún ákvað að ferðast um heiminn og sjá hvort hún gæti framfleytt sér á meðan sem teiknari og höfundur.  Þetta gekk aldeilis upp en eftir tæpan áratug flutti hún aftur heim til Íslands, reynslunni ríkari.  Rán hefur sent frá sér fjölda bóka og myndskreytt fyrir sjálfa sig og aðra.  Hún er að læra á píanó auk þess sem hún spilar á selló.  Rán er mikill hvalavinur og hefur beitt sér gegn hvalveiðum á Íslandi.  Sundfíkn hefur litað líf hennar en hún ber höfuðið hátt.
41.þáttur: Margrét Valdimarsdóttir
2026/08/20
Við höfum öll sögu að segja og Dr. Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur er ekki þar undanskilin.  Æskuárin í Breiðholti voru erfið og hún varð vitni að ýmsu sem hún gat svo sannarlega nýtt sér síðar meir í afbrotafræðunum.  Hún vann í nokkur ár sem barþjónn áður en hún sótti um starf á útvarpsstöðinni FM 957 án þess að hafa nokkurn tímann hlustað á útvarpsstöðina.  Við tóku nokkur ár á ljósvakamiðlum en um þrítugt skellti hún sér í háskólanám.  Margrét hefur fjallað um viðkvæm málefni afbrotafræðinnar og er eftirsóttur álitsgjafi á sínu sviði.
40.þáttur: Jónatan Garðarsson
2026/08/05
Jónatan Garðarsson hefur setið allt um kring hið íslenska tónlistarborð og slær hvergi slöku við.  Hann hefur alla tíð alið manninn í Hafnarfirði og byrjaði ungur að safna hljómplötum og á þúsundir vinylplatna og geisladiska.  Jónatan lærði á hljóðfæri og söng með unglingahljómsveitum en fannst óspennandi að spila á böllum fyrir drukkið fólk og fann sér því aðra leið í faðm tónlistargyðjunnar.   Í áratugi hefur hann frætt okkur um tónlist á margvíslegan hátt í ljósvakamiðlum RUV, í dagblöðum og ritstýrt menningarþáttum.  Jónatan fellur seint verk úr hendi og hann hefur setið í hinum ýmsu nefndum og ráðum og koma þar trúmál, tónlist og náttúruvernd helst við sögu.
39.þáttur: Óskar Hrafn Þorvaldsson
2026/07/28
Óskar Hrafn er umtalaðasti þjálfari íslenskrar knattspyrnu þökk sé leiftrandi sóknarknattspyrnu sem meistaraflokkur KR í knattspyrnu býður upp á í hverjum leik.  Sjálfur raðaði hann inn mörkunum í yngri flokkunum en var svo færður í vörnina í 2.flokki.  Eftir nokkur ár í meistaraflokki KR hélt hann til Noregs í atvinnumennsku en þurfti að leggja skóna á hilluna aðeins 25 ára gamall.  Þá hóf hann að skrifa um knattspyrnu í dagblöð og sinnti með tíð og tíma ýmsum yfirmannsstörfum í fréttamennsku og var hvað lengst hjá 365 miðlum auk þess sem hann skrifaði skáldsögu árið 2010.   Óskar Hrafn var ekkert á leiðinni í þjálfun þegar hann fékk afdrifaríkt símtal úr vesturbænum og síðan hefur þjálfunin átt hug hans allan.
38.þáttur: Vigdís Hafliðadóttir
2026/07/22
Sviðsljósið skín skærar og skærar á Vigdísi Hafliðadóttur sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir margvíslega hæfileika. Eftir að hafa klárað MH þreytti hún inntökupróf í leiklist en komst ekki inn og vill meina að hún hafi nú bara haft gott af þeirri höfnun.  Hún ákvað að nema heimspeki við Háskóla Íslands auk þess að hleypa heimdraganum til Svíþjóðar og læra þar vísnatónlist af innfæddum.  Vigdís syngur og semur lög og texta með kvennahljómsveit sinni Flott og kemur fram sem uppistandari.  Frammistaða hennar í sjónvarpsþáttunum 20 og eitthvað og kvikmyndinni Ljósvíkingar er eftirminnileg og Vigdís er svo sannarlega fjölhæf og hæfileikarík.
37.þáttur: Gói
2026/07/11
Guðjón Davíð Karlsson (Gói) var aðeins 5 ára gamall þegar hann ákvað að verða leikari og í annarri tilraun komst hann inn í Leiklistarskólann.  Hann eyddi æsku- og unglingsárum í Þingholtunum og spilaði fótbolta með Megasi.   Gói var lagður í einelti sem barn einfaldlega af því að hann var prestssonur.  Hann segist hafa sloppið vel frá þessu af því hann átti svo góða vini.  Hann er þakklátur fyrir hlutskipti sitt og elskar að starfa í leikhúsinu.
36.þáttur: Pétur Pétursson
2026/07/03
Pétur Pétursson er einn besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar og var með eindæmum fundvís á netmöskva andstæðinganna.  Hann lék sem atvinnumaður í Hollandi, Belgíu og á Spáni og lék og æfði með mörgum frábærum leikmönnum eins og Mario Kempes og Ruud Gullit svo dæmi séu nefnd.  Hann setti markamet með uppeldisfélagi sínu ÍA á Akranesi og átti frábæran tíma með KR.  Pétur starfaði um árabil sem ljósmyndari og rak eigin ljósmyndastofu.  Hann þjálfaði kvennalið Vals árin 2017-2024 sem hampaði ófáum titlunum undir hans stjórn.  Þrátt fyrir þennan afbragðs árangur fékk hann að lokum reisupassann.  Pétur er mikill áhugamaður um tónlist og hefur látið sig dreyma um að læra hljóðupptökur, bassa- og gítarleik þó ekkert hafi enn orðið af því.
35.þáttur: Gunnar Árnason
2026/06/25
Gunnar hefur verið í fremstu röð íslenskra hljóðmanna í áratugi og hefur byggt sér glæsilegt hljóðver í Vatnsendahverfi Kópavogs. Hann hljóðsetur m.a. kvikmyndir, sjónvarpsþætti og auglýsingar  og er margverðlaunaður.  Gunnar hefur prófað nánast allt á Íslandi tengt hljóðhönnun og ein eftirminnilegasta ráðningin er þegar hann hljóðblandaði sjálfan Páfann.  Hann segir Magnús Kjartansson vera sinn helsta örlagavald í bransanum og fyrir nokkrum árum gaf hann besta vini sínum nýra.
34.þáttur: Brynhildur Björnsdóttir
2026/06/19
Brynhildur Björnsdóttir er leikkona, söngkona, mannfræðingur, bókmenntafræðingur, dagskrárgerðarkona, feministi og kattahaldari svo fáein dæmi séu nefnd.  Hún hefur svo sannarlega frá mörgu að segja enda reynt ýmislegt um ævina.  Þættir hennar, Hold, sem hún gerði fyrir Rás 1 hafa vakið mikla athygli.
33.þáttur: Björn Stefánsson
2026/06/11
Björn vakti fyrst athygli sem trommuleikari hljómsveitarinnar Mínus.  Hann kom öllum á óvart þegar hann ákvað að skella sér í leiklistarnám í Danmörku árið 2009.  Námið var hreint ekki auðvelt fyrir mann með óskilgreindan athyglisbrest auk þess sem það var á dönsku.  Eftirminnileg leikhlutverkin eru mörg en hann heldur mest upp á samleik þeirra Hjartar Jóhannssonar í Fjallabaki.  Alkóhólískt heimilishald hafði mikil áhrif á æsku- og unglingsár Björns sem er með bók í smíðum.

Podcast reviews

Read Jón Ólafs á spjallinu podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Jón Ólafs á spjallinu relevant audience podcasts


What do you want to promote?