1846107327
Menningarvaktin

Advertise on podcast: Menningarvaktin

This podcast has
20 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2025/10/14
Latest episode
2026/10/23
Average duration
63 min.
Release period
23 days

Description

Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig. 

Unlock Menningarvaktin podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Menningarvaktin podcast


Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon
2026/10/23
Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.
Magnús Jochum og Valur Grettisson #17
2026/10/08
Símon fékk þá Magnús Jochum og Val Grettisson til sín og þeir félagar fóru yfir það helsta í menningarlífinu þessa vikuna
Valur Grettisson og Ómar Úlfur #17
2026/09/24
Menningarvaktin fer aftur af stað eftir sumarið. Símon og Valur fara yfir leikárið og Ómar Úlfur mætir með nokkar góðar plötur.
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #16
2026/05/13
Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.
Magnús Geir Þórðarson #15
2026/05/07
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannaði að söngleikir þurfa ekki endilega að koma tilbúnir frá útlöndum. Þjóðleikhúsið var einnig í umræðunni í tengslum við skipun óperustjóra en Þjóðaróperan svokallaða endaði í samruna við Þjóðleikhúsið sem verður því miðpunktur óperustarfsemi í landinu næstu árin.
Egill Heiðar Anton Pálsson #14
2026/04/30
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og svo Hamlet -ein umdeildasta leiksýning ársins.
Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #13
2026/04/16
Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #12
2026/03/27
Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.
Jónas Sen og Finnur Bjarnason #11
2026/03/13
Velkomin á Menningarvaktina á Vísi. Hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Ég heiti Símon Birgisson og skrifa um leiklist á Vísi og hjá mér eru gestir þáttarins í dag - Jónas Sen tónlistargagnrýnandi Vísis og Finnur Bjarnason óperusöngvari og nýráðinn Óperustjóri. Tónlistin er undir nálinni hjá okkur í dag. á Finnur Bjarnason mun sitja fyrir svörum okkar á Menningarvaktina um hina nýju íslensku Óperu sem loksins er orðin að veruleika eftir miklar umræður og jafnvel deilur. Útvarpsmaðurinn Ómar Úlfur mætir til mín á Plötuvaktina með glænýja plötu hljómsveitarinnar Gorillaz þar sem Íslandsvinurinn Damon Albarn er í aðlhlutverki auk þess sem við ræðum um goðsögnina Magnús Eiríksson og nýútkomna safnplötu með hans bestu lögum. Og Menningarvaktin kíkti á þýska kvikmyndahátíð um helgina í Bíó Paradís og við Jónas rýnum í myndina Köln75 þar sem jazzgoðsögnin Keith Jarret og sögufrægir tónleikar hans í Kölnarborg eru í aðalhlutverki
Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #10
2026/02/26
Nýjar íslenskar kvikmyndir verða í aðalhlutverki í þessum þætti. Menningarvaktin skellti sér á frumsýningu stórmyndarinnar Röskun en framleiðendur myndarinnar hafa bent á að þetta sé eina íslenska kvikmyndin fullfjármagnaða íslenska kvikmyndin á árinu. Röskun var hins vegar ekki eina íslenska kvikmyndin frumsýnd í vikunni - Menningarvaktin skellti sér í Bíó Paradís á myndina Dimmalimm - Returning to Lulu sem er einskonar hugarfóstur Mikaels Torfasonar rithöfunds og eiginkonu hans, Stefaníu Berndsen, leikkonu og tekin upp í Covid. Plötuvaktin verður svo á sínum stað en þar mun Trausti Júlíusson rýna í tvær glænýjar íslenskar plötur - Julia eftir Ásgeir Trausta og Spíru - endurkomuplötu Ólafar Arnalds.
Sigríður Jónsdóttir, Valur Grettisson og Ómar Úlfur #9
2026/02/13
Gestir Menningarvaktarinnar eru Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagrýnandi og sérfræðingur leikminjasafns Íslands, Valur Grettisson blaðamaður og Ómar Úlfur Eyþórsdóttir útvarpsmaður. Í þættinum er fjallað um leiksýningarnar Ekki hugmynd í Borgarleikhúsinu og Bústaðinn í Tjarnarbíó. Við ræðum einnig hvaða lærdóm Þjóðleikhúsið getur dregið af velgengni Ormstungu og Óresteiu. Í seinni hluta þáttarins mætir Ómar Úlfur á vinylvaktina og við ræðum glænýja plötu Megadeth - síðustu plötu sveitarinnar og afmælisútgáfu plötunnar Geislavirkir með Utangarðsmönnum.
Magnús Jochum og Jónas Sen #8
2026/01/30
Gagnrýnendur Vísis þeir Magnús Jochum Pálsson og Jónas Sen voru gestir Símonar í Menningarvaktinni.
Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson #7
2026/01/15
Í nýjasta þætti Menningarvaktarinnar fóru gestir Símonar Birgissonar - þau Katla Ársælsdóttir og Valur Grettisson yfir bestu og verstu sýningar ársins 2025.
Sólveig Arnarsdóttir - hátíðarviðtal #6
2025/12/22
Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir settist niður með Símoni Birgissyni og ræddi um ferilinn og lífið.
Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar og Valur Grettisson #5
2025/12/11
Það er alvöru blaðamanna-tríó sem mætti í Menningarvaktina í þessari viku. Kolbrún Bergþórsdóttir, Jakob Bjarnar Grétarsson og Valur Grettisson ræddu menninguna í þaula.

Podcast reviews

Read Menningarvaktin podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Menningarvaktin relevant audience podcasts


What do you want to promote?