1853549559
Lyklavöldin

Advertise on podcast: Lyklavöldin

Categories
Country
United States
This podcast has
31 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2025/11/17
Latest episode
2026/05/01
Average duration
67 min.
Release period
7 days

Description

Þættir um pólitík og samfélagsmál.

Unlock Lyklavöldin podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Lyklavöldin podcast


“Þetta er mjög stórt mál fyrir okkur…!”
2026/05/01
Þingmennirnir Pawel Bartoszek og Guðlaugur Þór Þórðarson takast á um ESB í eldheitum rökræðum.  Hvort fólk skipti um skoðun á þessum málum eftir þáttinn er erfitt að segja en báðir færa sterk rök fyrir skoðun sinni.
“Aðeins 3 vikur í kosningar og spennan magnast”
2026/04/24
Fréttahaukarnir Aðalsteinn Kjartansson á Heimildinni og Stígur Helgason á RÚV fara yfir stöðuna þegar stutt er til sveitastjórnarkosninga. Þeir velta vöngum yfir helstu átakamálunum í landspólitíkinni og kosningum um aðildarviðræður við ESB.  Hvað gerist ef þjóðin segir nei?
“Reykjavíkurborg ber mestu sökina á hárri verðbólgu”
2026/04/16
Ari Edwald oddviti Miðflokksins og Kristinn Jón oddviti Pírata mætast í stórskemmtilegum rökræðum.  Þeir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, rekstur borgarinnar, lausnir í leikskólamálum og þjónustu við borgarbúa.  Þeir ræða líka væntingar sínar um hverjum þeir vilja starfa með að loknum kosningum.
Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 3. um þróun merkra svæða í Reykjavík.
2026/04/06
Í páskaþætti nr. 3 um þróun merkra svæða í Reykjavík fer Dr. Páll Jakob Líndal yfir sögu Slippsvæðisns eða Vesturbugtar. Páll hefur sterkar skoðanir á þróun svæðisins og er gagnrýnin á fyrirhugaða uppbyggingu þess.Hægt er að horfa og hlusta á þættina á Spotify og klakinnstudio.is
Lyklavöldin. Páskaþáttur nr. 2. um þróun merkra svæða í Reykjavík.
2026/04/05
Í þessum þætti segir Dr. Páll Jakob Líndal okkur frá sögu hafnarsvæðisins og þróun skipulagsins á Hafnartorgi og Austurbakka.
Lyklavöldin - Þrír sérstakir páskaþættir
2026/04/03
Dr. Páll Jakob Líndal segir okkur frá þróun merkra svæða í Reykjavík. Í fyrsta þætti tökum við fyrir Ingólfstorg. Páll Jakob rekur sögu svæðisins og leggur líka mat á hvað hafi heppnast eða farið miður í hönnun Ingólfstorgs. Í þætti tvö ræðum við þróun svæðisins við Hafnartorg og í þriðja þætti verður Vesturbugt (slippsvæðið) til umfjöllunar.
“Viltu ekki draga andann svo ég komist að…”
2026/03/27
Þingmennirnir Diljá Mist Einarsdóttir og Sigmar Guðmundsson voru í miklu stuði þegar þau mættu í Lyklavöldin.Við ræddum stöðu ríkisstjórnarinnar, lausnir í núverandi efnahagsástandi, ESB atkvæðagreiðsluna og borgarmálin þar sem þau spá fyrir um gengi flokkana.
“Þráðurinn er stuttur núna…!
2026/03/20
Erla Björg Gunnarsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Sýnar og Baldvin Þór Bergsson ritstjóri fréttatengdra þátta RÚV eru gestir þáttarins.  Við veltum upp hvort ríkisstjórnin sé búin að missa tökin og traustið.  Ræðum líka sterk viðbrögð fulltrúa verkalýðs og atvinnulífs um stöðu mála, tölum um ESB, já eða nei kosninguna og borgarmálin.  Þau Erla Björg og Baldvin spá líka fyrir um hverjir mynda nýjan meirihluta í borginni í vor.
“Eins og stjórnsamur meðvirknisjúklingur”
2026/03/11
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingar segja að vond þjónusta og flækjustig í borgarkerfinu hafi rekið þau inn í borgarpólitíkina. Þau ætla að bregðast hratt við komist þau í meirihluta í Reykjavík. Þau vilja stöðva flótta ungs fólks úr borginni og endurskoða mörg uppbyggingarverkefni sem eru komin í gang. Þau takast á um lausnir í húsnæðismálum, leikskólum, samgöngumálin, uppbyggingu á þjóðarleikvangi og ræða mögulega samstarfsflokka nái þau góðri kosningu.
“Kemur ekki til greina að starfa með Samfylkingunni”
2026/03/07
Einar Þorsteinsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir takast á um húsnæðismál, Borgarlínu, skólamál, einkarekstur og svara hreinskilnislega hverjum þau vilji starfa með eftir kosningar.
“Bíddu, hvað eru ráðamenn að hugsa..!”
2026/02/25
Jóhann Bjarni Kolbeinsson fréttamaður Kveiks og Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður á Sýn ræða Bakkakotsmálið og setja í samhengi við sambærileg mál þar sem börn og unglingar í umsjá ríkis og sveitarfélaga hafa sætt ofbeldi af öllu tagi. Jóhann Bjarni hefur leitt Bakkakotsmálið í Kveik og Berghildur Erla afhjúpaði  fyrir fáum árum skelfilegar aðstæður barna á Hjalteyri og á vistheimilum hins opinbera.
“Sjálfskaparvíti Samfylkingar”
2026/02/19
Frosti Logason og Valur Grettisson eru þrautreyndir blaðamenn og ræða pólitíkina frá öllum hliðum. Ríkisstjórnin að missa tiltrú?  Hver er innistæðan hjá Miðflokki? Lilja Alfreðs sterkur leikur hjá Framsókn? Nær “hægrið” Borginni? Ólga í Samfylkingu og tilvistarkreppa X-D?  Millitekjufólk mergsogið og lóðabrask Borgarinnar?
“Í hljómsveit með Kristrúnu Frostadóttur.”
2026/02/12
Hildur Björnsdótti vill vaða í leikskólamálin, fækka starfsmönnum borgarinnar, endurskoða Borgarlínu, leggja göng fyrir stofnvegi, selja borgarfyrirtæki og koma grunnskólum borgarinnar á topp 10 í Evrópu.
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í eina sæng í borginni?
2026/02/04
Andrés Jónsson ráðgjafi og almannatengill spáir því að Samfylking og Sjálfstæðisflokkur vilji mynda meirihluta saman í borginni í vor. Framsókn eða Viðreisn gæti verið hluti af þessu meirihlutasamstarfi. Við Andrés ræðum um fólkið í flokkunum og pólitíkina frá öllum hliðum.
“Hugmyndafræði Samfylkingar komin í þrot”
2026/01/27
.Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði ræðir skipulagsmál í Reykjavík.   Segir peninga skipta öllu og arkitekta hrædda um sitt lífsviðurværi.  Borgin, verktakar og arkitektar vísa ábyrgðinni hvert á annað. Hugmyndafræði Samfylkingar hefur skapað átök og óánægju íbúa.   Páll Jakob ræðir um ólík hverfi borgarinnar, þéttingu byggðar og Borgarlínuverkefnið sem margir vilja en fáir skilja.

Podcast reviews

Read Lyklavöldin podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Lyklavöldin relevant audience podcasts


What do you want to promote?