1868011160
Balkanbræður

Advertise on podcast: Balkanbræður

This podcast has
5 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/01/10
Latest episode
2026/02/07
Average duration
38 min.
Release period
8 days

Description

Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason. Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Unlock Balkanbræður podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Balkanbræður podcast


Gefið af sér
2026/02/07
Allir þeir átta sem við höfum rætt við í þessum þáttum fóru út í þjálfun eftir að leikmannaferlinum lauk. Sumir byrjuðu jafnvel að þjálfa á meðan þeir voru enn að spila. Flestir hafa náð eftirtektarverðum árangri í þjálfun og gefið mikið af sér. Í þessum þætti eru Balkanbræður sem fótboltakennarar til umfjöllunar. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic og Hajrudin Cardaklija. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Íslenskir ríkisborgarar
2026/01/31
Það vakti athygli á sínum tíma þegar okkar menn fengu íslenskt ríkisfang að þeir þurftu flestir að taka sér upp íslensk nöfn og nota samhliða nöfnunum sem þeir báru áður og bera enn. Í þessum þætti heyrum við söguna á bak við þessi íslensku nöfn, hvers vegna þeir urðu Íslendingar og um möguleikann á að spila fyrir íslenska landsliðið. Rætt er við Izudin Daða Dervic, Milan Stefán Jankovic, Ejub Purisevic , Zoran Daniel Ljubicic, Luka Lúkas Kostic, Goran Kristófer Micic, Salih Heimi Porca, Heimi Karlsson, Hajrudin Cardaklija, Rúnar Kristinsson og Guðna Bergsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Stríðið
2026/01/24
Fótboltamennirnir sem komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu árið 1992 og næstu ár á eftir voru flestir að flýja stríð sem geysuðu í heimalandi þeirra á meðan Júgóslavía var að liðast í sundur. Margir þeirra komu frá Bosníu, en í Bosníustríðinu sem hófst árið 1992 var gríðarlegt mannfall. Í þessum þætti er stríðið til umfjöllunar og Balkanbræður segja frá sinni upplifun af hörmungunum sem hefur markað þá fyrir lífstíð. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Val Ingimundarson, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic og Salih Heimi Porca. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Balkanbylgjan
2026/01/17
Með góðri frammistöðu Júgóslavana sem komu fyrstir til að spila fótbolta á Íslandi litu íslensk félög sífellt meira til Balkanskagans í leit að styrkingu. Árið 1992 voru minnst 20 leikmenn frá gömlu Júgóslavíu sem spiluðu í efstu fjórum deildum Íslandsmótsins. Rætt er við Milan Stefán Jankovic, Hajrudin Cardaklija, Zoran Daniel Ljubicic, Ejub Purisevic, Hjörvar Hafliðason og Luka Lúkas Kostic . Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Frumherjarnir
2026/01/10
Í þættinum er upphafið rakið þegar fyrstu Balkanmennirnir komu í íslensku deildina árið 1989 og þegar þeim byrjar að fjölga ári síðar. Af hverju komu þessir menn til Íslands? Rætt er við Luka Lúkas Kostic, Goran Kristófer Micic, Salih Heimi Porca, Izudin Daða Dervic og Rúnar Kristinsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Podcast reviews

Read Balkanbræður podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Balkanbræður relevant audience podcasts


What do you want to promote?