1873930803
Ljósmæðrarýmið

Advertise on podcast: Ljósmæðrarýmið

Categories
This podcast has
30 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/02/02
Latest episode
2026/10/22
Average duration
70 min.
Release period
10 days

Description

Tvær ljósmæður skapa öruggt rými fyrir hrátt spjall um allt sem við kemur fæðingum og fá til sín gesti til að deila sínum fjölbreyttu fæðingarsögum. Rauði þráðurinn er jákvæð upplifun af fæðingu. Okkur finnst að það megi heyrast meira í þeim! Við trúm því að þessar umræður geti styrkt konur í undirbúningi fyrir sína eigin fæðingu ❤️

Unlock Ljósmæðrarýmið podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Ljósmæðrarýmið podcast


#30 Tvær fæðingasögur Alexöndru kíró
2026/10/22
Alexandra, oft kölluð Alexandra kíró (eða kannski erum það bara við?) kemur í Ljósmæðrarýmið og deilir með okkur sínum 2 fæðingasögum, tvær skemmtilegar og góðar sögur af því þegar 19 marka stúlkurnar hennar komu í heiminn. Alexandra fer jafnframt yfir það sem hún gerir fyrir börn og konur á meðgöngu í sínu starfi og við mælum með hlustun fyrir ykkur sem eruð forvitin að heyra meira um kírópraktík fyrir ungabörn og konur á meðgöngu. Við lofum skemmtun, gæsahúð og aukinni trú á fæðingaferlinu eftir hlustun á elsku Alexöndru kíró! Þátturinn er í boði Kappahl, Natracare, Love to dream og Lovemade
#29 5 ráð til að massa fæðinguna þína!
2026/10/15
Hvernig geturðu undirbúið þig sem best fyrir stóra daginn? Í þessum þætti deilum við okkar bestu ráðum, sem geta hjálpað þér að takast á við fæðinguna þína. Við laumum mögulega á einu bónusráði með sem við viljum að allar verðandi mæður hafi í farteskinu. Njóðið vel! 🤎 Þátturinn er í boði: Kappahl Natracare Love to dream Lovemade
#28 Fæðingarsögur Emblu
2026/10/08
Varúð, fæðingarsögur dagsins gætu valdið alvarlegri gæsahúð! Embla segir frá báðum fæðingunum sínum á einlægan, jákvæðan og fáránlega fyndinn hátt. Við þáttastjórnendastöllur hlógum allavega, táruðumst OG gæsahúðuðum allan tímann. Þátturinn er í boði Kapphal, Natracare, Love to dream og lovemade, farið og nælið ykkur í lífræn gæðaföt, lífræn gæðabindi, gæða svefnpoka og lífrænan gæða barnamat
27. Hlutir "Worth the money" fyrir fæðingu og sængurlegu
2026/10/01
Þarftu að kaupa allan heiminn fyrir komu barnsins þíns? Við segjum nei. Hvað þarftu í alvöru að kaupa fyrir barnið þitt? Í þessum þætti förum við yfir það sem er must have fyrir komu barnsins og hvað er nice to have, því það er stór munur þar á. Við deilum okkar reynslu sem mæður og ljósmæður oooog erum mögulega með ákveðnar skoðanir á sumu! Þátturinn er í boði Kappahl og Lovemade 🤎 Öndun sem heldur taugakerfinu rólegu í fæðingu. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir
#26 Fæðingarsögur: Gangsetning, heimafæðing og tvíburar
2026/09/03
Í þætti vikunnar fáið þið að heyra þrjár mismunandi fæðingarsögur sem við lesum fyrir ykkur og ræðum! Gangsetning á LSH, þrátt fyrir upphafleg plön um að eiga á Selfossi, heimafæðing sem tók líka óvænta stefnu og tvíburafæðing við miklar bráða aðstæður. Við förum um víðan völl en “take home message” er kannski að þú getur haft óskir fyrir fæðinguna án þess að halda svo fast í þær að allt hrynji ef planið breytist. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠ Öndun í fæðingu: https://www.sofabordaelska.is/ondun
#25 Sigríður - Má hafa gaman í fæðingunni sinni?
2026/08/27
Jákvæðni í fæðingu getur skipt sköpum 💛✨ Í þessum þætti kemur Sigríður til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu, meðal annars hvernig hún hélt í jákvæðnina og hvernig maðurinn hennar var duglegur að minna hana á hana alla leiðina 😄 Við tölum um mikilvægi þess að skapa ró, öryggi og góða stemningu í fæðingu – og hvernig það getur stutt við losun oxýtósíns, hormónsins sem gegnir svo mikilvægu hlutverki í fæðingu. Og svo… herðanuddið! 🙌 Sigríður deilir trixi sem virkaði ótrúlega vel fyrir hana og við förum aðeins nánar í það í kringum 33. mínútu. Kannski eitthvað sem vert er að skrifa niður fyrir fæðinguna? 👀 Þáttur um jákvæðni, stuðning, oxýtósín, góð trix og það að finna sína eigin leið í gegnum fæðinguna 💛
#24 Fæðingarplan, er það sniðugt?
2026/08/21
Þetta getur verið hot topic hvort þú eigir að gera fæðingarplan eða leyfa þér bara að go with the flow…? Við kryfjum þetta til mergjar í þætti vikunnar þangað til þetta er orðið kýrskýrt. Linkur á myndband um öndun í fæðingu: https://www.sofabordaelska.is/ondun Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#23 Alexandra - Tvær heimafæðingar
2026/08/13
Elsku Alexandra, þroskaþjálfi og mikill snillingur, kom til okkar í svo skemmtilegt spjall um sínar tvær ólíku heimafæðingar. Hvað varð til þess að hún valdi heimafæðingu? Hvernig gengu þær fyrir sig? Áður en hún varð ólétt af fyrsta barni var hún frekar hrædd við að fæða, en eftir að hún áttaði sig á því að hún hefði val um hvar og hvernig hún fæddi barnið sitt, byrjaði hún að vera spennt fyrir fæðingunni. Hún átti góða upplifun þrátt fyrir krefjandi lokakafla í fyrri fæðingu, sem endurtók sig heldur betur ekki í seinni fæðingunni. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#22 Mænurótardeyfing - allt sem þú þarft að vita
2026/08/07
Mænudeyfing, mænurótardeyfing, utanbastdeyfing eða hvað sem þú vilt kalla hana, hér kemur góð umfjöllun um kosti, galla, fylgikvilla og verkun deyfinga í fæðingum á Íslandi. Hvenær er best að fá sér deyfingu?Hvað breytist þegar ég fæ mér deyfingu?Og margt margt fleira.Og ekki hafa neinar áhyggjur, að sjálfsögðu tölum við um kúk og piss líka og hlæjum mikið mikið af sjálfum okkur í leiðinni. Allt sem ÞÚ þarft að vita til að taka upplýsta ákvörðun fyrir þig og þína fæðingu! Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#21 Hildur Grímsdóttir
2026/07/30
TW Þáttur dagsins krefst þess að við setjum Trigger Warning við en Hildur fer yfir allar 5 fæðingarnar sínar, þar á meðal andvana fæðingu sonar síns Hergeirs Þórs sem fæddist eftir 25 vikna meðgöngu. Hildur lýsir á einlægan hátt erfiðri, sárri en jafnframt fallegri reynslu þegar Hergeir Þór kom í mömmufang. Ef þú treystir þér til mælum við eindregið með að hlusta á þessa fallegu fæðingu og fund yndislegs lítils drengs við mömmu og pabba.  Að auki á Hildur 4 skemmtilegar upplifanir af fæðingum sem allar eiga sameiginlegt að byrja með keimlíkum hætti. Mannleg, skemmtileg, einlæg og hress, það er Hildur Gríms sem deilir með okkur fæðingum og fleiru í þætti dagsins.
#20 Arna Ýr
2026/07/16
Arna Ýr, íþróttakona, fyrirtækjaeigandi, fyrrverandi fegurðardrottning og almennur brasari og fiðrildi eins og hún lýsir sjálf segir frá öllum fæðingunum sínum í löngu og skemmtilegu máli.  Allar 3 er ólíkar en þó með sameiginlegum rauðum þræði, S E I G L A. Arna er mögnuð kona og það er heiður að fá að hlusta á hana segja frá fæðingunum sínum, hún er hreinskilin opin og hrá í þessum þætti. Getur hver sem er leyft sér að stefna að upplifunum eins og Örnu, fæðing utan sjúkrahúss með fyrsta barn, bað fæðingar og auðvitað blómafæðingarlaugin fræga?  Er það óraunhæft eða á færi allra með góðum undirbúningi að eiga góða fæðingarupplifun? Ræðum þetta og margt fleira í þætti dagsins
#19 Foreldrajátningar
2026/07/09
Hefur þú gleymt að þú varst að keyra um með ungabarn í aftursætinu? Engar áhyggjur, það höfum við líka gert, og flestir hlustendur okkar líka! Endilega skelltu þessum í eyrun ef þú vilt eyða foreldra samviskubiti dagsins, enda erum við flest í sama rugli.
#18 Fæðingarsögur Dýrleifar - Hvernig áföll geta haft áhrif á fæðingarferlið
2026/07/02
Í þessum einstaka þætti segir Dýrleif okkur af svo mikilli einlægni og innsýn frá sínar tveimur ólíku fæðingum og hvernig það var að vera sjálf ljósmóðir þegar kom að því að fæða. Dýrleif deilir líka reynslu sinni af því hvernig áföll úr fortíðinni komu óvænt upp á yfirborðið í fyrri fæðingunni og hvað hún gerði til að geta átt ánægjulega seinni fæðingu. Þetta er þáttur sem við höfum beðið spenntar eftir að taka upp og við vonum að sagan hennar Dýrleifar geti veitt ykkur innblástur. Njótið vel 🤎 Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#17 TW: Missir snemma á meðgöngu, reynslusaga Oddnýjar
2026/06/25
Missir snemma á meðgöngu er mun algengari en flestir gera sér grein fyrir. Samt upplifa margar konur sig einar í þessari reynslu og sorginni sem fylgir. Í þessum einlæga þætti deilir Oddný, annar þáttastjórnanda Ljósmæðrarýmisins, sinni eigin reynslu af missi á 12. viku meðgöngu. Hún segir frá fyrstu einkennunum, greiningunni, lyfjameðferðinni, líkamlega ferlinu við missinn og þeim bjargráðum sem hún nýtti í þeim aðstæðum. Við ræðum einnig sorgarferlið sem fylgir því að missa barn snemma á meðgöngu. Þegar þú þarft að kveðja litla krílið þitt og þá framtíð sem þú varst búin að sjá fyrir þér og plana lífið í kringum. Þessi þáttur er fyrir þig ef þú hefur upplifað fósturlát, misst snemma á meðgöngu, ert að ganga í gegnum missi núna eða vilt skilja betur reynslu þeirra sem hafa þurft að kveðja litla krílið sitt snemma á meðgöngu. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠
#16 Fæðingarsögur Írisar Rutar sem upplifði allar þrjár tegundir keisara
2026/06/18
Íris Rut þriggja barna móðir í úthverfi, kennari og fellihýsa áhugakona, segir okkur frá keisarafæðingunum sínum. Hún fór í gegnum allar 3 tegundir keisara, bjöllu, bráða og skipulagðan. Hún fer vel yfir hvernig fæðingarnar hófust og hvað varð til þess að fæðingarnar hennar voru keisarafæðingar, dregur upp fallega mynd af því þegar keisarar eru besta mögulega útkoman fyrir konu og barn þegar þörf er á. Hún ræðir upplifun sína af fæðingunum, andrúmsloftinu á skurðstofunni og aumingja manninn sinn sem var bitinn í magann, af henni. Vertu með okkur á Instagram: ⁠⁠⁠⁠Ljósmæðrarýmið⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Sofa borða elska⁠⁠⁠⁠ ⁠⁠⁠⁠Oddný ljósmóðir⁠

Podcast reviews

Read Ljósmæðrarýmið podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Ljósmæðrarýmið relevant audience podcasts


What do you want to promote?