1882886930
Korter í kosningar

Advertise on podcast: Korter í kosningar

Rating
★★★★☆
4
from
1 reviews
Categories
This podcast has
28 episodes
Language
Icelandic
Date created
2026/03/06
Latest episode
2026/09/16
Average duration
68 min.
Release period
10 days

Description

Korter í kosningar er hlaðvarp um kosningarnar framundan og er sniðið fyrir fólk sem vill fylgjast vel með þegar það er korter í kosningar. Þáttastjórnendur eru Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson. Fyrirspurnir: [email protected]

Unlock Korter í kosningar podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Korter í kosningar podcast


Hið eina sanna uppgjör
2026/09/16
ESB uppgjörið. Lokaþáttur seríu 2. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar eru mættir úr 7 mánaða sumarfríi til þess að loka seríu tvö af Korter í kosningar. Af hverju ertu að bjóða þig fram í varaformann? Hvað var þetta með hallalausa núllið? Samgöngumál, innviðafélagið og veggjöld. Er gaman að vinna á Alþingi? Fjárlögin. Hvað með ferðaþjónustuna? Takk fyrir að leiða okkur í gegnum þessa vegferð og sjáumst á Alþingisrásinni í haust. Miklar þakkir til Rýni endurskoðun og Trygginga og ráðgjöf.
Hvernig fer þetta?
2026/08/26
Friðjón R. Friðjónsson, varaborgarfulltrúi og kosningasérfræðingur og Kolbeinn Marteinsson, eigandi Athygli og kosningasérfræðingur mættu til þess að greina lokametrana í baráttunni. Spádómar fyrir laugardaginn. Kjánalegustu moment baráttunnar. Hvað segir Polymarket? Hvernig er gervigreindin í þessum kosningum? Hvaða þingmaður hefur staðið sig best? Styrktaraðilar: Rýni endurskoðun & Tryggingar og ráðgjöf
Hvað er í pakkanum?
2026/08/18
Jakob Birgisson, uppistandari og fyrrverandi aðstoðarmaður og Sandra Barilli, umboðsmaður Iceguys voru gestir okkar í dag. Eru þetta leiðinlegustu kosningarnar sem þið munið eftir? Við skoðum ofan í pakkana. Gallup könnun. Gamlir karlar með comeback. Súrustu atvik baráttunnar og skemmtilegustu. Styrktaraðilar: Rýni endurskoðun & Tryggingar og ráðgjöf.
Bless bless Valhöll
2026/08/11
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins kom í settið hjá Korterinu. Sjálfstæðisflokkurinn eftir sveitarstjórnarkosningar. Valhöll seld. JÁ-konan með mjólkina og sænsku krónuna. Rektorinn í HÍ. Á ekki að kíkja í pakkann? Um hvað snúast kosningarnar 29. ágúst? Hvað með Grænland? Styrktaraðilar: Rýni endurskoðun og Tryggingar & ráðgjöf
Kosningaslúðrið
2026/08/04
Maggi og Pétur fóru yfir kannanir, kosningabaráttuna hingað til og allt slúðrið. Er Jágúst framundan? Kíktu í pakkann punktur is? Styrktaraðilar: Rýni endurskoðun Baker Tilly og Tryggingar og Ráðgjöf
Fullveldi Íslands og verð á þvottavélum
2026/07/28
Gréta María Grétarsdóttir er ekki bara tvöfaldur Íslandsmeistari í körfubolta heldur fyrrverandi framkvæmdastjóri Prís og stjórnarkona í Sjá hreyfingunni sem berst fyrir því að farið verði í aðildarviðræður við ESB. Arnar Þór Ólafsson var sérstakur gestastjórnandi af því að Maggi er úti á landi. Viðskiptastríð, vöruverð, rekstrarumhverfi og fullveldi til umræðu í þætti vikunnar þegar það er korter í kosningar. Styrktaraðilar: Tryggingar og ráðgjöf og Rýni endurskoðun Baker Tilly.
Mjólkurverð, ostar og kjöt
2026/07/21
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði kíkti í Korterið og fór yfir víðan völl um landbúnaðarmálin sem er risastór kafli í þessari ESB umræðu. Er eitthvað að sækja fyrir bændur innan ESB? Hvernig var að vera aðstoðarmaður fyrrverandi utanríkisráðherra? Er tollverndin lífið? Er mjólkurverðið á Íslandi eitthvað óskýrt?
Hver er tímalínan ef við segjum JÁ til að SJÁ?
2026/07/14
Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, komu í höfuðstöðvar Korter i kosninga og upplýstu um tímalínuna framundan ef þjóðin segir Já í lok ágúst. Hvað þýðir upptaka Evru og hvers vegna ætti hin óákveðni þriðjungur landsmanna að segja Já í haust?
Áfram Ísland?
2026/07/07
Season 2 hefst með látum með tveimur fyrrverandi þingmönnum sem hvorugir vilja fara í aðildarviðræður 29. ágúst nk. Þeir Sigurður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson fara yfir málin og færa rök fyrir þvi hvers vegna þeir ætla að kjósa nei í ágúst.
Engin risaeðlubein takk
2026/06/16
Lokaþáttur Korter í kosninga þegar við kveðjum sveitarstjórnarkosningar. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar og Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins kíktu við og fóru hressilega yfir málin. Uppáhalds moment í kosningabaráttunni. Stemmarinn í nýju borgarstjórninni. Hver er partýmálaráðherra borgarstjórnar? Hróshringur Péturs. Engin risaeðlubein og engin hjólhýsabyggð.
Gamlar sálir í nýrri borgarstjórn
2026/06/09
Nítjándu aldar mennirnir Friðjón Reynir Friðjónsson og Stefán Pálsson fóru yfir meirihlutasáttmálann, hlutverk og sjálfsmynd varaborgarfulltrúa, Bestu deildina og HM í fótbolta. Er meirihlutasáttmálinn zero-sum game eða vinna allir? Hvernig verður kjörtímabilið og tekur Miðflokkurinn stjórnarformennsku í Orkuveitunni? Hver verður aðstoðarmaður borgarstjóra og hvort verður golfvöllurinn í Viðey 9 eða 18 holur?
Sætasta stelpan á ballinu
2026/06/02
Sandra Hlíf Ocares og Stein Olav Romslo, nýr borgarfulltrúi mættu til leiks. Nýr meirihluti og nýir borgarfulltrúar taka formlega við völdum í dag. Hver verður í hvaða hlutverkum? Hvernig mun samgöngusáttmáli þróast? Verður verkefnalisti.is vinsælasta heimasíða landsins? Hvað gerðist í Hafnarfirði og er betra að ráð bæjarstjóra en að hafa hann pólitískan? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.
Korter yfir kosningar
2026/05/17
Hróðugur Maggi og tapsár Pétur fóru yfir málin. Sjálfstæðisflokkurinn með stórsigur út um allt land. Hvaða meirihlutar verða myndaðir? Hvaða mál verða tækluð strax? Hvað klikkaði hjá Samfylkingunni í Reykjavík? Hvað þýðir þessi niðurstaða fyrir stjórnmálalandslagið í heild? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin.
Hildur & Pétur
2026/05/14
Hildur Björnsdóttir og Pétur H. Marteinsson. Oddvitar stærstu flokkanna komu til okkar. Sammála um sumt, alls ekki allt. Hluti samgöngusáttmála þarfnast endurskoðunar að mati Hildar. Hvar byrjum við á leikskólamálunum? Pétur segir mörg mistök hafi verið gerð í núverandi meirihluta. Spennandi þáttur af Korter í kosningar, þeim síðasta korter í kosningar. Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru styrktaraðilar Korter í kosninga.
Teppalögð Reykjavík
2026/05/12
Freyr Eyjólfsson og Áslaug Hulda Jónsdóttir mættu til okkar í upphafi kosningaviku og með sterkar skoðanir á öllu. Á Sjálfstæðisflokkurinn að auglýsa meira? Er Samfylkingin ekki að svara nógu miklu? Ætlar Viðreisn að starfa til hægri? Mun einhver starfa með Miðflokki? Er Einar Þorsteins í meðbyr? Er Flokkur fólksins að ofnota gervigreindina? Er Vinstrið búið að toppa? Enor endurskoðun, Tryggingar og ráðgjöf og Jómfrúin eru samstarfsaðilar Korter í kosninga.

Podcast reviews

Read Korter í kosningar podcast reviews


4 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Korter í kosningar relevant audience podcasts


What do you want to promote?