1883993595
hún hlaðvarp

Advertise on podcast: hún hlaðvarp

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
Categories
This podcast has
19 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/03/10
Latest episode
2026/10/06
Average duration
97 min.
Release period
13 days

Description

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Unlock hún hlaðvarp podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from hún hlaðvarp podcast


hún hlaðvarp #18 Jenna Huld Eysteinsdóttir
2026/10/06
Gestur þáttarins er Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðsjúkdómalæknir, doktor í læknavísindum, meðeigandi Húðlæknastöðvarinnar og stofnandi Húðvaktarinnar. Í dag ætlum við að tala um hvernig vísindakona verður frumkvöðull, í geira þar sem flestir láta sér nægja að vinna vinnuna sína. Um stærsta líffærið okkar, sem við tökum bara eftir þegar það er fallegt. Um biðlista sem varð að fyrirtæki, um doktorsritgerð sem var skrifuð með þrjú börn og lista af barnapíum, um sólarvörn í október og ljósabekki sem enginn hefur bannað, og um það hvernig kona lærir að segja hlutina upphátt. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #17 Safa Jemai
2026/09/30
Gestur þáttarins er Safa Jemai, hugbúnaðarverkfræðingur, forstjóri og meðstofnandi Treyst.ai, stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Víkonnekt og kryddfyrirtækisins Mabrúka. Safa er fædd í Túnis árið 1994. Hún kom fyrst til Íslands sumarið 2017 sem sjálfboðaliði í gróðurhúsi í Hveragerði og fór heim með þá tilfinningu að hún ætti eitthvað óklárað hér. Ári síðar flutti hún, ein, lærði íslensku á fimm mánuðum, kláraði hugbúnaðarverkfræði í HÍ og stofnaði á meðan hún var enn í námi tvö fyrirtæki og vann Gulleggið með því þriðja. Hún var valin Rising Star of the Year á Nordic Women in Tech Awards 2023, situr í útflutnings- og markaðsráði Íslandsstofu og kynnti í vor gervigreindarlausn sem íslensk ráðuneyti, EFTA og ESA komu að og sem nágrannalöndin eru farin að spyrja um. Í dag ætlum við að tala um hvernig maður byggir sér líf og fyrirtæki í landi þar sem allir þekkja alla, nema þig. Um móður sem vann frá sex á morgnana til níu á kvöldin, um krydd sem varð að fyrirtæki, um forritara í Túnis og lögfræðinga í ráðuneytum, og um það hvernig traust er unnið. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #16 Lilja Birgisdóttir
2026/09/23
Gestur þáttarins er Lilja Birgisdóttir, listakona, ljósmyndari og ein af stofnendum og eigendum Fischersunds. Lilja er fyrsti gesturinn í Hún sem ég ætla að kjósa aðkalla listakonu, fyrst og fremst. Kona sem hefur breytt listinni sinni í rekstur. Fischersund byrjaði með einum ilmi í tómu, svörtu húsi í Grjótaþorpinu fyrir tæpum níu árum. Í dag eru ilmirnir seldir hjá yfir hundrað söluaðilum víða um heim, fjölskyldan hefur haldið ilmtónleika í París, Seattle og Kaupmannahöfn, og í fyrra var Fischersund valið verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands. Og samhliða öllu þessu heldur Lilja áfram að sýnasem myndlistarkona. Það sem mér finnst merkilegast við hana er ekki hvað húnhefur byggt, heldur hvernig. Engar auglýsingar, enginn fjárfestir, engin hefðbundin leið. Bara listafólk sem ákvað að vinna saman og treysta því að fólk fyndi þau. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir
2026/09/15
Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka. Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta. Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir
2026/09/09
Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið." Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með strákunum sínum. Í staðinn stofnaði hún fyrirtæki. Í dag eru verslanirnar á þriðja tuginn og starfsfólkið hátt í tvö hundruð. Hún hefur tekið hvert vörumerkið á fætur öðru,merki sem fæstir hér þekktu og gert þau að einhverju sem heil þjóð kann skil á. Hún er með ekkert skipurit, því fólkið hennar hefur ábyrgðarhlutverk frekar en stað í skipuriti. Krakkarnir hennar eru með í rekstrinum og mamma hennar líka. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic
2026/09/01
Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana að stökkva. Það er til gamalt myndband, tekið heima í stofu í Kópavogi,þar sem lítil stelpa er spurð hvað hún ætli að verða þegar hún verði stór. Hún svarar án þess að hika: „Ég ætla að verða fræg." Um fjörutíu árum síðar má svo sannarlega segja að henni hafi tekist það. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir
2026/06/16
Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn. Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundum þegar þær eru komnar þangað breyta þær reglunum svo fleiri komist inn á eftir þeim. En hvernig verður maður sú manneskja sem er hringt í þegar mikið liggur við? Þegar fyrirtæki þarf nýja stefnu. Þegar stjórn þarf skýrari sýn. Þegar eitthvað er í vanda og einhver þarf að ganga inn í flækjuna, sjá kjarnann og segja: byrjum hér. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
2026/06/09
Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins. Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það. Í þættinum tölum við um hugrekki, sjálfsmynd, breytingar, metnað, móðurhlutverkið, pressuna sem fylgir því að vera kona í sviðsljósinu og hvað það þýðir að leyfa sér að byrja aftur og breyta til. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó
2026/05/28
Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í smá spjall. Loks svara ég svo alls konar spurningum frá ykkur og frá mér sjálfri í takt við þær sem viðmælendurnir hafa svarað, kominn tími til að gefa ykkur ennþá meiri innsýn inn í minn hugarheim. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir
2026/05/19
Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar. hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir
2026/05/05
Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins. Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór verkefni án þess að missa tengingu við sjálfa sig. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir
2026/04/28
Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að heyra hvernig hún talar um aðra og mikilvægi fyrirmynda bæði fyrir sig og aðra. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir
2026/04/21
Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir
2026/04/14
Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir ættu að hafa val og aðgengi að vörum sem stuðla að heilsusamlegri lífstíl. Mikið var gaman að heyra alla söguna og skilja enn betur hvað það var sem mótaði hana að þeirri konu og leiðtoga sem hún er í dag. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó
hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur
2026/04/07
Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta? Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

Podcast reviews

Read hún hlaðvarp podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on hún hlaðvarp relevant audience podcasts


What do you want to promote?