1885502798
Marta María býður heim

Advertise on podcast: Marta María býður heim

Rating
★★★★★
5
from
1 reviews
This podcast has
31 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/03/16
Latest episode
2026/10/05
Average duration
99 min.
Release period
7 days

Description

Marta María býður heim er hlaðvarp þar sem þáttastjórnandi tekur á móti áhugaverðu fólki sem hefur markað spor.

Unlock Marta María býður heim podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Marta María býður heim podcast


30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"
2026/10/05
Dorrit Moussaieff viðskiptakona og fyrrverandi eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar hefur átt ævintýralegt lífshlaup og er nú á tímamótum. Í þættinum ræddu þær þegar hún hitti Ólaf Ragnar fyrst, hvernig samband þeirra þróaðist og endaði fyrr á þessu ári. Hún varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom fyrst til landsins og er alls ekki skilin við þjóðina þótt hjónabandinu sé lokið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofinn og Mathilda.
29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa
2026/09/28
Lukka Pálsdóttir sjúkraþjálfari og einn af eigendum Greenfit býr yfir ákveðinni seiglu sem hefur komið henni á þann stað sem hún er í dag. Lukka hefur átt ótrúlegt lífshlaup en þegar hún fæddist höfðu foreldrar hennar gegnið í gegnum mikinn harm þegar faðir hennar lenti í flugslysi. Í þættinum ræðir Lukka um ástina, ævintýrin, myndkörfulán og fitubrennslupúls en líka Zone 2 sem er það sem flestir eru að tala um þessa dagana. En mæla snjallúrin og hringirnir þetta rétt? Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind, Fjallakofans og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum
2026/09/21
Birgir Jónsson fyrrverandi forstjóri Play er rokkari sem er alltaf til í að hlaupa auka hring til þess að lífið verði allavega 9% skemmtilegra. Í þættinum talar Birgir um lífshlaupið og hjartans mál. Um tíma bjó hann í Rúmeníu og lýsir spillingunni sem þar var á áhrifaríkan hátt. Þótt hann þrífist best í mótvindi þá gengst hann við því að það sé ekki gott að vakna með kvíðahnút í maganum á hverjum degi eins og gerðist síðustu mánuðina hjá Play. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind og Kringlunni.
27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á
2026/09/14
Anna Margrét Björnsson, blaðamaður og upplýsingafulltrúi í Franska sendiráðinu, hefur lengi haft sterkan og persónulegan fatastíl. Svartur hefur alltaf verið í uppáhaldi, ásamt eyeliner og stöku hlébarðamunstri. Langafi hennar var Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, og í þættinum ræðum við meðal annars hvort það hafi haft einhver áhrif á uppvöxt hennar - eða alls engin. Faðir Önnu Margrétar starfaði í utanríkisþjónustunni og var sendiherra um tíma. Hún ólst að hluta til upp í Bretlandi og segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Íslands. Í þættinum tölum við um fatastíl og tísku, París og London, skinkuvæðinguna og mannasiði Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofans og Mathilda í Smáralind, Kringlunni og mathilda.is.
26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar
2026/09/07
Kristín Agnarsdóttir grafískur hönnuður býr í Lundúnum. Hún er á kafi inni í framtíðartækni og notaði tæknina til að eignast tvo drengi. Svo notaði hún gervigreindina til þess að skilja við barnsföður sinn. Þegar Kristín sagði föður sínum að hún væri að fara að mæta í þennan þátt þá hló hann upphátt og sagði: „Ætlar þú að ræða allar góðu ákvarðanirnar sem þú hefur tekið á lífsleiðinni" og spurði svo hvort þetta væri heil sería. Í þættinum ætlum við að ræða ástir og örlög, tækni og tísku og fara yfir það hvað er dýrmætt að eiga góðar vinkonur. Þessi þáttur er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind, Blue Lagoon Skin Science, Fjallakofanum og Mathilda í Kringlunni og Smáralind.
25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér
2026/08/31
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður er félagslegur einfari sem líður best með sjálfum sér. Hann er einn af þessum mönnum sem tekið er eftir og fer alltaf sínar leiðir hvort sem það er í klæðaburði, lífsstíl eða vinnu. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, gaddavírs peysur, fyrirsætuferilinn, Reykholtsmálið og ástina. Þátturinn er í boði Icelandair, SKINCARELAB í Smáralind og Blue Lagoon Skin Science.
24. Sigurlín Ívarsdóttir: Útrásar árin ógnuðu fjölskyldulífinu
2026/08/24
Sigurlín Ívarsdóttir prestur og fjölskylduráðgjafi hefur átt litríka tilveru. Hún var prestur í Bresku biskupakirkjunni í Lundúnum á árunum fyrir hrun þegar eiginmaður hennar starfaði hjá Kaupþingi. Hún segir að útrásárárin hafi einkennst af sukki og ógnað hennar fjölskyldulífi. Í þættinum ræðir Marta María við Sigurlín um lífshlaup hennar, áfallavinnu, tísku og hvað það skipti miklu máli að horfa á raunveruleikann eins og hann er. Og geta svo hlegið að öllu saman og haft gaman. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
23. Hrund Gunnsteinsdóttir: Ég er mjög æst í þetta líf
2026/08/17
Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur InnSæi sagði upp draumastarfinu því hún var ekki að finna sig. Hún segist hafa farið allt of hratt upp metorðastigann sem leiddi til þess að heilsan brást. Við tók uppbyggingarferli sem varð að Prisma-námi sem sló í gegn. Í þættinum ætlum við að tala um lífshlaupið, taugakerfið, InnSæi og hvernig það var að finna ástina í örmum Alfreðs Gíslasonar.   Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
22. Inga Dóra Guðmundsdóttir: Er með plan B ef allt fer á versta veg á Grænlandi
2026/08/10
Inga Dóra Guð­munds­dótt­ir framkvæmdastjóri hjá Air Greenland er hálf íslensk og hálf grænlensk. Hún fæddist á Íslandi en var á 13 ári þegar fjölskyldan flutti til Grænlands. Hún segist hafa fengið menningarsjokk þegar hún flutti til Qaqortoq og það hafi tekið tíma að aðlagast. Inga Dóra er ekkert blávatn og hefur gengt mörgum áhrifastöðum og tekið virkan þátt í pólitík. Hún var um tíma framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins. Í dag býr Inga Dóra í Nuuk ásamt fjölskyldu sinni. Í þættinum ætlum við að ræða lífshlaup Ingu Dóru og hvernig það sé að lifa í ótta við það sem gæti gerst ef Bandaríkin myndu yfirtaka Grænland. Þátturinn er í boði: Icelandair, Blue Lagoon Skin Science og SKINCARELAB í Smáralind.
21. Valgerður Halldórsdóttir: Stórt hús getur ekki bjargað ástarsamböndum
2026/08/03
Valgerður Halldórsdóttir félags- og fjölskylduráðgjafi er sérfræðingur í stjúptengslum. Hún fór að hafa áhuga á stjúptengslum þegar hún varð sjálf stjúpmóðir. Hún segir að það þýði ekki neitt að kaupa hús og setja alla undir sama þak og halda að allt muni ganga eins og í sögu. Fólk verði að kynnast og það þýði ekkert að halda bara matarboð. Fólk þurfi að kynnast maður á mann. Tilfinningin að tilheyra skiptir lykilatriði þegar fólk setur saman nýja fjölskyldu. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SKINCARELAB í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa
2026/07/27
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli. Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
19. Kamilla Einarsdóttir: Ég get fyrirgefið allt ef fólk er fyndið
2026/07/20
Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir skrópaði sig úr út menntaskóla og fór að vinna á Vegas. Þegar hún var tvítug var hún búin að eignast tvö börn og voru blankheit slík að hún át vorrúllur í öll mál. Þegar Kamilla var þrítug bættist þriðja dóttirin í hópinn. Kamilla er einhleyp og sér ekki fyrir sér að fara í samband því umönnunarþörf hennar sé við frostmark. Í þættinum ræðir Kamilla lífshlaup sitt sem er ævintýralega spennandi og segir að það sé hægt að fyrirgefa fólki allt ef það sé fyndið. Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
18. Ragna Árnadóttir: Sækir alltaf í erfiðustu verkefnin
2026/07/13
Ragna Árnadóttir forstjóri Landsnets er þrjóskukind með góðan fatastíl. Hún er lögfræðingur og stjórnsýslunörd sem hefur verið óhrædd við að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Hún var dómsmálaráðherra í bankahruninu og upplifði mikinn ótta þegar mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan heimili hennar. Í þættinum ræðir Ragna um ástina sem hún fann á Tunglinu þegar hún hitti manninn sinn, sumarbústaðaeldhúsið, hvað hafi nýst henni best á framabrautinni og hvað henni líði hræðilega illa í ljótum fötum.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
17. Hildur Gunnlaugsdóttir: Fann ástina á Tinder og sló í gegn sem áhrifavaldur um fertugt
2026/07/06
Hildur Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri ASK arkitekta er praktískt í hugsun. Fyrir áratug fann hún ástina á Tinder þegar Hreiðar Leví Guðmundsson handboltastjarna súperlækaði hana. Í dag búa þau ásamt börnunum í fallegu raðhúsi í Hvassaleitinu. Hildur varð óvænt áhrifavaldur þegar hún ákvað að deila framkvæmdum á húsinu á Instagram. Hún er þessi fyndna og jákvæða týpa sem lætur fátt stoppa sig.  Þessi þáttur er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab i Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5 í Hafnarfirði.
16. Sigurjón Sighvatsson: Ég hef aldrei verið númer eitt
2026/06/29
Sigurjón Sighvatsson er einn fárra Íslendinga sem á að baki glæstan feril í Hollywood. Hann sló í gegn með Wild at Heart (1990) en hann var búinn að slá í gegn hérlendis þegar hann fór út í nám. Hann var í vinsælum hljómsveitum og lærði bókmenntafræði. Hann er einn af þeim sem er alltaf til í að taka aukahring til að ná meiri árangri. Við ræðum æskuna og hvernig það hafi verið að alast upp hjá einstæðri móður, tölum um sorgina sem hefur bankað upp á og stóru ástina sem hann fann snemma á lífsleiðinni. Þátturinn er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5.

Podcast reviews

Read Marta María býður heim podcast reviews


5 out of 5
1 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Marta María býður heim relevant audience podcasts


What do you want to promote?