1889035309
Popparasögur

Advertise on podcast: Popparasögur

This podcast has
38 episodes
Language
Icelandic
Explicit
No
Date created
2026/03/29
Latest episode
2026/10/27
Average duration
60 min.
Release period
6 days

Description

Hlaðvarp á léttu nótunum þar sem fjallað er um íslenska tónlist og rætt er við tónlistarfólk og fjallað um hljómsveitir og tónlistarviðburði á Íslandi.

Unlock Popparasögur podcast Email contact info,
Listeners & Audience details

Email contact information

Direct podcast contact details

Listeners

Audience numbers & engagement insights

Audience details

Podcast Insights

Podcast episodes

Check latest episodes from Popparasögur podcast


#38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól
2026/10/27
Fjórði og síðasti hlutinn um hljómsveitina Sniglabandið. Í síðasta hluta fóru þeir Diddi og Skúli yfir merkilega ferð bandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir mútuðu löggunni, voru eltir af mafíunni, lentu í menningarsjokki, voru með fulla ruslapoka af rúblum og lifðu eins og rokkstjörnurnar sem þeir sögðust vera. Í þessum hluta segja þeir frá einu vinsælasta íslenska jólalagi allra tíma, Jólahjól, og hvað það gerði fyrir hljómsveitina. Þeir tala um þegar Skúli reyndi að fá leyfi frá Rolling Stones, einstakt samband meðlima, vináttuna, erfiðleikana sem þeir hafa gengið í gegnum saman, lýðræði og það að vera Í góðu skapi. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum
2026/10/27
Þriðji hlutinn og mögulega einum þeim merkilegasta í sögu hljómsveitarinnar Sniglabandsins. Í fyrstu tveimur hlutunum var farið yfir upphaf sveitarinnar, ótrúlegar uppákomur frá fyrstu árunum, mannabreytingar, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, vinsælustu útvarpsþætti landsins og svo margt fleira. Í þessum þriðja hluta er fjallað um merkilega ferð Sniglabandsins til Sovétríkjanna árið 1989 þar sem þeir fóru á fimm mótorhjólum og einni rútu í tónleikaferðalag.   Þeir segja frá því hvernig þeir gistu í heimahúsum og kynntust fólkinu, fullum ruslapokum af rúblum og vandræðunum við að eyða þeim, mútum til lögreglunnar, mafíunni sem elti þá, menningarsjokkinu og hvernig bréf frá Davíð Oddssyni, þáverandi borgarstjóra, bjargaði Didda frá öskrandi lögreglumanninum sem beindi að honum rifli. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi
2026/10/20
Annar hluti viðtalsins við hljómsveitina Sniglabandið. Í fyrsta hlutanum var farið víða og sagt frá upphafi sveitarinnar, ótrúlegum uppákomum frá fyrstu árunum þar sem kom við sögu dvergur að þvo bíl, hestur í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, Jónas Friðrik, Hells Angels, putti í auga og margt fleira. Í þessum öðrum hluta fara þeir Diddi og Skúli yfir það hvernig hljómsveitin fór að þróa þá list að taka við óskalögum fólks í salnum, sunnudagskvöldið á Gauki á stöng, útvarpsþættina sem voru þeir vinsælustu á landinu og karakterana og grínið sem var til þar, lögin sem urðu til í þáttunum, samstarfið við Nylon, tónleika sveitarinnar og tilkomu nýrra meðlima í bandið. Þetta er annar hlutinn af fjórum af sögu Sniglabandsins. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað
2026/10/20
Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985. Í þessum fyrsta hluta fara þeir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, eða Diddi, og Skúli Gautason yfir sögu sveitarinnar en auk þeirra eru í hljómsveitinni Björgvin Ploder, Einar Rúnarsson, Pálmi Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson. Í þessum fyrsta hluta segja þeir frá upphafi Sniglabandsins, sveitaballabransanum, hljómsveitarrútunni sem var gamall matarvagn, hestinum í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, fyrstu böllunum, mannabreytingum, Stebba Hilmars, eftirminnilegum uppákomum þegar gestir nálguðust sviðið í mismunandi tilgangi, dverg að þvo bíl, áherslubreytingum með nýjum mönnum og sérstöðu Sniglabandsins þegar kemur að sambandi við áhorfendur. Þetta er fyrsti hluti af fjórum af sögu Sniglabandsins. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#34 | Friðrik Dór og listin við að rækta garðinn sinn
2026/10/13
Friðrik Dór hefur verið einn ástsælasti tónlistarmaður á Íslandi undanfarin eða allt frá því hann kom fram á sjónarsviðið með lög eins og Hlið við hlið, Leiðarlok og fleiri. Síðan þá hafa topplögin verið fjölmörg og vinsældir hans vaxið þrátt fyrir að hafa þurft að hafa fyrir hlutunum og takast á við áskoranir á leiðinni. Nýverið kom hann fram á tvennum tónleikum með SinfoniaNord í Hofi á Akureyri þar sem lögin hans voru spiluð í nýjum útsetningum og verða tónleikarnir endurteknir í Hörpu í lok október. Í viðtalinu talar hann um samstarf við menn eins og Erp Eyvindarson, Bubba Morthens og Jón bróður sínum Jónssyni, ævintýrið með IceGuys sem senn tekur enda og lukkuna á bak við það þegar Í síðasta skipti komst ekki í Eurovision. Friðrik talar einnig um hvernig tónlistin hefur þróast úr því að vera tímabundið ævintýri í að verða hans ævistarf, velgengnina í upphafi ferilsins, erfiðleikana sem fylgdu í kjölfarið, textagerðina og hvernig hversdagslegar setningar geta orðið að vinsælum lögum. Auk þess talar hann um breytingar á íslenskum tónleikamarkaði og hvernig hann sér fyrir sér næsta kafla á tónlistarferlinum. Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)
2026/10/06
Þá er komið að seinni hlutanum í spjallinu við Franz Gunnarsson, gítarleikara, tónleikahaldara og margt fleira, sem hefur verið áberandi í íslensku tónlistarlífi síðustu áratugi, t.d. með hljómsveitum eins og Ensími, Dr. Spock og fleirum. Í fyrri hlutanum fór Franz yfir byrjunina með In Memoriam, Quicksand Jesus og Dr. Spock. Í þessum seinni hluta segir Franz frá hljómsveitinni Ensími, hvernig hún byrjaði eftir að hljómsveitin Jet Black Joe hætti á sínum tíma, Kafbátamúsík, vinnunni með Steve Albini, tilraunum þeirra til að slá í gegn erlendis, 30 ára afmælinu og fleiru. Hann talar einnig um það að blanda saman þessum tveimur ólíku hljómsveitum, Ensími og Dr. Spock, og því hvernig áfengi hefur haft áhrif á líf hans og tónlistarferil. Seinni hluti viðtalsins við Franz Gunnarsson. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)
2026/10/06
Franz Gunnarsson hefur komið víða við á sínum tónlistarferli, hvort sem það er sem gítarleikari, höfundur, sólólistamaður eða tónleikahaldari. Hann hefur verið í hljómsveitum eins og In Memoriam og Quicksand Jesus sem voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar en þekktastur er hann sennilega sem meðlimur bæði Ensími og Dr. Spock. Í þessum fyrri hluta af tveimur talar Franz um Músíktilraunir, rokksenuna og hvernig hún var þegar hann var að stíga sín fyrstu skref, upphaf Dr. Spock og Ensími, þátttöku í Söngvakeppni Sjónvarpsins og síðast en ekki síst mjög áhugaverðar tilraunir til markaðssetningar sem vöktu athygli almennings, fréttafólks og lögreglunnar. Þetta er fyrri hluti af spjallinu við Franz Gunnarsson. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár
2026/09/29
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar af því tilefni að halda stórtónleika í Háskólabíói í október. Hljómsveitin var stofnuð eins og margar aðrar á sínum tíma til þess að spila á sveitaböllum, búa til smá pening fyrir meðlimi og hafa gaman. Fyrst um sinn var ruglast á hljómsveitinni og öðrum sólarböndum, þá sérstaklega SSSól. En í dag er hljómsveitin Á móti sól löngu orðin ein af þeim þekktari á landinu með fjöldann allan af vinsælum lögum og stóran aðdáendahóp um land allt. Í þessum þætti segja þeir Heimir Eyvindarson, stofnmeðlimur og einn aðallagahöfundur sveitarinnar, og Sævar Þór Helgason, gítarleikari, frá ferli Á móti sól, allt frá því hvernig þeir byrjuðu að spila á sveitaböllum, fóru út í það að taka upp plötu, ska-ið, mannabreytingar og tilkomu söngvarans frá Borgarfirði eystri sem átti eftir að hafa mikil áhrif á sveitina. Þeir segja einnig frá því þegar Spenntur sló í gegn á einni nóttu, dýrustu plötu Íslandssögunnar, tími Magna í Rockstar Supernova og ævintýrinu sem fylgdi í kjölfarið. Þeir segja frá stöðunni í dag, vinahópnum sem skiptir þá mestu máli, afmælistónleikunum og þeirri staðreynd að þeir eru enn á toppnum eftir 30 ár í bransanum. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum
2026/09/22
Egill Örn Rafnsson hefur átt langan og viðburðaríkan feril eftir að hafa byrjað mjög ungur að vinna sem tónlistarmaður. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var farinn að spila á börum í miðborg Reykjavíkur og 18 ára þegar tónlistin varð að aðalstarfi. Fyrst með Buttercup, svo Ber, á sveitaböllum og í stúdíói. Hér á eftir fer hann yfir ferilinn, allt frá fyrstu árunum í skólahljómsveitinni og hljómsveitinni Sign, yfir í Buttercup og fjölmiðlafárið þegar hann var rekinn úr hljómsveitinni. Hann segir frá stofnun hljómsveitarinnar Ber og spilamennskunni um land allt, lífinu í rútunni, bömmerböllum, sveitaballalífinu og því að byggja eigið stúdíó. Hann talar um áhrif föður síns, Rafns Jónssonar heitins, á tónlistarferilinn, andlát hans árið 2004 og hvernig hann tók við af honum sem trommari í hljómsveitinni Grafík. Þá segir hann frá löngum tónleikaferðum erlendis og lífinu í London þar sem hann reyndi að fóta sig sem tónlistarmaður og var nálægt því að fá tækifæri með stórum hljómsveitum á borð við Queens of the Stone Age og Placebo. Hann segir frá því þegar Sign reyndi að meika það erlendis, tónleikaferðunum með Skid Row og þegar hann, fárveikur með 40 stiga hita, spilaði fyrir Dennis Rodman og meðlim Papa Roach á einum þekktasta tónleikastað Bandaríkjanna. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa
2026/09/15
Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari. Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril sinn í tónlistinni, allt frá Ritvélum framtíðarinnar til samstarfs við HAM, Pál Óskar, Bubba, Egil Ólafs og fleiri. Hún segir frá löngu og gefandi samstarfi sínu við Svavar Knút, tónlistinni, vináttunni og tónleikaferðum þeirra um landið. Hún segir einnig frá óvæntri leið sinni inn í dansheiminn og hvernig verkefni sem átti upphaflega aðeins að vera nokkrar sýningar hefur þróast í yfir 50 sýningar í meira en 30 löndum. Hún segir frá hugmyndum sínum að nýrri plötu, fullri skúffu af lögum og þeirri ákvörðun að sleppa tökunum á fyrir fram ákveðnum hugmyndum og leyfa verkefnum að þróast. Hún ræðir um sköpunina, kennsluna, raddþjálfunina, trúða, leikhúsið og hvers vegna hún myndi „geispa golunni“ ef hún væri ekki í einhverju skapandi Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)
2026/09/08
Þá er komið að seinni hluta viðtalsins við Valdimar Guðmundsson, einn allra vinsælasta söngvara þjóðarinnar frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni Valdimar árið 2010. Í fyrri hlutanum var farið yfir hljómsveitina Valdimar, vinsælustu lögin, tónleikaferðalögin, lætin og allt það sem fylgdi fyrstu árum sveitarinnar. Í þessum hluta skyggnumst við hins vegar meira inn í önnur verkefni Valdimars og fólkið sem hefur haft áhrif á feril hans. Hér ræðir hann meðal annars um vinsælustu lögin sem hann hefur sungið, Hljómskálann, samstarfið við Magga Eiríks og Braga Valdimar, og útfarirnar. Hann segir frá leikhúsævintýrum sínum, meðal annars hlutverkinu sem Eddie í Rocky Horror, og hvernig leikhúsið hjálpaði honum að verða öruggari á sviði. Við förum líka yfir tilurð LÓN, jólatónleikana og jólalögin sem hafa gert desember að stórum hluta af tónlistarárinu hans, þar á meðal lagið Jólin eru okkar. Þá rifjar Valdimar upp kynni sín af Svavari Pétri, Prins póló, og segir frá áhrifum hans á sig. Þetta er seinni hluti viðtalsins. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
#27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti)
2026/09/08
Valdimar Guðmundsson hefur verið einn vinsælasti söngvari íslenskrar tónlistar undanfarin ár. Hvort sem það er með hljómsveitinni Valdimar, LÓN, Memfismafíunni eða öðrum verkefnum hefur rödd hans verið áberandi í íslensku tónlistarlífi. En ferðalagið að þessum tímapunkti hófst löngu áður en Valdimar varð þekktur sem söngvari. Sem ungur strákur lærði hann á básúnu og síðar tónsmíðar, en það var ekki fyrr en um tvítugt sem hann fór að taka sönginn alvarlega. Síðan gerðist ýmislegt. Lagið „Yfirgefinn“ varð óvænt einn af stóru smellum sveitarinnar, Valdimar varð um tíma þekktur sem „læti-gaurinn“ og nafnið Valdimar reyndist síðar ekki endilega auðveldasta nafn í heimi þegar söngvarinn fór að gefa út tónlist utan sveitarinnar. Í þessum fyrri hluta viðtalsins rifjar Valdimar upp fyrstu skrefin í tónlistinni, frá því hann söng Bryan Adams fyrir langömmu sína, yfir í fyrstu hljómsveitirnar og stofnun hljómsveitarinnar Valdimars. Hann segir frá uppganginum eftir Undraland, þróun sveitarinnar og tónlistarinnar, samstarfinu við Pétur Ben og hvernig það breytti nálgun þeirra á textagerð. Við förum líka yfir lögin sem urðu að uppáhaldi hjá hlustendum, tónleikaárin, óvæntar vinsældir og hvernig hljómsveit sem varð til án mikilla væntinga varð að einni allra stærstu á Íslandi. Þetta er fyrri hluti viðtalsins. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
#26 | Eyjólfur Kristjánsson og sannleikurinn um Nínu og Álfheiði Björk
2026/09/01
Eyjólfur Kristjánsson hefur verið gríðarlega áberandi í íslensku tónlistarlífi í rúm fjörutíu ár. Hann er söngvari, gítarleikari, píanóleikari, laga- og textahöfundur og maðurinn á bak við nokkur af þekktustu lögum íslenskrar poppsögu. Hann steig sín fyrstu skref á sviði sem fjórtán ára strákur í Kerlingarfjöllum, fór síðan í vísnabransann með Hálft í hvoru og varð síðar einn af liðsmönnum Bítlavinafélagsins. Eftir það fór allt á fullt með sveitaböllum um allt land, metsöluplötum og lögum sem urðu stórir smellir. Hér á eftir talar hann um Hálft í hvoru, Bítlavinafélagið, sólóferilinn og samstarfið og vináttu við Stefán Hilmarsson, Björn Jörund, Björgvin Halldórsson og fleiri.  Hann segir frá Söngvakeppni sjónvarps og Eurovision-ferðum sínum, þar á meðal ótrulegu kvöldi með Mel Gibson í Dublin. Hann rifjar upp hvernig lög eins og „Ég lifi í draumi“, „Nína“ og „Álfheiður Björk“ urðu til. Hann segir líka frá því sem hefur gengið á undanfarna áratugi í tónlistarbransanum, nýju plötunni og því hvað það er sem heldur honum enn gangandi eftir öll þessi ár í tónlistinni. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
#25 | Birgir Örn Steinarsson og lengsta lyftuferð í heimi með Bubba (seinni hluti)
2026/08/25
Í fyrri hluta viðtalsins við Birgi Örn Steinarsson, BiggaMaus, var farið yfir sögu Maus fyrstu tíu ár sveitarinnar. Biggi hélt þá til London og þar biðu hans ótrúleg ævintýri sem innihéldu alþjóðlega pródúsera og óvænta vináttu við meðlim í The Cure. En þrátt fyrir byrjun sem lofaði góðu náði sólóferillinn ekki þeim hæðum sem Biggi hafði vonað. Platan sem hann varði tveimur árum í að gera floppaði, hann flutti aftur til Íslands, tók þátt í stofnun tímaritsins Monitor og lenti í fjölmiðlastríði við Bubba Morthens sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á feril hans. Eftir mörg ár þar sem ekkert hafði gerst hjá Bigga, ef frá eru taldir örfáir tónleikar með Maus, tók hann þá ákvörðun árið 2021 að fara aftur af stað. Fyrst kom eitt lag, svo annað og síðan heilt nýtt sólóverkefni. Hann fann nýja vinnuaðferð, nýtt fólk, nýtt frelsi og uppgötvaði að hann þurfti engan annan til að geta verið tónlistarmaður. Í seinni hluta viðtalsins ræðir Biggi um ævintýrið í London, íbúðina ótrúlegu sem hann fékk hjá gítarleikara The Cure, Id og erfiðu viðbrögðin við henni og Silvíu Nótt og ferðina til Los Angeles. Hann segir frá því hvernig hann fann aftur leiðina inn í tónlistina, endurvakningu sólóferilsins, stöðunni með Maus í dag, TikTok-ævintýrinu, nýju tónleikahugmyndinni Heima session og því að vera loksins orðinn algjörlega sjálfstæður tónlistarmaður. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
#24 | Birgir Örn Steinarsson og allt um hljómsveitina Maus (fyrri hluti)
2026/08/18
Birgir Örn Steinarsson, BiggiMaus, hefur lengi verið hluti af íslensku tónlistarlífi. Hann stofnaði hljómsveitina Maus sem ungur maður og fór með vinum sínum í gegnum Músíktilraunir, plötuútgáfur, tónleika og tilraunir erlendis. Hann fór líka í gegnum tímabil þar sem allt virtist ganga upp og svo önnur þar sem hljómsveitin og ferillinn voru nálægt því að gliðna í sundur. Í þessum fyrri hluta viðtalsins ræðir Biggi um feril hljómsveitarinnar Maus, pönkið sem hefur fylgt honum alla tíð, upphafið, allar plöturnar, vinsælustu lögin, pressuna sem fylgdi velgengninni, þegar þeir ákváðu að slíta samstarfi um sinn og þegar hann loks sagði upp vinnunni sinni og ákvað að hverfa til London. Þessi þáttur er í boði Skógarbaðanna í Eyjafirði – Forestlagoon.is. Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.

Podcast reviews

Read Popparasögur podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Popparasögur relevant audience podcasts


What do you want to promote?