1896913139
Vísir

Advertise on podcast: Vísir

Categories
This podcast has
22 episodes
Explicit
No
Date created
2026/06/11
Latest episode
2026/09/30
Average duration
61 min.
Release period
4 days

Description

Fréttamenn Vísis setjast niður með áhugaverðu fólki, kafa í málefni líðandi stundar og ræða það sem vekur athygli hverju sinni. Hlaðvarpið sameinar fréttir, mannlegar sögur og menningu í víðum skilningi. Frá stjórnmálum til poppkúltúrs – og öllu þar á milli.

Podcast episodes

Check latest episodes from Vísir podcast


Ís­lensk heimili eigi að geta þolað sárs­aukann
2026/09/30
Það er sársaukafullt að ná aga í ríkisfjármálum og ef eitthvað ríki geti þolað sársaukann sé það Ísland enda standi heimilin mjög vel. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. Þetta er á meðal þess sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir í ítarlegu viðtali við fréttastofu. Umsjón: Elísabet Inga Sigurðardóttir.
Í bóli Bjarnars - Halldór Guðmundsson
2026/09/29
Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, sem sumir myndu segja að sé helsti mafíósi í íslenska bókabransanum, hefur vaðið í það þarfa verk að rita bókmenntasögu Íslendinga frá öndverðu og til vorra daga, hvorki meira né minna. Hann er gestur Í bóli Bjarnars þessa vikuna.
Í bóli Bjarnars - Benedikta Guðrún Svavarsdóttir
2026/09/20
Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman að því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félag um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfjörð. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum dögum
Hitað upp fyrir Bakgarðshlaupið
2026/09/16
Garpur I. Elísabetarson og Tinna Miljevic, sem munu lýsa Bakgarðshlaupinu um helgina, fengu Egil Trausta Ómarsson í spjall þar sem þau ræddu meðal annars um líklegan sigurvegara ofl.
Í bóli Bjarnars - Gísli Marteinn
2026/09/13
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður og vert þarfnast engrar kynningar. Hann er „stórasta“ sjónvarpsstjarna landsins og nú að fara af stað með Vikuna, sem hefur verið flaggskip Ríkissjónvarpsins um árabil. Engan bilbug er að finna á Gísla Marteini, hvorki hvað varðar Vikuna né Café Vest. Gísli hætti sér í ból Bjarnars.
Í bóli Bjarnars - Guðni Th. Jóhannesson
2026/09/06
Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust. Jakob Bjarnar og forsetinn fyrrverandi settust niður á dögunum í bóli Bjarnars.
Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“
2026/08/28
Þótt að Kjartan Sveinn Guðmundsson úr Ungum vinstri grænum og Ármann Leifsson úr Ungu jafnaðarfólki staðsetji sig báðir vinstra megin í lífinu eru þeir ósammála um það hvort Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Kjartan hefur áhyggjur af réttindum verkafólks innan sambandsins og utanríkisstefnu Íslands hvað varðar meðal annars málefni Palestínu. Ármann sér tækifæri í efnahagsmálum, svo sem með upptöku evru, og telur meinlaust að fara í samningaviðræður við ESB.
Ungt hægri fólk tekst á: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“
2026/08/27
Í Vísi að viðræðum tekst ungt fólk sem staðsetur sig hægra megin í stjórnmálum á um það hvort hefja eigi aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. Ungur viðreisnarmaður segir stöðugleika felast í upptöku evru en ungur sjálfstæðismaður segir það á dýru verði keypt „að missa stjórn á okkar peningamálum“. Nei-sinninn segir að hátt í 99 prósent af því sem felist í aðild að Evrópusambandinu liggi fyrir en já-sinninn telur ljóst að það sé „fullt sem hægt er um að semja“.
Snorre Rein - EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“
2026/08/27
Frændur okkar í Noregi fylgjast grannt með atkvæðagreiðslunni á Íslandi 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið, sérstaklega útvegsmenn í Noregi. Snorre Rein, norskur stjórnmálaáhrifavaldur úr röðum sósíaldemókrata, er viðmælandi dagsins í Vísi að viðræðum. Hann segir að viðsnúningur gæti orðið í afstöðu norskra sjávarútvegsmanna til Evrópusambandsins skyldi Ísland ná einhvers konar undanþágum í hugsanlegum aðildarviðræðum.
Margrét Ágústa - Eins og að biðja um að hafa fimmtán menn inni á vellinum
2026/08/26
Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, er gestur dagsins í Vísi að viðræðum. Hún telur að eina leiðin sem íslenskur landbúnaður gæti virkað innan Evrópuregluverks væri með undanþágu frá landbúnaðarstefnu sambandsins eins og hún leggur sig. Það sé ólíklegt að fá það samþykkt, og í raun eins og að biðja um að fá að keppa í fótbolta með fimmtán liðsmenn inni á vellinum, frekar en ellefu.
Þorsteinn Gunnarsson - Íslendingar voru alræmdir í Brussel og lítið traust á milli
2026/08/25
Gestur dagsins er Þorsteinn Gunnarsson, fræðimaður, fyrrverandi rektor HA og síðast en alls ekki síst: varaformaður samninganefndar Íslands á árunum 2009 til 2013. Í ítarlegu samtali fórum við yfir það sem raunverulega fór fram á meðan viðræðunum stóð, hvernig afstöður voru mótaðar, hvernig samskiptum var háttað við ráðherra og framkvæmdastjórnina. Hvernig tók Brussel í kröfur Íslands um þessar margumtöluðu varanlegu undanþágur?
Katrín Júlíusdóttir - Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“
2026/08/24
Katrín Júlíusdóttir var iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur þegar Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu 2009. Hún telur það raunsætt að hafið við Ísland geti orðið „sérstakt stjórnsýslusvæði“ innan ESB, en segja má að Katrín hafi skrifað samningsmarkmið Samfylkingarinnar í sjávarútvegsmálum árið 2001 þegar flokkurinn gerði sérstaka Evrópuúttekt. Hún ræðir við Agnar Má Másson fréttamann um ESB, sjávarútveginn, „gömlu“ Samfylkinguna og fleira í nýjasta þætti af Vísi að viðræðum.
Vilborg Ása Guðjónsdóttir - Undanþága á borði en ekki í orði
2026/08/21
„Ég tel að það sé útilokað að fá varanlega undanþágu frá stefnunni í heild sinni. Hins vegar er spurning um hvort hægt sé að hanna hlutina innan, þannig að við erum de facto með full yfirráð,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir stjórnmálafræðingur og fyrrverandi ritstjóri Evrópuvefsins.   Vilborg Ása er gestur dagsins í Vísi að viðræðum, þar sem Evrópumálin og komandi atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður eru krufin til mergjar. Vilborg var ráðgjafi í alþjóðadeild Alþingis á árunum 2012-2018 og var starfsnemi hjá Evrópuþinginu 2010-2011.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir - „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“
2026/08/20
Verkalýðsforystan er klofin í afstöðu sinni til þess hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágústs. Það breytist nánast ekkert í íslenskri vinnumarkaðslöggjöf með inngöngu í Evrópusambandið, að mati Sonju Ýrar Þorbergsdóttur formanns BSRB, enda löggjöfin að miklu leyti innleidd í gegnum EES. Sonja á erfitt með að skilja hvers vegna fólk haldi að staða og réttindi verkafólks myndu versna til muna með inngöngu, en vill samt ekki fullyrða hvort hún muni batna.
Guðmundur Hálfdánarson - Jón Sigurðsson talaði aldrei um sjálfstæði
2026/08/19
Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur er gestur dagsins en hann hefur helgað stóran part starfsævinnar því að rannsaka þjóðernisvitund Íslendinga og sögu hennar. Hvernig sú merking sem landar leggja í hugtök á borð við fullveldi og framsal á því, hvað Evrópa er í augum okkar og hvort við teljum okkur hluta af henni eður ei. Já, og svo hvað það þýðir eiginlega þegar til kastanna kemur.

Podcast reviews

Read Vísir podcast reviews


0 out of 5
0 reviews

Podcast sponsorship advertising

Start advertising on Vísir relevant audience podcasts


What do you want to promote?

You may also like to advertise on these Podcasts